Morgunblaðið - 01.02.1992, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1992
9
IIICO járnrúm
Mikið úrval í breiddum og iitum
Teg. 674. 100 - 120 - 140 og 160 cm breið. Verð frá kr. 30.900 m/dýnu stgr.
Teg. 596. 80 - 90 - 140 og 160 cm breið. Verð fró kr. 24.700 stgr.
Visa - Euro raðgreiðslur
□HHHHE3
HÚSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKURVEGI 66 HAFMARFIRÐI SÍMI 54100
Flokksmálgagn deyr
Þjóðviljinn, „málgagn sósíalisma, þjóð-
frelsis, og verkalýðshreyfingar", hætti
göngu sinni í gær, 31. janúar, en hann
kom fyrst út 31. október 1.936. Þjóðviljinn
var málgagn Kommúnistaflokks íslands,
Sameiningarflokks alþýðu - Sósíalista-
flokksins og loks Alþýðubandalagsins.
Gjaldþrota
stefna
Forustugreinar
tveggja dagblaða fjöll-
uðu í gær um endalok
Þjóðviljans, forustugrein
Alþýðublaðsins og Þjóð-
viljans sjálfs. Hér á eftir
verður stiklað á forustu-
greinunum.
Fonistugrein Alþýðu-
blaðsins nefnist „Dagblað
deyr“ og þar segir m.a.:
„Rödd I jóðviljaiis var
skýr og afdráttarlaus.
Blaðið fylgdi Alþýðu-
bandakiginu og forver-
um þess að málum og
hefur barist fyrir sömu
skoðunuin og Kommún-
istaflokkur Islands, Sós-
íalistaflokkurinn og Al-
þýðubandalagið. í dag
stendur stefnan prentuð
í haus blaðsins: „Málgagn
sósialisma, þjóðfrelsis og
verkalýðshreyfingar." Sé
litið yfir sögu blaðsins
sést greinilega, að stefna
þess beið sama gjaldþrot
og stefnur þeirra flokka
sem blaðið hefur fylgt.
Blaðið varði kommún-
ismann og stalinismann á
sinum tíma. Það varði
glæpina á Stalíntíman-
um, barðist gegn aðild
íslands að Atlantsliafs-
bandalaginu og veifaði
stríðsöxinni gegn fijáls-
um viðskiptum og lýð-
ræðislegri þjóðfélags-
uppbyggingu. Blaðið
boðaði lengi vel sósialisk-
ar patentlausnir líkt og
flokkurinn sem það
studdi. Við þeirri stefnu
er svo sem ekkert að
amast. Þjóðvijinn naut
tjáningarfrelsis og út-
gáfufrelsis sem önnur
blöð og tímarit í lýðræð-
isþjóðfélagi og var ein
röddin í samfélagskóm-
um.
Eldspýtu-
stokkur og lík-
kista
Við fjölmiðlabylting-
una á niunda áratugnum
breyttist staða flokks-
málgagnanna svonefndu.
Ný og öimur tök á frétt-
um neyddu málgögnin til
starfsbróður sins og
keppinautar, Þjóðvilj-
ans.“
Tímamót
Síðasta foi'nst ugi'ein
Þjóðviljans var birt á
forsíðu og nefndist húii
„Horft til framtíðar". í
upphafinu sagði:
„I dag em timamót í
sögu vinstri hreyfingar-
innar, með þvi að Þjóð-
vijinn kemur út í síðasta
sinn. Sem vonlegt er
bregður velunnurum
blaðsins í brún. Svo lengi
hefur tekist að halda úti
blaðinu að margir vom
famir að reikna með að
alltaf tækist að leysa úr
Qárhagserfiðleikum
augnabliksins. Langvar-
andi hallarekstur hefur
nú leitt til þess að ekki
verður lengra haldið.
Reyndar hafa verið allar
færar leiðir til að bæta
stöðu blaðsins og þó þær
aðgerðir hafi skiiað mikl-
um árangri í rekstri hef-
ur það ekki dugað til.
Þeir em vissulega til
sem fagna þessum tima-
mótum og láta sig um
leið litlu varða þótt með
að viðhafa lík vinnu-
brögð. Engu að síður
náðu flokksmálgögnin
aldrei að verða tj-úverð-
ug, einkum vegna þess
að flokkamir neituðu að
sleppa tökunum á þeim.
