Morgunblaðið - 01.02.1992, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1992
39
ÍÞriMR
FOI_K
■ ERIC Cantona varð ekki við
ósk Sheffield Wednesday um að
æfa í viku til viðbótar með liðinu
og fór heim til Frakklands í fússi
í gær eftir þijá daga í Sheffield.
Trevor Francis náði aðeins að sjá
Frakkann á einni æfingu innanhúss
og tveimur á gervigrasi, en sagði
það ekki nóg. Cantona sagði að
óskin væri niðurlægjandi og gaf því
enska liðið upp á bátinn.
■ DAVID Batty meiddist í vin-
áttuleik gegn Bayern MUnchen í
vikunni, en verður með Leeds á
Elland Road í dag, þegar Notts
County kemur í heimsókn.
■ ANDREJ Kantsjelskis og Ry-
an Gibbs koma á ný inní byijunar-
lið Manchester United.
■ DAVID OLeary vonast til að
geta leikið með Arsenal í dag, en
hann meiddist í leiknum gegn
Liverpool s.l. miðvikudagskvöld.
Árið 1973 gerði hann samning við
félagið og átti sér þá tvo drauma:
Að vera hjá félaginu í 20 ár og ná
að leika 700 leiki með liðinu. Árnin
eru orðin 19 og leikirnir 699.
■ ANDERS Limpar verður
sennilega í byijunarliði Arsenal,
en hann kjálkabrotnaði 1. janúar
s.l. og hefur ekki leikið síðan.
■ BRUCE Grobbelaar, sem er
34 ára, heldur áfram að ögra þeim,
sem segja að hann sé útbrunninn.
„Ég hef sagt það áður og segi enn
og aftur að ég ætla að spila þar til
ég verð fertugur — og það á meðal
þeirra bestu," sagði markvörður
Liverpool.
■ JAN Mölby segir að Liverpool
gefi ekkert eftir í baráttunni um
titilinn. „Við gefum ekki upp vonina
nema við verður 10 stigum á eftir
efsta liði, þegar þijár umferðir
verða eftir, en sú staða getur ekki
komið upp.“__________
ÚRSLIT
UMFIM-UMFG 104:74
Iþróttahúsið í þljarðvík, íslandsmðtið í
körfuknattleik, Japisdeildin, föstudaginn
31. janúar 1992.
Gangur leiksins: 0:2, 2:2, 8:8, 17:11,
17:16, 20:16, 20:25, 34:25, 40:33, 52:39,
57:46, 68:58,73:63,86:69,99:69,104:74.
Stig UMFN: Teitur Örlygsson 19, Jóhannes
Kristbjömsson 17, ísak Tómasson 15,
Rondey Robinson 15, Sturla Örlygsson 15,
Ástþór Ingason 8, Friðrik Ragnarsson 6,
Kristinn Einarsson 4, Birgir Sigurðsson 3,
Agnar Olsen 2.
Stig UMFG: Joe Lewis Hurrst 28, Guð-
mundur Bragason 14, Rúnar Ámason 8,
Hjálmar Hallgrimsson 8, Bergur Hinriksson
6, Marel Guðlaugsson 4, Ingi Karl Ingólfs-
son 2, Pálmar Sigurðsson 2, Atli Ámason 2.
Dómarar: Bergur Steingrímsson og Brynj-
ar Þór Þorsteinsson sem vom slakir.
Áhorfendur: Um 400.
HANDKNATTLEIKUR
Kæra Víkings vegna undanúrslitaleiks bikarkeppninnar gegn Val:
Málid rannsakað frekar
KÆRUMÁL Víkings gegn Val,
sem var dómtekið að loknum
munnlegum málflutningi á
fimmtudag, var endurupptek-
ið í gær, þar sem nauðsynlegt
þótti að rannsaka það frekar.
Dómarar leiksins, sem láðist
að boða á fund dómsstólsins
i fyrradag, voru nú kvaddir á
fundinn og kom annar, en
hinn átti ekki heimangegnt.
Mættur dómari staðfesti að
skrifleg skýrsla dómaranna,
sem lá fyrir dómnum, væri
rétt, greindi frá atriðunum,
sem um er deiit, og svaraði
spurningum, en síðan var
málið dómtekið að nýju. Úr-
skurðar er sem fyrr að vænta
um helgina.
Krafa Víkings er að þar sem
reglur um leikhlé hafi verið
brotnar skuli undanúrslitaleikur
félaganna í bikarkeppni karla
dæmdur ógildur og liðin skylduð
til að leika að nýju. Valur krefst
sýknu.
