Morgunblaðið - 23.11.1991, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1991
43
í lokin komu allir þeir sem þátt tóku í sýningunni fram á svið og fyrir miðju á myndinni er kynnir
kvöldsins Bjarni Stefánsson.
SiSSrf
Ungmennafélagið Is-
lendingur 80 ára
Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson' -
Meðal annars sem sýnt var, var heimatilbúin leikþáttur sem unnin
var í framhaldi af leikritinu Síldin kemur, síldin fer sem sýnt var á
sl. ári. Fjallaði hann um afdrif persónanna sem þar komu fram.
Hvannatúni í Andakíi.
Ungmennafélagið íslendingur
bauð til veglegrar kvöld-
vöku laugardagskvöldið 9. nóv-
ember að Brún. Tilefnið var 80
ára afmæli félagsins hinn 12.
desember og dagur Bandalags
íslenskra leikfélaga.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á síöum Moggans! y
Formaður ungmennafélagsins,
Jón Gíslason, setti samkomuna og
gerði grein fyrir tilefninu. Skemmti-
atriði voru öll heimasamin, flest
frumsamin. Leikdeild félagsins sá
um kvöldvökuna og komu um 30
til 40 félagar á einhvern hátt að
Hjartanlegar þakkir til allra þeirra, sem glöddu
migá85 ára afmœlisdaginn þann 16. nóvember..
ÓlöfSveinhildur Helgadóttir.
Magnús L. Sveinsson
Gylfi Arnbjörnsson
Þórólfur Matthíasson
Ásmundur Stefánsson
mmm
FELAGSFUNDUR
Þýðir hækkun lægstu
launa verðbólgu?
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur fræðslufund
um kjaramál að Hótel Loftleiðum þriðjudaginn 26. nóv.
n.k. kl. 20.30.
Þar verður m.a. leitað svara við eftirfarandi atriðum:
* Hver hefur launaþróunin verið hér miðað við önnur
lönd?
* Hvert stefnir í þróun launabils milli kynjanna?
* Hvernig virka umsamin laun á verðbólgu?
* Eru lægstu launin það eina sem veldur verðbólgu?
* Valda launahækkanir, sem vinnuveitendur ákveða
einhliða, ekki verðbólgu?
* Valda launagreiðslur í yfirvinnu ekki verðbólgu?
* Veldurfjármagn, sem varið er í óarðbæra fjárfestingu
ekki verðbólgu?
Ræðumenn verða:
Magnús L. Sveinsson, formaður V.R.
Gylfi Arnbjörnsson, hagfræðingur
Kjararannsóknarnefndar
Þórólfur Matthíasson, lektor
Ásmundur Stefánsson, forseti A.S.Í.
Fundarstjóri: Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir,
stjórnarmaður í V.R.
Sigurlaug Sveinbjörnsd.
Félagsfólk er hvatt til að mæta
áfundinn.
Verið virkíV.R.
VERZLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR
sýningunni. Mikið var sungið, í
kvartettum, ieikþáttum og söngleik.
Bjarni Guðmundsson æfði söngv-
ana og lék undir. Húsfyllir var í
Brún og öllum sem fram komu
klappað óspai-t lof í lófa.
D.J.-
/ tilefni af sjötugsafmœli mínu vil ég senda
öllum, sem glöddu mig á einhvern hátt, alúðar-
þakkir.
Guð blessi ykkur öll.
Ágústa Eiríksdóttir.
Ég vil af heilum hug þakka öllum þeim fjöl-
mörgu, sem glöddu mig á margvíslegan hátt á
áttrœðis afmœli minu.
Guð blessi ykkur öll.
Gísla S. Kristjánsdóttir,
Teigi, Hvammssveit,
Dalasýslu.
Auglýsing
Blómleg viðskipti í Kolaportinu.
Kolaportið sífellt vinsælla;
„ Jákvætt mannlíf og
enginn barlómur”
Um hverja helgi njóta tugþúsundir gesta skemmtilegrar mark-
aðsstemmningar í Kolaportinu og vinsældir þess fara stöðugt
vaxandi. Mannlífið er fjölskrúðugt og seljendurnir ekki síður,
og allir virðast skemmta sér konunglega.
„Ástæður þessara vinsælda eru
margþættar,” segir Jens Ingólfs-
son, framkvæmdastjóri mark-
aðstorgsins. „í Kolaportinu er
lítið um marmara og pálmatré
en þess meira af mannlegri hlýju
og jákvæðu hugarfari. Fólk fær
hér vissulega meira fyrir pening-
ana sína en líka einhverjar
óáþreifanlegar, góðar tilfinning-
ar og þær eru svo sannarlega
mikils virði.
í Kolaportinu sjáum við einstakl-
ingsframtakið í sinni bestu
mynd. Seljendurnir eru af öllu
tagi, frá öllum landshornum, úr
öllum starfsstéttum og á ölíum
aldri, en eiga það sameiginlegt
að vera duglegt framkvæmda-
fólk sem er að gera eitthvað í
málunum, hvort sem það eru
félagasamtök að safna fyrir
lækningatækjum, skólafólk að
safna fyrir útskriftarferðinni,
fjölskyldur að hreinsa úr komp-
unni, handverksfólk að selja
framleiðslu sína eða kaupmenn
að auka umsvifin. Þetta fólk er
líka blessunarlega laust við
þennan barlóm, sem maður verð-
ur alltof mikið var við í þjóðfélag-
inu.”
í kolaportinu eru nú um 300
sölubásar hverja helgi og vöruúr-
valið ótrúlega mikið. „Við höfum
þá einföldu reglu, að hér má
hver sem er selja hvað sem er,
svona innan ramma laga og vel-
sæmis,” segir Jens. „Við spyijum
fólk þó alltaf hvort það ætli að
selja einhver matvæli og gerum
þá kröfu, að farið sé eftir <
ströngustu reglum Heilbrigði-
seftirlitsins. Fólk þarf engin önn-
ur leyfi og flestir venjulegir selj-
endur eru t.d. undanþegnir virð-
isaukaskatti, þannig að það þarf
ekkert nema smá framtakssemi
til að slást í hópinn.”
Kolaportið er opið laugardaga
frá kl. 10-16 og sunnudaga frá
kl. 11-17.