Morgunblaðið - 18.01.1992, Page 14

Morgunblaðið - 18.01.1992, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992 Rannsóknir og nýsköpun eftir Þorstein I. Sigfússon Á tímum efnahagslegra þreng- inga verður mönnum tíðrætt um stefnu þjóðarinnar í atvinnumálum. Stjórnvöld grípa til aðgerða til þess að rétta við háskalegan halla á rík- isbúskapnum og hnífnum er beitt víða. Hættan er sú að ekki sé gef- inn nægilegur gaumur að því hvar jarðvegur og vísar raunverulegrar nýsköpunar liggja. Ég hygg að þær aðgerðir sem nú eru framkvæmdar endurspegli ekki hvernig á þessum málum muni verða haldið næstu ár, þegar stjórnvöld hafa betur greint afieiðingar niðurskurðar í rann- sóknum og þróun. Til þess að varpa ljósi á samband þekkingarleitar og þróunar við at- vinnusköpun langar mig að taka sannanleg dæmi um það hvernig atvinnutækifæri og ný fyrirtæki hafa sprottið af rannsóknarstarfi einnar helstu vísindastofnunar okk- ar íslendinga Raunvísindastofnunar Háskólans, sem nýlega hélt upp á 25 ára afmæli sitt. Raunvísinda- stofnun var sett á fót af framsýnum mönnum í andrúmslofti stöðnunar og tímabundinnar kreppu á miðjum sjöunda áratugnum. Henni var strax ætlað að vera vettvangur grunnrannsókna og þekkingarleitar á ákveðnum sviðum raunvísinda við Háskóla íslands. Á þeim sviðum hefur hún uppskorið ríkulega og afraksturinn birtist í nær hverri viku ársins sem framlag til vísinda- legrar þekkingar, með greinum í alþjóðlegum tímaritum eða erindum á alþjóðlegum ráðstefnum um hinar ýmsu greinar raunvísinda. En afrakstur þekkingarleitar og rannsókna hefur einnig birst í ný- sköpun í hátækni sem ef til vill á sér enga líka í íslensku samfélagi. Við skulum skoða þennan afrakstur nánar og reyna að meta hann til fjár, þótt sá mælikvarði sé ófull- nægjandi varðandi stofnun sem ætlað er að hafa víðtæk vísindaleg áhrif. Upphaf rafeindafyrirtækisins Marels hf. má rekja beint til þróun- ar á eðlisfræðistofu RH. Raunar má dagsetja upphafið með skýrslu um aukningu sjálfvirkni í frystihús- unum sem út kom 1977. Með upp- hafi verkefnisins var ráðist í ört- ölvuvæðingu á stofnuninni og tölvu- þróun. Verkefnið varð mjög fyrir- ferðarmikið á stofnuninni. Síðar var stofnað fyrirtækið Marel og hafin framleiðsla og markaðsstarfsemi. Marel hefur notið góðrar stjórnunar og hæfra markaðsmanna og verið kröfuhart í gæðamáium. Síðastliðið ár hefur velta fyrirtækisins verið u.þ.b. 350 milljónir, mest allt í gjaldeyri frá viðskiptamörkuðum erlendis. Marel er ieiðandi á heims- markaðinum á sínum sérsviðum. Marel hefur greitt Raunvísinda- stofnun framleiðslugjald, sem unnt hefur verið að nota til þess styrkja starfsemi RH. Örtölvuþróunin á Raunvísinda- stofnun leiddi til uppbyggingar þekkingar sem nýst gat á öðrum sviðum. Stofnunin eignaðist alís- lenskt ritvinnslukerfi áður en slík kerfí urðu söiuvara á íslandi og stofnað var fyrirtækið Hugrún hf., sem framleiðir og selur skráningar- tæki fyrir hvers kyns mælingar. Örtölvukerfi það sem notað var í ofangreind verkefni varð einnig grunnur þess kerfís sem fyrirtækið Birtingur og síðar Vaki hf. notaði í fískiteljara fyrir fiskeldisstöðvar. Vaki hf. velti á sl. árum um 50 milljónum og er leiðandi aðili í telj- aratækni á heimsmarkaðnum. Rannsóknarsjóður rannsóknarráðs á mestan hlut í að fjármögnun verk- efna tókst. Vaki hf. varð til á þeim tíma þegar íslenskt fískeldi var á mestri