Morgunblaðið - 18.02.1992, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992
Lárus J. Guðmunds
son - Minning
Mig iangar að minnast Lárusar
afa og Elínar ömmu í fáeinum orðum
en afi lést 8. febrúar síðastliðinn 87
ára að aldri. Ömmu missti hann 10.
febrúar 1987, einnig 87 ára, eftir
tiltölulega stutta sjúkralegu.
Þegar ég minnist æskuáranna,
þar sem afi og amma voru ætíð til
staðar, hornsteinar tilverunnar, vin-
amörg og félagslynd, bæði komin á
sjötugsaldur og alltaf í góðu skapi,
man ég hve gott var að kíkja til
þeirra milli leikja, fá mjólkursopa
og köku og jafnvel betla mola því
alltaf áttu þau slíkt til að stinga upp
í stóra sem smáa. Hve gott var að
hlusta á kyrrðina og hávært klukkut-
ifið og fínna stresslausa andrúms-
loftið sem einkenndi þau og þeirra
kynslóð.
í stofunni sat afi við ritvélina og
tók saman margs konar fróðleik,
skráði örnefni æskuslóðanna í Ama-
firðinum og vinnubrögð sem tíðkuð-
ust þá til sjós en eru ekki unnin leng-
ur og myndu glatast seinni kynslóð-
um ef þau yrðu ekki skráð niður.
En það vildi afi koma í veg fyrir.
c**/*o'92
Verð frá: 969.000,-
Greiðslukjör við allra hæfi
Til sýnis núna að Vatnagörðum 24
virka daga kl. 9:00 - 18:00 og
laugardaga kl. 11:00 — 15:00.
Nánari upplýsingar í síma 68 99 00
(0 1
Síðan batt hann sjálfur afraksturinn
og annað inn í bækur. Meðan heilsan
brást honum ekki, sat hann aldrei
auðum höndum. Fyrst reyndu smáir
fingur að „pikka“ á ritvélina eins
og afi gerði, en þeir lengdust og
stækkuðu með árunum, svo mörgum
árum seinna slógu þeir lipurlega á
ritvélina hans nokkrar af greinum
hans. Gaman var að hlusta á afa
segja frá liðnum tíma og skoða
myndirnar hans að vestan. í stað
þess að æða um Homstrandir á
hveiju ári, vildi hann að ég heim-
sækti sveitina hans oftar. Og það
ætla ég að gera fyrr en seinna.
Elín amma var alltaf svo falleg,
ákveðin í fasi og hress. Jafnvel há-
öldruð bar hún sig svo vel og skörug-
lega.
Sem barn dáðist ég að löngu
dökku hári hennar þegar hún greiddi
það niður og vafði síðan upp í hnút
í hnakkann. Hve skemmtilegt var
að heyra hana segja sögur og lesa
upphátt gamansögur. Eða þegar hún
kastaði fram stökum í hita augna-
bliksins því hagmælt var hún. Amma
hélt heimili fram á síðasta árið sem
hún lifði, bakaði kleinur og pönnu-
kökur og bar fram með ilmandi
súkkulaði.
Eftir lát ömmu bjó afi hjá eldri
dóttur sinni og tengdasyni, Astu og
Eyjólfi, sem önnuðust hann aðdáun-
arlega vel, þótt Ásta þurfí að berj-
ast við erfíðan sjúkdóm. Síðasta árið
dvaldi hann svo á Sólvangi í Hafnar-
firði við góða umönnun.
Mér þykir vænt um að hafa feng-
ið að kynnast ömmu og afa og ég
hef þá von að sá tími kom að ég
hitti þau aftur, þau þá ung og heil-
brigð (Job. 33:25), við langtum betri
aðstæður hér á jörðinni en eru í
dag. Þegar spádómsorð Biblíunnar
rætast að „upp muni rísa bæði rétt-
látir og ranglátir" (Post. 24:15) und-
ir stjóm ríkis Guðs og Krists, þegar
„vilji Guðs verður gerður hér á jörðu
sem á himni“ (Matt 6:10) eins og
Jesús kenndi fylgjendum sínum að
biðja um.
Þangað til hvíla þau í minningu
Guðs.
Hanna.
Láras Jón Guðmundsson andaðist
að Sólvangi í Hafnarfirði 8. febrúar
sl.
Láras fæddist í svonefndu Hólm-
arahúsi á Bíldudal 12. september
1904. Foreldrar hans voru Guð-
mundur Lárusson, fæddur á Arnar-
stöðum í Helgafellssveit 1869, og
Guðrún Jónsson frá Bjarnarhöfn,
fædd 1868.
Þau hjón fluttu frá Stykkishólmi
til Bíldudals 1901. Lárus átti sín
æskuár á Bíldudal og unglingsárin
í Bakkadal í Arnarfirði, er foreldrar
hans höfðu flutt þangað. Arnaríjörð-
urinh var Lárusi mjög kær. Hann
var fróðleiksmaður og áhugasamur
um að safna minningum.