Auglýsingamarkaðurinn
varð einnig erfiðari. Að-
eins einu flokksmálgagn-
amia, Morgunblaðinu,
tókst að nýta sér auglýs-
ingamarkaðinn og auka
urnsvif sín. Morgunblaðið
sigldi hægt og bítandi frá
Sjálfstæðisflokknum í
krafti stærðarinnar. Að-
eins eitt af minni flokks-
málgögnunum tók skyn-
samlega ákvörðun í Ijósi
breyttra markaðsað-
stæðna. Það var Alþýðu-
blaðið, sem hagaði segl-
um eftir nýjum vindum
og minnkaði, stundum
allt niður í fjórar síður.
Þá var hlegið að Alþýðu-
blaðinu, talað um að blað-
ið kæmist fyrir í eld-
spýtustokki og svo fram-
vegis. Má vera, að Al-
þýðublaðið komist enn
fyrir í eldspýtustokki, en
það hcfur aldrei komist
fyrir í líkkistu eins og
reyndin varð um Þjóðvij-
ann. í dag stendúr Al-
þýðublaðið yfir moldum
Þjóðviljanum hverfi mik-
ilvægur vitnisburður um
fijálsa fjölmiðlun og
skoðanaskipti í landinu.
Vandi Þjóðviljans er ekki
bundinn við hann einan,
lítil blöð eiga víða mjög
erfitt uppdráttar, svo
undarlega sem það kann
að hljóma þegar þess er
gætt að fjöiskrúðug
blaðaútgáfa er sjálfur
homsteinn lýðræðis og
fijálsra skoðanaskipta í
þjóðfélagi nútímans.
Menn verða þó að horf-
ast í augu við þá stað-
reynd að um leið og blöð
þjóna þessum tilgangi
em þau markaðsvara
sem lesendur kaupa eða
hafna eftir því hvemig
þeim líkar við blaðið.
Þannig munu blöð fram-
tíðarinnar verða að reiða
sig á eigin styrk og
áhuga lesenda til að lifa
af, því ekkert bendir til
þess að innan tíðar fáist
skilningur á nauðsyn
þess að styrkja blaðaút-
gáfu myndarlega eins og
gert er í grannlöndun-
um.“
Skylda að
safna liði
í fomstugi'eininni er
fjallað um tilraunir, sem
standa yfir um stofnun
nýs dagblaðs, og þar seg-
ir síðan:
„Að sjálfsögðu kemur
nýtt dagblað aldrei í stað-
inn fyrir Þjóðviljann,
cnda þótt aðstandendur
hans ættu lilut í því blaði.
Það verður blað af allt
öðm tagi og væntanlega
miklu stærra og fjöl-
breyttara en Þjóðviljinn
hefur nokkm sinni haft
aðstöðu til að vera.
Fari á hiim bóginn svo
að ekki takist að hleypa
nýju blaði af stokkunum,
í þeim anda sem unnið
hefur verið að, munu
vinstri sinnar ekki sætta
sig við að verða.ofurseld-
ir hægri blöðunum um
aðgang að lesendum. Þá
ber þeim skylda til að
safna aftur liði og liefja
útgáfu á blaði á sinum
vegum og það munu þeir
gera-“
Háir vextir á verðbréfamarkaði
Opið í Kringlunni í dag á milli kl. 10 og 16.
Við bjóðum mikið úrval verðbréfa með háum vöxtum.
Kolbrún Kolbeinsdóttir ráðgjafi verður í Kringlunni
með upplýsingar og ráðgjöf.
Húsbréf.............8,0 - 8,3%
Spariskírteini........7,9 - 8,0%
Féfangsbréf...........10,0%
Kjarabréf.............8,3%*
Markbréf..............8,7%*
Tekjubréf.............8,1%*
Skyndibréf............6,8%*
Skuldabréf traustra
bæjarsjóða............9,2 - 9,5%
Erlend verðbréf. Mikið úrval hlutabréfa.
* Avöxtun miðast við janúar 1992.
<0>
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
FJÁRFBTINGARFÉLAGSINS HF.
KRINGLUNNI, 103 REYKJAVÍK S. (91) 689700