Morgunblaðið - 18.01.1992, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992
Athugasemd OBI við bók-
un skipulagsstj óra ríkisins
MORGUNBLAÐINU hefur
borist bréf Öryrkjabanda-
lags Islands, sem undirrit-
að er af Arnþóri Helga-
syni, formanni stjórnar
Öryrkjabandalags íslands,
með athugasemdum við
bókun skipulagsstjórnar
ríkisins. Bréfið, sem stílað
er til Eiðs Guðnasonar
umhverfisráðherra, er
svohljóðandi:
„Öryrkjabandalagi íslands
hefur borist afrit af bókun
skipulagsstjómar ríkisins frá
8. þessa mánaðar vegna
málefnis sambýlis geðfatl-
aðra í Þverárseli í Reykjavík.
Nokkur atriði í bókinni eru
þess eðiis að Öryrkjabanda-
lag íslands telur nauðsynlegt
að gera við hana athuga-
semdir.
í bókuninni segir m.a.: í
10. gr. skipulagslaga nr.
19/1964 segir að á skipu-
lagsuppdrætti skuli sýna að-
alumferðaræðar, skiptingu
fyrirhugaðrar byggðar í
íbúðahverfi, iðnaðarhverfi og
opin svæði svo og staðsetn-
ingu nauðsynlegra bygginga
til almenningsþarfa o.s.frv.
Samkvæmt þessum lið
bókunar skipulagsstjómar
ríkisins er ekkert að finna í
skipulagsgögnum sem gerir
ráð fyrir að heimili fatlaðra
skuli sýnd á skipulagsupp-
dráttum enda verður að gera
ráð fyrir að sambýli falli
ekki undir hugtakið „bygg-
ingar til almenningsþarfa".
I áðurnefndri bókun er
einnig að fínna eftirfarandi
tilvitnun í skipulagsreglu-
gerð nr. 318/1983, gr. 3.3
og 4.1: Sýna skal á upp-
drætti og lýsa í greinargerð
núverandi landnotkun og
fyrirhugaðri, þ.e. skiptingu
byggðar í íbúðasvæði, úti-
vistarsvæði, iðnaðarsvæði og
verslunar- og þjónustusvæði.
Kanna skal að hve miklu
leyti og hvar skuli gert ráð
fyrir þjónustustofnunum rík-
is og sveitarfélaga svo sem
skólum og heilbrigðisstofn-
unum.
Tilvitnun þessi hnígur enn
frekar að þeirri túlkun sem
fram kemur hér að ofan að
sambýli falli eigi undir
ákvæði skipulagslaga og til-
vitnaðrar reglugerðar. Eðli
sambýla er með þeim hætti
að hæpið er að flokka þær
undir stofnanir þar sem íbúar
sambýlanna taka nokkurn
þátt í rekstri þeirra og mótun
starfs þess er þar fer fram.
Minnt skal á að sambýli
eru fyrst og fremst íbúðir
þeirra sem þar búa. Endur-
hæfíng fer fram á sérstökum
stofnunum. Að vísu skal tek-
ið fram að í vissum tilvikum
þarf endurhæfing að eiga sér
stað á heimilum fólks og
getur slíkt gilt jafnt um sam-
býli sem íbúðir í einkaeign.
Sem dæmi má nefna að missi
einstaklingur sjón þarf hann
að læra að nýju að almennar
athafnir daglegs lífs á eigin
heimili. Engum dettur í hug
að heimilið breytist í stofnun
á meðan á slíkri endurhæf-
ingu og kennslu stendur.
Að lokum skal vitnað í
samþykkt stjórnar Öryrkja-
bandalags íslands frá 7. júní
1990 vegna máiefna heimilis
einhverfa að Sæbraut 2 á
Seltjarnarnesi, en þar segir
m.a:
Stjórn Öryrkjabandalags
íslands bendir á að fatlaðir
einstaklingar eiga jafnan
rétt og aðrir á því að búa í
almennum íbúðahverfum og
njóta þeirra þjónustu sem
almenningi stendur til boða.
Stjórnin álítur að með sam-
stilltu átaki og fræðslu sé
unnt að haga málum svo að
ekki komi til árekstra vegna
starfsemi í þágu fatlaðra.
Þessi ályktun stjórnar Ör-
yrkjabandalags íslands skal
hér með ítrekuð."
Fræðslufundur Fugla-
verndarfélagsins
Stolni bíllinn fannst
ekki á partasölu
FRÆÐSLUFUNDUR
Fuglaverndarfélagsins
verður haldinn þriðjudag
21. janúar í stofu 101 í
Odda, húsi Hugvísinda-
deildar H.í. og hefst klukk-
.*n 20.30.
Efni fundarins nefndist
Fuglalíf og vemdun sunn-
SÉRSTÖK safnaleiðsögn
fyrir sýningargesti að
Kjarvalsstöðum mun hefj-
ast laugardasginn 18. jan-
úar.
Sérfræðingar safnsins
mun taka á móti gestum í
anddyri Kjarvalsstaða og
fara með þá í gegnum sýn-
ingarnar Kjarval og eldri
meistara úr Listasafni
Reykjavíkur.
