Morgunblaðið - 23.11.1991, Síða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1991
KORFUKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Reynsla fyrir
landsliðsmenn
framtíðarinnar
- sagðiTorfi Magnússon, landsliðs-
þjálfari, um Bandaríkjaferðina
ISLENSKA landsliðið í körfu-
knattleik kom heim í vikunni
eftir hálfs mánaðar æfinga- og
keppnisferð í Bandaríkjunum.
Hópurinn fór á milli háskóla,
ók um 4.000 km, lék við sjö
háskólalið og tapaði fyrir öll-
um. „Við höfum sjaldan leikið
gegn svona sterkum háskóla-
liðum síðan árið 1973,” sagði
Torfi Magnússon, landsliðs-
þjálfari, við Morgunblaðið.
„Fimm þessara liða eru í 1.
deild og þarfyrir utan mættum
við menntaskólaliði, sem er
talið vera það besta í Banda-
ríkjunum. Því áttum við aldrei
möguleika gegn þesum liðum.”
Ferðin var skipulögð af fyrirtæki
ytra og greiddi það kostnað-
inn. Þegar á reyndi gat Torfi ekki
farið með sterkasta liðið og vantaði
marga af máttarstólpunum, en
þjálfarinn sagði að ferðin hefði samt
skilað miklu. '
Mikilvæg verkefni í vor
Landsliðið æfði vikulega fyrir
Bandaríkjaferðina, en vegna þess
hve þétt verður leikið í íslandsmót-
inu verður undirbúningur í iág-
marki fram að verkefnunum í vor
— Norðurlandamótinu í Osló í maí,
Evrópukeppni smáþjóða á Kýpur í
júní og forkeppni Olympíuleikanna
í Barcelona skömmu síðar. Torfí
sagði að því yrði að treysta á féfög-
in og leikmennina sjálfa, en vegna
mikils álags væri ekki hætta á að
menn yrðu æfingalausir. „Það er
helst að menn gera aldrei nógu
mikið af því að styrkja sig, lyfta
ekki nóg, en þolið hefur hingað til
verið í lagi.”
íslandsmótið hefst á ný á morg-
un, en landsliðið kemur næst saman
milli jóla og nýárs. Þá verða þrír
landsleikir við Pólveija hér á landi.
Magnús Matthíason var jafnbestur í ferðinni og jafnframt stigahæstur.
HANDKNATTLEIKUR
Dómaranámskeið Kjartans
á Kýpur heppnaðist vel
Að námskeiðinu loknu. Lengst til vinstri er fulltrúi ólympíunefndar Kýp-
ur, þá Uirich Weilar, Kjartan Steinbach og til hægri er S. G. Sofronoles, formað-
ur Handknattleikssambands Kýpur.
Magnús bestur
„Ég fór með unga og efnilega
leikmenn, sem eru allir landsliðs-
menn framtíðarinnar. Því var þetta
stórkostleg reynsla fyrir þá, sem á
eftir að skila sér. Við hefðum
kannski getað staðið betur í mót-
herjunum með sterkasta liðið, en
þetta var gott fyrir strák'ana, sem
léku.” Hann sagði að Magnús Matt-
híason hefði verið jafnbestur í öllum
leikjunum, en hann var jafnframt
stigahæstur. Guðmundur Bragason
hefði komið vel út í byijun og Bárð-
ur Eyþórsson hefði leikið mjög vel,
en það hefði háð liðinu að Pálmar
Sigurðsson meiddist snemma í ferð-
inni. Torfi sagði að leikimir hefðu
farið fram í íþróttahöllum, sem
..hefðu allar tekið fleiri en 10.000
áhorfendur, en 2.000 til 8.000 hefðu
mætt á leikina.
Leikirnir fóru fram á undirbún-
ingstímabili liðanna fyrir háskóla-
keppnina, en Torfi sagði að þau
hefðu tekið leikina alvarlega, því
mikið væri í húfí. „Breiddin er ótrú-
lega mikil í þessum háskólaliðum
og því eru margir að beijast um
stöðurnar. Það vilja allir sanna sig
og því eru æfingaleikir á þessum
tíma mikilvægir.”
Kjartan K. Steinbach, sem er
einn 12 alþjóðlegra kennara
dómaranefndar Alþjóða handknatt-
leikssambandsins (IHF), var með
viku dómaranámskeið á vegum IHF
á Kýpur á dögunum, en ólympíska
samhjálpin stóð straum af öllum
kostnaði. 25 dómarar sóttu nám-
skeiðið og þar á meðai var a-par
Kýpurmanna og bæði b-pör þeirra.
Á sama tíma var Þjóðveijinn Ulrich
Weiler, þjálfari Dússeldorf, sem
Héðinn Gilsson leikur með, með
þjálfaranámskeið og sóttu það 12
manns.