Honum tókst einnig að ná mynd-
um af öllum eða nær öllum kirkjum
á landinu. Af mörgum hafði hann
tekið sjálfur og skrifað um þær. Þá
fékkst hann við, á efri árum, að
binda inn bækur og náði góðri leikni
við það verk.
Á Bændaskólanum á Hvanneyri,
þar sem hann var við nám, kynntist
hann konu sinni, Elínu Kristjáns-
dóttur frá Langholtsparti í Flóa,
fædd 1899, dáin 10. febrúar 1987.
Þau giftu sig 1928 og hófu búskap
að Vinaminni í Bakkadal í Arnar-
firði og bjuggu þar til þess að þau
fluttu til Hafnarfjarðar 1947. Þau
eignuðust 3 börn, öll fædd vestra;
Ásta Guðríður, hennar maður er
Eyjólfur Einarsson; Guðmundur,
kona hans er Unnur Einarsdóttir;
og Guðrún, maður hennar er Jóhann-
es Jónsson. Þau búa öll í Hafnarfirði.
Eftir að Láras kom til Hafnar-
fjarðar hóf hann störf hjá Jóhannesi
Reykdal. Síðan réðst hann til Pósts
og síma í Hafnarfírði sem bréfberi
og vann við það þar til hann lét af
störfum vegna aldurs. Átti hann
miklum vinsældum að fagna, því
hann var samviskusamur, lipur og
ljúfur, ávallt hress í framkomu.
Fljótlega eftir að þau Láras og
Elín komu í Hafnarfjörð gengu þau
í stúkuna Daníelsher nr. 4. Voru þau
bæði mikilvirkir liðsmenn, sístarf-
andi við hvað eina til styrktar stúk-
unni og Góðtemplarareglunni í heild.
Þeim hjónum var margt til lista
lagt. Höfðu bæði góða leikarahæfí-
leika og tóku oft þátt í leiksýningum
innan stúkunnar. Eins var Elín ein-
staklega góður upplesari. Hún var
gædd sérstökum frásagnarhæfileik-
um.
Lárus var ávallt í fremstu sveit,
að vinna fyrir góðtemplararegluna í
Hafnarfirði. Þegar hafíst var handa
um tómstundastarf fyrir unglinga
(og eldri) á vegum Góðtemplara-
hússins (sem bærinn tók við síðar)
var Lárus með öðrum góðum er sáu
um stjóm þess. Allt unnið án endur-
gjalds.
Stúkumar í Hafnarfírði sáu um
að planta út árlega skógi á sérstöku
svæði við Hvaleyrarvatn. Þar stóðu
þau Lárus og Elín, með öðrum, vel
að verki. Er þetta svæði kallað
Templarareitur. Þá má einnig minna
á bindindismótin o.fl. o.fl. Meðal
annars sat Lárus í fyrstu stórn ís-
lenskra ungtemplara — ÍÚT undir
forystu hins ágætasta prests séra
Árelíusar Níelssonar, sem nú er ný-
látinn.
Sérstaklega verður Lárusar
minnst sem hins góða og hugljúfa
félaga, sem ætíð var reiðubúinn til
starfa og sem gott var að starfa
með. Eftir að heilsa hans bilaði og
hann gat ekki lengur staðið að verki,
var hugur hans ætíð bundinn starf-
inu, og hann leitaði frétta hvernig
gengi.
Hann er nú kvaddur af miklum
innileik, þakklæti til hins góða og
trygga félaga fyrir samstarfíð.
Blessuð sé minning hans.
Með samúð til aðstandenda,
kveðja frá stúkunni
Daníelsher nr. 4.
Hinn 8. febrúar sl. lést á Sól-
vangi, Hafnarfirði, gamall vinur og
sveitungi, Láras Jón Guðmundsson
fyrpverandi póstmaður í Hafnarfirði.
Lárus fæddist í Glaumbæ á
Bildudal 12. september 1904. For-
eldrar hans, Guðmundur Lárasson
og Guðrún Jónsdóttir, mikið dugn-
aðarfólk, vora bæði ættuð úr byggð-
um Breiðafjarðar. Þau fluttust til
Bíldudals eins og margir á þeim
áram, er Pétur Thorsteinsson hafði
þar hvað mest umsvif. Guðmundur
stundaði sjómennsku á fískiskútum
frá Bíldudal á sumram, en vertíðir
sunnanlands á vetrum. Jafnframt
byggði hann sér íbúðarhús, fyrst
utanvert í plássinu, ofan vegar, en
það eyðilagðist í aur- og gijótskriðu,
skömmu eftir byggingu. Síðar
byggði Guðmundur svonefnt Hólm-
arahús utar í þorpinu. Það hús stend-
ur enn, en nafnið fékk húsið vegna
þess að Guðmundur og Guðrún komu
frá Stykkishólmi.
