Morgunblaðið - 18.02.1992, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992
21
Kynning á efni tónleikanna verður hjá FIH í Rauða-
gerði 27 í kvöld kl. 20.00. Sigursveinn K. Magnús-
son sér um kynninguna. Fjölmennum!
Frá sjónvarpskappræðum frambjóðenda Demókrataflokksins. Frá vinstri: Bill Clinton, Bob Kerrey og
Paul Tsongas.
kvæmt könnun sem sjónvarpsstöðin
CNN lét gera um helgina í sam-
vinnu við dagblaðið USA Today
fékk forsetinn meira fylgi eða 60%
en Buchanan 33%. Sérfræðingar
eru almennt þeirrar skoðunar að
óhugsandi sé að Buchanan beri sig-
urorð af Bush. Á hinn bóginn er
mat manna það að hljóti Buchanan
umtalsvert fylgi verði það til marks
um allvíðtæka óánægju með stjórn
forsetans, sem mjög hefur átt und-
ir högg að sækja að undanförnu
vegna efnahagskreppunnar í
Bandaríkjunum. Það geti aftur
dregið úr sigurlíkum forsetans í
kosningunum. Pat Buchanan, sem
er þekktur sjónvarpsmaður og var
yfirmaður íjöimiðlaskrifstofu Ron-
alds Reagans forseta á sínum tíma,
höfðar einkum til þeirra sem lengst
eru til hægri í bandarískum stjórn-
málum. Buchanan endurtók um
helgina fyrri árásir sínar á stjórn
George Bush, sem hann kveður
hafa svikið öll helstu stefnumál
repúblíkana. Einkum hefur Buchan-
an gert kosningaloforð forsetans
frá árinu 1988 að umtalsefni en þá
hét Bush því að skattar yrðu ekki
hækkaðir næði hann kjöri. Þetta
loforð hefur forsetinn neyðst til að
svíkja. Buchanan hefur einnig gert
kostnað við heilbrigðiskerfið að
kosningamáli sínu auk þess sem
hann er hlynntur því að Bandaríkja-
menn sýni fulla hörku í viðskiptum
sínum við Japani og að herafli
Bandaríkjamanna í Evrópu verði
kallaður heim.
„Neikvæð kosningabarátta“
Buchanans
Ýmsum þykir sem Bush forseti
og kosningastjórar hans hafi ekki
brugðist við ásökunum Buchanans
með nógu markvissum hætti. Sjálf-
. ur lýsti Bush yfir því um helgina
að sú „neikvæða kosningabarátta“
er einkenndi framboð Buchanans
myndi ekki koma að tilætluðu
gagni. „Neikvæð kosningabarátta"
þykir sérlega áhrifamikil í Banda-
ríkjunum en eitt helsta einkenni
hennar er markvissar árásir á mót-
frambjóðendur en minna fer fyrir
stefnumálum. Sjónvarpsauglýsing-
ar þykja gagnlegar í þessu skyni
og er tilgangurinn einkum sá að
skapa „neikvæða ímynd“ af and-
stæðingnum í hugum kjósenda.
Þótti kosningastjórum Bush takast
mjög vel upp á þessum vettvangi
er hann háði baráttuna við Dukakis
árið 1988.
Bush forseti hvatti um helgina
kjósendur í New Hampshire til að
styðja ekki óánægjuframboð. „Þið
standið frammi fyrir því að þurfa
að taka afstöðu og það ber að taka
alvarlega. Þið kjósið ekki þann sem
hæst hefur eða þann sem hefur í
frammi kröftugustu mótmælin. Ég
tel að þið takið kosningar þessar
alvarlega," sagði forsetinn en at-
hygli vakti að hann nefndi aldrei
Buchanan á nafn.
Aðstoðarmenn Bush fullyrða að
hann muni vinna auðveldan sigur á
Buchanan og óháðir sérfræðingar
eru á sömu skoðun. „Við eigum
engan veginn í erfiðleikum. Það er
ekkert sem bendir til þess að við
munum lenda í erfiðleikum," sagði
Robert Teeter, kosningastjóri for-
setans, í sjónvarpsviðtali á sunnu-
dag. Pat Buchanan sagði hins veg-
ar að niðurstöður forkosninganna í
New Hampshire ættu eftir að koma
„heimsbyggðinni allri á óvart.“
Kvaðst hann ekki einungis vera
sannfærður um að hann gæti sigrað
forsetann í forkosningunum heldur
gæti hann „gjörsigrað sérhvern
frambjóðanda demókrata." { her-
búðum Bush er litið svo á að það
sé áfall fyrir forsetann verði fylgi
Buchanans meira en 30%.
framleiðslunni um rúmlega 1,2
milljónir fata á dag. Heildarfram-
leiðslan hefur verið um 24,2
milljónir fata á dag en tilkynnt
var á laugardagskvöld eftir
fjögurra daga ráðherrafund aðild-
arríkjanna þrettán að hún yrði
minnkuð í 22,982 milljónir fata á
dag.