Kjartan sagði að námskeiðið
hefði heppnast afar vel. „Kýpur-
menn eru c-þjóð í handknattleik en
uppbyggingin er hröð á öllum svið-
um og þeir eru greinilega á réttri
leið. Sum dómarapörin eru mjög
góð. Ég sá til dæmis fyrsta b-parið
dæma leik og það er par, sem myndi
sóma sér vel í 1. deildinni hjá okk-
ur.”
Kjartan hefur kennt víða á dóm-
aranámskeiðum, t.d. í Belgíu og
Uganda. Handbolti var fyrst grein
á Ólympíuleikum árið 1972, en
nokkrum árum síðar fór óiympíska
samhjálpin að styrkja fræðslumál í
sambandi við íþróttina eins og hún
gerir í öllum greinum, sem keppt er
í á Ólympíuleikum.
íttémR
FOLK
■ RÚMENSKA handknattleiks-
skyttan Zaliaria, sem leikur með
Drott, sleit krossbönd í hné í æf-
ingaleik með rúmenska landsliðinu
í Búlgaríu á dögunum. Hann mun
ekki leika meira með sænska meist-
araliðinu í vetur.
■ DROTT saknaði Zaharia illi-
lega þegar félagið tapaði stórt,
21:32, Savehof um sl. helgi. Eftir
ellefu umferðir er úrvalsdeildinni
er Karlskrona með 17 stig, en síð-
an koma Ystad og Drott með 16
stig. Saab 15 og Skövde með 13
stig.
Um helgina
HANDKNATTLEIKUR
I. deild karla:
Laugardagur:
Digranes, UBK - ÍBV.......16.80
Garðabær, Stjarnan - Fram.16.30
Kaplakriki, FH - Valur....16.30
Sunnudagur:
Höll, Víkingur - Grótta.....,20
1. deild kvenna:
Höll, Fram - Stjarnan.....15.30
Mánudagur:
Vestm., IBV - FH.............20
KÖRFUKNATTLEIKUR
Sunnudagur:
Japísdeild:
Seltjn., KR - Haukar.........20
Hlíðarendi, Valur - UMFN.....20
Akureyri, í>ór - Snæfell.....20
Keflavík, ÍBK - Skallagrímur.20
Grindavík, UMFG - UMFT.......20
1. deild kvenna:
Hagaskólj, KR - Haukar......14
Keflavík, IBK - ÍR...........18
Grindavík, UMFG - ÍS.........18
BLAK
Laugardagur:
Karlar:
Hagaskóli, Þróttur R. - KA...14
Konur:
Hagaskóli, ÍS - Völsungur.15.15
Höfn, Sindri - HK...........14
Sunnudagur:
Víkin, Víkingur - Völsungur..14
SUND
Bikarkeppnin í sundi, sem hófst í
gær, verður fram haldið í Sundhöll
Reykjavíkur í dag og á morgun. í
dag hefst keppni kl. 15, en kl. 13.30
á morgun.
VEGGTENNIS
Önnur umferð Bylgjumóts, Vegg-
tennisfélags Reykjavíkur hefst i dag
með keppni í icvennaflokki kl. 13.
B-mót karla verður á morgun kl. 12.
Fjórir efstu mennfara í A-flokk, en
A-mótið verður 1. desember á sama
tíma.
BADMINTON
Unglingameistaramót Reykjavfk í
badminton fer fram hjá TBR um
helgina. Keppni hefst kl. 14 í dag,
en kl. 10 á morgun. Keppt verður í
öllum greinum og flokkum unglinga.
KRAFTL YFTIN G AR
Opna FH-mótið í kraftlyftingum
fer fram í íþróttahúsi Viðistaðaskóla
i Hafnarfirði í dag kl. 12 til 16. Vikt-
un verður í GYM 80 kl. 10.
GLÍMA:
Grunnskólamót Reykjavíkur fer
fram i Laugardalshöll kl. 16 í dag.
Rétt til þátttöku hafa nemendur
4.-10. bekkjar grunnskóla í Reykja-
vík. Skráning á staðnum.
Skeljungurhf.
Etnkaumbod Q'v Shf"ÍoJ/|ri \s
Víkingur - Grótta
í Víkinni annað kvöld kl. 20.00
Ársmidahafar athugiö: Stofnfundur Víkingasveitarinnar
verður miðvikudagskvöld kl. 21.30 eftir leikinn Víkingur - FH.
Áfram Víkingur
Skeljungurhf.
t ÁkfnJnÖod fjtrír ‘éhffZi oh/ a 's\v;
f
!;! I! í1211! f-f S'!!'! !i í *! f í! i f f! HI ! Ht! í!:! giaaMÍttlÍfMMMMIHIWIillSftSSasaritláa s-ií ■ ^
ilövil } 02 míHiltjljl 'iíi'ayv