Morgunblaðið - 18.02.1992, Side 3

Morgunblaðið - 18.02.1992, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18; FEBRÚAR 1992 3 Innbrotum fjölgar í Reykjavík INNBROTUM í Reykjavík virðist hafa fjölgað að undanförnu. A miðvikudag höfðu 60 innbrot ver- ið tilkynnt til lögreglu í febrúar. 100 innbrot voru skráð í janúar, sem er talsverð aukning frá fyrri árum. Samkvæmt upplýsingum lögregl- unnar er algengt að stolið sé fatnaði úr forstofum húsa og hefur slíkt færst í vöxt. Brotist er inn í verslan- ir, fyrirtæki, á heimili og í bíla víðs vegar um borgina. I gærmorgun var tilkynnt um innbrot í hús við Ránar- götu og Grettisgötu, auk þess sem nokkrum málverkum var stolið úr sýningarsal Félags íslenskra mynd- listarmanna við Garðastræti. Mynd- bandstæki var stolið úr skipi í Slippn- um. -----»'■♦■■■♦- Hvíti víkingurinn fram úr áætlun; Framleiðand- inn Filmeff- ekt í fjárhags- örðugleikum Ósló. Frá Guðmundi L8ve, fréttaritara Morguublaðsins. KVIKMYND Hrafns Gunnlaugs- sonar, Hvíti víkingurinn, fór um tuttugu milljónir króna fram úr kostnaðaráætlun framleiðandans, fyrirtækisins Filmeffekt í Osló. Veldur þetta fyrirtækinu tilfinn- anlegum fjárhagsörðugleikum og rekstrarvanda, en vonir standa til að þessu megi mæta með niður- skurði, uns Hvíti víkingurinn aflar frekari sölutekna. Að sögn Petter Borgli, annars eig- anda Filmeffekt, hjálpaði margt að við að koma fyrirtækinu í bobba, en síðastliðið ár hefur ekkert verkefni Filmeffekt skilað tilskildum fjárhags- legum árangri. „Við eins og svo margir aðrir í þessari atvinnugrein eigum tilvist okkar undir ríkisstyrkjum. Það er erfitt að halda uppi daglegum rekstri svona fyrirtækis, og þegar illa tekst til með stór verkefni getur það riðið því að fullu,“ sagðiBorgli.„Uns Hvíti víkingurinn aflar meiri sölutekna mun Filmeffekt eiga í þrengingum en ég er vongóður um að við ráðum fram úr þeim.“ Aðspurður kvað hann undirtektir við Hvíta víkingnum hafa verið jákvæðar á alþjóðlegum vett- vangi og áhugi væri fýrir að fá kvik- myndina á ýmsar kvikmyndahátíðir. ----------»-♦ ♦----- Islendingar hlutu þijá meistaratitla ÍSLENDINGAR hlutu þrjá meist- aratitla af fimm á Norðurlanda- mótinu í skólaskák sem haldið var í Svíþjóð og lauk um helgina. Jafn- framt hlutu íslendingar flesta vinninga samanlagt úr öllum flokkunum fimm eða 38'/2 en í öðru sæti urðu Svíar með 36 vinn- inga. Jón V. Gunnarsson sigraði í D- flokki, það er skákmanna fæddra 1979-1980, hlaut hann 6 vinninga og sigraði þannig í öllum sínum skák- um. Bragi Þorfinnsson sigraði í E- flokki, það er skákmanna fæddra eftir 1981 og varð Bergsteinn Ein- arsson í öðru sæti í þeim flokki. Helgi Áss Grétarsson sigraði í C- flokki, það er skákmanna fæddra 1977-1978 og þar varð Arnar E. Gunnarsson í þriðja sæti. Þess má geta að á þeim 20 árum sem liðin eru frá því að þessi skóla- skákmót hófust hafa íslendingar unnið til jafnmargra verðlauna á þeim og allar hinar Norðurlandaþjóð- irnar til samans. Morgunblaðið/Ingvar Jeppinn sem valt út fyrir Vesturlandsveg við Hvammsvík í fyrra- kvöld. Ung kona brotnaði illa þegar jeppi valt UNG kona beinbrotnaði illa en var ekki talin í lífshættu eftir að jeppabifreið sem