Sigurgeir Sveinsson, annar
dómara leiksins, staðfesti að skrif-
leg skýrsla þeirra væri rétt, en
áréttaði að þeir hefðu aldrei verið
boðaðir á fundinn á fimmtudag.
Hann sagði að dómaramir hefðu
í samráði við Karl Jóhannsson,
eftirlitsdómara, tilkynnt stutt hlé
að loknum fyrri hluta fyrri fram-
lengingar í umræddum leik. Síðan
hefðu þeir gengið til búningsher-
bergja, en eftir að hafa athugað
reglurnar og séð að mistök hefðu
átt sér stað, hefðu þeir flautað
liðin inná leikvöllinn aftur. Sami
háttur hefði verið hafður á í seinni
framlengingunni, en þá hefðu
dómararnir ekki gengið til bún-
ingsherbergja.
Fram kom að leikmenn Víkings
gengu fyrst til búningsherbergja
og spurði lögfræðingur Vals hvort
þeim hefði verið veitt heimild til
þess. Sigurgeir sagði að dómar-
amir hefðu hvorki veitt Víkingi
né Va! heimild til að ganga til
búningsherbergja enda gerðu þeir
það aldrei og hefðu ekki afskipti
af gerðum leikmanna í hléum.
Aðspui'ður um tímalengd hlé-
anna sagði Sigurgeir að dómar-
amir hefðu reynt að gæta sam-
ræmis án þess að um nákvæma
tímatöku hefði verið að ræða.
Hann áieit að þijár til fjórar mín-
útur hefðu liðið á milli hálfleikja,
en treysti sér ekki til að segja
nákvæmlega þar um og vildi ekk-
ert fullyrða í því efni.
Sigurgeir sagði að dómaramir
hefðu treyst um of á aðra, ljóst
væri að mistök hefðu átt sér stað
og þau væru alfarið sök vidkom-
andi dómara.
Að vitnaleiðslu lokinni var mál-
ið dómtekið að nýju. Valgarður
Sigurðsson, fomiaður Dómstóls
HSÍ, sagði að endurupptekning
málsins seinkaði ekki störfum
dómstólsins og sem fyrr væri úr-
skurðar að vænta um helgina.
Brynjar Hardarson hefur hugsanlega leikið síðasta leikinn með Val.
Brynjar ekki-
meirameð?
Bakmeiðsl setja strik í reikninginn
BRYNJAR Harðarson segir að hann hafi jafnvel leikið síðasta
handknattleiksleik sinn með Val. Meiðsl í baki tóku sig upp í
leiknum gegn Fram s.l. miðvikudagskvöld og sagði Brynjar að
afltaugin hefði skemmst — klemmst eða marist. „Ég veit ekki 4
hvað þetta þýðir,“ sagði Brynjar við Morgunblaðið í gær skömmu
eftir að hann fékk að fara heim af Borgarsprtalanum. „Það getur
vel verið að ég hafi leikið síðasta leik minn, sem er ótímabært
— ég ætlaði ekki að hætta fyrr en að loknu þessu keppnistima-
bili!“
Brynjar var skorinn upp við
bijósklosi í baki árið 1988 og
aftur ári síðar. „í seinna skiptið var
talið kraftaverki næst að ég gæti
leikið handknattleik á ný. En endur-
hæfingin gekk framar vonum og
ég náði mér á strik á ný. Hins veg-
ar gerðist ekkert sérstakt í leiknum
á miðvikudagskvöldið. Ég fékk
mjög kvalarfullan verk eins og þeg-
ar um bijósklos er að ræða og gat
ekki lokið leiknum."
Hann fór á Borgarspítalann um
kvöldið og var þá mænudeyfður.
Rannsókn leiddi í Ijós að ekki var
um bijósklos að ræða og sagði
Brynjar að það hefði verið lán í
óláni. Skurðaðgerð var því ekki
framkvæmd og fékk hann að fara
heim í gær. Brynjar sagðist vera
mjög aumur og eiga erfitt með
gang. „Ég veit ekki hvað ég á lengi
í þessu, en ég verð ekki með í hand-
boltanum á næstunni."
Valsmenn í vandræöum
Brynjar er þriðji leikmaður Vals,
sem meiðist alvarlega á yfirstand-
andi keppnistímabili. Jakob Sig-
urðsson, fyrirliði, meiddist í haust,
en er rétt að ná sér og er nýbyijað-
ur að æfa með liðinu. Hann segist
finna fyrir framförum, en Þorbjöm
Jensson, þjálfari, gerir ekki ráð fyr-
ir honum fyrr en í úrslitakeppninnif-
Júlíus Gunnarsson verður ekki
meira með á tímabilinu. Hann sleit
krossbönd í hné fyrir skömmu og
verður skorinn upp í næstu viku.
