Morgunblaðið - 01.02.1992, Page 29

Morgunblaðið - 01.02.1992, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRUAR 1992 29 Johan Elías Martin Weihe - Minning Fæddur 11. nóvember 1913 Dáinn 11. janúar 1992 Okkur langar að minnst elskulegs afa okkar Johans Elías Martins Wei- he, sem lést í Sjúkrahúsi Vestmanna- eyja þann 11. janúar sl. Afi fæddist 11. nóvember 1913 í Porkeri á Suðu- rey í Færeyjum. Hann fór til sjós aðeins 14 ára gamall á skútu sem fiskaði við Grænland. Til Vest- mannaeyja kom afi fyrst árið 1935, þá var hann háseti á skútu og þurfti að fara í land til að taka vistir og olíu. Afi kom svo af og til til Vest- mannaeyja á árunum 1935-1940, og á þessum árum kynntist afi ömmu okkar. Hún hét Guðlín Guðný Guð- jónsdóttir frá Framnesi í Eyjum. Árið 1944, 27. maí, gengu þau í hjónaband í Eyjum. Afi og amma eignuðust tvö börn, pabba okkar Guðjón Weihe og Jóhönnu Helenu Weihe. Einnig ólu þau upp bróðurson ömmu, Kjartan Sigurðsson. Þau áttu heima í Framnesi í Eyjum meðan bæði lifðu. Ömmu missti afi 19. maí 1970, voru það erfiðir tímar fyrir hann. Afi var alla tíð léttur og skemmtilegur og þægilegur í um- gengni, hann hvorki drakk vín né notaði tóbak. Þegar við vorum yngri fannst okkur íslenskan hans afa svo- lítið skrýtin, samt talaði hann góða íslensku en það bar á erlendum fram- burði hér og þar. Við báðum hann oft að segja hin og þessi orð sem við vissum að hann átti erfitt með að bera fram. Þá var afi vanur að brosa og var þegar tilbúinn í leikinn, hann hafði ekki síður gaman af þessu en við. Afi var mikill göngugaipur og skildi ekki letina í okkur þegar við báðum um að okkur yrði ekið á íþróttaæfingar. Hann sagði okkur að hann hefði oft þurft að ganga á milli þorpa í Færeyjum og var stund- um yfir fjöll að fara. Víst þótti okkur hann vera duglegur að ganga, en við skildum það fyrst þegar við komum til Færeyja sjálf, að það var ekkert skrýtið þó að hann hefði svona mik- ið þrek. Því í Færeyjum eru enda- lausar brekkur hvert sem litið er og hreint stórkostlegt landslag. Föst regla var það hjá afa að ganga vest- ur á hamar í heimsókn til okkar, var þá oft slegið á létta strengi eða horft á ensku knattspyrnuna en afi var mikili fótbolta áhugamaður, síðan var farið í bílnum og keyptur ís og ekið um eyjuna. Afi vann í Vinnslu- stöð Vestmannaeyja og þangað fór- um við oft til hans, gaf hann sér þá góðan tíma til að spjalla við okkur. Afi veiktist 17. september 1985. Það var mikið áfall fyrir hann ekki síst andlega því hann yar ótrúlega vel á sig kominn, margur ungur maðurinn hefði verið upp með sér af þeim líkamsburðum sem hann hafði á áttræðisaldri. Hann munaði ekkeit um að taka sinn sementspoka undir hvora hönd og ganga með þá upp tröppurnar í Framnesi. yið vinnu var hann ekkert farinn að gefa eftir, hann var alltaf efstur eða með efstu mönnum í akkorði í aðgerð á fiski. Eftir að hann veiktist kom hann hingað til Reykjavíkur til að fara á Grensásdeildina og í endurhæfingu á Reykjalundi, þá heimsóttum við hann þegar við gátum, honum þótti vænt um að við reyndum að stytta honum stundimar. Síðar komst hann á Dvalarheimili aldraðra, Hraunbúð- ir, í Eyjum. Þar tók hann gleði sína aftur til fulls. Þar hafði hann eitt- hvað að starfa, hann var í föndri og gerði marga fallega muni bæði saum- aði og málaði. Hann var stoltur þeg- ar hann sýndi okkur þessa muni þeg- ar við komum í heimsókn til Eyja. Hann sagði að hann hefði nú ekki getað gert svona mikið nema að því að Haukur bróðir okkar hefði verið dijúgur við að koma til sín þegar hann var í föndrinu. Hann hefði iðu- lega komið þegar hann var á leið heim úr skólanum og saumað fyrir Minning: Páll Sigurðsson Okkur langar að minnast Páls Sigurðssonar eða Palla eins og við kölluðum hann. Palli var okkur mjög kær vinur. Við kynntumst honum eftir að við vorum búin að búa í 2 ár í Keflavík fyrir 8 árum. Þá var hann á fullu í hestamennsku, sem var hans líf og yndi alla hans tíð. Við komum að norðan og áttum 2 hesta