uppleið, en vegna þess að Vaki hefur gert miklar kröfur um tæknileg gæði festi hann fót á heimsmarkaðnum og selur nær alla framleiðsluna utan. Þannig lifði Vaki af hrun íslenska fiskeldisins. Ofangreind fyrirtæki velta nær hálfum milljarði á ári hveiju. Það er fímmfalt framlag ríkisins til Raunvísindastofnunar, sem er rekin að hálfu leyti með ríkisframlagi og hálfu leyti með sértekjum, aðallega styrkjum til rannsókna. Fjölnemar hf. er nýtt fyrirtæki sem stofnað var á grundvelli þekk- ingar á geislun og geislunarmæling- um við Raunvísindastofnun. Fyrir- tækið er enn á bernskuskeiði en kemur til með að selja dýran búnað með mikilli framlegð. Áhættufjár- magn til Fjölnema hefur komið frá nokkrum aðilum hér á landi. Nýver- ið settu sérfræðingar Fjölnema upp aldursgreiningarkerfí við Beta Ana- lytic fyrirtækið í Bandaríkjunum, sem er stærsta fyrirtæki sinnar teg- undar í heiminum. Slík kerfi kosta „Ef heppnin verður með okkur er þess ef til vill ekki langt að bíða að gjaldeyrisveltan í fyrirtækjum sem spretta af rannsóknum og þróun á Raunvísind- astofnun nálgist millj- arðinn á hverju ári.“ á bilinu 2,5-3,5 miljónir króna. Þá má nefna að hugbúnaðarsér- fræðingar við Raunvísindastofnun hafa í félagi við nokkra aðra ráðist til atlögu í hinni hörðu samkeppni á heimsmarkaði hugbúnaðarins. Fyrirtækið Softís hf. sem stofnað var utan um ákveðið verkefni er nú í samningum um framleiðslu og sölurétt. Margir telja að í hugbún- aði Softís felist verðmæti sem séu meiri en öll ofangreind dæmi. Fram- tíðin mun leiða það í ljós. í dag eru aðstæður betri til þess að flytja þekkingu og þróunarverk- efni út til fyrirtækjanna. Reykjavík- urborg hefur verið mikilvirkur aðili í þessari þróun undanfarin ár eins og stuðningur borgarinnar við ný- byggingar Tæknigarðs á háskóla- lóðinni sýnir. Þróunarfélag íslands hefur einnig komið víða við í tengsl- um við flutning tækniþekkingar og stofnun fyrirtækja. Að síðustu vil ég nefna rannsókn- Þorsteinn I. Sigfússon ar- og þróunarverkefni á sviði líf- tækni, en sérfræðingar RH hafa sérhæft sig á sviði kuldavirkra en- síma úr fískslógi og örverum. Þessi ensím eða efnahvatar vinna best við mjög lágan hita og gætu orðið mikilvægt hráefni í efnaiðnaði. Úr þessu verkefni hefur nú sprottið verkefni í genatækni þar sem sér- fræðingar í matvælafræði við RH hafa beislað frumur til þess að framleiða ofangreind ensím. Ef heppnin verður með okkur er þess ef til vill ekki langt að bíða að gjaldeyrisveltan í fyrirtækjum sem spretta af rannsóknum og þró- un á Raunvísindastofnun nálgist milljarðinn á hveiju ári. Þar með yrði framlag ríkisins tífaldað. Þessi ávöxtun er, eins og ég nefndi fyrr, aðeins hin sýnilega ávöxtun stofn- unar sem gegnir grunnrannsókna- hlutverki en er vel á verði gagnvart ábyrgð sinni í tækniþróun Íslands. Auðlindin sem sótt er í er stöðug og vaxandi og í henni eru engar verulegar sveiflur. Hún er fyrst og fremst hugvit, fólk með Háskóla íslands sem bakhjarl. Fjárfestingin felst fyrst og fremst í þróun. Þar skiptast á skin og skúrir; það er eðlilegt að þróun leiði ekki alltaf til þess sýnilega árangurs sem við höfum tíundað. Þegar stjórnvöld huga að stefnu og áætlunum um rannsóknir og þróun þessa áratugar er mikilvægt að þessi starfsemi sé efld. Að um- hverfi þessarar starfsemi, þar með talið rannsóknaráð og vísindaráð sé styrkt. Síðast en ekki síst er mikilvægt