Morgunblaðið - 18.02.1992, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992
Forkosningar bandarískra demókrata og repúblíkana í New Hampshire:
Fyrrum þingmaður frá Massachus-
etts sigurstranglegastur demókrata
George Bush forseti vænir Pat Buchanan um neikvæða kosningabaráttu
Nasua og Manchester í New Hampshire. Reuter, The Daily Telegraph.
Skoðanakannanir gefa til kynna að Paul Tsongas, fyrrum öldunga-
deildarþingmaður frá Massachusetts, vinni sannfærandi sigur í for-
kosningum bandaríska Demókrataflokksins, sem fram fara í New
Hamspshire, í dag, þriðjudag. Svo virðist sem vinsældir Bills Clint-
ons, ríkisstjóra frá Arkansas, fari ört dvínandi og er skýringin eink-
um talin fólgin í ásökunum þeim sem bornar hafa verið fram á
hendur honum á undanförnum vikum. Fullvíst er talið að George
Bush forseti vinni sigur í forkósningum repúblíkana, sem einnig
fara fram í New Hampshire í dag. Kosningabarátta forsetans þykir
hins vegar ekki hafa verið sérlega vel skipulögð. Hugsanlegt er
talið að íhaldsmaðurinn Pat Buchanan fái umtalsvert fylgi og telja
stjórnmálaskýrendur vestra að það geti skaðað Bush forseta í bar-
áttu þeirri sem fram mun fara á næstu mánuðum áður en forseti
Bandaríkjanna verður kjörinn þann 3. nóvember.
Forkosningarnar í New Hamps-
hire eru taldar sérlega mikilvægar.
Frá árinu 1952 hefur enginn fram-
bjóðandi í forsetakosningum náð
kjöri án þess að hafa unnið sigur í
New Hamsphire. Gengi frambjóð-
enda hefur ævinlega mótast af fylgi
því sem þeir hljóta í þessum fyrstu
forkosningum líkt og fyrrum forset-
ar, þeir Truman, Johnson, Ford og
Carter, fengu að reyna á sínum
tíma. í forkosningunum verða vald-
ir 18 fulltrúar til að sitja landsfund
Demókrataflokksins er fram fer
13.-16. júlí þar sem frambjóðandi
flokksins í forsetakosningunum í
haust verður valinn.
Fylgistap Bills Clintons
Kannanir gefa til kynna að fylgi
frambjóðenda Demókratafiokksins
hafi tekið miklum breytingum á
undanförnum dögum og vikum.
Fyrir skemmstu þótti flest benda
til þess að Bill Clinton, ríkisstjóri
frá Arkansas, færi með sigur af
hólmi. Clinton hefur hins vegar átt
í miklum erfiðleikum. Fram komu
fullyrðingar um að hann hefði stað-
ið í leynilegu ástarsambandi við
konu eina í heil tólf ár. Virtist svo
sem honum hefði tekist að verjast
þessum árásum ekki síst með stuðn-
ingi eiginkonu sinnar. Á dögunum
neyddist Clinton síðan til að viður-
kenna að hann hefði árið 1969
skrifað liðsforingja einum í Banda-
ríkjaher, sem vann að herkvaðn-
ingu, bréf þar sem Clinton þakkaði
honum fyrir að hafa „bjargað" sér
undan því að gegna herþjónustu.
Skýringar Clintons þóttu ekki sann-
færandi og sérfræðingum vestra
ber saman um að þessar upplýs-
ingar hafi fallið í grýttan jarðveg
meðal kjósenda í Bandaríkjunum.
Um 27 milljónir Bandaríkjamanna
voru á herkvaðningaraldri í Víet-
nam-stríðinu en um 15 milljónir
manna komust hjá herkvaðningu
með sama hætti og Bill Clinton.
Þykir þetta um margt minna á
ásakanir þær sem fram komu árið
1988 er uppvíst varð að Dan Qua-
yle, núverandi varaforseti Banda-
ríkjanna, hefði komist hjá því að
betjast í Víetnam með því að ganga
í sveitir bandarískra þjóðvarðliða.
Var fullyrt að hann hefði notað auð
fjölskyldu sinnar til að komast hjá
því að vera sendur á vígvöllinn.
Könnun sem birt var í gær virt-
ist staðfesta að algjör umskipti
hefðu átt sér stað í herbúðum demó-
krata. Samkvæmt dagblaðinu The
Boston Globe fær Paul Tsongas 32
prósent atkvæða í forkosningunum
í dag. Fylgi Bills Clintons mældist
hins vegar um tuttugu prósent.
Þrír menn til viðbótar hafa gefið
kost á sér í forkosningum demó-
krata. Þeir Tom Harkin, öldunga-
deildarþingmaður frá Iowa, og
starfsbróðir hans Bob Kerrey frá
Nebraska reyndust vera með 12 og
11 prósenta fylgi. Lestina rak Jerry
Brown, fyrrum ríkisstjóri Kaliforníu
en fylgi hans mældist firnm pró-
sent. Átta prósent þeirra sem þátt
tóku í könnuninni kváðust ekki
hafa gert upp hug sinn.
