Morgunblaðið - 18.01.1992, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANUAR 1992
13
Þurfa læknar að hverfa frá námi?
svar til Lárusar Jónssonar, frkvstj. LIN
eftír Steingerði
Sigurbjörnsdóttur
Þessi grein birtist nú þótt nokk-
uð sé um liðið sem svar við grein
í Morgunblaðinu þann 14. desemb-
er sl. Þar er vitnað í Lárus Jóns-
son, framkvæmdastjóra Lánasjóðs
íslenskra námsmanna, og leitað
viðbragða hans við grein er undir-
rituð skrifaði í Morgunblaðið dag-
inn áður, þann 18. desember.
í upphafi greinarinnar þann 14.
desember segir Lárus Jónsson
„ .. .alla námsmenn í sérfræðin-
ámi, sem hafi hærri tekjur af námi
sínu en sem^ nemur útreiknaðri
framfærslu LÍN, fái ekki námslán,
hvort sem það sé í sérfræðinámi
ílæknisfræði eða öðrum greinum".
Lárus talar um útreiknaða
framfærslu LÍN. Þar á hann við
48.000 kr. sem er grunnfram-
færsla einstaklings á ísiandi. Á
þeim forsendum leyfir Lánasjóður
sér að afgreiða lækna í sérfræðin-
ámi erlendis á einu bretti og hafn-
ar umsóknum þeirra. Þeir eru ekki
lánshæfir og raunhæf framfærsla
með tilliti til búsetu, fjölskyldu-
stærðar o.s.frv. er ekki reiknuð
út. Það skal tekið skýrt fram að
læknar í sérfræðinámi fá styrk frá
háskólastofnun þeirri er þeir
stunda nám við en engar aðrar
fastar tekjur. Fyrir ári þegar lækn-
ar voru lánshæfir nægði þessi
styrkur ekki til framfærslu sam-
kvæmt útreikningi LÍN. Hvað hef-
ur breyst? Eftirfarandi er tilvitnun
í fyrrverandi stjórn LÍN í júlí 1990:
„ .. .stjórn LÍN lítur svo á að
sérnám lækna sé lánshæft nám,
óháð því hvort slíkt nám er stund-
að við almennar sjúkrastofnanir,
læknaháskóla eða almenna há-
skóla. Þessi hefur ávallt verið
skilningur LÍN, að undanskildum
starfstíma fyrrverandi stjórnar
Lánasjóðsins... Stjórn sjóðsins
vill árétta að sémám lækna er að
öllu lánshæft, en farið verður með
tekjur (ef einhverjar) viðkomandi
á sama hátt og almennt gerist um
lánþega hjá Lánasjóði íslenskra
námsmanna. “
Þessi stefna fyrrverandi stjóm-
ar LÍN var í góðri trú lögð til
grundvallar hjá stórum hópi lækna
við val á námsgrein og náms-
landi. Það er alvarlegt að réttindi
til námslána skuli skert og það á
miðjum námstíma. Það er siðleysi.
Fjölskyldur hafa flust búferlum
og hafið nám með vilyrði fyrir
námsláni og treyst því. Þessu er
breytt svo minnst varir með þeim
afleiðingum að nú blasir við fjár-
hagslegt skipbrot fjölskyldna. Er
þetta löglegt? Leyfíst að breyta
stefnu sjóðsins fyrirvaralaust og
láta ganga yfír fólk sem þegar
hefur hafið nám?
Það skal vera hverjum ljóst að
STORUTSALA
læknar í sérfræðinámi biðja ekki
um meira en sambærileg réttindi
og aðrir námsmenn. Undirrituð
veit til þess að íslendingar í dokt-
orsnámi í Bandaríkjunum njóta
námslána auk skólastyrks sem
veittur er vegna kennslu- og rann-
sóknarskyldu. Það er því ekki rétt
sem haft er eftir Lárusi Jónssyni
í upphafi greinarinnar þar sem
hann segir alla námsmenn í sér-
fræðinámi á sama báti.
Það er fleira sem kemur í kjölf-
ar alls þessa. Að vera ekki láns-
hæfur þýðir að endurgreiðslur
„Fjölskyldur hafa flust
búferlum og hafið nám
með vilyrði fyrir náms-
láni og treyst því. Þessu
er breytt svo minnst
varir með þeim afleið-
ingum að nú blasir við
fjárhagslegt skipbrot
fjölskyldna.“
fyrri lána skuli hefjast og að styrk-
ur sá, er viðkomandi læknir nýtur
frá háskólastofnun þeirri er hann
stundar nám við, dregst frá náms-
lánum maka hans, sé maki náms-
maður. Það er rétt sem Lárus seg-
ir. Það fer fyrir brjóstið á okkur
að eiga að hefja endurgreiðslu
námslána áður en námi lýkur.
Ætlar lánasjóður kannski að taka
upp greiðsluerfíðleikalán? Mun
Lánasjóður íslenskra námsmanna
krefjast endurgreiðslu af lánum
þeim sem veitt voru fyrir þessa
síðustu stefnubreytingu, eftir að
fólk hefur neyðst til að hverfa frá
námi?
Höfundur er læknir í
sérfræðinámi í Bandaríkjunum.
Steingerður Sigurbjörnsdóttir
Ótrúleg verðlækkun
Dragtín, Klapparstíg 37
Nú rýmum við fyrir nýjum vörum og lækkum hressilega verðið
á öllum gólfefnum í versluninni, áður en þau nýju koma.
Teppi - Mottur - Flísar - Dúkar - Parket
15-50%
VERÐLÆKKUN
Þú getur sparað þúsundir króna á
UTSOLUNNI
Taktu málin með þér og prúttaðu við okkur um verðið á
bútum og afgöngum.
Við þjónum þér fljótt og vel.
imiM wm
1/754® K
Góðir greiðsluskilmálar - visa-raðgreiðslur í allt að 18 mán.
Eurokretit til 11 mánaða - staðgreiðsluafsláttur
OPIÐ LAUGARDAGA FRA KL. 10-16
TEPPABUÐIN
Gólfefnamarkaður - Suðurlandsbraut 26, S. 681950.