Morgunblaðið - 08.01.1992, Síða 37

Morgunblaðið - 08.01.1992, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1992 -i fj MM ilÍL '• Fyrr og- síðar Ég sem þetta skrifa er kominn til aldurs og get sagt, að ég hafi lifað tvenna tíma. Ég man sumt sem gerð- ist á fjórða tug þessarar aldar. Það var merkilegur áratugur, byijaði með þingrofi og Alþingiskosningum 1931 og endaði með stríði suður í Evrópu. Þá var hörð stjómmálabarátta hér á landi og glögg flokkaskipting. Það var fjölmennur Sjálfstæðisflokkur nýbúinn að losa sig við íhaldsnafnið, sem þótti tortryggilegt, Framsóknar- flokkur, með samvinnutaðkvörnina, eins og það var kallað. Svo var vinst- riflokkur, sem klofnaði í tvennt, meinlausan Alþýðuflokk og Komm- únistaflokk. Kommúnistar höfðu það takmark að bjarga heiminum með byltingu eftir fýrirmynd frá Rúss- landi. Þá voru bombur látnar falla, stór- ar og smáar, en nú er ekki einusinni kastað gorkúlu. Nær allan fjórða áratuginn var ég á vetrarvertíðum suður með sjó. Þeg- ar ég var á ferðinni kom ég alltaf á áheyrendapall í Alþingishúsinu, því ég hef löngum notið þess að fylgjast með stjómmálum. Þá voru miklir garpar á Alþingi og mætti nefna Jónas frá Hriflu, Harald Guðmundsson og Einar 01- geirsson, sem er einhver mælskasti maður á íslandi á þessari öld. Þá má ekki gleyma Bjarna Benedikts- syni. Faðir hans Benedikt Sveinsson var þá forseti neðri deildar ef ég man rétt. Hann var virðulegur og fyrirmann- legur. Fyrst þegar Benedikt kom á þing var hann talinn til Framsóknar- flokksins, en sagt var að hann hafi hrakist úr flokknum fyrir ráðríki Jónasar frá Hriflu. Ég man Þorstein Dalasýslumann. Hann hafði kæk, lyfti öxlinni við aðra hveija setningu þegar hann flutti ræðu. Þessi borgfirzki höfðingi bjó við miklar vinsældir og kyssti konur í kosningaferðum. Hann átti margar bækur, tíu þúsund eða fleiri. Sjálfstæðisflokkurinn gaf Dalasýslu- manni Summaríu frá Goðdölum á afmælisdegi hans. Guðsorðabæklingurinn Summaría var prentaður á Hólum 1589. Hvað í hann er skráð veit ég ekki og var hann þó í Goðdalakirkju til 1942. Summaría fór með löglegum hætti frá Goðdölum. Safnaðarfundur sam- þykkti að selja Guðbrandarbiblíu og fylgiritið Summaríu fyrir smápening °g söfnuðurinn varð guðsfeginn að losna við þessi gömlu rit fyrir nokkr- ar krónur. Summaría er talin fylgirit Guðbrandarbiblíu, þó_ hún sé prentuð fimm árum síðar. Á þessum tíma voru íjögur eintök til af Summaríu á öllu landinu. Eintak Háskólans var gallað, en eintak Goðdalakirkju alveg ógallað. Að svo var, er góður vitnis- burður um Goðdalakirkju. Altaris- skápur hennar hefur verið músheldur um aldaraðir. Hvort innihald Summaríu er merkilegt veit ég ekki. Jú annars: Allir guðsorðabæklingar eru merki- legir, því þeir eru spegilmynd af „trú og vonum landsins sona “ á hverri tíð. Páll Kolka læknir var ekki Alþing- ismaður, en tók þátt í stjórnmálum og skrifaði í blöð. Mér þótti alltaf gaman að lesa það sem hann skrif- aði. Hann var skorinorður og vægði ekki andstæðingum, þegar svo bar undir. Það birtist grein í biaði með fyrirsögn: Hólastóll og hundaþúfa. Mig minnir að hún væri eftir Pál Kolka. Þetta var líking og hundaþúf- an var Framsóknarflokkurinn. Mikið vatn hefur runnið til sjávar. Nú er ég fyrirstöðulaust kominn upp á tíunda tug aldar vorrar. Það líður allt áfram eins og þungur straumur. Mér finnst stjórnmálamenn vera svipminni nú, en á fjórða tug aldar- innar. Nú er allt orðið flatt og slétt. Sjálf- stæðisflokkurinn boðar lýðræðisjafn- aðarstefnu. Framsóknarflokkurinn lætur samvinnutaðkvömina snúast. Alþýðuflokkurinn er meinlaus hægri- flokkur eins og hann hefur alltaf verið og kommúnistar dauðir eða í dvala. Það er allt orðið flatt og slétt. Ég uni illa á „sléttunnar slóð, slétturnar engu leyna“. Ég vil að leyndarmál séu á bak við næstu hæð. Mér finnst stjórnmálamenn vera svipminni nú en á fjórða áratugnum. Þó er einn með svip. Það er Olafur Ragnar Grímsson. Hann fékk líka gott uppeldi, alinn upp í Framsóknar- flokknum. Það er ekki sama, hvar menn alast upp. Framsóknarflokkur- inn hefur þann höfuðkost, að hann er opinn í báða enda. Þeir sem þar era þurfa ekki að óttast að