Morgunblaðið - 08.01.1992, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1992
félk í
fréttum
TILRAUN
Nicholson velur dóttur sína
Ung verðandi leikkona sem bú-
ast má við að tekið verði eftir
er hún kemur fram í sinni fyrstu
kvikmynd á næstunni er Jennifer
Nicholson, 27 ára gömul dóttir
Jacks Nicholsons sem þarf enga
kynningu. Kvikmyndin sem um
ræðir heitir „Blue Champagne" og
framleiðandi myndarinnar er eng-
inn annar en karl faðir hennar.
Jennifer er dóttir Jacks af fyrsta
og eina hjónabandi hans í gegn um
tíðina, með leikkonunni Söndru
Knight.
Það telst ekki til tíðinda að börn
þekktra stjarna reyni fyrir sér með
þessum hætti, mörg hafa þegar
gert það, sum með ágætum árangri,
eins og til dæmis bræðurnir Charlie
Sheen og Emilio Estevez og Kiefer
Sutherland. Það sem Jennifer Nic-
holson hefur hins vegar fram yfír
flesta þá sem skipa þennan hóp er,
að hún hefur alist upp langt frá
glysnum í Hollywóod. Og er hún
ákvað að freista gæfunnar tók hún
sig til að menntaði sig í bak og
fyrir í leiklist og er nú útskrifuð
með ágætiseinkun. Það orð fer af
henni að hún sé í meira lagi efnileg
og sannað þyki í þessu tilviki að
sjaldan falli eplið langt frá eykinni
þótt sannað sé reyndar að epli vaxi
ekki á eikartijám, heldur eplatijám.
I kvikmyndinni „Blue
Champagne" leikur Jennifer Nic-
holson á móti Jonathan Silverman,
en leikstjóri er Blaine Novak. Mynd-
in verður frumsýnd í Bandaríkjun-
um með vorinu.
Jennifer Nicholson hefur erft
leikhæfiieika föður síns.
POPP
Frú Springsteen leynir á sér
Patti Scialfa er best þekkt fyrir að
vera frú Bruce Springsteen. Áður
söng hún bakraddir með hljómsveit
bónda síns og það var á þeim árum sem
samband þeirra tók að blómstra með
þeim afleiðingum að Springsteen skildi
við eiginkonu sína og tók saman við
Scialfa. Þau eiga nú eitt barn saman
og annað er á leiðinni. Almennt var
álitið að hún væri ekki sérlega stórt
innlegg í hljómsveitinni, en fáir hafa
til þessa vitað að hún hefur sjálf feng-
ist við lagasmíðar og textagerð.
Umboðsmaður Springsteenhjónanna
staðfestir að Scialfa er langt komin
með sólóskífu, meira að segja tvöfalda
þótt ekki sé víst að báðar verði gefnar
út í einu. Bamastússið og fleira tengt
einkalífínu hefur tafið vinnslu skífunn-
ar verulega í seinni tíð, en umboðsmað-
urinn sagði að því færi fjarri að Scialfa
væri búin að leggja verkið á hilluna.
Það biði síns tíms og frúin biði spennt
eftir því að fá nauðsynlegt næði til að
takast á við verkið á nýjan leik. Ekki
sagði umbinnhvernær það yrði, en
menn hafa getið sér til um að það verði þegar seinna barnið er komið
eitthvað á legg.
Því hefur verið fleygt að Bruce Springsteen sé sjálfur meira og minna
á plötunni og Scialfa ætli sér að nota nafn hans til að koma eigin tónlist
á framfæri. Umboðsmaðurinn segir þetta fírru, karlinn komi hvergi
nærri, Scialfa vilji sjálf ekki sjá það.
Patti Scialfa.
FEGURÐ
Fyrsta fegurðardr ottning
sameinaðs Þýskalands
að er margt sem breytist við
sameiningu tveggja ríkja.
Þannig kaus sameinað Þýska-
land sína fyrstu fegurðardrottn-
ingu fyrir nokkrum mánuðum
og tók hún þátt í keppninni um
titilinn Ungfrú Heimur sem
Svava Haraldsdóttir keppti í fyr-
ir hönd íslands. Fyrir valinu varð
Monika Rausch, 24 ára gömul
kennslukona frá litlum námabæ
í hinu sáluga Austur Þýskalandi.
Hún náði ekki að komast í úrslit
í alheimskeppninni, en hyggur á
breytta hagi að reynslunni lok-
inni. Fyrirsætustörf skulu það
vera og þreifingar í sjónvarps-
og kvikmyndamálum. Á með-
fylgjandi mynd má sjá ungfrú
Rausch ásamt stúlkunum sem
urðu í öðru og þriðja sæti.
1 vinningur á kr. 25.000.000. 4 vinningar á kr. 5.000.000, 6 vinni
, Láttu.
skunsemma
ráða
Það er mannlegt að lifa í von um áhyggjulaust
líf og fastar (háar!) tekjur til æviloka. Það kostar
ekki mikið að vera með í Happdrætti Háskólans,
en í hverjum mánuði getur þú átt von á vinningi
sem skiptir sköpum í lífi þínu.
Láttu skynsemina ráða og spilaðu til vinnings í
stórhappdrætti með 70% vinningshlutfall.
HAPPDRÆTTI
HASKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til virmings