Athygli vakti að allt að tíu pró-
sent kjósenda demókrata kváðust
ætla að kjósa Mario Cuomo, ríkis-
stjóra New York, en hann er ekki
í framboði. Kjósendur geta hins
vegar bætt nöfnum á listann og
þannig komið skoðun sinni á fram-
færi. Mjög hefur verið þrýst á Cu-
omo um að gefa kost á sér í forkosn-
ingunum en hann hefur þráfaldlega
neitað. Margir fréttaskýrendur telja
hugsanlegt að hann bætist í hóp
frambjóðenda fái hann mikið fylgi
í kosningunum í dag. Á hinn bóginn
er bent á að tími hans sé orðinn
naumur því í öllum ríkjunum er til-
tekinn framboðsfrestur sem víða er
að renna út. Þykir sýnt að Cuomo
muni tæpast geta skipulagt kosn-
ingabaráttu sína með svo skömmum
fyrirvara. Nafn Lloyds Bentsens,
öldungadeildarþingmanns frá Tex-
as, hefur einnig verið nefnt í þessu
viðfangi en hann var varaforseta-
efni flokksins í síðustu kosningum
árið 1988.
Tsongas, sem er 51 árs og lög-
fræðingur að mennt, þótti standa
sig vel er frambjóðendur Demó-
krataflokksins, komu saman til
sjónvarpskappræðu á sunnudag.
Hinir frambjóðendurnir beindu
spjótum sínum að honum en þeim
árásum þótti hann veijast fimlega.
Tsongas fór hins vegar hörðum
orðum um frammmistöðu George
Bush á vettvangi efnahagsmála og
kvað hana hafa einkennst af röð
mistaka. Tsongas, sem er af grísk-
um ættum, hætti þingmennsku árið
1985 er í Ijós kom að hann þjáðist
af krabbameini. Hann kveðst nú
hafa náð fuliri heilsu og engin
þreytumerki voru á honum að sjá
í sjónvarpskappræðunum sem stóðu
yfir í 90 mínútur.
Þykir minna á Dukakis
Bandarískir stjómmálaskýrendur
eru margir þeirrar skoðunar að
Tsongas muni eiga erfitt uppdráttar
í þeim forkosningum sem eftir eru
jafnvel þó að hann vinni sigur í New
Hampshire. Ólíklegt þykir að stuðn-
ingsmenn demókrata muni fylkja
sér um hann en nokkur stefnumála
hans þykja engan veginn dæmigerð
fyrir flokkinn. Ekki síst þykir sér-
staða hans á vettvangi orkumála
geta komið honum í koll en einn
frambjóðenda hefur hann lýst sig
fylgjandi því að kjarnorka verði um
fyrirsjáanlega framtíð notuð sem
orkugjafi í Bandaríkjunum. Þá hafa
nokkrir sérfræðingar Demókrata-
Paul Tsongas, fyrrum öldunga-
deildarþingmaður frá Massachu-
setts, vinnur öruggan sigur í for-
kosningum Demókrataflokksins
í New Hampshire í dag, þriðju-
dag, ef marka má skoðanakann-
anir.
flokksins af því áhyggjur að fram-
boð Tsongas minni um of á fram-
boð Michaels Dukakis árið 1988.
Dukakis, sem er af grískum ættum
og fyrmm ríkisstjóri í Massachu-
setts, var valinn frambjóðandi
flokksins það ár en George Bush
reyndist auðvelt að vinna á honum
sigur.
Kemur Buchanan höggi á
Bush?
Samkvæmt könnunum sem birt-
ar voru um helgina mun George
Bush forseti vinna sigur í forkosn-
ingum repúblíkana þar sem slegist
er um 23 fulltrúa er sitja munu
landsfund flokksins í ágústmánuði
er frambjóðandi flokksins í forseta-
kosningunum verður valinn. í könn-
un dagblaðsins The Boston Globe
sem birt var í gær fær Bush 53%
atkvæða en helsti andst.æðingur
hans, íhaldsmaðurinn Pat Buchan-
an, 29%. Afgangurinn kvaðst ekki
hafa gert upp hug sinn eða sagðist
ætla að styðja frambjóðanda sem
engar líkur eru á að sigri. Sam-
Israelsher fellir leiðtoga Hizb-
ollah í þrautskipulagðri árás
Fyrr um helgina höfðu árásarmenn vegið þijá nýliða í ísraelska hernum
Reuter
Ehud Barak, forseti ísraelska herráðsins og Moshe Arens varnar-
málaráðherra voru brosleitir við athöfn er Victor Malca Villanueva,
varnarmálaráðherra Perú, kom í heimsókn til Israels í gær. Barak
sagðist í gær búast við að árásin á leiðtoga Hizbollah myndi e.t.v.
leiða til aukinna hryðjuverka gagnvart ísrael en til lengri tíma litið
myndu samtökin veikjast. Sagðist hann gleðjast yfir því hve árásin
á Musawi hefði tekist vel.
Jerúsalem. Reuter. The Daily Telegraph.