Vegna dvínandi atvinnulífs á
Bíldudal, flutti ijölskyldan árið 1913
að Vinaminni, grasbýli í landi Bakka,
sem var miðsveitis í Ketildaiahreppi
við sunnanverðan Arnaríjörð.
Hreppurinn er nú sameinaður Suður-
íjarðahreppi og nefnist Bíldudals-
hreppur. Guðmundur hélt áfram að
stunda sjóinn, á skútum, vertíðum
sunnanlands á vetrum og svo róðra
á árabátum, síðar trillubátum, frá
Bakka og víðar í sveitinni. Hann var
kappsfullur og talinn góður formað-
ur. Grasnyt var lítil, sem fylgdi Vina-
minni, en nokkrar skepnur var þó
hægt að hafa. Láras ólst þar upp
við störf til sjós og lands, en þó
meira við sjósókn. Einnig dvaldi
hann oft hjá kunningjafólki á sveita-
bæjunum í kring á sumram. Verk-
kunnátta hjá ungu fólki, sem bjó við
svipaðar aðstæður, varð því alhliða
og það gat unnið flest störf jöfnum
höndum á sjó og landi, enda var
mikið farið milli landshluta til ýmissa
starfa, aðallega á vetram.
Systkini Lárusar vora: Marta, f.
1901, Ólafía, f. 1910, báðar dánar,
og Ólafur Tryggvi, f. 1907, en dó
sama ár. Lárus var aðeins 14 ára,
þegar hann fór að heiman til sjó-
róðra. Sjóinn stundaði hann síðan,
fyrst á árabátum, síðar trillubátum,
þess á milli á þilskipum á handfæra-
veiðum, einnig fór hann nokkrar
vetrarvertíðir suður á lánd.
Árið 1943 hóf hann búskap á
nýbýlinu Grænuhlíð í Bakkadal og
bjó þar til ársins 1947 að hann flutti
til Hafnaríjarðar með fjölskyldu
sinni, að Hraunbergi og starfaði
fyrst hjá Verksmiðju óg íshúsi Reyk-
dals. Á unglingsárum sínum var
Láras við nám á Núpi og síðar á
Bændaskólanum á Hvanneyri. Hann
útskrifaðist þaðan sem búfræðingur
árið 1926.
Á námsáram sínum á Hvanneyri
kynntist hann ágætri konu, Elínu
Kristjánsdóttur frá Langholtsparti í
Flóa. Þau giftust í Reykjavík árið
1928 og munu hafa ætlað að fara
að búa á jörðinni Granda í Bakka-
dal, sem þau voru búin að festa sér
til ábúðar. En sviplegt fráfall Guð-
mundar, föður Lárasar, sem drakkn-
aði í sjóferð frá Flateyri til Selár-
dals vorið 1929, breytti áformum
ungu hjónanna þannig, að þau ílent-
ust í Vinaminni hjá móður og yngri
systur Lárusar. Stækkuðu þau hús-
ið, bættu ræktun og juku bústofn
eins og hægt var að hafa á býlinu.
Þarna voru þá landþrengsli og veitti
ekki af að stunda sjóinn jafnframt,
því það vora erfiðir tímar á þessum
árum og ekki margra kosta völ. Það
breytti samt ekki því að alltaf voru
þau hjón jafn ljúf og góð heim að
SIEMENS
Með SIEMENS heimilistœkjum verður lífið léttara!
Traustir umboðsmenn okkar eru víðs vegar um landið!
• Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6.
• Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13.
• Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála.
• Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, Munaðarhóli 25.
• Grundarfjörður: Guðni Hallgrímsson, Grundargötu 42.
• Stykkishólmur: Skipavík, Hafnargötu 7.
• Búðardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12.
• ísafjörður: Póllinn hf., AÖalstræti 9.
• Blönduós: Hjörleifur Júlíusson, Ennisbraut 1.
• Sauðárkrókur: Rafsjá hf., Sæmundargötu í.
• Siglufjörður: TorgiÖ hf., Aðalgötu 32.
• Akureyri: Sír hf., Reynishúsinu, Furuvöllum 1.
Húsavík: öryggi sf., Garðarsbraut 18a.
Þórshöfn: NorÖurraf, Langholti 3.
Neskaupstaður: Rafalda hf„ Hafnarbraut 24.
Reyðarfjörður: Rafnet, Búöareyri 31.
Egilsstaðir: Raftækjav. Sveins GuÖmunds., Kaupvangi 1.
Breiðdalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Asvegi 13.
Höfn í Hornafirði: Kristall, Hafnarbraut 43.
Vestmannaeyjar: Tréverk hf„ Rötum 18.
HvolsvöIIur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4.
Selfoss: Árvirkinn hf., Eyrarvegi 29.
Garður: Raftækjav. SigurÖar Ingvarssonar, HeiÖartúni 2.
Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25.
C
3
co
°I
o* o*
3 (Q
0:8
D O*
D
C
3
Q
<
O:
O ^
7T -j.
Q Q'
3 sc-
QÍ
=50
Q^
D
CL