hún var far- þegi í lenti í árekstri og valt út af veginum við Hvammsvík í Hvalfirði í fyrrakvöld. Tveir aðrir farþegar voru í bifreiðinni auk ökumanns en þeir hlutu ekki alvarleg meiðsli. Jeppanum var ekið áleiðis til Reykjavíkur og framúr fólksbíl á leið í sömu átt. Við framúrakstur- inn ók ökumaður jeppans í krapa- elg í vegarkantinum og missti við það vald á bíl sínum sem skall á þeim sem ekið var fram úr, valt á hliðina og út af veginum og niður bratta brekku. Stúlkan sem slasað- ist mest kastaðist þá út úr bílnum. Að sögn lögreglunnar var í fyrstu talið að meiðsli hennar væru enn alvarlegri en þau reyndust vera og vegna erfíðra aðstæðna á vett- vangi var þyrla Landhelgisgæsl- unnar kölluð út en horfið var frá því þegar greiðlega gekk að koma hinum slösuðu upp á veginn og í sjúkrabíl sem þar beið. Slökkviliðið í Reykjavík sendi einnig á staðinn bíl sem flóðlýsti staðinn meðan unnið var að björguninni. Eftirtaldir afgreiöslustaöir Islandsbanka veita Húsfélagaþjónustu: Bankastrœti 5, sími 27200. Lœkjargata 12, sími 691800. Lpugavegur 172, sími 626962. Alfheimar 74, sími 814300. Crensásvegur 13, sími8]4466. Háaleitisbraut 58, sími 812755. Stórhöfii 17, viö Cullinbrú, sími 675000. Lóuhólar 2-6, sími 79777. Kringlan 7, sími 608000. Þarabakki 3, sími 74600. Dalbraut 3, sími 685488. Eibistorg 17, Seltj., sími 629966. Reykjavíkurvegur 60, Hafnarfiröi, sími 54400. Strandgata 1, Hafnarfirbi, sími 50980. Hörgatún 2, Caröabæ, simi 46800. Hamraborg 14a, Kópavogi, sími 42300. Þverholt 6, Mosfellsbœ, simi 666080. Hafnargata 60, Keflavík, sími 92-15555. Kirkjubraut 40, Akranesi, sími 93-13255. Hrísalundur 1a, Akureyri, sími 96-21200. Aöalgata 34, Siglufiröi, sími 96-71305. Nœsta mál! Kosning gjaldkera húsfélagsins Húsfélagaþjónusta íslandsbanka býðst til að annast innheimtu-, greiðslu- og bókhaldsþjónustu fyrir húsfélög. HUSFÉLAGA þjonusta Gjaldkerastarf í húsfélagi fjölbýlishúsa hefur aldrei þótt eftirsóknarvert, enda bœbi tímafrekt og oft van- þakklátt. Húsfélagaþjónustan auöveldar rekstur og tryggir öruggari fjárreibur húsfélaga meb nákvœmri yfirsýn yfir greibslustöbu og rekstur á hverjum tíma. Þetta fyrir- komulag er því íbúum fjölbýlishúsa til hagsbóta. Þrír þœttir Húsfélagaþjónustu: ._—Innheimtuþjónusta: Bankinn annast mánaöarlega tölvuútskrift gíróseöils á hvern greiö- /'C anc^a húsgjalds. Á gíróseölinum eru þau gjöld sundurliöub sem greiöa fdj þarf til húsfélagsins. iS \0 ars\ §j Greiösluþjónusta: \> A6' >^r/ Öll þau gjöld sem húsfélagiö þarf aö greiöa, t.d. fyrir rafmagn og '^4 ■Jy'hita, færir bankinn af viöskiptareikningi og sendir til viökomandi á uí umsömdum tíma. Bókhaldsþjónusta: í lok hvers mánaöar er sent út reikningsyfirlit sem sýnir hverjir hafa greitt og í hvaö peningarnir hafa fariö. í árslok liggur fyrir yfirlit yfir rekstur húsfélagsins á árinu, greiöslur íbúa á árinu og skuldir þeirra í lok árs. Allar nánari upplýsingar um Húsfélagaþjón- ustu bankans og kynningartilboöiö sem stendur húsfélögum til boba til 7 6. mars fást hjá þjónustufulltrúum 7 neöan- ISLANDSBANKI greindum afgreibslustöbum bankans. _ f t(J^t VJg nýja t{mar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.