Morgunblaðið - 18.01.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANUAR 1992
23
Réttarhöldunum yfir Papandreú lokið:
Sýknaður í mesta
spillingarmáli í nú-
tímasögu Grikkja
Aþenu. Reuter.
ANDREAS Papandreú, fyrrum forsætisráðherra Grikkja í átta
ár, var sýknaður í fyrradag af öllum ákærum um fjárdrátt og
fjármálamisferli í embættistíð sinni. Hafa réttarhöldin í þessu
mesta spillingarmáli í seinni tíma sögu Grikkja staðið frá árinu
1989 en þá skipaði gríska þingið sérstakan 13 manna dómstól til
að fjalla um það. Var niðurstaðan sú að sjö dómarar sýknuðu
Papandreú en sex sakfelldu hann. Nokkrum dögum áður hafði
Papandreú varað við því að gríska þjóðin kynni að klofna yrði
hann sekur fundinn.
Papandreú var ákærður fyrir
að hafa skipulagt 200 milljón doll-
ara ijárdrátt í Krítarbanka, þegið
mútur og skipað ríkisstjórninni
að afskrifa skuldir vinar síns.
Vassilis Kokkinos, forseti dóms-
ins, sagði að ekki hefðu verið
færðar sönnur á þessar sakir en
þær áttu á sínum tíma mestan
þátt í að Papandreú og Sósíalista-
flokkurinn hrökkluðust frá völd-
um í júní 1989. Hins vegar voru
tveir samflokksmenn Papandreú
s og fyrrverandi ráðherrar í stjórn
hans, Dimitris Tsovolas og George
Petsos, fundnir sekir um aðild að
Krítarbankahneykslinu. Var Tso-
volas dæmdur í tveggja og hálfs
árs fangelsi og missti einnig póli-
tísk réttindi sín í þrjú ár, sem
merkir að hann verður að láta af
þingmennsku. Petsos var dæmdur
í 10 mánaða fangelsi skilorðs-
bundið.
Papandreú hlýddi á úrskurðinn
heima hjá sér og talsmaður hans
sagði að hann væri mjög ánægður
með niðurstöðuna. Forsætisráð-
herrann fyrrverandi sniðgekk
réttarhöldin og sagði þau lið í
ófrægingarherferð hægrimanna í
Nýja lýðræðisflokknum og
Kommúnistaflokksins á hendur
sér. Flokkamir tveir mynduðu
samsteypustjórn eftir kosningaó-
sigur sósíalista og notuðu þing-
meirihluta sinn til að fyrirskipa
réttarhöldin yfir Papandreú.
Viðbrögð Papandreús við úr-
skurðinum voru þau að hann
hvatti til þess að efnt yrði tafar-
laust til þingkosninga. Hann sagði
andstæðingar hans hefðu beitt
réttarhöldunum sem pólitísku
vopni og ættu nú einskis annars
úrkosti en boða kosningar. Þeir
hefðu reynt að skaða hann en
mistekist hrapallega. „Þar sem
þeir komu ekki höggi á mig urðu
þeir að hefna sín á Dimitris Tsov-
olas og George Petsos,“ bætti
hann við.
Papandreú hefur einnig verið
ákærður fyrir að fyrirskipa ólög-
legar símahleranir en réttað verð-
ur í því máli sérstaklega síðar.
Ætlar að endurheimta
forsætisráðherraembættið
Papandreú er 72 ára að aldri
og gerðist sósíalisti er hann nam
lögfræði við Aþenu-háskóla. Hann
var handtekinn og sætti pynting-
um á fjórða áratugnum er Ioann-
is Metaxas einræðisherra var við
völd. Þegar hann var látinn laus
var honum bannað að hafa af-
skipti af stjórnmálum og hann
flutti til Bandaríkjanna árið 1939.
Þar varð hann bandarískur ríkis-
borgari, tók próf við Harvard-
háskóla og varð deildarforseti
hagfræðideildar Kaliforníu-
háskóla í Berkeley.
ife- SPÆNSKUNÁMSKEID
8 vikna hagnýt spænskunámskeið hefjast 27. janúar
fyrir byrjendur og lengra komna. Hentar fólki á öllum
aldri. Kennt í fámennum hópum. Upplýsingar og innrit-
un í skólanum Ármúla 36 og í síma 91-685824 milli kl.
14:00-18:00 og laugard. 11:00-14:00.
Málaskólinn HOLA - lifandi tunga -
Ármúla 36, sími 91-685824.
