Morgunblaðið - 08.01.1992, Síða 19

Morgunblaðið - 08.01.1992, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1992 19 ■ BERLÍN - Ericli Honec- ker, fyrrum leiðtogi Austur- Þýskalands, og kona hans Mar- got, sem leituðu hælis í sendi- ráði Chile í Moskvu til þess að komast hjá því að verða fram- seld til Þýskalands, hafa krafist þess að fá eftirlaun frá þýska ríkinu og í því sambandi leitað á náðir dómstóls i Berlín. Greiðslurnar voru stöðvaðar er sovétherinn flutti hann með leynd til Moskvu í mars í fyrra til þess að hann yrði ekki dreg- inn fyrir rétt en hann á yfir höfði sér ákæru fyrir að hafa fyrirskipað að þeir sem reyndu flótta yfir Berlínarmúrinn yrðu skotnir. ■ HANOI - Talið er að 220 manns að minnsta kosti hafi týnt lífi í fárviðri við austur- strönd Víetnams 28. desember sl., að því er embættismenn skýrðu frá í gær. Vitað er um 139 látna en 81 er enn saknað. Flestir hinna látnu eru sjómenn sem voru á hafi úti er óveðrið gekk yfir. Mörg hundruð manns við sjávarsíðuna misstu heimili sín en eignatjón í óveðinu er álitið vera jafnvirði 60 milljóna ÍSK. ■ PARÍS - Leiðtogi Jafn- aðarmannaflokksins í Frakk- landi, Pierre Mauroy, sagðist í gær hafa ákveðið að segja af sér og láta af flokksfor- mennsku á morgun, fímmtudag. Mikil valda- barátta á sér nú stað innan flokksins milli yngri manna, m.a. um nýtt forsetaefni því ekki er gert ráð fyrir að Francois Mitterrand Frakk- landsforseti verði í kjöri þegar næstu forsetakosningar fara fram 1995. Hermt er að fylk- ingarnar hafi komist að mál- amiðlun sem feli í sér að Laur- ent Fabius, forseti franska þingsins og fyrrum forsætisráð- lierra, taki við flokksfor- mennskunni og í staðinn verði Michel Rocard tilnefndur for- setaframbjóðandi flokksins við forsetakosningarnar. Samkom- ulagið virðist draga úr mögu- leikum Jacques Delors, forseta framkvæmdastjórnar Evrópu- bandalagsins, á að hljóta til- nefningu. ■ HONG KONG - Þremur kanadiskum þingmönnum, sem fóru til Kína til þess að kynna sér ástand mannréttinda- mála þar, var vísað úr landi í gær og þeir voru sendir til Hong Kong. Þingmennirnir ræddu við fjölskyldur kínverskra andófs- manna en voru stöðvaðir í gær- morgun á leið til fangelsis þar sem stjórnarandstæðingum er haldið. „Þetta var ekkert annað eri mannrán. Um 100 manna her- og lögreglulið sat um bif- reið okkar og beitti okkur fanta- brögðum. Við vorum fluttir nauðugir út á flugvöll og settir um borð í næstu flugvél úr landi," sagði einn þingmann- anna. Reuter Japanskir hægrimenn efndu til mótmæla í Tókíó vegna heimsóknar George Bush Bandaríkjaforseta til Japans í gær. Á myndinni má sjá einn þeirra með grímu sem líkist Bush. EBflytur Brussel. Frá Kristófcr M. Krislinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Skrifstofulið Evrópubandalags- ins tók sig upp um jólaleytið og flutti um set úr Berlaymont-bygg- ingunni sem hefur hýst höfuð- stöðvarnar um árabil í Brusscl. Framkvæmdastjórn bandalagsins tók ákvörðun um að rýma bygging- una síðastliðið vor vegna þess að hún væri hættuleg heilsufari þeirra sem í henni störfuðu. Belgísk stjórnvöld hafa ákveðið að endurbyggja húsið þvert ofan í óskir EB en þar á bæ vildu menn byggja nýtt hus. Flutningarnir hafa staðið frá því í byijun desember og búist er við því að síðustu starfsmennirnir af þeim fjögur þúsund sem störfuðu þar verði fluttir út fyrir 15. janúar. Það kom í hlut Belga að finna viðunandi húsnæði fyrir starfsmennina og hef- ur þeim verið fundinn samastáður á tólf stöðum í borginni. Flutningarnir sjálfir kostuðu sem svarar rúmlega 70 milljónum ÍSK en aðsetursskiptin í heild tæplega 6,5 milljarða ÍSK. Framkvæmda- stjórnin hefur ekki gefið belgískum stjórnvöldum endanlegt vilyrði fyrir því að flytja aftur í bygginguna að endurnýjun lokinni en reiknað er með því að hún verði tilbúin eftir fjögur ár. Bush knýr á Japani um aukinn innflutning frá Bandaríkjunum; Kveðst ekki sætta sig við mála- myndaaðgerðir af hálfu Japana Tokyo, Seoul. Reuter, The Daily Telegraph. FJOGURRA