Morgunblaðið - 18.01.1992, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992
37
ÚTSKURÐUR
Karólína höfð að féþúfu?
Franskur útskurðarmeistari að
nafni Raymond Amy breytti
út af vananum um hátíðirnar svo
eftir var tekið. Gífurleg sala er í
útskurðum af fjölskyldunni helgu,
Maríu, Jósef, Jesús og vitringun-
um auk hlöðunnar, jötunni og
húsdýrunum öllum sem á staðnum
voru er guðsbarnið var getið í
heiminn, í Suður Evrópu fyrir hver
jól. Englar og dýrlingar era einnig
í miklu uppáhaldi, Frakkar, ítalir
og Spánveijar skreyta mjög heim-
ili sín með gripum þessum. Amy
breytti til sem fyrr segir, hann
skar út fígúru af Karólínu prins-
essu af Mónakó sem hann heldur
fram að sé engill í jarðarvist.
„Karólína er helg. Hún er eng-
ill send af himnum ofan og í fyll-
ingu tímans er ég sannfærður um
að hún verði tekin í dýrlingatölu,“
segir útskurðarmaðurinn Raym-
ond Amy. Hann heldur áfram:
„Sjáið hvað hún hefur þurft að
þola í þessu lífi, en hve hún tekur
öllu með mikilli ró og yfirvegun
og æðraleysi.“ Styttan litla var
Rayniond Amy með styttuna
umtöluðu.
unnin upp úr ljósmynd af Karólínu
þar sem hún röltir um götu sveita-
þorps í einföldum kjól með litla
innkaupakörfu í hendinni. Mynd
þessi er fræg orðin og sýnir Karól-
ínu í mikilli sorg eftir lát eigin-
manns hennar Stefano Cashiragi.
Styttan var fjöldaframleidd og
seldist óhemjuvel. Þeir eru til sem
Ljósmyndin fræga sem. styttan
var gerð eftir.
segja Amy lygamörð, hann hafi
haft sorg hinnar vinsælu prinsessu
að féþúfu. Benda megi á að al-
gengt sé að mannskepnan taki
ástvinamissi með jafnaðargeði án
þess að það sé verðlaunað með
sérstökum hætti, eins og til dæm-
is með því að taka fólk í dýrlinga-
tölu.
STEINAR WAAGE
Verð 1.495,-
Stærðir: 36-41.
Litur: Hvítur.
Landsins mesta úrval af heilsuskóm
Póstsendum samdægurs.
5% staðgreiðsluafsláttur.
Morgunblaðið/Alfons
ÓLAFSVÍK
Aldarafmæli
sparisjóðsins
Ólafsvík.
Sparisjóður Ólafsvíkur varð
100 ára þann 14. janúar eins og
komið hefur fram í Morgunblað-
inu. Myndin er tekin á afmælis-
degi Sparisjóðsins og á myndinni
eru Leó Guðbrandsson, spari-
sjóðsstjóri ásamt starfsfólki.
SUÐUREYRI
Kringlunni, Toppskónum.
sími 689212. Veltusundi, s. 21212.
Domus Medica,
sími 18519.
.• ÍSLENSKAR SKÁLDSÖGUR • ÞÝDDAR SKÁLDSÖGUR • BARNA OG UNG,_
Magnaóasti bókamarkaóur allra tíma
Karlarnir þykjast kunna ensku
Suðureyri.
Skömmu fyrir áramót lauk
tveggja mánaða enskunám-
skeiði hjá Farskóla Vestfjarða sem
staðið hefur yfir í Grunnskólanum
á Suðureyri. Nemendur voru níu
alls.
Deborah Anne Ólafsson, sem
var leiðbeinandi á námskeiðinu, er
ættuð frá Nýja Sjálandi en hefur
búið á Suðureyri síðustu 8 árin.
Nemendurnir, sem voru allir af
„betra kyninu“, voru kampakátir
i lokatímanum og töldu sig hafa
haft bæði gagn og gaman af skóla-
setunni. Helst þótti þó hafa vantað
á að eitthvað af karlmönnum
vermdu skólabekkina, en einn
nemendanna hafði þó skýringu á
því. „Þeir þykjast allir kunna þetta
greyin“, varð honum að orði.
- Sturla.
Morgunblaðið/Sturla Páll Sturluson
Hluti nemendanna við lok enskunámskeiðsins með Deborah Anne
Ólafsdóttur leiðbeinanda, sitjandi fyrir miðju.
Eymuitdsson j
- ^ STOFNSETT 1872 3
o C
c
^nMavGoh • mmimi >m9Jiqof«i • mh9I(hm • wdninnim