að læra af því fordæmi sem Raunvísindastofnun hefur gef- ið um skipulag, stjómun og frelsi til rannsókna. Þetta á ekki síst við nú þegar rætt er um sameiningu stofnana. Ég trúi því að eftir nánari grein- ingu á því hvernig framlag til rann- sókna skilar sér aftur í þjóðarbúið, muni stjórnvöld einbeita sér að þessum málaflokki. Þannig megi vænta þes að öflug rannsókna- og þróunarstarfsemi geti orðið raun- vísir nýsköpunar og velmegunar á íslandi. Höfundur er prófessor í stöðu íslenska Járnblendifélagsins við HÍ og stjórnarformaður Raunvísindastofnunar. Óréttmæt skerðing á ellilífeyri eftir Margréti Thoroddsen Ég vil heilshugar taka undir orð Magnúsar H. Magnússonar, fyrr- verandi tryggingaráðherra, um að tillögur ríkisstjómarinnar um skerðingu ellilífeyris séu mannrétt- indabrot. í iögum um almannatryggingar frá 1946, sem gengu í gildi 1. jan- úar 1947, er kveðið á um að allir íslenskir ríkisborgarar, sem orðnir eru 67 ára, skuli hafa jafnan rétt til ellilauna án tillits til tekna eða efnahags. Að vísu var í fyrstu um skerðingu að ræða vegna eftiria- una úr lífeyrissjóðum, en hún var fljótlega afnumin, þar sem hún þótti í meira lagi ósanngjörn. Nú, 46 árum síðar, á að fara að skerða þennan rétt. Jafnframt var ákveðið að allir íslenskir ríkisborgarar, 16-67 ára, búsettir hér á landi, skyldu greiða iðgjöld, sem tryggðu þeim ellilíf- eyri í framtíðinni. Var iðgjöldunum jafnað niður á einstaklinga sem nefskatti og voru meira að segja unglingar, sem stunduðu skóla- nám, gjaldskyldir, þó þeir hefðu litlar sem engar tekjur. Lenti það því oft á foreldrunum að greiða einnig gjöld fyrir þá og veit ég að það gat verið erfítt hjá bammörg- um fjölskyldum, sem vildu mennta börnin sín. Þessar iðgjaldagreiðslur voru í gildi allt til 1. janúar 1972, en þá var greiðslutilhöguninni breytt, þannig að eftir það var greitt óaf- markað gjald til Trygginga- stofnunarinnar í gegnum skatt- kerfið. Þeir sem eru á ellilífeyrisaldri núna og reyndar þeir sem fæddir em 1931 eða fyrr hafa því greitt bein iðgjöld til Tryggingastofnunar ríkisins í 26 ár. Áuk þess hafa all- ir sem voru orðnir 16 ára fyrir 1. janúar 1972 greitt þessi iðgjöld í lengri eða skemmri tíma. Ellilaunin eru því áunnin réttindi þessa fólks og fínnst mér þess vegna skerðingin óréttmæt. Þó hér sé ekki um háar upphæðir að ræða, má búast við að ef á annað borð er hróflað við þessum lögbundnu réttindum, verði auðveldara að taka alltaf stærri og stærri sneið af kökunni og það endi með því að framfærslusjónarmiðið verði ofan á tryggingarsjónarmiðinu. Væri það illa farið og ekki í anda þeirra hugsjónamanna, sem stóðu að setningu laga um almanna- tryggingar. Á síðustu árum hefur vaxið skilningur á því hve mikils virði sé fyrir fólk á eftirlaunaaldri að fá að starfa áfram, svo framarlega sem það hefur starfsorku og áhuga, sem mikill hluti þessa ald- urshóps hefur nú á dögum. Tveir mætir læknar, Ólafur Ólafsson landlæknir og Þór Halldórsson, yfírlæknir á Öldrunardeild Landsp- ítalans, hafa skrifað ítarlegar greinar um þessi mál, byggðar á „Þó hér sé ekki um háar upphæðir að ræða, má búast við að ef á annað borð er hróflað við þessum lögbundnu rétt- indum, verði auðveld- ara að taka alltaf stærri og stærri sneið af kök- unni.