þeir lok- ist inni. Innilokunarkennd er afleit. Nú er mikil umræða um fiskveið- ar. Jón Baldvin er sakaður um, að hafa gleymt að skila boðum frá meg- inlandi Evrópu. Þegar ég var að al- ast upp var ekki sími í minni sveit Þessir hringdu . .. Kettlingar Þrír mannelskir kettlingar átta vikna gamlir fást gefins. Upplýs- ingar í síma 33352 eftir kl. 17. Kettlingnr Kettlingur fæst gefins. Upplýs- ingar í síma 14496. Tík Falleg sjö vikna tík fæst gefins. Upplýsingar i síma 52861 eftir kl. 18. og krakkar voru sendir með boð á milli bæja. Það var talið mikið mann- dómsmerki ef börnin skiluðu boðum greinilega og rétt. Er kynslóðin að ganga niður? Hannibal hefði skilað boðum rétt. EB-veldin iáta ekki snúa á sig. Þau bentu á að Rússar hefðu veitt langhala á Islandsmiðum fyrir nokkr- um árum, svo ekki væri eftir nema ein og ein sjóskepna af þessari teg- und. Menn mega ekki láta sér detta í hug að þeir geti veitt á morgun fisk, sem þeir drápu og átu í fyrra- dag. Ég held að Islendingar ættu að bjóða EB-veldum að veiða skötu hér við land. Kæst skata er herramanns- matur og mundi smakkast vel í Frakklandi. Sem betur fer eru ekki allir menn eins og margir lausir við minnimátt- arkennd og'segja sína meiningu umbúðalaust og með öiyggi. Einn þeirra er Ingi Björn Albertsson. Hann er ekki gull í skel og eplið fellur ekki langt frá eikinni. Albert faðir hans var ekki alitaf þjáll í stjórnmál- um. Það var mikið bíó fyrir sunnan, þegar Ingi Björn tók forsætisráð- herra á kné sér og vildi kenna honum að stilla málgleði sína, vera kurteis og tala fallega íslenzku. Hver árang- ur verður í þeim skála á eftir að koma í ljós. í Morgunblaðinu 30. nóvember er þessi setning: „Ingi Bjöm Albertsson sagði að enginn einn maður hefði tafíð eins störf Alþingis þessa viku fremur en Davíð Oddsson forsætis- ráðherra með ótímabæram, óviðeig- andi, ódrengilegum ummælum í við- tölum við fjölmiðla." Davíð Oddsson er dugandi stjórn- málamaður og á þegar gilda afreka- skrá, en hann er veill í íslenzku, en það gerir honum ekkert til. Hann er ekki móðurmálskennari og hann er ekki skyldugur til að tala fallega ís- lenzku, en hinsvegar er skemmti- legra að stjórnmálamenn geri það. Björn Egilsson frá Sveinsstöðum. Kápa Græn ullarkápa, hringskorin með stóram kraga varð eftir í heimahúsi við Bræðraborgarstíg í nóvember. Vinsamlegast hringið í síma 11949 ef hún hefur fundist. Skór Svartur vinstrifótar dömuskór tapaðist á jóladag, hugsanlega við bílastæðin við Kleppsveg 46. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 35440. Týnd síamslæða Lítil síamslæða hvarf að heim- an frá sér á Hverfisgötu 6, Hafn- arfírði, aðfaranótt þriðjudagsins 7. þ.m. Hún er með ól með öllum upplýsingum í um hálsinn. Ef ein- hver hefur orðið hennar var er hann vinsamlega beðinn um að hringja í síma 691225 á daginn eða 650729 á kvöldin. K v • -Vv-/ Skallfiaiiilöl fyrir einstaklinga Farið er yfir helstu atriði skattalaganna sem varða skatta- mál einstaklinga, útreikning á tekju- og eignaskatti, rétt til 'endurgreiðslna, svo sem vaxta- og barnabóta. Gerð eru «raunhæf skattaframtöl og kennt er að fylla út allar skýrslur sem einstaklingum er gert að skila með framtali. Innritun stendur yfir. Tölvuskóli Reykiavíkur Borgartúni 28, sími 91-687590 37 ' HEILSUPROF HEILSURÉTTIR HEIMALEIKFIMI HEILSURÆKT ' ÁSKRIFSTOFUNNI i •“V''.vKí] MEGRUN KYNÞOKK1 KORN HVÍTLAUKUR REYKINGAR MATARÆÐI • --4 í K.:.. Fjölbreytt vetrarstarf Kramhússins hófst að nýju 6. janúar Dansleikfimi - Afró - Jass - Modern-Stepp - Leiksmiðja - Kórskóli Ath! Nanette Nelms kennir dans næstu 3 mánuði. Listasmiðja barna oq unqlinqa: Byrjenda- og framhaldsflokkar 1. Tónlist - Söngur - Spuni 3-5 ára og 6-9 ára. Kennari: Margrét Pálmadóttir. 2. Leiklist. 7-9 ára og 10-13 ára. Kennarar: Ásta Arnardóttir og Þórey Sigþórsdóttir. 3. Leikir - Dans - Spuni 4-6 ára Kennarar: Þórey, Ásta og Guðbjörg Arnardóttir. 4. Ballett. 7-9 ára. Kennari: Guðbjörg Arnardóttir. 5. Jass. 7-9 og 10-13 ára. Kennari: Eva Gísladóttir. Tímabókanir standa yfir ísímum 15103 og 17860 VIÐ BERGSTAÐASTRÆTI HÚ5I& Metsölublad cí hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.