og gátum við fengið að hafa þá hjá honum. Hann hugsaði um þá alveg eins og eigin hesta. Upp frá því byijuðu okkar góðu kynni af Palla. Við fórum mjög.gjarnan í útreið- artúra saman, þó helst við systurn- ar, og lærðum mikið af honum því hann var þrautlærður í öllu sem kom hestum við. Það líður okkur seint úr minni. Höfðum við mikla ánægju af að umgangast hann því hann var svo hlýr og skemmtilegur og alltaf til í að hjálpa öðrum. Börnin okkar hændust fljótt að honum því hann var þeim svo góður og heitir líka eitt þeirra í höfuðið á honum. Við áttum erfitt með að trúa því þegar hann féll frá því hann var alltaf hress og ungur í anda. Við viljum þakka Palla okkar góðar sam- verustundir og allan . þann! hlýhug sem hann sýndi okkur. Megi Páll hvíla í friði og Guð varðveiti hann. Við sendum Grétari og Hellí og öðrum ástvinum hans okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. „Þér kæri sendi kveðju með kvöldstjömunni blá. Það hjarta sem þú átt, en sem er svo langt þér frá. Þar mætast okkar augu, þótt ei oftar sjáumst hér. Og guð minn ávallt gæti þín, og gleymi aldrei þér.“ Dalrós, Dagný og Hjörtur. Þau síðustu þijú ár sem hann Páll dvaldi hér á meðal okkar leigði ég herbergi hjá honum, og langar mig því að minnast hans dálítið. Eins og flestir vita sem hann þekktu hafði hann ódrepandi áhuga fyrir hestum. Oft kom það fyrir að ég spurði hann um hestana og önnur dýr, og varð mér það ljóst að hann hafði gífurlega innsýn í dýra- og mannlífið, að ég notfærði mér það oft að hafa hann að leiðarljósi, ég spurði bara. Það sem er mér minnisstæðast í liðna lífi Páls, er hversu lífsglaður og ágjarnslaus maður hann var. Lífs- gleði hans var svo mikil að þrátt fyrir veikindi sín hélt lífið áfram hjá honum, og sinnti hann hestunum sínum sem skyldi, þó það hafi oft verið honum líkamlega erfítt. Veik- indi hans voru orðin nokkuð mikil, þegar ég kom fyrst til hans og voru þau því stundum rædd, og oftast nær var það í léttum dúr hjá honum. Minnist ég þess sem inér fannst reyndar mjög fyndið, er hann sagði eitt sinn brosandi: Eg dett nú stund- um niður nærri dauður og er svo sig það sem hann hefði átt erfiðast með, en það væru dökku litirnir, svo kæmi hann líka til sín með pabba sínum og mömmu á kvöldin. Við fundum að hann var mjög ánægður á Hraunbúðum, enda sagði hann oft að hvergi annars staðar vildi hann vera og vænt þótti honum um starfsfólkið þar. Þegar þreytan fór að gera vart við sig sagði hann: „Jæja, nú er best að fara að koma sér heim.“ Hann leit á Hraunbúðir sem heimili sitt, það hefði hann ekki gert ef honum hefði ekki líkað þar. Já, þökk sé starfsfólkinu á Hraun- búðum. Það á þakkir skildar fyrir umönnunina og nærgætnina. Afi naut þess vel þegar barnabörn- in, Bjarki og Erla, komu í heimsókn því að þau hændust að honum og þau þurftu að segja honum svo ótal margt úr Reykjavík. Á síðustu jólum hjálpaði Erla litla honum að taka upp jólapakkana, hafði afi mikið gaman að þegar hún tætti pappírinn utan af pökkunum til að sjá sem fyrst hvað þeir hefðu að geyma. Við minnumst ástkæra afa með söknuði, en við vitum að honum líður vel núna. Hann og amma eru aftur saman umvafin kærleika Guðs. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Margs er að minnast, margt er hér að þakka, Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna, Guð þeiri tregatárin strið. (V. Briem) Jóhanna Guðný og Hrafnhild- ur Bára Guðjónsdætur. Okkur langar að kveðja elsku langafa okkar sem farinn er til Guðs. Trúðu á tvennt í heimi, tign sem æðsta ber, guð í alheims geimi, guð í sjálfum þér. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrimur Pétursson) Við viljum þakka langafa allar ánægjustundirnar. sem við áttum saman. Við biðjum algóðan guð að geyma langafa. Erla Hrönn og Bjarki. fluttur á sjúkrahús, það er helvítis kransæðastíflan. Einu sinni kom það fyrir að ég sat hjá honum í einu hjartakastinu sem hann fékk, við að koma stóð- hesti inn í hesthúsið sitt, og vildi ég þá fá læknir til hans en hann þver- tók fyrir það, og sagði á þessa leið, maður verður bara að vera rólegur á meðan þetta gengur yfir, það má alls ekki æsa sig upp, þá er maður bara farinn. Að lokum vil ég minnast orða sem hann sagði sem tengjast ágjarns- leysinu, en ég var svo heppinn að njóta góðs af því hjá honum, þegar ég spurði hann hvað herbergisleigan ætti að kosta á mánuði, þá sagði sá gamli góði: Það má ekki hafa leig- una of dýra fólk verður að gefa lifað. Smári Ragnarsson. Kveðjuorð: Freyr Bergsteinsson Þeir týna óðum tölunni er muna tímana tvenna. Fallinn er í valinn einn af þessum hæglátu mönnum er gekk hægt um gleðinnar dyr, maður reynslunnar. Hann gekk út í lífið fullur bjart- sýni, tilbúinn sem ungur maður að takast á við hið ókornna. Árin liðu eitt og eitt og hann var ekki orðinn fertugur þegar óhamingjan dundi yfir og hann hóf sitt veikindastríð. Hann tapaði í þeirri baráttu. Fram- tíðaráætlanir urðu að engu á einni nóttu. Hann varð óvinnufær og sá fram á það að geta aldrei unnið meir. Það hlýtur að hafa verið köld kveðja í blóma lífsins a_ð vera kippt út úr leik og starfi. Árin liðu. En með óbilandi kjarki tók hann því sem að höndum bar. Eg kynntist Frey fyrir fáeinum árum og varð dagleg- ur gestur á heimili hans, þar sem starf mitt er fólgið í því að aðstoða þá er hjálpar eru þurfi. Margt var skeggrætt og oft slegið á létta strengi. Það var stutt í hláturinn þrátt fyrir að hann gengi ekki heill til skógar. Hann gerði gott úr öllu og var þakklátur fyrir það sem fyrir hann var gert. Þær voru margar sjúkra- húslegurnar hans nú þessa síðustu mánuði. En það var ekki kvartað heldur stöðugt haldið í vonina um betri líðan og bjartari daga. Ég dáðist að þessum skapgóða, bjartsýna öldungi sem lét hveijum degi nægja sína þjáningu. Nú er erfiðri göngu lokið, hvíldin því kær- komin, er kallið kom voru 80 ár að baki. Ég mæti ekki lengur hressi- lega andblænum er ég kem á Bugð- ulækinn. Röddin hans er hjóðnuð en minningin vakir. Að leiðarlokum vil ég þakka stutt en góð kynni. Ég fel vin minn Frey í Föður umsjá, þess er öllu ræður. Við lítum fram til þess tíma er orð ritningarinnar rætast og þeir munu vera fólk hans og Guð sjálfur mun vera hjá þeim Guð þeirra. Og dauð- inn mun ekki framar vera til, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til. (Op. 21.1-4.) Það er gott á erfiðum stundum að staldra við. Leita til hans er eitt sinn sagði komið til mín allir þér sem erfiði og þunga eruð haldnir og ég mun veita yður hvíld. Orð ritningarinnar hljóma til okkar í dag og veita huggun harmi gegn. Ritningin og boðskapur hennar stendur ávallt fyrir sínu. Boðskapur hennar er markviss og mildur, leið- arljós á langri göngu. Við lútum höfði í þökk. Minnumst látins vin- ar. Ég votta aðstandendum öllum samúð mína. Bið ykkur blessunar Guðs um ókomin ár. Karl Vignir. + Þökkum af alhug alla þá vináttu og hlýju sem okkur var sýnd við fráfall og útför móður minnar og tengdamóður, KRISTÍNAR ÞÓRÐARDÓTTUR, Ægisíðu 86. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heimahlynningar. Steinunn E. Jónsdóttir, Sigmundur M. Andrésson og fjölskylda. Okkar innilegustu þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, KARLOTTU MARGRÉTAR JÓHANNSDÓTTUR RIST, Höfða II, Dýrafirði. Þórarinn Sighvatsson, Þóra Þórarinsdóttir, Sighvatur Jón Þórarinsson, tengdabörn og barnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, HALLDÓR KARLSSON, Arahólum 6, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 3. febrúar kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent ó Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra. Friðrós Jóhannsdóttir. Kári Halldórsson, Áslaug Aðalsteinsdóttir, Anna Káradóttir, Halldór Kárason, Friðrós Káradóttir, Karl Halldórsson, Valgerður Hróðmarsdóttir, Halldór Arnar Karisson, Fannar Örn Karlsson, Orri Snær Karlsson. Birting cifmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinuin á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.