Morgunblaðið - 01.02.1992, Qupperneq 23
V’tw [ 'JMlVlflí
IBMfUíM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1992
23
, Vélstjóri slasaðist við
i sprengingu í Súlumii
( Flogið eftir varahlutum til Noregs
SPRENGING varð um borð í Súlunni EA-300 snemma í gærmorgun
þar sem skipið var á loðnuveiðum á Lónsbugt. Vélstjóri brenndist á
höndum við sprenginguna, en mildi þykir að ekki fór verr. „Við
vorum rétt búnir að kasta og vorum að fara að draga þegar heyrð-
ist skyndilega eitt stórt búmm og allt fylltist af reyk,“ sagði Þráinn
Brjánsson, háseti á Súlunni. Skipið var dregið til hafnar í Neskaup-
stað þangað sem það kom seint í gærkvöldi.
Flugvél frá Flugfélagi Norður-
lands flaug um hádegi frá Akureyri
til Noregs eftir varahlutum og var
væntanleg aftur í nótt eða nú
snemma í morgun, laugardag.
Varðskipið Ægir tók Súluna í tog
og dró hana til hafnar í Neskaup-
stað og var ætlunin að hefjast
handa við viðgerðir svo fljótt sem
auðið væri.
Þráinn sagði að tildrög spreng-
ingarinnar væru þau að vélin hefði
farið, af einhveijum ástæðum, á
Stafnbúi:
Röð fyrir-
lestra um
fiskveiði-
stjórnun
ÞRIÐJI fyrirlestur
Stafnbúa, félags sjávarút-
vegsnema við Háskólann á
Akureyri, verður fluttur í
Safnahúsinu á Sauðárkróki
á sunnudag 2. febrúar kl.
15. Félagið gengst fyrir röð
fyrirlestra um fiskveiði-
stjórnun um þessar mundir
víða um Norðurland.
Fundurinn sem haldinn
verður í Safnahúsinu ber yfír-
skriftina: Áhrif fiskveiði-
stjórnunar á hagsmunaaðila.
Framsöguerindi flytja Snær
Karlsson, Verkamannasam-
bandi íslands, Ámi Benedikts-
son, íslenskum sjávarafurð-
um, Einar Svansson, fram-
kvæmdastjóri, og Kristján B.
Garðarsson, iðnráðgjafí.
Að loknum framsöguerind-
um verða fyrirspumir og al-
mennar umræður, en allir em
velkomnir á fundinn.
yfirsnúning, sem aftur olli því að
blásarar undir vélinni spmngu.
Vélstjóri sem var niðri í vélarrúminu
brenndist á höndum og sagði Þráinn
að mildi þætti að hann hefði ekki
slasast meira. Hann hefði verið að
drepa á vélinni er atburðurinn varð,
en hefði hann verið á öðrum stað
í vélarrúminu hefði getað farið verr.
„Það varð mikil sprenging og
allt skipið fylltist af reyk,“ sagði
Þráinn. Skemmdir urðu allnokkrar,
m.a. undir vélinni auk þess sem
blásaramir eru ónýtir. „Við vitum
ekki meira á þessari stundu, en um
leið og við komum í land verður
farið að skoða þetta betur.“
Allir í sömu hjólförunum
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Starfsmenn Akureyrarbæjar hafa undanfama daga
verið að gera við skemmdir á malbiki og þeir voru
einnig við þá iðju í gær, en þeir töldu að minnka
mætti slit á malbiki til muna ef menn keyrðu ekki
alltaf í sömu hjólförunum. Svo brá við í gær að fór
að snjóa, en snjór hefur ekki sést í miklum mæli
það sem af er þessu ári. Ekki kyngdi niður neinu
magni af snjó þótt jörð hafi orðið hvít.
FSA og Kristnesspítali:
Þjónusta sjúkrahússins verður
minnkuð í kjölfar spamaðar
STJÓRN Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri hefur samþykkt aðgerðir
sem miða að því að ná tilskyldum sparnaði í rekstri, sem er 56 milljón-
ir króna á þessu ári. Til vissrar skerðingar á þjónustu sjúkrahússins
mun koma, en yfirmenn FSA vilja ekki á þessari stundu greina frá í
hverju aðgerðirnar felast. Á Kristnesspitala verður nákvæmlega farið
í saumana á öllum rekstri í næstu viku, en þar er einnig ljóst að skerða
þarf þjónustu við sjúklinga að einhveiju leyti.
Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri
FSA, sagði að búið væri að sam-
þykkja aðgerðir til að ná þeim sparn-
aði sem boðaður er, en forráðamenn
sjúkrahússins vildu greina heilbrigð-
isyfirvöldum frá því fyrst í hveiju
þær felast sem og einnig starfsmönn-
um. Ljóst væri þó að til vissrar skerð-
ingar á þjónustu kæmi, en hvar ná-
kvæmlega yrði um minni þjónustu
að ræða vildi hann ekki segja. í
lengstu lög yrði reynt að komast hjá
lokun deilda og uppsögnum starfs-
fólks. Ingi taldi brýnt að leiðrétting
fengist á rekstrarframlögum til
sjúkrahússins úr þeim 500 milljóna
króna potti sem fyrir hendi væri til
þeirra hluta, en endanlega yrði ekki
ljóst hvernig niðurskurðurinn kæmi
við sjúkrahúsið fyrr en vitað væri
hvemig ráðstöfun þeirra fjármuna
yrði.
Bjami Arthúrsson, framkvæmda-
stjóri Kristnesspítala, sagði að ekki
væri enn búið að taka ákvarðanir
um stærri mál, s.s. lokun deilda og
uppsagnir starfsfólks, þar eð enn
lægi ekki fyrir hversu mikið spítal-
anum yrði gert að spara á árinu.
