Morgunblaðið - 18.01.1992, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.01.1992, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992 : Ragnheiður Hannes- dóttir, Gunnar Olafs■ son - Hjónaminning Fædd 11. maí 1907 Dáin 9. janúar 1992 Fæddur 3. ágúst 1910 Dáinn 19. desember 1990 Lát mig starfa, lát mig vaka, lifa, meðan dagur er. Létt sem fuglinn lát mig kvaka, lofsðng, drottinn flytja þér, meðan ævin endist mér. Lát mig iðja, lát mig biðja, lífsins faðir, drottinn hár. Lát mig þreytta, þjáða styðja, þerra tár og græða sár, gleðja og fórna öll mín ár. (Oterdahl. Margrét Jónsd. þýddi). Mig setti hljóða er tengdadóttir þessara mætu hjóna hringdi til mín og tilkynnti mér lát Heiðu okkar í Haga. Heiða hét fullu nafni Ragn- heiður Hannesdóttir og var fædd 11. maí 1907 að Stóru Sandvík í Sandvíkurhreppi, dóttir hjónanna Sigríðar Jóhannsdóttur og Hannes- ar Magnússonar. Systkinin voru 14 og var hún sjötta í röðinni af þeim 12 sem komust til fullorðinsára. Á þeim árum fóru ungar stúlkur gjarnan til Reykjavíkur í vist á góð heimili og var það talið á við bestu húsmæðraskóla. Hún fór í slíkar vistir og vann einnig á Hótel Skjald- breið. Kringum 1939 fór hún austur á Selfoss og kynntist þar ungum manni, Gunnari Ólafssyni. Þau felldu hugi saman og giftu sig árið 1940. Það var kannski vegna nýafstað- innar jólahátíðar að mér flaug í hug jólaævintýrið um Litlu stúlkuna með eldspýturnar. Heiða átti það sameiginlegt með stúlkunni með eldspýturnar að hún gat kveikt ljós og yl í hjörtum þeirra sem komu til þeirra hjóna, hvort sem það var til lengri eða skemmri dvalar. Hver man ekki Heiðu koma brosandi út á tröppurnar í Haga með útbreiddan faðminn til að bjóða alla velkomna. Að ég tali ekki um „borðið“, alltaf hlaðið af heimabökuðum tertum og kökum. Gunnar var fæddur 3. ágúst 1910 í Keldudal í Vestur-Skaftafells- sýslu, sonur hjónanna Guðrúnar Dagbjartsdóttur og Ólafs Bjarna- sonar. Börn þeirra voru 6. Dagbjört dvelur nú á öldrunarheimilinu Selja- hlíð í Reykjavík, Bjarngerður dvelur á elliheimilinu Grund í Reykjavík, Anna býr í Austurkoti í Hraungerð- ishreppi, Sigurlín dvelur á Hrafnistu í Hafnarfirði, en Bjami lést fyrir allmörgum árum. Gunnar var ungur þegar hann fór að vinna fyrir sér og sem þá var siður sendi hann foreldrum sínum launin. Um tví- tugsaldur fór Gunnar að vinna við bústörf í Viðey og síðar í Lækjar- hvammi hér í Reykjavík. Eftir 1935 fór hann austur að vinna við loðdýr- arækt sem starfrækt var í Haga. Eins og áður hefur komið fram giftu Gunnar og Heiða sig um 1940 og bjuggu allan sinn búskap í Haga. Þau eignuðust 4 syni. Þeir eru: Hannes, kvæntur Ásu Bjamadóttur og eiga þau 4 börn og 5 barna- börn. Magnús, kvæntur Guðrúnu Ingvarsdóttur, þau eiga 3 börn. Ólafur, kvæntur Bergrúnu Sigurð- ardóttur, þau eiga 3 börn. Sigurður Karl, kvæntur Þórunni Jónsdóttur, þau eiga 2 börn, en Þórunn átti 3 börn frá fyrra hjónabandi sem Heiða og Gunnar tóku við sem eig- in barnabörnum og auk þess hafa nú bæst við 4 barnabörn í þann hóp. Þau hjón vom með búskap í Haga og jafnframt búskapnum stundaði Gunnar vinnu frá heimil- inu, t.d. eftir stríð var hann við uppbyggingu Sogsvirkjunar og einnig hjá íslenskum verktökum á Keflavíkurflugvelli. Kom þá í hlut húsfreyjunnar að gæta bús og barna, og fórst Heiðu það einkar vel úr hendi. Hún hafði yndi af skepnum, naut þess að skreyta heimili sitt og hafði næmt auga fýrir fallegum fötum. Ég, sem þess- ar línur rita, kynntist þeim hjónum er faðir minn fór að búa með Dag- björtu, systur Gunnars. Eftir það leið ekki það sumar eða vetur að ég keyrði austur til að þau gætu dvalið orlofsnætur í Haga. Eftir að Dagbjört varð ekkja voru þau hjón henni betri en enginn þvi hún var oft langdvölum í Haga. Einnig var faðir Gunnars á heimilinu síðustu árin og hjúkraði Heiða honum eins og svo mörgum öðrum. Sumir læra hjúkrun í háskólum en öðrum er það meðfætt. Það er ekki ofmælt að Heiða hafí notið sín er hún stjan- aði við menn og málleysingja og ekki dró Gunnar þar úr. Gunnar og Heiða