Andreas Papandreú
Hann kvæntist bandarískri
konu, Margaret, og þau fluttu
með fjögur börn sín til Grikklands
árið 1959. Hann afsalaði sér
bandarískum ríkisborgararétti og
var kjörinn á þing árið 1964.
Faðir hans, George, var þá for-
sætisráðherra.
Á þessum árum þótti Pap-
andreú gæta of mikilla banda-
rískra áhrifa í Grikklandi og hann
skrifaði að landið var lítið annað
en bandarísk nýlenda vegna gífur-
legrar efnahagsaðstoðar Banda-
ríkjamanna og hernaðarumsvifa
þeirra í landinu.
Papandreú fór í útlegð árið
1967 er herforingjastjórn komst
til valda. Þegar hún féll árið 1974
sneri hann aftur og sameinaði
ýmsar fylkingar vinstri manna
undir merkjum Sósíalistaflokks-
ins.
Papaendreou varð fyrsti for-
sætisráðherra sósíalista eftir stór-
sigur flokksins í þingkosningum
árið 1981. Flokkurinn hélt völdun-
um eftir kosningar árið 1985 en
halla fór undan fæti hjá Pap-
andreú undir lok annars kjörtíma-
bilsins þegar ijármálahneykslið
komst í hámæli. Auk þess þurfti
hann að gangast undir hjartaað-
gerð nokkrum mánuðum fyrir
kosningarnar í júní 1989 og um
það leyti skýrðu ijölmiðlar frá
ástarsambandi hans við 34 ára
flugfreyju, Dimitru Liani. Hann
skildi við konu sina tveimur dög-
um fyrir kosningarnar og kvænt-
ist Liani mánuði síðar.
Papandreú þykir óútreiknan-
legur og gæddur miklum persónu-
töfrum. Þrátt fyrir ásakanirnar
um aðild að fjármálahneykslinu
fékk flokkur hans um 40% at-
kvæða í kosningum í nóvember
1989 og apríl í fyrra og hann
hefur svarið þess eið að endur-
heimta embætti forsætisráðherra.
Reuter.
Sjötug kóresk kona, sem missti eiginmann sinn í þrælkunarbúðum Japana í síðari heimsstyrjöldinni,
ræðst að óeirðarlögreglumanni á mótmælafundi gegn Japönum í Seoul í gær.
Suður-Kórea:
Japanir iðrast stríðsglæpa
Seoul. Reuter.
KIICHI Miyazawa, forsætisráðherra Japans, bað í gær Suður-Kóreu-
menn afsökunar á framferði Japana í stríðinu, einkum á þeim glæpum
þeirra að neyða tugþúsundir kóreskra kvenna til að gerast vændis-
eða lagskonur japanskra hermanna. I ræðu, sem Miyazawa flutti í
suður-kóreska þinginu, lofaði hann einnig, að saga síðari heimsstyijald-
ar yrði sögð í japönskum kennslubókum en hingað til hefur að mestu
verið þagað um hana.
Um 800 manns efndu til mót-
mæla fyrir framan þinghúsið í Seoul
þegar Miyazawa flutti ræðuna og
brenndu meðal annars japanska fán-
ann. Skáru sumir sig í fingur og
skrifuðu síðan með blóðinu kröfur
sínar um bætur fyrir glæpaverkin.
Japanir hafa til þessa ávallt neitað
að hafa neytt konur til fylgilags við
hermennina á stríðsárunum en fyrir
því skortir þó engar sannanir. Áætla
sagnfræðingar, að „lagskonur"
japanskra hermanna hafi verið allt
að 200.000 talsins, þar á meðal
unglingsstúlkur, og um 80% þeirra
kóresk. Miyazawa minntist þó ekkert
á, að fyrir þetta yrði bætt að ein-
hveiju leyti en hann sagði, að kom-
inn væri tími til að segja japönsku
æskufólki sannleikann um stríðið,
líka um hlutskipti „lagskvennanna".
Heimsókn Miyazawa til Suður-
Kóreu virðist ekki hafa breytt miklu
um þá ímynd, sem Japanir hafa þar
í landi. I skoðanakönnun ríkisút-
varpsins kom fram, að 58,7% lands-
manna hafa andúð á Japönum og
nefndu langflestir sem ástæðu kúgun
og yfirráð Japana yfir Kóreu í 35 ár.
FORLOG
'1*4*4**'
Nú er hægt að leggja
grunninn að bókasafni
heimilisins á ótrúlega auðveldan hátt
BOKALAGERINN