Morgunblaðið - 23.11.1991, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NOVEMBER 1991
31
j
i
(
«
<
Ein teikninga Jón Óskars.
■ GERÐUBERG, menningar-
miðstöð Reykjavíkur, er að fara
af stað með röð myndlistarsýninga
þar sem leitast verður við að sýna
eitthvað af því markverðasta sem
myndlistarmenn eru að fást við um
þessar mundir. Einnig er þetta
frumtak til þess að auðvelda mynd-
listarfólki að koma verkum sínum
á framfæri. Fyrstur í röðinni er
myndlistarmaðurinn Jón Óskar.
Sýningin stendur frá 25. nóvember
til 7. janúar nk. Sýningin er opin
frá kl. 10-22 mánudaga-fimmtu-
daga og 13-16 föstudaga og laugar-
daga.
■ DR. AUGUSTO Lopez-Claros
| heldur fyrirlestur í boði Baháí-sam-
félagsins mánudaginn 25. nóvem-
ber. Fyrirlesturinn verður haldinn í
Hvammi, Holiday Inn, kl. 16.30
og fjallar um samvinnu Evrópuríkja
í ljósi aukinnar alþjóðlegrar sam-
vinnu. Fyrirlesturinn verður fluttur
á ensku án þýðingar. Almennar
umræður verða að fyrirlestrinum
loknum. Fyrirlesturinn er öllum
opinn. Augusto Lopez-Claros er
hagfræðingur við Evrópudeild Al-
þjóða gjaldeyrissjóðsins í Washing-
ton D.C. þar sem hann hefur m.a.
fengist við málefni Spánveija. Aug-
usto er frá Bólivíu, tók próf í stærð-
fræðilegri tölfræði við Háskólann í
Cambridge 1977 og lauk doktors-
prófi í hagfræði vð Duke-háskólann
í Bandaríkjunum 1981. Hann
kenndi stærðfræði við Háskólann í
Bólivíu 1975 og 1978 eða þar til
hann tók til starfa hjá gjaldeyris-
sjóðnum. í Chile stundaði hann
rannsóknir á efnahagslegum afleið-
ingum ofneyslu áfengis.
■ BLÚSBARINN Café, Lauga-
vegi 73, hefur að undanförnu boðið
upp á kynningu á tónlistarmönnum
frá fímmtudegi til sunnudags. Á
fimmtudags- og sunnudagskvöldum
er boðið uppá djass en blús á föstu-
dags- og laugardagskvöldum. Þessa
helgi á Blúsbarnum troða upp tveir
fulltrúar blúsins í Reykjavík, þ.e.
hljómsveitin Crossroads á föstu-
dagskvöldið og Red House á laug-
ardagskvöldið.
(Ur fréttatilkynningu.)
■ TÓNLEIKAR verða í Kirkju-
hvoli í Garðabæ sunnudaginn 24.
nóvember kl. 15. Kennarar Tónlist-
arskólans í Garðabæ flytja tónlist
af ýmsu tagi, sem kynnt verður
jafnóðum. Á eftir verður boðið upp
á kaffi og kökur. Flytjendur eru
Pétur Jónasson gítarleikari, David
Knowles píanóleikari og Sean
Bradley fiðluleikari. Þau leika og
syngja tónverk eftir Handel, Dow-
Iand, Manuel de Falla, Tarrega
og Eyþór Þorláksson.
-------*-*-i------
Leiðrétting
Vegna fréttar í Morgunblaðinu
þann 21. nóvember um Hvíta víking-
inn vill F.I.L.M. koma því á fram-
færi að myndin var samin sem þátta-
röð fyrir sjónvarp en ekki sem lang-
mynd fyrir kvikmyndahús. Lang-
mynd hefði verið unnin uppúr þátt-
unum þegar gerð þeirra var lokið.
í umtalaðri frétt segir að uppi sét
hugmyndir um að gera nokkra sjón-
j varpsþætti byggða á efni myndar-
innar.
i
■ AFMÆLISFUNDUR Sam-
taka sykursjúkra verður haldinn
í morgunverðarsal Hótel Sögu á
mánudag 25. nóvember kl.—20, í
tilefni _af 20 ára afmæli samtak-
anna. Á fundinum verða flutt stutt
erindi, lifandi tónlist og kaffi og
meðlæti borið fram í boði samtak-
anna. í tilefni dagsins verða þrír
félagar gerðir að heiðurfélögum í
Samtökum sykursjúkra. Þá hafa
samtökin undanfarin ár safnað fé,
sem nú verður fært göngudeild
Landsspítala, barnadeild .og
augndeild Landakotsspítala að
gjöf.
■ IÐUNN hefur gefið út mynd-
skreytta bamabók eftir danska rit-
höfundinn Klaus Rifbjerg. Bókin
heitir Þegar Óskar varð æfur og
segir sagan frá því þegar Óskar litli
á að fara í leikskóla í fyrsta sinn.
Óskar kemst að því smátt og smátt
að fátt er svo með öllu illt að ekki
boði nokkuð gott. Bókin er prýdd
teikningum eftir Irene Hedlund.
Þórgunnur Skúladóttir þýddi.
Teiknimyndasagan um Samma og
Kobba vin hans er komin út og
nefnist þessi ellefta bók í flokknum
Prímadonnan. í kynningu segir
að verkefnaskortur hafi staðið
Samma og Kobba fyrir þrifum um
hríð. „En kvöld nokkurt ber að
dyrum hjá þeim tötraleg stelpukind
sem óskar eftir vernd þeirra. Stúlk-
an reynist verða forrík og fögur
óperusöngkona og fyrr en varir
mega Sammi og Kobbi hafa sig
alla við að verja hana fyrir ágengn-
um fréttamönnum og frávita von-
biðlum.” Bjarni Fr. Karlsson
þýddi. Iðunn hefur einnig gefið út
nýja bók í flokknum um Sval og
félaga og nefnist hún Svalur í
Moskvu. I kynningu Iðunnar segir:
„Enn á ný lenda þeir félagarnir
Svalur og Valur í óvæntum ævintýr-
um, og ekki öllum jafnþægilegum.
Þeir eru á leiðinni til Honululu í frí
þegar þeim er rænt og fyrr en var-
ir eru þeir fiæktir í mál sem leysa
þarf í fjarlægu landi. En þeir láta
ekki deigan síga frekar en vana-
lega.” Bjarni Fr. Karlsson þýddi.
Þá hefur Iðunn gefur út bókina
Hver bjó mig til? eftir Malcolm
og Meryl Doney. í kynningu útgef-
anda segir m.a.: „Þetta er bók fyr-
ir lítil börn sem oft spyija stórra
spurninga og ein af þeim mikilvæg-
ustu er einmitt spurningin: Hver
bjó mig til? í bókinni er þessari
erfiðu spurningu svarað á máli sem
börnin skilja og sagt af nærfærni
og hreinskilni frá tilurð nýs lífs og
fjölgun í fjölskyldunni.”
■ ÚT ER komið hjá Máli og
menningu smásagnasafnið Aust-
urlenskar sögur eftir frönsku
skáldkonuna Marguerite Yourc-
enar, í þýðingu Thors Vilhjálms-
sonar. Marguerite Yourcenar
(1903-1987) var ein kunnasta
skáldkona Frakka á öldinni og fyrsf
kvenna til að vera kosin í frönsku
akademíuna. Þessar austurlensku
sögur sem Yourcenar lætur gerast
fyrir löngu síðan í Kína, Japan,
Indlandi eða Balkanlöndum virðast
óháðar stund og stað. Þótt hver og
ein sé gluggi að heillandi heimi hins
íjarlæga austurs fjalla þær allar
um ástríður manna sem breytast
aldrei, afrek þeirra og afglöp, segir
í kynningu útgefanda. Bókin er 110
bls., prentuð í Prentsmiðjunni Odda
hf. Kápu gerði Robert Guillemette.
■ FÚNDUR um kjaramál Fós-
trufélags íslands felur samninga-
nefnd félagsins að fylgja fast eftir
kröfugerð félagsins. I ályktun fund-
arins er þess krafíst að „viðsemj-
endur félagsins, ríki og sveitarfélög
axli þá ábyrgð að ganga strax til ^
samninga um verulegar leiðrétting-
ar á launum fóstra, enda 3 mánuð-
ir liðnir frá því að samningar runnu
út”.
Viö eigum dúka
á hvers
manns gólf
Línóleumgólfdúkar í meira en 20 litum.
• Vinýlgólfdúkar í meira en 100 gerðum.
• Dúkarnir fást 2ja, 3ja og 4ra metra breiðir.
Láttu afgreiðslumenn okkar gefa þér góð ráð um
val á gólfdúk, lagningu og mynsturmöguleika.
• Opið iaugardaga 10-14.
• •
Teppaland
-fagmennfram ífingurgóma
Grensásvegi 13, sími 813577