Morgunblaðið - 18.01.1992, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANUAR 1992
45
4
4
4
4
4
4
i
Ökumenn: Verið vakandi, virðið rétt gangandi fólks.
Foreldrar, við kennum börnum okkar að nota gang-
brautir, gerum við það sjálf.
Mynd-
ræn ljóð
Síðast liðinn vetur og það sem
af er þessum vetri hefur Sjónvaip-
ið verið af og til með kynningar á
íslenskum kvæðum. Kynning þessi
hefur farið þannig fram.'að fengin
hefur verið ákveðin persóna til að
velja og lesa eitt kvæði einhvers
góðskáldsins og einhver bók-
menntafróður maður rætt um
kvæðið við lesarann. Allt er þetta
svo sem ágæt viðleitni. En að mínu
mati er þetta ekki það rétta form
til að kynna skáldskap í sjónvarpi,
svona gæti alveg eins verið í út-
varpi. Gætum að því að sjónvarpið
er framar öllu öðru myndmiðill.
Og þess vegna datt mér í hug
hvort ekki væri upplagt að láta
myndir fylgja lestri kvæðanna, þar
sem efni þeirra kæmi fram í mynd-
unum. En til þess að vel takist til
þurfa kvæðin að vera myndræn.
En við eigum heilan helling af svo-
leiðis kvæðum. Hugsið ykkur hvað
væri hægt að hafa fagra róman-
tíska ástarsenu við lestur Ferða-
loka eftir Jónas Hallgiímsson eða
allar fallegu landslagsmyndimar
sem gætu fylgt Áföngum Jóns
Helgasonar. Eða þá við hið stór-
brotna kvæði Einars Benediktsson-
ar, Útsæ, þar sem öllum blæbrigð-
um sjávarins í blíðu og stíðu er
lýst á ógleymanlegan hátt. Ég er
viss um að þetta gæti verið mjög
spennandi verkefni fyrir góða
myndatökumenn.
Gestur Sturluson
4
UTSALA
-nerra-
GARÐURINN
Kringlunni
LANGAR ÞIG TIL
AÐ VERA SKIPTINEMI?
Ef þú ert fædd/ur 1975 til 1976 getur þú sótt
um að fara til Ástralíu eða Nýja Sjálands. Farið
er út í janúar 1993 og komið aftur í desember.
Umsóknarfrestur rennur út 1. apríl og það eru
aðeins örfá pláss laus.
Fáein pláss eru einnig laus til Bandaríkjanna,
ensku- og frönskumælandi Kanada, Þýskalands,
Hollands og Norðurlandanna. Sækja þarf um til
þessara landa fyrir 1. febrúar.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu ASSE í síma
621455 alla virka daga á milli kl. 13 og 17.
INTERMATlOrsJAL STUDENT EXCHANGE PROGRAMS
Meim en þú geturímyndad þér!
Hátíð hjá bókaormum í dag
- bækur allt frá 50 krónum
Bókamarkaðurinn byrjaði aldeilis vel í Kolaportinu síðasta laug-
ardag og stefnir í að verða ennþá betri í dag, því um 300 nýir
bókatitlar bætast við og söluaðstaðan hefur verið bætt til að
auðvelda fólki viðskiptin. En bókamarkaðurinn er aðeins í hluta
Kolaportsins og önnur markaðsstarfsemi blómstrar á nýju ári.
„Við áttum von á góðri aukningu
á bókamarkaðnum,“ segir Helga
Mogensen, „en salan þennan
fyrsta markaðsdag ijórfaldaðist
frá fyrsta deginum í fyrra og
fólksfjöldinn var gífurlegur svo
árið byijaði svo sannarlega vel
hjá okkur.“
Nýir bókatitlar og frábært
verðlag.
„Bókamarkaðurinn er óvenju
glæsilegur núna hvað varðar
úrval og verðlag. Okkur tókst
að fá talsvert mikið af bókatitl-
um sem ekki hafa sést áður á
bókamörkuðum og þessa helgi
bætast við enn fleiri. Ég reikna
með að bókatitlarnir verði hátt
í 1500 og mikill fjöldi þeirra er
á undir 100 krónum og allt niður
í 50 krónur. Svo má ekki gleyma
að minnast á að hér er líka geysi-
góður hljómplötumarkaður í
gangi og þar getur fólk fengið
úrval af hljómplötum frá 100
krónum."
Margt annað spennandi í
Kolaportinu
„Þetta er mjög skemmtilegur
tími í Kolaportinu," segir Helga,
„því nú hefur Kolaportið breyst
svo mikið frá því fyrir jól. Nýir
söluaðilar eru stöðugt að bætast
í hópinn og við erum t.d. að sjá
svo mikið af þessu skemmtilega
kompudóti koma aftur.“
Aðeins á laugardögum í
janúar
Kolaportið er aðeins opið á laug-
ardögum í janúar en í febrúar
bætast svo sunnudagamir aftur
við. Á laugardögum er markað-
urinn opinn frá kl. 10-16 og skal
þess sérstaklega getið að gestum
er ekki heimill aðgangur fyrir
auglýstan opnunartíma.
Auglýsing
Meiriháttar bókamarkaður í Kolaportinu
Bókamarkaðurinn í Kolaportinu: