Morgunblaðið - 18.01.1992, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA I SVIÞJOÐ
Ótrúlega jafnt
Svíarog Frakkarsetjastfyrstiraðveisluborðinu þegar úrslita-
keppni Evrópukeppni landsliða hefst 10. júní í Stokkhólmi
TVEIR ótrúlega jafnir riðlar,
það var samdóma álit lands-
liðsþjálfaranna átta eftir drátt-
inn í úrslitakeppni Evrópu-
keppninnar í gær í Gautaborg
í Sviþjóð. Gestgjafarnir Svíþjóð
höfnuðu í riðli með Frakklandi,
Júgóslavíu og Englandi, en Evr-
ópumeistarar Hollands höfn-
uðu í riðli með Skotlandi, Sam-
veldi sjálfstæðra ríkja og
heimsmeisturum Þýskalands.
Viðbrögð þjálfaranna átta við
drættinum voru öll á einn veg,
að riðlamir væru mjög jafnir og
myndu bjóða upp á
spennandi leiki í
sumar. Tommy
Svensson, landsliðs-
þjálfari Svía, sagði í
samtali við Morgunblaðið að hann
væri þokkalega ánægður með drátt-
inn. „Það verður gaman að leika
opnunarleikinn gegn Frakklandi því
' þeir eru án efa með besta landslið
Evrópu um þessar mundir, þetta
verður því sannkölluð knattspyrnu-
veisla fyrir knattspyrnuáhugafólk í
Svíþjóð. En þetta verður auðvitað
geysilega erfitt því Júgóslavía og
England eru einnig meðal sterkustu
landsliða Evrópu. Markmið okkar
Svía er að komast í undanúrslitin,"
sagði Tommy Svensson.
Graham Taylor, Englandi
Graham Taylor, landsliðsþjálfari
vEnglands, sagði að sínir menn ættu
Þorsteinn
Gunnarsson
skrifarfrá
Gautaborg:
erfitt verkefni fyrir höndum. „Það
geta allir unnið alla í þessum riðli
og því má búast við mjög jöfnum
og tvísýnum leikjum. Það sem mér
finnst skemmtilegast við dráttinn
er að leika í riðli með gestgjöfunum
Svíþjóð því áhuginn hér er auðvitað
mestur fyrir heimaliðinu," sagði
Taylor.
Michael Platini, Frakklandi
Michael Platini, landsliðseinvald-
ur Frakka, tók í sama streng og
enski landsliðsþjálfarinn, þetta væri
enginn óskadráttur fyrir neitt af
þessum liðum. „Ég geri greinarmun
á Evrópukeppninni og heimsmeist-
arakeppninni. Evrópukeppnin er í
rauninni erfiðari því það eru mörg
slök lið sem komast í í úrslita-
keppni heimsmeistarakeppninnar. í
Evrópukeppninni eru þetta allt
mjög sterk lið og enginn leikur er
unninn fyrirfram," sagði Platini og
lýsti einnig yfir ánægju sinni með
að fá að mæta gestgjöfum í opnun-
arleik Evrópukeppninnar.
Tviva Osim, Júgóslavíu
Tvica Osim, landsliðsþjálfari
Júgóslavíu, sagðist hafa miklar
áhyggjur af því hve lítinn tíma hann
hefði til að undirbúa lið sitt fyrir
Evrópukeppnina. „Deildarkeppn-
inni lýkur ekki fyrr en 25. maí í
Júgóslavíu sem er að mínu áliti allt
of seint. Hálfur mánuður í undir-
16-liða úrslit 1996
Knattspyrnusamband Evrópu, FIFA, samþykkti á fundi sínum í gær
að mæla með því að 16 lið verði í úrslitakeppni Evrópukeppninnar
1996. Ástæðan er einfaldlega sú að vegna þróunarinnar í Evrópu mun
aðildarlöndum FIFA fjölga úr 33 í a.m.k. 39 og því munu flestar þjóðirn-
ar vera því fylgjandi að fjölga liðunum í sjálfri úrslitakeppninni um helm-
ing. Fimm þjóðir hafa sótt um að halda Evrópukeppnina 1996: Austur-
ríki, England, Grikkland, Holland og Portúgal. FIFÁ hefur beðið viðkom-
andi lönd að endurskoða umsóknir sínar í ljósi þess að ijölga á liðunum
í úrslitakeppninni. FIFA mun síðan taka ákvörðun um það í mars hvort
af þessari fjölgun verður og í maí verður síðan tilkynnt um það hvaða
land mun verða gestgjafi Evrópukeppninnar 1996.
búning er einfaldlega ekki nóg. Svo
gerir ástandið heima undirbúning-
inn auðvitað enn erfiðari en ella.
Eins og málin standa nú myndu lík-
lega tveir Króatar leika með okkur
en þetta kemur allt í ljós næstu
vikurnar. En auðvitað vil ég geta
stillt upp mínu sterkasta liði og það
eru allir velkomnir í landsliðið sem
ég falast eftir, sama hvaðan þeir
koma,“ sagði Osim.
Andy Roxburgh, Skotlandi
Andy Roxburgh, landsliðsein-
valdur Skotlands, var fyrst spurður
að því hvort hann hefði ekki verið
feginn því að losna við granna sinn
og höfuðandstæðing, England.
„Ekkert endilega, þetta eru allt svo
erfíð lið að það skiptir í sjálfu sér
engu máli hveijir andstæðingarnir
eru. En það hefði verið mjög áhuga-
vert að lenda með Englendingum í
riðli en við mætumst bara í staðinn
í undanúrslitunum," sagði Rox-
burgh kokhraustur. Þess má geta
að Skotar eru eina landsliðið sem
undirbýr sig fyrir utan landamæri
Evrópu en þegar deildarkeppnunum
lýkur á Bretlandseyjum í maí fara
Skotamir í æfíngabúðir til Banda-
ríkjanna og leika þar gegn heima-
mönnum og Kanada. Aðspurður
sagði Roxburgh að þetta væri gert
til þess að fá að vera í algjöru
næði, vera fjarri skarkala Evrópu
og ekki síst til að fá frið fyrir ágeng-
um fréttamönnum. „En það verður
á brattann að sækja fyrir okkur í
sumar. Við erum með bæði heims-
meisturunum og Evrópumeistumn-
um í riðli og þurfum að sýna okkar
besta til að komast a.m.k. í undan-
úrslitin," sagði Roxburgh.
Bertie Vogts, Þýskalandi
Berti Vogts, landsliðseinvaldur
Þýskalands, lýsti yfir óánægju sinni
með dráttinn og sagðist hlakka
mikið til sumarsins. „En mitt
vandamál er að ég hef aðeins tvær
vikur til að undirbúa lið mitt fyrir
Evrópukeppnina vegna þess hve
Um helgina
Körfuknattleikur
Japisdeildin, sunnudagur:
Stykkish.: Snæfell - UMFN.......18
Borgames: Skallagrímur - KR.....16
Keflavík: ÍBK - UMFG.............20
Akureyri: Þór- Valur.............16
1. deild kvenna, laugardagur:
Grindavík: UMFG - Haukar........14
Hagaskóli: KR - ÍBK..............14
Sunnudagur:
Kennaraháskóli: ÍS - ÍR..........20
Handknattleikur
1. deild karla, laugardagur:
Seltjn.: Grótta - Fram........16.30
1. deild kvenna:
Keflavík: ÍBK - FH............15.15
Seltjn.: Grótta - Fram...........15
Strandg.: Haukar - Stjaman.......14
2. deild karla:
Keflavík: HKN-Þór................14
Sunnudagur:
Seljaskóli: Ögri - Ármann.....15.30
Seljaskóli: ÍR - ÍH..............17
Blak
Sunnudagnr:
KA-hús: KA - HK kv...............14
KA-hús: KA - HKka.............15.15
Hveragerði: UMF. Skeið - ÍS ka..14
Knattspyrna
íslandsmótið innanhúss:
Leikir í 1. deild karla verða í Laugar-
dalshöll á morgun og hefst keppnin
kl. 09. Átta liða úrslit byrja kl. 18.12,
undanúrslit kl. 19.44 og úrslitaleikur-
inn kl. 20.50.
Keppni í mfl. kvenna hófst í gær, en
í dag mætast sigurvegaramir úr riðlun-
um kl. 13.04, 14.09 og 15.14.
2. deild karla byijar kl. 10 í dag og
lýkur kl. 19.47.
Sund
Landsbankamótið í sundi verður í
Sundhöll Hafnarfjarðar í dag og á
morgun. Keppt verður í unglingaflokk-
um kl. 10 báða dagana, en flestir sterk-
ustu sundmenn landsins keppa kl.
15.30 í dag og 15. á sunnudag.
íshokki
Bauerdeildin, Akureyri:
SA - Bjöminn....................15
Ruud Gullit og félagar hans hjá Hollandi hafa titil að verja í Svíþjóð í sumar.
deildin á Ítalíu klárast seint.“ Um
andstæðingana sagði Vogts að
þetta yrðu allt erfiðir leikir. Til
Hollands og Skotlands þekkti hann
vel en Samveldi sjálfstæðra ríkja
væri stórt spumingarmerki.
Rinus Michels, Hollandi
Rinus Michels, hinn gamalgróni
þjálfari Hollendinga, sem stýrði
þeim til sigurs í Evrópukeppninni
1988, lék á als oddi á blaðamanna-
fundinum eftir dráttinn og var
skrafhreifur mjög. Var hann
ánægður með dráttinn. Holland og
Þýskaland væru sigurstranglegustu
þjóðirnar en á góðum degi gætu
Skotar og ekki síst Samveldin skot-
ið þeim skelk í bringu, í knatt-
spyrnu gæti allt gerst. Honum varð
tíðrætt eins og mörgum landsliðs-
þjálfaranna um hve lítinn tíma hann
hefði til undirbúnings með landslið
sitt. „Æfíngabúðirnar fyrir keppn-
ina er mikilvægasti tíminn sem
hver landsliðsþjálfari hefur til und-
irbúnings með lið sitt. Við fáum
aðeins tvær vikur en ég er að gera
mér vonir um að AC Milan og Barc-
elona verði búin að tryggja sér sig-
ur í deildarkeppnunum í sínum lönd-
um miklu fyrr til að ég geti fengið
lykilmenn mína til undirbúnings
miklu fyrr,“ sagði Rinus Michels
og hló.
Því miður náði Morgunblaðið
ekki tali af landsliðsþjálfara Sam-
veldanna í gær í Gautaborg.
Evrópukeppnin í Svíþjóð í júní
Staður
Stokkhólmur
Malmö
Gautaborg
Norrköping
Stokkhólmur
Malmö
Gautaborg
Norrköping
Stokkhólmur
Malmö
Gautaborg
Norrköping
Stokkhólmur
Gautaborg
Leikur
Svíþjóð : Frakkland
Júgóslavía: England
18:15
18:15
Holland
Sovétríkin
Svíþjóð
Frakkland
Holland
Skotland
Svíþjóð
Frakkland
Holland
Skotland
1. Riðilll
1. Riðill II
Skotland
Þýskaland
Júgóslavía
England
Sovétríkin
Þýskaland
England
Júgóslavía
Þýskaland
Sovétríkin
2. Riðill II
2. Riðill I
Gautaborg 18:15 ÚRSLITALEIKURINN
Allir leikirnir verða sýndir beint í sjónvarpi hér, utan tveir, en 17. og
18. júní fara tveir leikir f ram á sama tíma. Annar leikjanna verður
sýndur í heild i sjónvarpi seinna um kvöldið.
■ ÞJÓÐVERJAR eru efstir á
blaði hjá veðmöngurum sem sigur-
vegarar í EM, með 9:4. Frakkar
koma með 9:2, en síðan koma Eng-
landingar og Hollendingar með
11:2, Sovétríkin (Samveldin), Sví-
þjóð og Júgóslavía eru með 9:1,
en Skotland 14:1.
■ BOBBY Charlton, fyrrum
landsliðsfyrirliði Englands, sagðist
vera ánægður með að landar sínir
léku ekki í sama riðli og Skotland,
Holland og Skotlands.
■ SVÍAR þeir sem sjá um örugg-
ismál í sambandi við EM, eru án-
ægðir með að Englendingar og
Þjóðverjar sér ekki í sama riðli
og einnig að Skotar séu ekki í
sama riðli og Englendingar.
M FRANZ Beckenbauer, fyrrum
landsliðsþjálfari Þýskalands, sagði
að landar sínir léku í erfiðum riðli.
„Holland og Þýskaland eru líkleg
til að komast áfram, en það má
ekki afskrifa Sovétmenn né Skota.“
■ HOLLENDINGAR og Þjóð-
verjar fá ekki leikmenn sína, sem
leika á Ítalíu, lausa fyrr en tíu
dögum fyrir EM, en deildarkeppn-
inni á Italíu stendur til 24. maí.
■ MICHEL Platini, landsliðs-
þjálfari Frakklands, sagði að hann
óttaðist Englandinga mest, en
hann fengi tilvalið tækifæri til að
vega og meta getu þeirra þegar
Frakkar léku gegn þeim á Wem-
bley í febrúar.
■ SAMKVÆMT ákvörðun
UEFA verður skylt að númera
Iandsliðstreyjur leikmanna bæði að
framan og aftan í Evrópukeppn-
inni í sumar. Auk þess skulu nöfn
leikmanna einnig vera aftan á treyj-
unum.
M ÞEIR leikmenn sem eru skráð-
ir með gul spjöld eftir riðlakeppn-
ina, taka þau spjöld með sér í úrsli-
takeppnina. Þjóðverjar fóru fram
á það við UEFA að þessu yrði
breytt og allar þjóðirnar byijuðu
keppnina án þess að vera með nein-
ar áminningar. Þessari bón hafnaði
UEFA. Þess má geta að fimm leik-
menn Þýskalands taka með sér
gult spjald í Evrópukeppnina í Sví-
þjóð og þurfa því aðeins eitt í við-
bót'tii að fara í eins leiks leikbann.