Safnaleiðsögn verður
framvegis á laugardögum og
sunnudögum kl. 16.00.
Gífuleg aðsókn hefur verið
að ljóðasýningu Isaks Harð-
arsonar og myndlistarsýn-
ingu á verkum eftir eldri
meistara úr eigu borgarinn-
ar, en þetta er í fyrsta sinn
sem er skipulögð sérstök
sýning á þessum verkum sem
venjulega hanga á hinum
ýmsu stofnunum borgarinn-
ar.
Mikil aðsókn skólafólks
hefur verið í leiðsögn safna-
leiðbeinanda Kjarvalsstaða
Qg vilja forsvarsmenn Kjar-
valsstaða beina þeim tilmæl-
um til kennara að panta sér-
lensks votlendis og munu
Einar Ó. Þorleifsson og Jó-
hann Óli Hilmarsson skyra
frá störfum votlendishóps
Fuglaverndarfélagsins s.I. 2
ár, en unnið hefur verið að
því að skrá það sem eftir er
af sunnlensku votlendi,
gróðri þess og fuglalífí.
staklega tíma.
Kjarvalsstaðir eru opnir
daglega frá kl. 10-18 og er
STARFSMENN Trygg-
ingastofnunar ríkisins,
innan vébanda Starfs-
mannafélags ríkisstofnana
héldu fund hinn 15. janúar
og Iá starfemi stofnunar-
innar að mestu niðri þá tvo
klukkutíma, sem fundur-
inn stóð. A fundinum kom
fram óánægja með treg
viðbrögð samninganefnd-
ar ríkisins og krafa um
úrbætur á vinnuaðstöðu og
kjörum.
Samþykktar voru tvær
ályktanir á fundinum, önnur
um að skorað væri á ríkis-
stjórnina að veita samninga-
nefnd sinni fullt umboð til
samninga og minnt var á að
5 mánuðir væru nú Iiðnir frá
því er samningar urðu lausir.
Hin ályktunin fjallar um laun
VEGNA fréttar i Morgun-
blaðinu í gær, um að lög-
reglan hefði fundinn stol-
iiin bíl á bílapartasölu í
Artúnsholti skal tekið
fram, að billinn fannst ekki
í húsnæði fyrirtækisins,
heldur í því næsta við hlið-
ina.
Húsnæðið, þar sem bíllinn
fannst, er leigt af nokkrum
aðilum, sem geyma þar ýms-
ar bifreiðar. Einn þeirra ætl-
aði að selja fornbíl og kom
til hans maður, sem vildi láta
Golf-bifreið upp í kaupin.
Hann skildi bílinn eftir og
kvaðst koma síðar með alla
pappíra og ganga frá kaup-
unum. Hann vildi fá fornbíl-
inn strax, en fékk ekki. Á
þriðjudag óskaði hann eftir
því við eiganda fornbílsins
að Golfinn yrði settur inn,
sem var gert. Eigandi forn-
veitingabúðin opin á sama
tíma.
og aðbúnað og sagt er að
þau séu lakari hjá Trygg-
ingastofnuninni en viðunandi
geti talist og að ný skýrsla
Ríkisendurskoðunar undir-
striki enn þesa ömurlegu
staðreynd. Þá segir í álykt-
uninni: „Fundur starfs-
manna Tryggingastofnunar,
haldinn 15. janúar 1992,
skorar því á heilbrigðis- og
tiyggingaráðherra og for-
mann tryggingaráðs að
koma til fundar með starf-
mönnum. Farið er fram á að
fundurinn verði haldinn sem
fyrst. Á fundinum óskum við
sérstaklega eftir að ræða
launamál okkar og starfsað-
stöðu, en auk þess höfum við
mikinn áhuga á að ræða um
annað efni í skýrslu Ríkis-
endurskoðunar."
bílsins sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að hann
hefði ekki heyrt í manninum
aftur, en lögreglan hefði
komið og tekið Golfínn í sína
vörslu, enda hafði honum
verið stolið frá bílasölu í des-
ember.
Dagur aldr-
aðra í Mos-
fellsbæ
KARLAKÓRINN Stefnir
ásamt Stefnum, sem eru
samtök eiginkvenna kórfé-
laga, mun sunnudaginn 19.
janúar standa fyrir degi
aldraðra í Hlégarði í Mos-
fellsbæ. Þessir aðilar hafa
á undanförnum 10 árum
staðið fyrir slíkri skemmt-
un aldraðra og hefur það
framtak mælst vel fyrir.
Dagskráin hefst kl. 15
með því að spiluð verður fé-
lagsvist. Síðan verður boðið
til kaffihlaðborðs Stefnanna
sem er rómað í Mosfellsbæ
og Kjósinni og víðar fyrir
mikilfenglegar og Ijúffengar
tertur og annað kaffimeð-
læti. Síðast en engan veginn
síst mun Karlakórinn Stefnir
syngja nokkur vinsæl íslensk
lög sem allir þekkja.
