Morgunblaðið - 18.01.1992, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANUAR 1992
15
Sameining siúkrahúsa
eftirÓlafÓrn
Arnarson
Ekki þarf að fara mörgum orðum
um þær sviptingar, sem nú eiga sér
stað í íslensku þjóðfélagi. Öllum er
ljóst að undanfarið höfum við lifað
hátt, gert mörg kostnaðarsöm mis-
tök í ljárfestingum og safnað skuld-
um úr öllu hófi. Nú er komið að
skuldadögum og ekki hægt að
draga að borga reikninginn öllu
lengur. Við þessar aðstæður hefur
fjöldi atvinnufyrirtækja orðið að
leita hagræðingar í rekstri eða sam-
einingar við önnur fyrirtæki.
Stjómmálamenn hafa ákveðið að
velferðarkerfið skuli taka á sig sinn
hluta af skuldunum. Niðurskurður
í heilbrigðiskerfinu og samdráttur
í þjónustu hlýtur alltaf að orka tví-
mælis og má ekki gerast á þann
veg að almenningi sé meinað að
njóta sjálfsagðrar og nauðsynlegrar
heitbrigðisþjónustu.
Sjúkrahúsþjónustan
Einn dýrasti þáttur heilbrigðis-
kerfisins er sérhæfð sjúkrahúsþjón-
usta, sem nú er rekin í þrem sjúk-
raur húsum hér í borg. Menn hafa
litið mjög til þessa þáttar og talið
að með uppstokkun á þessu kerfi
megi ná hagræðingu og betri þjón-
ustu en við höfum í dag. Það er
yfirlýst stefna núverandi stjórn-
valda að bráðasjúkrahúsum skuli
fækkað úr þremur í tvö.
í því efni er aðallega um tvo
möguleika að ræða. Annarsvegar
sameiningu Borgarspítala og Rík-
isspítala og hinsvegar sameiningu
Landakotsspítala og Borgarspítala.
Þriðji kosturinn, þ.e. að sameina
alla spítalana undir eina stjórn er
ekki fyrir hendi vegna mikillar and-
stöðu. Að mínu mati og eftir þátt-
töku í starfi nefndar heilbrigðisráð-
herra tel ég að sameining Borgar-
spítala og Landakotsspítala sé besti
kosturinn og faglega passi spítal-
arnir mjög vel saman og bæti hvorn
annan upp.
Nýlega var greint frá niðurstöð-
um hollensks ráðgjafa, Mr. de Kon-
ing, sem Ríkisspítalar fengu til þess
að gefa ráð um framtíðarstefnu
Ríkisspítala. Ráðgjafínn taldi nauð-
synlegt að skoða spítalakerfið í
heild og taldi skynsamlegast, frá
sjónarmiði Ríkisspítala, að sameina
Borgarspítala og Ríkisspítala en
ekki Borgarspítala og Landakots-
spítala. Rétt er að geta þess að
ráðgjafinn ræddi ekki við forsvars-
menn annarra spítala en Ríkisspít-
ala. Niðurstöður nefndar heilbrigð-
isráðherra um sameiningu Borgar-
spítala og Landakots voru honum
því að sjálfsögðu ókunnar, þar sem
þær lágu ekki fyrir fyrr en síðar.
Staða Borgarspítala
og Landakots
Borgarspítali í Fossvogi var í
upphafi hugsaður fyrst og fremst
sem bráðaspítali. Fyrsti hluti hans,
sem byggður var, þ.e. A-álma og
E-álma, gegna því hlutverki enn í
dag. B-álma hefur verið byggð að
verulegum hluta til fyrir fé úr Fram-
kvæmdasjóði aldraðra og er rekin
í dag sem hjúkrunar- og öldruna-
rdeildir. B-álman er þrátt fyrir það
fyrst og fremst innréttuð með tilliti
til þarfa bráðaþjónustu, enda er þar
að finna fullkomnustu sjúkradeiídir
landsins. Þróun Borgarspítala sem
bráðasjúkrahúss hefur því stöðvast.
