Morgunblaðið - 23.11.1991, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NOVEMBER 1991
49
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
B91282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
„Til presta” svarað
Greininni
Jesús sjálfur varar okkur í guð-
spjallinu við djöflinum: ,,Hann er
lygari, lyginnar faðir. I honum
fínnst enginn sannleikur. Þegar
hann lýgur fer hann að eðli sínu.”
(Jóh., 8,44). Við vitum þá, að allt
sem hann segir við Evu, er lygi.
Hann segir: „Jafnskjótt sem þið
etið af epli munuð þér verða eins
og Guð og vita skyn góðs og ills.”
Lygi, því að Adam og Eva vissu
þegar „skyn góðs og ills” og þau
þekktu líka refsingu við óhlýðni.
Eva sjálf minnir djöfulinn á boðorð
Guðs: „af ávexti trésins sem stend-
ur í miðju megið þið ekki eta ...
ella munuð þér deyja.” Vissi hún
þá hvað hún mátti og hvað hún
mátti ekki? Jú. Þá var það fyrir
hana skilgreint. Og var hún sköpuð
með samvisku? Hún sýnir það, þeg-
ar hún játar að vita hvað hún má
ekki. Var það þá ekki lygi djöfuls-
ins, að hún átti að eta epli til að
öðlast skyn góðs og ills? Auðvitað.
Og hvers vegna át hún á móti sam-
visku sinni? Svarið er auðvelt. Hún
gerði það, sem við sjálfir alltaf ger-
um, þegar við syndgum: Hún kæfði
rödd samviskunnar sinnar. Sagan
segir okkur, hvernig hún var tæld
og svikin: „Hún sá að tréð var gott
að eta af, fagurt á að líta og girni-
legt til fróðleiks.”
Syndin óhlýðni Adams og Evu
var því verri, því að þau voru sköp-
uð með betri skilgreiningu en við,
sem erum nú veikari í freistingum.
Allar spumingar efasemdarmanns
hafa svarið ef við skiljum að orð
djöfulsins: „Þér munuð vita skyn
góðs og ills” eru lygi. Efasemdar-
maðurinn hefur það ekki séð og
Ég vil taka undir orð þess sem
harmaði að biskupsstofa skyldi ekki
þekkjast heimboð páfans í Róm, til
handa biskupi íslands, vegna sparn-
aðar. Þetta hefði verið einstakt
tækifæri til að endurgjalda páfa
þann hlýhug er hann sýndi með
heimsókn sinni hingað. Of lengi
hafa kaþólskir og mótmælendur
borist á banaspjót til þess að við
gerir þess vegna sömu mistök og
Eva. Hann trúir að það hafí verið
nauðsynlegt að eta epli, til að greina
„rétt frá röngu og illt frá góðu”.
Adam og Eva þekktu greinilega
lögmál Guðs og Páll postuii segir:
„Fyrir lögmál kemur þekking synd-
arinnar.” (Róm., 3,20.) Þess vegna
vissu þau að óhlýðni þeirra var synd
á móti góðum Guði, sem hafði ver-
ið mjög gjafmildur við þau.
Lesandi
tækjum ekki feginsamlega fengn-
um tækifærum til að eyða tor-
tryggni á milli þessara trúarhópa.
Við höfum í raun sömu trú og sömu
lífsskoðanir, einungis umgjörðin er
önnur. Látum stjórnmálamönnum
eftir að berja sér á btjóst fyrir að
spara eyrinn á meðan þeir kasta
krónunni.
Þjóðkirkjumaður
HEIMBOÐ PÁFA
Þessir hringdu . .
Mikilvægt að kanna verð
Neytandi hringdi og sagðist
hafa fengið menn til þess að setja
saman sjónvarpskapal. Verkið
tók um 20 mínútur og reikning-
urinn hljóðaði upp á liðlega sjö
þúsund krónur. Honum fannst
þetta dýrt og hringdi í nokkur
fyrirtæki og kannaði hvað þau
hefðu tekið fyrir sama verk og
var það á bilinu 3.500-5.000
krónur. Þessi maður vildi því ein-
dregið beina því til fólks að kynna
sér verð áður erí menn væru kall-
aðir á staðinn.
Guliarmband
Gullarmband tapaðist mið-
vikudaginn 20. nóv., sennilega
fyrir utan verslunina Blóm og
ávexti. Tjónið er afar tilfinnan-
legt fyrir eigandann. Finnandi
vinsamlega hringið í síma 26362.
Fundarlaun í boði.
Trúmálaumræða
H.S. vildi benda fólki á sem
væri að kvarta yfir því að allir
væru sjálfkrafa skráðir í þjóð-
kirkjuna að það væri nauðaein-
falt að skrá sig úr henni. Allt og
sumt sem fólk þyrfti að gera
væri að labba inn á Hagstofu
Islands og breyta þessu.
Hefur ekki sótt stólinn
Kona sem keypti djúpan stól
á flóamarkaði til styrktar ka-
þólsku kirkjunni í Hafnarfirði er
vinsamlegast beðin að vitja hans
þar sem hún var búin að borga
fyrir hann. Hún getur hringt í
Rósu í síma 51344. Þeir sem
stóðu að flómarkaðnum vilja
einnig koma á framfæri þakklæti
til allra þeirra sem sóttu markað-
inn og ekki síst til þeirra sem
gáfu hluti á hann.
Hvað er gert við áfengi?
H.Kr. vildi koma eftirfarandi
á framfæri: „Okkur er sagt að
áfengisneysla á íslandi hafi ekki
vaxið síðustu ár þrátt fyrir bjór-
inn. Fyrir þessu eru læknar í
Vogi bornir. Þar sem fyrir liggur
að ATVR hefur aukið áfengissölu
um nálæga 20% frá árinu 1988
spyija menn nú: Hvað hefur orð-
ið um þessa 20% viðbót?
Ekki sterk-
ustu menn
Ég er talsvert undrandi í sam-
bandi við þessa þijá náunga sem
nú eru orðnir heimsmeistarar í
kraftlyftingum og enn meiri undr-
un vekur að Magnús Ver Magnús-
son skuli vera talinn einn af sterk-
ustu mönnum heims. Hvílík fjar-
stæða, þessir kraftlyftinganáung-
ar eftir margra ára þjálfun renna
vatni undir og rétta sig upp með
sirka 700 pund, 350 kg, miðað við
alsterkustu menn á þessari öld,
þá er þetta ekkert sérstakt átak.
Það eru til óæfðir menn til dæmis
hér á íslandi sem geta leikið þetta
eftir. Ég ætla nú að fara aftur í
tímann og nefna tvö kraftaafrek
sem Þjóðveijinn Hermann Görner
vann í þýsku borginni Dresden
árið 1926. Annað afrekið var að
hann stóð undir þyngd á hægri
öxl, sem var 500 kg, hitt afrekið
var að hann tók á bakið píanó sem
var 740 kg að þyngd og bar það
nokkra metra. Eg hef ekki heyrt
að búið sé enn í dag að slá þessi
afrek hans út. Eitt kraftaafrek
vann hann á aflraunasýningu í
London en það er hægt að finna
um það í heimsmetabók Guinness.
Þorgeir Kr. Magmússon
Jólastjörnur - okkar verð
Jólastjarna 1. fl. kr. 750,-
Jólastjarna 2. fl. kr. 695,-
Jólastjarna (mini) kr. 295,-
Stöndumst verósamanburó!
Blómahöllin, Kópavogi, sími 40380
Blómastof an, Kringlunni, sími 681222
Blómastofan, Eióistorgi, sími 611222
Blómaverkstædi Binna, Skólavörðustíg 12, sími 19090
Bændaskólinn á Hvanneyri
Innritun á vorönn er hafin
Athygli er vakin á því, að unnt er að hefja nám í
Bændaskólanum á Hvanneyri um áramót.
Fyrsta önn hefst 6. janúar.
Stúdentar, sem tara styttri leiö, geta tiafið aám í janúar, apríl eöa júní.
Kennsla á 5. önn hefst 6. janúar, búfræðingar halið samband.
Námið skiptist í fjórar annir, þar af ein verkleg á
viðurkenndu býli. Á síðustu önn er kennt á tveim-
ur sviðum: Búfjárræktarsviði og rekstrarsviði.
í undirbúningi er þriðja sviðið: Landnýtingarsvið.
Dæmi um valgreinar, kenndar veturinn 1991-
1992: Hrossarækt, ullariðn, skógrækt, vinnuvélar,
búsmíði, sláturhúsastörf, ferðaþjónusta o.fl.
Við veitum upplýsingar í síma 93-70000.
Umsóknarfrestur er til 10. desember 1991.
Bændaskólinn á Hvanneyri
311 Borgarnesi.
OORÐSTOFUHUSGOGN
Nýkomin dönsk, sænsk og ítölsk borðstofuhúsgögn.
Mikið úrval.
Borð + 4 stólar, kr. 35.700,- stgr.
Visa - Euro raðgreiðslur
OPIÐ í DAG TIL KL. 16
SUNNUDAG FRÁ KL. 14-16
□□□
HÚSGAGNAVERSLU N
REYKJAVÍKURVUGI 66 HAFMARFIRÐI- - SIM1 5*» í-00--