Starfsfólk spítalans hefði í samein-
ingu farið í saumana á rekstri spítal-
ans og sagði Bjarni það ánægjulegt
hversu viljugt það væri í að lbita
allra leiða er leiddu til spamaðar og
margar góðar hugmyndir komið
fram.
„Við munum lifa þetta af þó gefí
á í bili, við reisum okkur við og
munum sigla seglum þöndum inn í
framtíðina. Við emm vön því í heil-
brigðisþjónustunni að þurfa að taka
á, ævinlega þegar þrengingar verða
í þjóðfélaginu er spjótunum beint að
heilbrigðisþjónustunni. Vandinn nú
er hins vegar sá að við höfum náð
hámarksafköstum út úr rekstrinum
og þess vegna verður þjónustan að
rýrna umtalsvert þegar okkur er
gert að spara um 5% í rekstrinum,"
sagði Bjarni. Hann sagði að þrengt
yrði að yfirvinnu og í veikindaafleys-
ingum og lokað yrði fyrir nýráðning-
ar.
Bjöm Þórleifsson, framkvæmda-
stjóri Öldrunarþjónustu Akureyrar-
bæjar, sagði að ekki kæmi til stór-
felldra uppsagna starfsfólks, en var-
lega yrði farið í að ráða í þær stöður
sem losna. Þá yrði dregið úr útköllum
og yfirvinna minnkuð auk þess sem
almennt aðhald yrði í rekstrinum, svo
sem verið hefði um langt skeið. Bjöm
sagði að enn væri ekki ljóst hversu
mikla gármuni Öldrunarþjónustunni
yrði gert að spara á þessu ári, en
það kæmi vonandi í ljós fljótlega því
grípa þyrfi til aðgerða hið fyrsta ef
í ljós kæmi að um umtalsverðar upp-
hæðir yrði að ræða.
Henning Jóhannesson í Grímsey:
Svarar ekki kostnaði að
leggja afla upp hjá KEA
TREIÐN
Beykilundi 4, Akukreyri
Alhliða þjónusta í trésmíði, svo
sem smíði á hurðum og gluggum.
Endurbætur og viðhald húsnæðis úti sem inni.
Sérstök fagþekking á endurgerð
miðaldra og gamalla húsa
Ilólmsteinn Snædal húsasmíðameistari, sími 96-21722.
Grímsey.
HENNING Jóhannesson, sem gerir út bátinn Björn EA frá Grímsey,
segist vera allt annað en ánægður með hið nýja fiskverð sem Kaupfé-
lag Eyfirðinga bjóði þeim sem leggi upp afla þar. Þrír bátar hafa fiskað
fyrir kaupfélagið, en Henning skrifaði ekki undir samkomulag um að
leggja þar inn afla og ætlar að íhuga aðrar leiðir við að koma honum
í verð. Eigendur kvótahæsta bátsins íhuga að róa frá öðrum útgerðar-
stað á vertíðinni, en sjómenn eru almennt óánægðir með nýja verðið.
„Mér líkar ekki þetta misrétti,
verðið hefur lækkað um allt að 25%
frá síðustu vetrarvertíð," sagði
Henning í samtali við fréttaritara. Á
síðustu vertíð þurfti ekki að flokka
sérstaklega eins og tveggja nátta
fisk sem nú þarf að gera og lækkar
verðið á honum umtalsvert.
Hann sagði að menn þyftu að
hugsa sig vel um hvað best væri að
gera í stöðunni. Kvótinn yrði æ rýr-
ari og menn yrðu að fá besta hugsan-
lega verð fyrir aflann til að standa
undir útgerðinni. í lians tilfelli hefði
kvótinn á Birni verið um 200 tonna
þorskígildi þegar mest var fyrir
þremur árum. Nú væri útlit fyrir að
kvótinn hefði minnkað um helming
á þremur árum því þegar búið væri
að umreikna aflann í slægðan fisk
væri hann kominn niður í 100 tonn.
Kvótaskerðingin væri orðin svo
rnikil, að hann gæti hæglega lagt
bátnum 8 mánuði á ári. I þeirri veðr-
áttu sem ríkt hefur undanfarið hér
við Grímsey hafa netaslit verið um-
talsverð sem hækkar mjög kostnað
við rekstur bátanna. „Það svarár
varla kostnaði að gera út á þetta
verð með þann kvóta sem ég hef úr
að spila,“ sagði Henning.
„í mínu tilviki gæti ég fengið á
bilinu 2 til 2,5 milljónum meira fyrir
aflann með því að landa honum á
markaði á Dalvík, en að landa hjá
KEA,“ sagði Henning. Aðspurður um
hvað hann hygðist gera, sagði hann
margar leiðir til, hugsanlegt væri að
tengjast markaðnum á Dalvík og þá
með feijunni Sæfara, en það væri
vissulega erfiðleikum bundið vegna
áætlunar hennar. Þá kæmu líka upp
vandamál með ísinn, en kaupfélagið
ætti hann og heimabátar sem ekki
skipta við KEA geta ekki fengið
keyptan ís þar'. Hann þyrfti þvi að
_koma í gegnum Árskógsströnd og
Hríseý hingað út í eyju með tilheyr-
andi kostnaðarauka.
-HSH
GEFÐU DOS TIL HJALPAR!
Á laugardögum söfnum við einnota
umbúðum á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Hringið í síma 621390 eða 23190 á milli
kl. 11.00 og 14.00 og við sækjum.
ÞJÓÐÞRIF
'x' í?
“íiiSr LANDSBJÖRG
Dósakúlur um allan bæ.
UNOUAO ÍK.IMUU «KATA