Landakotsspítali hefur undanfar-
in 15 ár verið rekinn sem bráðaspít-
ali skv. sérstöku samkomulagi við
St. Jósefssystur, sem gert var þeg-
ar þær seldu ríkinu spítalann 1976.
Rekstur hans hefur bæði í tíð systr-
anna og sjálfseignarstofnunarinnar
verið mjög erfiður vegna þess
Framhaldsskólar:
Sparnaðurinn
bitnar á kennslu
- segir Örnólfur Thorlacius rektor
Menntaskólans við Hamrahlíð
ERFITT verður að spara umtals-
verðar fjárhæðir á framhalds-
skóiastiginu á þessari önn þar
sem hún hefur þegar verið skipu-
lögð en sums staðar hefur þó
verið reynt að spara fé með því
að fjölga í hópum. Forsvarsmenn
Menntaskólans við Hamrahlíð
liafa brugðið á það ráð að segja
upp samningi um leigu á íþrótta-
húsi Vals að Hlíðarenda og mun
það spara skólanum á fjórðu
milljón króna árlega. Skipuð hef-
ur verið samstarfnefnd mennta-
málaráðuneytisins og framhalds-
skóla manna til þess að vinna að
tillögum um sparnað í skólunum.
Pétur Rasmussen, konrektor
Menntaskólans við Sund, sagði að
engar ákvarðarnir hefðu verið tekn-
ar um sparnað á vorönn og beðið
væri eftir niðurstöðum samstarfs-
nefndar um samræmdar sparnaðar-
ráðstafanir i framhaldsskólunum.
Skólanum hafa borist sparnaðartil-
lögur frá ráðuneytinu sem fela í sér
að ekki verði boðið upp á námskeið
sem fáir velji nema í einstaka skól-
um, val verði minnkað og reynt
verð að fjölga í hópum og sagði
Pétur að ef til vill væri nægilegt
að fylgja þeim. Reiknað er með að
1536 kennslustundum á viku verði
fækkað í 1405 eða um 131.
Örnólfur Thorlacius, rektor
Menntaskólans við Hamrahlíð,
sagði að þegar færi farið að draga
saman seglin í skólanum, reglur um
hve fáir mættu vera í hverjum
greinum til að þær væru kenndar
hefðu verið hertar og sagt hefði
verið upp samningi um leigu á
íþróttahúsi Vals að Hlíðarenda. Með
því að segja upp samningum sagði
Órnólfur að skólinn sparaði á fjórð-
um milljón en reiknað er með að
líkamsrækt fari fram utan dyra
þegar samningurinn rennur út. Þá
sagði Örnólfur að faghópar ynnu
að sparnaðartillögum og fjárhagur
skólans yrði skoðaður í þeim til-
gangi að koma á hagræðingu en
þar væri þröngt um vik þar sem
kennslukostnaður væri yfirgnæfndi
liður. Örnólfur sagði að ekki yrði
hjá því komist að sparnaðurinn bitn-
aði á kennslu.