ÍSRAELSHER felldi á sunnu-
dag Sheikh Abbas Musawi, leið-
toga Hizbollah. Kom árásin á
bílalest Musawis í suðurhluta
Líbanons í kjölfar þess að þrír
nýliðar í Israelsher voru drepn-
ir á aðfaranótt laugardags þar
sem þeir sváfu í herbúðum sín-
um. Talið er að Palestínumenn
frá Vesturbakka Jórdan hafi
verið þar að verki.
Talsmaður Hizbollah segir að
Musawi hafí beðið bana ásamt
eiginkonu og ungum syni þegar
ísraelskar þyrlur skutu eldflaugum
á Mercedes-bifreið leiðtogans.
Einnig féllu að minnsta kosti fimm
lífverðir Musawis. ísraelski herinn
staðfesti að hann hefði staðið fyr-
ir árásinni: „Flugvélamar réðust á
lest bíla Hizbollah á veginum frá
Jibsheet til Sídon í suðurhluta Lí-
banons," sagði talsmaður hersins.
„Yfirmaður hryðjuverkasamtak-
anna Hizbollah sem var í lestinni
var drepinn."
Fyrr um daginn hafði ísraelski
flugherinn gert árásir á búðir
Fatah, sem eiga_aðild að Frelsi-
samtökum Palestínu (PLO), í
Suður-Líbanon. A.m.k. Qórir féllu
í árásunum. Ekki er Ijóst hvort
þær aðgerðir voru liður í að und-
irbúa árásina á leiðtoga Hizbollah.
Árásin á Musawi var þraut-
skipulögð að því er virðist. Bæði
þyrlur og herþotur tóku þátt í
henni. Fregnir herma að áhafnir
ísraelsku þyrlnanna hafi skotið
u.þ.b. fímm fjarstýrðum eldflaug-
um á bílalest Musawis. Bifreið
Musawis stóð í Ijósum logum á
eftir sem og tvær Range Rover-
bifreiðar. Seinna skutu Israelar á
Volvo-bifreið sem flutti særða og
látna á sjúkrahús.
Sheikh Abbas Musawi var kos-
inn aðalritari Hizbollah í maí síð-
astliðnum. Það voru Hizbollah og
samtök tengd þeim, er starfa í
Líbanon undir verndarvæng Irana,
sem héldu árum saman fjölmörg-
um vestrænum gíslum. Musawi
er talinn hafa átt stóran þátt í að
mörgum gíslum var sleppt á síðari
hluta síðasta árs. Hann var 39 ára
gamall er hann var myrtur. Talið
er að hann hafi verið nánari Raf-
sanjani, forseta írans, en forveri
hans, Sheikh Subhi Tofali.
En þótt hann aðhylltist þá
stefnu Irana að gefa eftir í gísla-
málinu var hann staðráðinn í að
herða baráttuna við ísraéla. Vitað
er að hánn var ofarlega á lista
Israela yfir eftirlýsta fjendur ísra-
elsríkis. Heimildarmenn Reuters-
fréttastofunnar segja að ísraelar
hafi ætíð haft áreiðanlegar upplýs-
ingar um ferðir Musawis og að
þeir hafi í raun getað ráðið hann
af dögum hvenær sem er.
Árásin á Musawi er talin gefa
til kynna að ísraelar hafi gefið upp
alla von um að semja við Hizbollah
um að samtökin láti af hendi sex
ísraelska hermenn, lífs eða liðna.
Þrír sofandi hermenn vegnir
Israelsku nýliðarnir þrír sem
felldir voru aðfaranótt laugardags
voru bornir til grafar á sunnudag.
Tveir þeirra voru innflytjendur
sem komu fyrir skömmu frá Sovét-
ríkjunum. Árásin var gerð
skömmu fyrir miðnætti þegar allir
nema níu hermenn í þjálfunarbúð-
um nærri Galed í ísrael voru í fríi
vegna hvíldardagsins.
Búðirnar voru ekki víggirtar og
læddust árásarmennirnir inn í þær
vopnaðir öxum, hnífum og kvíslum
og réðu hermennina þrjá af dög-
um.
Gröf keis-
arafundin
Addis Ababa. Reuter.
JARÐNESKAR leifar Haile Sel-
assie Eþíópíukeisara, sem lést eft-
ir að marxistar steyptu honum
fyrir átján árum, fundust í leyni-
legri gröf á sunnudag. Útvarpið í
Addis Ababa sagði að líkið hefði
verið grafið undir salerni skrif-
stofu Mengistu Haile Miriam, leið-
toga marxistastjórnarinnar, í keis-
arahöllinni í Addis Ababa. Leit
hófst að líkinu eftir að fyrrverandi
yfírmaður öryggisvarða hallarinn-
ar skýrði frá þvi að hann yissi
hvar keisarinn hefði verið grafínn.
OPEC dregur
úr framleiðslu
Genf. The Daily Telegraph.
AÐILDARRÍKI Samtaka olíuút-
flutningsríkja, OPEC, hafa náð
samkomulagi um að draga úrolíu-
Haile Selassie