Morgunblaðið - 18.02.1992, Síða 1

Morgunblaðið - 18.02.1992, Síða 1
56 SIÐUR B 40. tbl. 80. árg. ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Búist við að árásarinnar á leiðtoga Hizbollah verði hefnt ^Jerúsalem. Reuter. ÖRYGGISGÆSLA var hert í ísrael í gær af ótta við hefndaraðgerð- ir vegna árásar Israelshers á leiðtoga Hizbollah á sunnudag. David Levy, utanríkisráðherra Israels, neitaði því í gær að Sheikh Abbas Musawi hefði verið drepinn til að hefna morða á þremur ísraelskum hermönnum aðfaranótt laugardags. Ennfremur vísaði hann því á bug að árásin á Musawi myndi spilla viðræðum um frið í Miðaustur- löndum. REUTER Líkkista Sheikh Abbas Musawi, Ieiðtoga Hizbollah, var borin um götur Beirút í gær. Fimmtíu þúsund manns tóku þátt í sorgarathöfn vegna láts leiðtogans og sóru margir þess dýran eið að hefna hans. Útvarpsstöð í ísrael sagði að komið yrði upp vegartálmum á mörkum hernumdu svæðanna, leit- að yrði vandlega á Palestínumönn- um sem yfirgæfu hernumdu svæðin og varsla við lögreglustöðvar yrði aukin. Félagar í Hizbollah skutu í gær eldflaugum frá Suður-Líbanon til svæða nyrst í ísrael en ekkert tjón hlaust af. Búist var við fleiri slíkum árásum í nótt. Lögregla í ísrael Sameiginleg yfirlýsing Rússa, Bandaríkjamanna og Þjóðveija: sagðist ennfremur búast við árásar- ferðum frá Líbanon eða hernumdu svæðunum til að hefna drápsins á Musawi. David Levy réttlætti í gær árás- ina á Musawi og sagði að ísraelar myndu berjast gegn hryðjuverka- mönnum hvort sem friðarviðræður stæðu yfir eður ei. Ehud Gol, tals- maður Yitzhaks Shamirs, forsætis- ráðherra Israels, sagðist í gær telja að drápin um helgina ættu ekki að torvelda friðarviðræður. Sýrlend- ingar og Líbanir sögðust um helgina ætla að mæta til leiks í Washington 24. þessa mánaðar er næsta lota hefst. Vísindamiðstöð á að stuðla gegn útbreiðslu kjarnavopna Moskvu, Lissabon. Reuter, The Daiiy Telegraph. BORIS Jeltsín Rússlandsforseti og James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, áttu þriggja tíma fund í Moskvu í gær. Að honum loknum kynntu þeir sameiginlega yfirlýsingu Rússa, Bandarikja- manna og Þjóðverja um stofnun sérstakrar vísindamiðstöðvar fyrir kjarnorkuvísindamenn. Á blaðamannafundi sem Baker og Jeltsín héldu að fundinum loknum sagði Jeltsín að þeir hefðu einnig náð samkomulagi um að lánsloforð Bandaríkjamanna handa Rússum vegna kaupa á korni myndu taka gildi í apríl. Jeltsín sagðist hafa farið fram á að fá 600 milljónir dollara til viðbótar að láni vegna kornkaupa og sagðist búast við að sú beiðni myndi fá jákvæða af- greiðslu. Afvopnunarmál voru ofarlega á baugi á fundi Jeltsíns og Bakers og ræddu þeir nýlegar tillögur ríkis- stjórna landanna beggja um veru- lega fækkun kjarnorkuvopna. Rúss- ar hafa lagt til að hvorugt ríkið hafi fleiri en 2.500 kjamaodda í sínum fórum og er það mun lægri tala en Bandaríkjamenn hafa lagt til. Rússlandsforseti sagði að enn skildi eitthvað á milli ríkjanna í þessum efnum en taldi víst að sam- komulag myndi nást sem hægt væri að samþykkja formlega á leið- togafundi Jeltsíns og George Bush Bandaríkjaforseta í Bandaríkjunum í júlí. í yfirlýsingu ríkjanna þriggja um stofnun nýrrar vísindamiðstöðvar segir að Bandaríkjastjórn muni út- vega 25 milljónir dollara fyrir mið- stöðina og að stefnt sé að því að jafnt alþjóðlegar stofnanir sem einkaaðilar taki einnig þátt í fjár- mögnun hennar. Markfnið vísindamiðstöðvarinnar á að vera að styðja við bakið á kjarnorkuvísindamönnum fyrrum Sovétríkjanna en þeir standa nú margir uppi atvinnulausir eða illa launaðir. Á Vesturlöndum óttast menn að margir vísindamannanna, sem telja allt að fjögur þúsund, kunni að falla fyrir gylliboðum frá ríkjum eða jafnvel