Hafsteinn Stefánsson, skóla-
meistari Fjölbrautaskólans í Árm-
úla, sagði að reynt hefði verið að
fjölga í hópum en slíkt væri erfið-
leikum bundið þar sem námskeiðin
væru í beinu framhaldi af námsefni
á haustönninni. Þá kvað hann ekki
ólíklegt að færri nýnemar yrðu
teknir inn í skólann í haust en endr-
anær. Forgang í skólann hafa nem-
endur úr 8 grunnskólum á höf-
uðborgarsvæðinu en á eftir þeim
eru aðrir nemendur á höfuðborgar-
svæðinu og nemendur í landshlut-
um þar sem ekki er framhalds-
skóli. Hafsteinn sagði að einnig
kæmi til greina að skera niður íþrct-
takennslu þar sem hún væri skólan-
um mjög dýr. Staðið hefði til að
segja upp samning um leigu á Laug-
ardalshöllinni í haust en þá hefðu
fengist hagstæðir samningar en nú
stæði 16% leiguhækkun fyrir dyr-
„Læknaráð beggja spít-
alanna hafa fjallað um
þetta mál í viðræðu-
nefnd undanfarna mán-
uði. Niðurstaða þeirra
er sú að leggja til, að
spítalarnir verði sam-
einaðir á grundvelli
þeirra tillagna, sem
nefnd ráðherra skilaði
af sér. Læknaráðin
leggja hinsvegar
áherslu á að undirbúa
þurfi sameiningu vel,
menn verði að ætla sér
góðan tíma og nauðsyn-
legt sé að hafa gott
samráð við starfsfólk
beggja spítalanna ef
góður árangur á að
nást.“
hversu naumt rekstrarfé hefur ver-
ið skammtað. Með því að breyta
rekstri, loka 30-40 sjúkrarúmum
og miklu aðhaldi hefur svo tekist
til að sl. tvö ár hefur reksturinn
verið í jafnvægi fjárhagslega (tekju-
afgangur áætlaður um 4,5 milljónir
króna 1991), enda þótt spítalinn
hafi aldrei í 90 ára sögu sinni þjón-
að jafnmörgum sjúklingum og nú,
en á árinu 1991 voru lagðir inn
6.076 sjúklingar.
Samningur St. Jósefssystra
Samningur St. Jósefssystra og
ríkisins gerði ráð fyrir að sjálfseign-
arstofnun ræki spítalann til ársloka
1996. Að þeim tíma liðnum er víst
að Landakotsspítali verður lagður
undir Ríkisspítala og þá væntanlega
rekinn sem hjúkrunarheimili. Það
er því ekki að ástæðulausu að for-
svarsmenn spítalans hafa um nokk-
urt skeið velt því fyrir sér hvaða
ieiðir eigi að fara með reksturinn
næstu árin. Ljóst er að sá rekstur
yrði mjög erfiður vegna tímatak-
markana. Það yrði erfitt að fá fólk
til starfa á bráðaspítala, sem ekki
á nema takmarkaða framtíð fyrir
sér sem slíkur. Öll uppbygging
myndi fljótlega stöðvast og spítali,
sem ekki fær að þróast og uppfyll-
ir jafnan kröfur tímans, á ekki rétt
á sér. Lóð Landakots leyfir ekki
neinar viðbyggingar, sem nauðsyn-
legar eru, ef halda ætti áfram
bráðaþjónustu til frambúðar.
Þegar menn velta fyrir sér þess-
um staðreyndum er ekki óeðlilegt
að ýmsir starfsmenn Landakots og
Ólafur Örn Arnarson
Borgarspítala hafi ræðst við og
komist að þeirri niðurstöðu að rétt
væri að skoða aukið samstarf eða
sameiningu betur. Megin hugmynd-
irnar eru þær, að skipt verði á hlut-
verki B-álmu og Landakots, þ.e. að
bráðaþjónusta Landakots verði flutt
í B-álmuna og öldrunarþjónustan á
Landakot. Til þess að svo megi
verða þarf að bæta aðstöðu þjón-
ustudeilda í E-álmu Borgarspítala
svo þær geti tekið við starfsemi á
skurðstofu, röntgendeild, rannsókn-
arstofu og gjörgæsludeild, sem nú
tengist bráðaþjónustunni á Landa-
koti. Til þess að það sé mögulegt
þarf að rýma skrifstofu- og þjón-
ustuhúsnæði í E-álmu, og flytja í
nýbyggingu. Gera þarf nokkrar
breytingar á Landakoti en talið er
að þar geti rúmast 110-130 öldr-
unarsjúklingar með góðu móti. Auk
þess er veruleg dagdeildarstarfsemi
fyrir aldraða fyrirhuguð.
