Morgunblaðið - 02.02.1992, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. FEBRUAR 1992
•>>17
lega, á meðan þeirra tæki eru
ónothæf. Ég væri sjálfsagt gráti
næst í þeirra að stöðu, kannski
með nýkeyptan og dýran sleða.
Þó mikið sé um breytta jeppa á
götum höfuðborgarinnar og víðar,
þá eru fæstir þeirra notaðir í fjalla-
ferðir. Ég gæti trúað að liðlega
100 jeppar væru í hreinum hálend-
isferðum að vetrarlagi, margir
fara aldrei úr byggð. Reyndari
jeppamenn bíða hinsvegar fann-
fergis, við þurfum t.d. að komast
með rafstöð upp á Hveravelli á
næstunni, en okkur vantar snjó-
inn,“ sagði Steingrímur.
En þó ferðamenn telji sig eiga
um sárt að binda vegna snjóleysis
þá eru það þó vélsleðaumboðin og
verslanir með vetrarvörur sem
ástandið kemur verst niður á.
Margir verslunareigendur töldu að
ef ekki snjóaði duglega á næst-
unni myndu þeir' sitja uppi með
miklar birgðir skíða- og vetrar-
fatnaðar ýmiskonar með tilheyr-
andi kostnáði. Útilíf auglýsti fyrir
skömmu hjólaskauta sem skíða-
menn og íshokkíspilarar nota mik-
ið erlendis til að halda sér í æfingu
yfir sumartímann, sem segir meira
en mörg orð um snjóleysið.
Öll sola í dvola
„Ef enginn er snjórinn, þá er
allt steindautt má segja hjá okk-
ur. Það er helst að fólk sem er
að fara til Austurríkis líti við og
kaupi búnað, en á meðan lítill snjór
sést hérlendis þá heldur fólk að
sér höndum og notar bara gömlu
græjurnar ef snjórinn kemur, eyð-
ir ekki 40-50 þúsund krónum í
búnað sem kannski nýtist lítið,“
sagði Halldór hjá Skátabúðinni,
sem venjulega selur mikið af vetr-
arvörum. „Við gættum þess að
panta ekki of stórar sendingar,
því veturinn í fyrra var svipaður,
snjór kom seint og illa. Það liggur
allt landið í dvala hvað sölu á vetr-
arvörum snertir, nema hvað Isfirð-
ingar virðast hafa fengið einhveija
snjókomu. Ég held að margir
muni öfunda þá á næstu vikum,
ef snjórinn helst þar. Sjálfur ætla
ég með stórum hópi fólks á skíði
í Austumki um miðjan febrúar,
enda eru slíkar ferðir mikil upplif-
un og góð tilbreyting frá hvers-
dagsleikanum, hvort sem hér er
snjór _eður ei,“ sagði Halldór.
Á ísafirði hafa starfsmenn á
skíðasvæðinu reynt að halda ein-
hveijum lyftum opnum, en snjór
er þar þó í takmörkuðu magni.
„Þetta er allt í lagi ennþá, það
þarf lítið vatnsveður til að við
þurfum að loka og að sama skapi
ekki mikla snjókomu til að við
getum opnað alveg,“ sagði Jón
Björnsson, einn af starfsmönnum
skíðasvæðisins á ísafirði. „Snjór-
inn er það lítill að flest fólk bíður
meiri snjókomu, en krakkarnir
sem æfa vilja nota hvert tækifæri
sem gefst. Það er þó lítið pláss
fyrir einhvern fjölda, en við höfum
verið að fá fyrirspurnir frá skíða-
fólki í öðrum landshlutum sem
þarf að æfa. Það eru allir í vand-
ræðum, hvergi er snjór á skíða-
svæðum, hvorki fyrir sunnan eða
norðan. Við fengum mikla snjó-
komu í október og s á snjór hefur
lítið bráðnað. En það er samt stutt
í jörð, þarf bara góðan skúr til að
stærsti hluti svæðisins verði ekki
fær skíðafólki. Þá lokum við fyrir
allt nema kannski krakkana sem
þurfa að æfa hérna. Þetta er það
þröngt svæði sem er hægt að nota
þessa dagana,“ sagði Jón.