bjuggu allan sinn búskap í Haga og urðu aðeins 12 mánuðir og 20 dagar á milli þeirra hjóna. Verður Heiða nú lögð til hinstu hvílu við hlið manns síns í Selfoss- kirkjugarði í dag 18. janúar kl. 13.30. Nú legg ég aupn aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engii, svo ég sofi rótt. (Foerson - S. Egilsson.) Að leiðarlokum óska ég þeim heiðurshjónum góðra endurfunda og leyfi mér að þakka þeim alla tryggð og hve þau reyndust Dag- björtu vel alla tíð. Ég votta drengj- unum þeirra, mökum, bamabörnum svo og ættingjum og vinum mínar dýpstu samúðarkveðjur. Veri þessi merku hjón kært kvödd. Guði á hendur falin. Hafi þau hjartans þökk fyrir allt og allt. Jónína Björnsdóttir frá Oddgeirshólum. Hinn 9. janúar lést í Sjúkrahúsi Suðurlands á Selfossi Ragnheiður Hannesdóttir húsfreyja í Haga við Selfoss og verður hún jarðsungin frá Selfosskirkju í dag. Fyrir rösku ári lést eiginmaður hennar, Gunnar Ólafsson bóndi í Haga. Vil ég minn- ast þeirra hjóna hér beggja er þetta heimili heyrir nú sögunni til. Gunnar Ólafsson fæddist 3. ágúst 1910 í Keldudal í Mýrdal. Þar bjuggu þá foreldrar hans, Ólaf- ur Bjamason frá Engigarði í Mýr- dal og Guðrún Dagbjartsdótir frá Ketilsstöðum í Mýrdal. Gunnar ólst upp hjá foreldrum sínum í Keldudal til ársins 1921 er þau brugðu búi. Fór hann þá sem tökudrengur að Norðurgarði til ársins 1923, en var svo næstu árin vinnumaður á Steig í Mýrdal. Úr Mýrdalnum hélt hann 17 ára gamall að Torfastöðum í Fljótshlíð, þar sem hann var vinnu- maður í eitt ár. Síðan lá leiðin til Reykjavíkur. Reykjavík varð ekki lokaáfang- inn í lífi Gunnars Óiafssonar, en veitti þó góða lífsreynslu og starfs- þjálfun. Hann vann þar á eyrinni og var vinnumaður í Lækjarhvammi í fjögur ár. En þar lærði hann einn- ig til loðdýraræktar. Það réð úrslit- um um frekara h'fshlaup hans. Árið 1938 réðst Gunnar aftur austur fyrir ijall að sjá þar um nýstofnað refabú Loðdýrabús Sandvíkur- hrepps. Stofnendur þess voru 22 og keyptu þeir nýbýlið Haga við Selfoss með öllum húsum og rétt- indum. Þar settist nú Gunnar að um sumarið, setti upp girðingar fyrir refi og lét smíða refakassa. Fyrstu refirnir voru keyptir um haustið en fyrstu minkana lagði Gunnar sjálfur til. Vel gekk þessi rekstur framan af. Mér hefur verið sagt að lífdýr Gunnars hafí þótt vel alin og seldi því búið mikið til uppeldis í öðrum og nýrri búum. Gekk svo fram á stríðsárin er allur markaður brast ytra. Þrátt fyrir mikla natni Gunn- ars var verðfallið orðið þannig að ekki réðst við neitt og lögðu hlut- hafarnir því búið niður árið 1943. Þótti Gunnari það bæði endasleppt og sárt en varð að una við slíkt og leita annarrar vinnu. Hann réðst þá í almenna verka- mannavinnu og var nóg að starfa, m.a. við Sogsvirkjun og byggingu Ölfusárbrúar. Hann varð seinna um sjö ára skeið útiverkstjóri Selfoss- hrepps, en árið 1953 hóf hann störf hjá Kaupfélagi Árnesinga á gúmmí- vinnustofu félagsins og starfaði þar óslitið til sjötugs. Þar minnist ég Gunnars sem hins trausta manns sem alltaf var jafn öruggt að leita til. En samfara þessu hafði hann alltaf dálítið bú heima í Haga. Nokkrar kýr og kindur eins og bý- lið bar. Reisti ný hús yfír allan búpening sinn. Stundaði garðrækt Iðnlánasjóður kt. 540172-0139 Ármúla 13a, Reykjavík Skuldabréfaútboð 1. flokkur 1991 Heildarfjárhæð kr. 400.000.000.- Utgáfudagur 5. desember 1991 Fyrsti söludagurvar 15.12.1991 Flokkur Gjalddagi Upphæð l.fl.A 1991 05.12.1996 125.000.000 l.fl.B 1991 05.12.1998 125.000.000 l.fl.C 1991 05.12.2000 75.000.000 l.fl.D 1991 05.12.2002 75.000.000 Skuldabréfin bera fasta vexti 6,0%. Skuldabréfin eru verðtryggð skv. lánskjaravísitölu. Grunnvísitala er 3198. Ávöxtun yfír hækkun lánskjaravísitölu nú 7,0% Umsjón: Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf. VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Teleíax 68 15 26. r » > i i > > > UTS AL A »hunraél^P 20-50% afsláttur Opið í dag frá kl. 10-16 V/SA SP.ORTBUÐIN Ármúla 40, sími 813555 E

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.