Allir aldraðir eru boðnir
velkomnir til þessarar
skemmtunar.
í LEIKBRÚÐULANDI
Fríkirkjuvegi 11
laugard. 18. jan. kl. 15. Uppselt
Sunnud. 19. jan. kl. 15.
„Vönduð og bráðskemmlileg,
fléttuö saman af ótrúlegu liug-
myndaflugi" (Súsanna, Mbl.)
„Falleg og vel unnin“ (Lilja,
Þjóðv.) „Stór áfangi fyrir leik-
brúðulistina í landinu“ (Auður,
DV) - Miðapantanir í s. 622920
Ath! F.kki hægt að hleypa inn
eftir að sýning hefst.
Leiðsögn um Kjarvalsstaði
(Frétt frá Kjarvalsstöðum)
Starfsmenn Tryggingastofnunar:
Vilja fund með heilbrigð-
is- o g tryg'gingaráðherra
Sími 16500
Laugavegi 94
Stórmynd Terrys Gilliam
BILUN í BEINNIÚTSENDINGU
F I S H E R KING
„Besta jólamyndin í ár “ - ★ ★ ★ ★ Bíólínan
★ ★ ★Va HK DV ★ ★ ★ ★ S.V. Mbl.
„Tvímælalaust ein eftirminnilegasta mynd, sem ég hef
séð á árinu. Gott handrit og frábær leikur."
Valdís Gunnarsdóttir.
Bókin Bilun í beinni útsendingu fæst í bókaverslunum
og söluturnum.
Sýnd í A-sal kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.30.
Bönnuð innan 14 ára.
BÖRN NÁTTÚRUNNAR
Aðalhlutverk: Gísli Halldórs-
son og Sigríður Hagalín.
Sýnd í B-sal kl. 7.15 og 9.
Sýnd í A-sal kl 3.
7. sýningarmánuður.
Sýnd kl. 5og 11.
Bönnuð i. 16.
POTTORMAR - Sýnd kl. 3 - Miðaverð kr. 300.
í
ss
Fyrsta frumsýning á nýju sviði í Þjóöleikhúsinu
Smíðaverkstæöið:
ÉG HEITI ÍSBJÖRG, ÉG ER LJÓN
eftir Vigdísi Grímsdóttur
Tónlist: Lárus Grímsson. l.ýsing: Björn B. Guðmundsson.
Lcikmynd og húningar: Elín Edda Ámadóttir. Leikstjóri:
Hávar Sigurjónsson.
Leikarar: Guðrún Gísladóttir, Bryndís Petra Bragadóttir,
Ragnheiður Steindórsdóttir, Jóhann Sigurðarson, Þórarinn
Eyfjörð, Pálmi Gestsson, Hjálmar Hjálmarsson og Ólafía
Hrönn Jónsdóttir.
Frumsýning fós. 24. jan kl. 20.30 uppselt.
2. sýn. sun. 26. jan. kl. 20.30.
3. sýn. fös. 31. jan. kl. 20.30.
4. sýn. lau. 1. feb. kl. 20.30.
RÓMEÓ OG JÚLÍA
eftir William Shakespeare
Fim. 23. jan. kl. 20. Lau. 1. feb. kl. 20.
Sun. 26. jan. kl. 20. Lau. 8. feb. kl. 20.
Hi
miintes
er a<
li£«
<a
eftir Paul Osborn
Sun. 19. jan. kl. 20. Sun. 2. feb. kl. 20.
Lau. 25. jan. kl. 20. Fös. 7. feb. kl. 20.
SÝNINGUM FER FÆKKANDI
eftir David Henry Ilwang
í kvöld kl. 20. Fös. 31. jan. kl. 20.
Fös. 24. jan. kl. 20. Fim. 6. feb. kl. 20.
LITLA SVIÐIÐ:
cftir Ljudmilu Razmnovskaju
í kvöld kl. 20.30, uppselt. Fös. 24. jan. kl. 20.30, upps.
Sun. 19. jan. kl. 20.30, uppselt. Lau. 25. jan. kl. 20.30, upps.
Mið. 22. jan. kl. 20.30, uppselt.
UPPSELT ER A ALLAR SÝNINGAR Á
KÆRU JELENU TIL 9. FEBRÚAR.
Miðar á Kæru Jelenu sækist viku fyrir sýningu,
clla seldar öðrum.
BUKOLLA
barnaleikrit eftir Svein Einarsson.
Aukasýning sun. 19. jan. kl. 14 fá sæti
laus.
Allra síðasta sýning.
Miðasalan er opin frá kl. 13-18 alla daga ncma mánudaga og
fram að sýningu sýningardagana. Auk þess er tekið við pöntun-
um í síma frá kl. 10 alla virka daga.
Greiöslukortaþjónusta - Græna línan 996160.
Leikhúskjallarinn er opinn öll föstudags- og laugardagskvöld.
Leikhúsveisla; leikhúsmiði og þríréttuð máltíð öll sýningar-
kvöld á stóra sviðinu. Borðapantanir í miðasölu.
Leikliúskjallarinn.