Á meðan fámennur hópur skíða-
manna á ísafirði getur hrósað
happi ýfir lítilsháttar snjó, sem þó
gæti horfið á svipstundu, þá bíða
þúsundir skíðamanna og annarra
ferðalanga annars staðar á
landinu eftir snjókomunni miklu.
Flestir hafa heyrt um regndans
indjána til foma, sem þeir dönsuðu
þegar þurrkar voru miklir til að
laða fram regndropana. Nú er
spurning hvort fjallaglaðir íslend-
ingar finna upp snjódansinn, til
að hafa áhrif á máttarvöldin.
Kröfluvirkjun lokað hálft árið
LANDSVIRKJUN hefur ákveðið að loka Kröfluvirkjun framvegis
í 6 mánuði á ári í stað þriggja eins og verið hefur, og er ástæðan
sú að Blönduvirkjun gerir raforkuframleiðslu Kröfluvirlqunar
óþarfa þann tíma. Reiknað er með að Landsvirkjun spari 188
milljónir króna vegna þessa á yfirstandandi ári.
Þorsteinn Hilmarsson, blaðafull-
trúi Landsvirkjunar, sagði við
Morgunblaðið, að þegar komin
væri önnur virkjun á Norðurlandi,
Blönduvirkjun, gæti hún að vissu
marki gegnt því hlutverki sem
Kröfluvirkjun hefur haft þar, að
framleiða raforku fyrir það lands-
svæði og auka rekstraröryggi í
dreifikerfinu. Kröfluvirkjun hefur
venjulega verið stöðvuð yfir sumar-
mánuðina þrjá, þegar álagið er
minnst, en nú bætast þrír mánuðir
við.
Þorsteinn sagði að með þessu
spömðust 188 milljónir á þessu
ári, aðallega vegna þess að ekki
þyrfti að halda við holum og hreinsa
þær í jafnmiklum mæli og áður.
Þá sparast einnig aðkeypt vinna. Á
þessu ári var einnig áætlað að bora
nýjar holur vegna fyrirhugaðrar
stækkunar virkjunarinnar í tengsl-
um við álversbyggingu á Keilis-
nesi, en ekki verður af því.
Nú vinna 17 manns við Kröflu-
virkjun og er gert ráð fyrir því, að
sögn Þorsteins, að þeir vinni við
viðhald véla virkjunarinnar þótt
hún sé ekki í gangi. Þá sagði Þor-
steinn að könnuð yrði hagkvæmi
þess að nýta þessa starfsmenn við
önnur verkefni innan fyrirtækisins,
svo sem við Blönduvirkjun eða við-
gerðir á vélum í Búrfellsvirkjun.
Orkustofnun hefur borað fyrir
Landsvirkjun við Kröflu. Jakob
Björnsson orkumálastjóri sagði að
Orkustofnun kæmi lítið nálægt
venjulegum rekstri Kröfluvirkjun-
ar, nema með því að hafa eitthvað
eftirlit með virkjunarsvæðinu, og
samdráttur í rekstri hefði lítil áhrif
á það verkefni. Hins vegar myndi
stofnunin missa fyrirsjáanlega af
einhverjum tekjum vegna þess að
ekki verður af stækkun virkjunar-
innar í ár, og því yrðu ekki boraðar
nýjar holur. Þar væri þó ekki um
stórar upphæðir að ræða og þetta
hefur engin sérstök áhrif á rekstur
stofnunarinnar.