daga heimsókn George Bush Bandaríkjaforseta til Jap- ans hófst í gær og forsetinn lagði ríka áherslu á að stefna bæri að auknu frjálsræði í viðskiptum rikjanna. Litið er á heimsóknina sem upphafið að baráttu Bush fyrir endurkjþri og hann hyggst knýja á japönsk stjórnvöld um að draga úr viðskiptahömlum og greiða fyrir auknum innflutningi frá Bandaríkjunum til að hægt verði að blása nýju lífi í efnahag landsins. Vöruskiptajöfnuður ríkjanna er Japönum hagstæður um 41 milljarð dala og Bush sagði að Bandaríkja- menn gætu ekki sætt sig við mála- myndaaðgerðir af hálfu Japana. „Ég vil að bandarískur varningur fái auk- inn aðgang að japanska markaðn- um,“ sagði hann. „Frjáls viðskipti á jöfnum grundvelli skapa atvinnu og bæta lífskjörin í ríkjunum báðum.“ Frammámenn 18 bandarískra stórfyrirtækja fylgja Bush í ferðinni, þar á meðal stjórnendur bílafyrir- tækjanna Ford, Chrysler og General Motors. Samanlagt tap þessara þriggja fyrirtækja á níu fyrstu mánuðum liðins árs nam rúmum sex milljörðum dala og skýrt var frá því nýlega að General Motors hygðist fækka starfsmönnum sínum um 74.000. Helsta ástæða þess að vöru- skiptajöfnuður ríkjanna er Banda- ríkjamönnum svo óhagstæður er gífurlegur innflutningur japanskra bifreiða. Kiichi Miyazawa, forsætisráðherra Japans, leitaðist við að friða Bush og fylgdarlið hans. „Við verðum að ganga eins langt og við getum til að aðstoða Bandaríkjarnenn," sagði hann. Forsætisráðherrann hvatti Japani til að hafa „samúð“ með Bandaríkjamönnum og benti á að þeir hefðu veitt aðstoð við endurreisn Japans eftir síðari heimsstyrjöldina. Hann er reiðubúinn að slaka á ströngum eftirlitskröfum sem hafa í reynd hindrað aukinn innflutning bifreiða til Japans. Hann virðist einn- ig staðráðinn í að tryggja að japönsk bílafyrirtæki efni loforð sín um auk- inn innflutning frá Bandaríkjunum. Skoðanakannanir benda til að fylgi Bush hafi minnkað mjög að undanförnu vegna efnahagssam- dráttarins og óvíst er að hann nái endurkjöri í forsetakosningunum í nóvember. Það er hagsmunamál fyr- ir japanska útflytjendur að Bush fari með sigur af hólmi í kosningunum fremur en frambjóðandi demókrata, sem hafa hótað að minnka bílainn- flutning frá Japan um þriðjung með verndartollum verði vöruskipti ríkj- anna ekki jöfnuð á næstu fimm árum. Bush er málsvari fijálsra viðskipta og leggst gegn slíkum aðgerðum. Bandaríkin: Quayle fær uppreisn æru Washington. The Daily Telegraph. SPÉFUGLAR og dálkahöfundar í Bandaríkjunum hafa lengi haft Dan Quayle varaforseta að skotspæni en ýmislegt bendir til að Bandaríkjamenn séu nú farnir að taka hann alvarlega. Frá því Quayle varð varaforseti fyrir þremur árum hefur honum iðulega verið lýst sem hjákátlegum og vitgrönnum hægrimanni, sem komi vel fyrir í sjónvarpi en hafi takmarkaðan áhuga á öðru en golfi. Ýmislegt bendir hins vegar til að bandarískir blaðalesendur og sjónvarpsáhorfendur hafi fengið sig fullsadda á Quayle-bröndurum, einkum vegna þess að margir líta nú svo á að hann hafi staðið sig betur í embættinu en búist var við í fyrstu. Nú hefur jafnvel höfuð- Quayle vigi fijálslyndra Bandaríkja- manna, Was- hington Post, látið hann njóta sannmælis og birtir i þessari viku greinaröð, þar sem honum er lýst sem klók- um og stefnu- föstum stjórn- málamanni. Annar af höfundunum er Bob Woodward, sem átti þátt í að afhjúpa Watergate-hneykslið og margir bandarískir hægrimenn líta enn hornauga. Höfundarnir segjast skyggnast „á bak við skrípamyndina“ og viðurkenna að Quayle sé líklegur til að verða for- seti árið 1996. Fimm af níu síð- ustu försetum Bandaríkjanna voru áður varaforsetar. Quayle er í miklum metum hjá George Bush og samstarfsmönn- um hans í Hvíta húsinu og hjá repúblikönum út um allt land, meðal annars vegna þess að hann hefur aflað flokknum meiri fjár- muna en nokkur annar varaforseti Bandaríkjanna. ÚTSALAN BYRJAR í DAG OPIÐ DAGLEGA K L. 9-18 OG LAUGARDAGA K L. 10-16 Uáumv VERSLUN V/NESVEG, SELTJARNARNESI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.