“ rannsóknum og könnunum. Fyrir nokkrum árum var sam- þykkt þingsályktunartillaga á Al- þingi um sveigjanleg starfslok, þannig að fólk gæti valið um hve- nær það hætti störfum en væri ekki bundið við 70 ára aldur, eins og gilt hefur um opinbera starfs- menn síðan 1935. Þessi tillaga hefur verið að velkjast í kerfinu í 3-4 ár og er vonandi að hún verði endanlega afgreidd frá Alþingi áður en langt um líður. En jafnhliða þyrfti að gera hliðarráðstafanir þannig að eftirla- unafólkið hefði einnig umtalsvert fjárhagslegt hagræði af því að vinna áfram, en þar skortir mikið á, því ef ellilífeyrisþegar vinna sér inn einhverjar aukatekjur kemur skerðing á skerðingu ofan. Fyrst skerðist tekjutryggingin um 45% viðbótartekna, síðan kem- ur 39,85% skattur, ef tekjurnar komast yfír 60.000 kr. á mánuði og eru þá lífeyrissjóður og trygg- Athugasemd við skrif um skálamál eftirJón Viðar Sigurðsson Hinn 11. janúar síðastliðinn rit- aði Ólafur Sigurgeirsson héraðs- dómslögmaður grein í Morgunblað- ið þar sem hann gerir athugasemd við skrif mín um einkaskála á há- lendi íslands sem birtist í Morgun- blaðinu 4. janúar. Ólafur er mér ósammála en í stað þess að svara grein minni á málefnalegan hátt notar hann þá aðferð að bera á mig ósannindi. Ólafur fullyrðir að vegna kæru sem ég lagði fram vegna ólöglegra einkaskáia sunnan Langjökuls hefur Náttúruverndar- ráð og Skipulag ríkisins hafíð af- skipti af skálum þessum Ólafur bætir því við að hann hafi fengið þetta staðfest án þess að segja hvar hann hafi fengið þá staðfest- ingu. Ég vil af þessu tiiefni taka fram að kæra mín vegna skálanna var lögð fram 30. október 1991. Náttúruvemdarráð gerði athuga- semd vegna þessara skála í bréfi til oddvita Grímsneshrepps 9. sept- ember 1991 og 11. október fór Náttúruverndarráð fram á það við umhverfisráðuneytið að skálarnir yrðu fjarlægðir. Skipulag ríkisins hafði samband við oddvita Gríms- neshrepps í september 1991 og var hann þá minntur á að hreppsnefnd gæti ekki veitt leyfí fyrir skála- byggingum fyrr en samþykki skipu- lagsstjórnar lægi fyrir. Þessu til staðfestingar hef ég gögn sem ég er fús til að láta öllum í té sem þau vilja sjá. Einnig geta menn fengið þetta staðfest með því að hafa sam- band við viðkomandi aðila. Um leið og menn sjá hver sannleikurinn er í þessu máli komast þeir jafnframt að því hversu heiðarlegur lögmað- urinn er. Hölimdur er nemi íjarðfræði við Háskóla íslands. Margrét Thoroddsen ingabætur talin með í þeirri upp- hæð. Það hefði því fremur þurft að hækka skerðingarmörkin en bæta enn einni skerðingunni við í formi grunnlífeyris. Aftur á móti er annar hópur líf- eyrisþega sem sleppur við alla skerðingu og það eru þeir sem ekki hafa þurft að greiða í lífeyris- sjóð en keypt sér verðbréf í staðinn og fjármagnseigendur almennt. Mörg dæmi eru þess að ellilífeyris- þegar hafí hundruð þúsunda og jafnvel milljónir í tekjur af verð- bréfum en fá samt hámarksbætur hjá Tryggingastofnuninni og borga heldur enga skatta. Við þessu er ekkert að gera nema lögunum sé breytt, því lögum skv. er ekki tekið tillit til §ár- magnstekna heldur eingöngu mið- að við atvinnutekjur og eftirlaun úr lífeyrissjóðum. Þessu þyrfti að breyta og það sem fyrst, því þá myndi sparast mikið í trygginga- kerfinu og allir lífeyrisþegar sitja við sama borð og þá mætti ef til vill hækka skerðingarmörkin og bæta hag þeirra, sem verst eru settir. Höfundur er fyrrverandi deildarstjóri bjá Tryggingastofnun ríkisins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.