Sveinn Sigurfinnsson missti af
síðasta leik vegna meiðsla og Valur
Arnarson var veikur, en þeir verða
báðir með gegn KA í dag.
KORFUKNATTLEIKUR / JAPISDEILDIN
KNATTSPYRNA
Njarðvíkingar sterkir
í „Ljónagryfjunni“
NJARÐVÍKINGAR unnu öruggan sigur gegn nágrönnum sínum
frá Grindavík í “Ljónagryfjunni“ í Njarövík í gærkvöldi og gerðu
þar með vonir Grindvíkinga um að komast í úrslitakeppnina
nánast að engu. Lokatölur leiksins urðu 104:74 og sprungu
Grindvíkingar á lokamínútunum, en Njarðvíkingar skoruðu 25
stig á síðustu fimm mínútunum. í hálfleik var staðan 52:39.
Gunnar Þorvarðarson þjálfari
Grindvíkinga og fyrrum leik-
maður Njarðvíkinga var ekki alls
kostar sáttur við
gjöm dómgæsluna sem í
Blöndal mörgum tilfellum
skrifarfrá hefði verið hæpin og
Keflavik hefðu Njarðvíkingar
oftar en ekki hagnast á mistökum
dómaranna sem hann líkti við trúða.
„Við eigum að vísu fræðilega mögu-
leika á að komast í úrslitakeppnina
en það er of langsótt til að gera
sér nokkrar vonir. Njarðvíkingar
eru með geysilega sterkt lið, það
fengum við að finna, og þeir voru
vel að sigrinum komnir. Okkur fat-
aðist flugið seinni hluta fyrri hálf-
leiks og þá náðu Njarðvíkingar góðu
forskoti sem okkur tókst aldrei að
vinna upp. Undir lokin fór svo allt
úr böndunum og þeir rúlluðu ein-
faldlega yfir okkur.“
Leikurinn einkenndist af mikilli
baráttu þar sem hvergi var gefið
eftir. Fjölmenni var í „Ljónagryfj-
unni“ og létu stuðningsmenn
beggja liða sitt ekki eftir liggja.
Jafnræði var með liðunum fram
undir miðjan fyrri hálfleik, en þá
náðu Njarðvíkingar afgerandi for-
skoti sem þeir síðan létu aldrei af
hendi. Grindvíkingar reyndu allt
hvað þeir gátu til að vinna forskot
Njarðvíkinga upp, en allt kom fyrir
ekki og síðustu mínúturnar voru
þeir hreinlega spilaðir sundur og
saman.
Allir leikmenn Njarðvíkur komu
við sögu í leiknum og athyglisvert
er hversu jafnt stigin skiptast. Jó-
hannes Kristbjörnsson lék nú sinn
besta leik í vetur og eins komst
Sturla Örlygsson vel frá sínu. ísak
Tómasson, Teitur Örlygsson og
Rondey Robinson voru þó bestir.
Hjá Grindvíkingum skorti breiddina
að þessu sinni og voru þeir Guð-
mundur Bragson og Joe Lewis
Hurst þeirra bestu menn.
Teitur Örlygsson lék vel með
Njarðvíkingum í gærkvöldi.
Dýrkeyptir
áhorfendur
Aganefnd UEFA tekur æ harðar
á brotum áhorfenda á leikjum
í Evrópukeppni og kemur það í hlut
viðkomandi félaga að greiað sektirn-
ar. Í gær var fimm aðilum gert að
greiða háar upphæðir og Ilja Naj-
doski, fyrirliði Rauðu stjörnunnar,
fékk fimm leikja bann, en Johnny
Bosman, Anderlecht, þriggja leikja
bann fyrir framkomuna í leik liðanna.
Benfica þarf að borga um 3,9
millj. ÍSK vegna þess að áhorfandi
kastaði málmhlut í annan línuvörðinn
í Evrópuleik gegn Barcelona í síðasta
mánuði. Gríska knattspyrnusam-
bandið verður um 1,950 millj. ÍSK
fátækari vegna þess að leikmaður
Hollands og annar línuvöi'ðurinn
fengu flugelda í sig í Evrópuleik þjóð-
anna. Danska liðið BK1903 og griska
liðið AEK vei'ða að greiða um 1,170
millj. ÍSK hvort um sig vegna áhorf-
enda, sem skutu upp flugeldum á
heimaleikjum félaganna. AEK lék
gegn Tórínó, sem var sektað um 830
þús. ÍSK vegna óviðunandi skipulags
og framkomu áhorfenda.