Hagkvæm fjárfesting
Mörgum hefur vaxið í augum sá
kostnaður, sem þessar breytingar
hafa í för með sér. Samkvæmt nið-
urstöðum nefndar heilbrigðisráð-
herra, sem skilað hefur áliti um
málið, er gert ráð fyrir að kostnað-
urinn verði u.þ.b. 1 milljarður
króna, sem dreifist á 3-4 ár eða
lengur. Um það bil 700 milljónir
króna af þessari upphæð hefði þurft
til þess að fullgera Borgarspítalann,
sem hefði verið gert hvort eð var,
og því vafasamt að telja til samein-
ingarkostnað. Þegar starfsemi hins
sameinaða sjúkrahúss verður komin
í endanlegar skorður er gert ráð
fyrir að sparast geti 250-300 millj-
ónir króna á ári í rekstri. Hér hlýt-
ur því að vera um mjög arðbæra
fjárfestingu að ræða sé litið til _
nokkru lengri tíma.
Læknaráð beggja spítalanna
hafa fjallað um þetta mál í viðræðu-
nefnd undanfarna mánuði. Niður-
staða þeirra er sú að leggja til, að
spítalarnir verði sameinaðir á
grundvelli þeirra tillagna, sem
nefnd ráðherra skilaði af sér.
Læknaráðin leggja hinsvegar
áherslu á að undirbúa þurfi samein-
ingu vel, menn verði að ætla sér
góðan tíma og nauðsynlegt sé að
hafa gott samráð við starfsfólk
beggja spítalanna ef góður árangur
á að nást.
Spennandi verkefni
Landakotsspítali hefur á að skipa
góðu starfsfólki, sem hefur skilað
verkefni sínu í bráðaþjónustu frá-
bærlega á undanförnum árum, oft
við erfiðar aðstæður. Hollusta þess
við spítalann hefur verið með ein-
dæmum og margir starfsmenn
unnu með St. Jósefssystrum á sín-
um tíma. Miðað við þær rekstrarfor-
sendur sem spítalinn hefur nú er
ástæða til að hafa verulegar
áhyggjur af atvinnuöryggi starfs-
manna. Með því að taka þátt í við-
ræðum um sameiningu spítalanna
teljum við, að hægt sé að tryggja
atvinnu starfsfólksins við þá þjón-
ustu, sem það kann best og er mjög
vel hæft til að sinna, þ.e. bráðaþjón-
ustu. Það verður spennandi og verð-
ugt verkefni að skipuleggja, ásamt
starfsfólki Borgarspítala, vel útbú-
inn 350 rúma bráðaspítala í Foss-
vogi með breiða faglega undirstöðu
í tengslum við slysavarðstofu, sem
veitir góða og örugga þjónustu ver-
ulegrar hagræðingar í rekstri. Jafn-
framt mun hinn nýi spítali veita
Landspítala verðugt aðhald, bæði
faglega og rekstrarlega, en með
sjálfsagðri og eðlilegri verkaskipt-
ingu.
Höfundur eryfirlæknir og
formaður læknaráðs
Landakotsspítala.
ÞYRNIR sf.
C 74377 Bjarni
C 44992 Ágúst
Boðsími 984 54495
N Y R
Civic hefur verið endurhannaður
með nýjar kröfur samtímans í
huga. Civic er nútímabíll, sem er
kraftmikill, öruggur og þægilegur
en tekur jafnframt fullt tillit til
umhverfisins.
Civic árgerð 1992 er ril sýnis að
Vatnagörðum 24, mánudaga til
föstudaga kl. 9:00 - 18:00
laugardaga kl. 11:00 - 15:00.
Nánari upplýsingar eru veittar í
síma 68 99 00
Verð frá: 1.155.000,- stgr.
Greiðslukjör við allra hæfi.