hryðjuverkahóp- um sem vilja aðstoð þeirra við að þróa fram kjarnorkuvopn. Yrði eitt helsta markmið vísindamiðstöðvar- innar að gefa fyrrum sovéskum vísindamönnum tækifæri til að nýta krafta sína á öðrum sviðum en þró- un og framleiðslu vopna. Fyrr um daginn höfðu Þjóðverjar dreift sameiginlegri yfirlýsingu ríkj- anna þriggja á fundi utanríkisráð- herra Evrópubandalagsins í Lissa- bon. Talsmaður portúgölsKu stjórn- arinnar, en Portúgalir fara nú með stjórnina innan EB, fagnaði stofnun vísindamiðstöðvarinnar. Framkvæmdastjórn EB gat þess einnig á fundinum að af þeim fjár- munum sem bandalagið hefði ákveðið að ráðstafa sem tæknilegri aðstoð við Sovétríkin væru 65 millj- ónir dollara eyrnamerktar kjarn- orkurannsóknum. Þá fjármuni væri því fræðilega séð hægt að láta renna til vísindamiðstöðvarinnar. Fimm fyrrum Sovétlýðveldi ganga í ECO: Ríki múslima stefna að efnahagsbandalagi Teheran. Reuter. FIMM fyrrum lýðveldi Sovétríkjanna hafa ákveðið að þiggja boð leiðtoga írans, Pakistans og Tyrklands um inngöngu í samtök þeirra um efnahagssamvinnu, ECO. Akbar Hashemi Rafsaiýani, forseti Irans, sagði í gær að fundur lejðtoganna hefði verið fyrsta skrefið í átt að efnahagsbandalagi ríkjanna í suðvestur-Asíu sem gæti orð- ið að stórveldi. „Við erum hluti af stærri hugmyndafræðilegri fjöl- skyldu. Leiðarvísir okkar og leiðtogi er Kóraninn," sagði Rafsanjani. ECO var stofnað sem laustengd þendust út suður á bóginn. samtök um efnahagssamvinnu árið 1964 með aðild írans, Pakist- ans og Tyrklands, er voru einnig í hernaðarbandalaginu CENTO, sem Bandaríkjamenn og Bretar stofnuðu á sjötta áratugnum til að koma í veg fyrir að Sovétríkin Þau fimm fyrrverandi sovétlýð- veldi, sem gengu formlega í sam- tökin í gær eru Azerbajdzhan, Túrkmenístan, Úzbekístan, Kírgízístan og Tadzhíkístan, og búist er við að Kazakhstan bætist bráðlega í hópinn. Nawaz Sharif, forsætisráð- herra Pakistans, sagði að Afgan- istan gæti síðar orðið aðili að sam- tökunum ef samkomulag næðist um pólitíska framtíð landsins. Tyrkneskir embættismenn sögðu að Rúmenía hefði einnig sótt um aðild að samtökunum, sem hafa hingað til aðeins náð til ríkja múslima. Ráðgert er að leiðtogarnir undirriti á næstunni samkomulag um 10% tollalækkun á ýmsum varningi. Stjórnvöld í arabaríkjunum hafa verið fámál um árásina á leiðtoga Hizbollah. Iranir hafa hins vegar fordæmt athæfi ísraela. Skæruliðasamtökin Svörtu hlé- barðarnir, sem tengjast Fatah, ein- um armi Frelsissamtaka Palestínu, PLO, lýstu í gær ábyrgð á hendur sér á morðunum á ísraelskum her- mönnum aðfaranótt laugardags. Sjá frétt á bls. 20 Forseti Krajina; Engar aðgerð- ir gegn friðar- gæslusveitum Belgrad, Lissabon. Reuter. MILAN Babic forseti króatíska héraðsins Krajina, þar sem Serb- ar eru í meirihluta, sagði á blaða- mannafundi í gær að hann myndi ekki láta undan þrýstingi um að annað hvort segja af sér eða fall- ast á friðaráætlun Sameinuðu þjóðanna varðandi Júgóslavíu óbreytta. Babic sagði hins vegar einnig að hann myndi ekki skipuleggja neinar vopnaðar aðgerðir gegn friðar- gæslusveitum SÞ í Krajina þó svo að hann gæti ekki útilokað árásir harðlínumanna á þær. Babic hefur fram til þessa verið í harðri and- stöðu við áætlanir um að friðar- gæslusveitir yrðu sendar til þessa landshluta og eru ummæli hans í gær talin vísbending um að afstaða hans sé að mildast. Hann hefur sætt vaxandi gagn- rýni í Krajina fyrir andstöðu sína við friðaráætlunina og á sunnudag kröfðust margir þingmenn í Krajina afsagnar hans. Babic sagði í gær að einungis 39 af 161 þingmanni á þingi Krajina hefðu greitt atkvæði með tillögunni og sakaði þá um valdaránstilraun. hert íIsrael

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.