Fjórir IRA-
menn skotnir
Belfast. Reuter.
BRESK sérsveit skaut fjóra vopn-
aða menn til bana og særði tvo
til viðbótar eftir að þeir höfðu
reynt að ráðast með vélbyssum á
lögreglustöð í bænum Coalisland
á Norður-írlandi á sunnudag.
Mennirnir sex voru liðsmenn Irska
lýðveldishersins (IRA) og á flótta
frá lögreglustöðinni þegar sér-
sveitinni tókst að umkringja þá
við kaþólska kirkju í bænum. Her-
maður særðist í skotbardaganum.
Götubardag-
ar í Mogadishu
Nairobi. Reuter.
HARÐIR bardagar brutust út að
nýju á götum Mogadishu, höfuð-
borgar Sómalíu, í gær þrátt fyrir
loforð leiðtoga hinna stríðandi
fylkinga í borginni um að þeir
myndu virða vopnahléssamkomu-
lag sem náðist fyrir tilstilli Sam-
einuðu þjóðanna á föstudag. Að
minnsta kosti 4.000 manns hafa
beðið bana og 12.000 særst frá
því bardagarnir hófust 17. nóvem-
ber. Skæruliðahreyfingar steyptu
Mohamed Siad Barre, fyrrverandi
einræðisherra landsins, fyrir ári
og vopnaðir hópar hafa síðan skipt
landinu á milli sín.
Agreiningur um breytta efnahagsstefnu;
Fjármálaráðherra
Póllands segir af sér
Varsjá. Reuter.
KAROL Lutkowski, fjármálaráðherra Póllands, sagði af sér emb-
ætti í gær vegna grundvallarágreinings við aðra ráðherra í ríkis-
stjórninni um framkvæmd efnahagsmála. Afsögn Lutkowskis kom
á nokkuð óþægilegum tíma fyrir Jan Olszeweski forsætisráðherra
því hún var tilkynnt rétt áður en forsætisráðherrann hélt blaða-
mannafund til að kynna nýja efnahagsstefnu.
Mikill ágreiningur hefur verið
um hina nýju efnahagsstefnu
stjórnarinnar en hún felur í sér
töluverða stefnubreytingu frá síð-
ustu ríkisstjórnum. Leszek Balc-
erowicz, sem gegndi embætti fjár-
málaráðherra undanfarin tvö ár,
fylgdi mjög harðri stefnu sem
hafði það að markmiði að beijast
gegn óðaverðbólgu. Tókst honum
að koma verðbólgunni niður og
leggja grunninn að umskiptum í
átt til fijáls markaðskerfis. Afleið-
ing þessarar stefnu var hins vegar
einnig að tvær milljónir Pólveija
eru nú án atvinnu og framleiðsla
hefur dregist saman um þijátíu
prósent.
Olszewski vill nú leggja minni
áherslu á baráttuna gegn verð-
bólgunni og auka aðgerðir af hálfu
ríkisins til að auka hagvöxt. Telur
stjórnin nauðsynlegt að grípa til
slíkra aðgerða til að koma í veg
fyrir kreppu er gæti ógnað frekari
umbótum. Á blaðamannafundi sín-
um í gær sagðist hann áfram vera
trúr hinum fijálsa markaði en að
gera þyrfti „nokkrar mikilvægar
breytingar“ á fyrri stefnu.
Lutkowski er fjórði yfirmaður
fjármálaráðuneytisins sem segir
af sér á síðustu tveimur vikum og
hafa þeir allir verið fylgt Balc-
erowicsz að málum. Olszew.ski
hefur enn sem komið er einungis
fallist á eina afsagnarbeiðni og
hann sagðist í gær ætla að taka
upp viðræður við Lutkowski.
„Þetta mál er ekki útrætt enn,“
sagði forsætisráðherrann.
^ ^ d p m & s?
ESSO
STÖÐVARNAR
FORVITNILEGAR
VÖRUR...
...A FINU VERÐI
Startkaplar
200 Amper kr. 639
Loöfóöraöir
skinnvettlingar kr. 543
Barnabílsetur kr. 1.656
Tjöruhreinsir
Sabilex 1 I. kr. 151
Myndband
180 mín. kr. 395
...OG ÓTAL
MARGT FLEIRA
E-180
Olíufélagið hf
- ávallt í alfaraleiö
AUK / SÍA k9d26-637 L AUKhf k15<J11-244