Orkustofnun lauk við að bora
nýja holu við Kröfluvirkjun í des-
ember, í tengslum við fyrirhugaða
stækkun virkjunarinnar, en ekki
hefur enn komið í ljós hvers holan
er megnug. Þorsteinn Hilmarsson
sagði að holan yrði ekki tekin í
notkun að sinni heldur myndi það
bíða betri tíma.
Bíldudalur:
Brotíst inn
í Dalakjör
Búdardalur
BROTIST var inn í verzlunina
Dalakjör og stolið þaðan sígar-
ettum og skiptimynt. Málið er í
rannsókn
Annars fóru áramótin hér frið-
samlega fram í mjög góðu veðri.
Mikið var skotið af rakettum og
talsvert sprengt. Þá stóð Björgunar-
sveitin Ósk fyrir flugeldasýningu,
sem var mikil tilbreyting íu skamm-
deginu.
Þorrablót var haldið í Dalabúð,
en hana rekur nú nýtt fólk. Mikill
fjöldi sótti þorrablótið, en heima-
menn í Laxárdal sjá venjulegast um
öll skemmtiatriði sjálfír. Þorramat-
urinn smakkaðist vel, þótt úrvalið
væri ekki eins mikið og fyrr á árum,
en 40 ár eru nú frá því er fyrst var
haldið Þorrablóð í Laxárdal. Þá
tíðkaðist það að allir komu með
mat heiman frá sér og var hann
settur á mikið langborð. Var fjöl-
breytnin í mat með eindæmum mik-
il. Menn skemmta sér yfirleitt vel
á þorrablótum hér, en heldur finnst
fólki nútímatónlistin hávaðasöm og
gefur ekki eins mikil tækifæri til
þess að spjalla við náungann og
gamla harmoníkumúsíkin.
Kristjana
Aukasýningar
á Lýsiströtu
VEGNA mikillar aðsóknar að
gamanleiknum Lýsiströtu eftir
Aristófanes hefur Fúría, leikfé-
lag Kvennaskólans, ákveðið að
bæta við aukasýningum.
Uppselt er á þær tíu sýningar
sem upphaflega var gert ráð fyrir.
Einnig er uppselt á 1. aukasýningu
6. febrúar. Órfá sæti eru laus á 2.
aukasýningu 10. febrúar. Miðasala
er á Galdraloftinu, Hafnarstræti 9.
HRESS IVETUR
Hvort heldur ætlun er að styrkja, liðka,
megra, auka þol eða allt þetta í senn
þá getur þú verið viss um að finna
námskeið við þitt hæfi hjá HRESS, á
tíma sem þér hentar. Frábærir kennarar
líkamsrækt
Átak í megrun
Vaxtamótun
Fitubrennsla (Púl)
Fyrir barnshafandi
Start
Nýr lífsstíll
Old boys
Kvennaleikfimi
Morguntímar
* Dagtímar
Jazzballettet
Vigtun
Matseölar
og góð aðstaða tryggja góðan árangur.
Meiri styrkur og þol gefur þér nýjan
lífsþrótt, bætt útlit og aukið sjálfsöryggi
og vellíðan.
Vertu með í hressum hópi.
Fitumæling
Ráögjöf
Æfingar meö lóðum
Æfingar með teygjum
Vatnsgufubað
Ótakmörkuð mæting
Frábærir Ijósabekkir
Barnagæsla frá 9.30 -16.00
7 mínútur úr Breiðholti
HRFSS
IÍKAMSR/EKT CX; IJOS
BÆJARHRAUM A/VIO KEHAVSAJRVECINN/SIMI 65 2212
Öll húsin smiðuð innanhúss
Húsunum skilað fullfrágengnum
á undirstöðunum
Báscvr hf.
Hvaleyrarbraut 28, Hafnarfirði
er rétti tfminn aö panta sumarhús fyrir næsta sumar:
Við höfum 12 ára reynslu að baki og
höfum smíðað yfir 100 heilsárshús.
Kynnið ykkur verð og gæði. Allar nánari
upplýsingar í síma 91-53148.