Morgunblaðið - 18.02.1992, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992
Frakkland
r
- ítalskir kaupsýslu-
menn særa þjóð-
emiskennd Frakka
MIKIL ásókn ítalskra kaupsýslumanna, með Fiat-fjölskylduna Agn-
elli fremsta í flokki, í að fjárfesta í frönskum matvælaiðnaði hefur
komið sárt við þjóðernisvitund margra Frakka.
Áhyggjur Frakka eru ekki með
öllu ástæðulausar. í ljós hefur kom-
1o að Agnelli-fjölskyldan er í dag
orðinn einn voldugasti og umsvifa-
mesti aðilinn í frönskum matvæla-
iðnaði. í þokkabót er hér einnig
um að ræða tilraunir ítalanna til
að yfirtaka fyrirtæki sem framleiða
vörur sem í raun eru hluti af þjóðar-
ímynd Frakka, Chateau Margaux-
rauðvín, Roqueford-osta og síðast
en ekki síst Perrier-ölkelduvatn.
Mörgum Frökkum finnst sem Agn-
elli-fjölskyldan sækist hér eftir
sjálfu hjarta frönsku þjóðarinnar,
því allir Frakkar vita að leiðin að
hjarta mannsins liggur í gegnum
magann.
Agnelli-fjölskyldan hefur vissu-
Leiðrétting
í töflu yfir stöðu inn- og útlána
15 stærstu sparisjóðanna um síð-
ustu áramótm, sem birtist í við-
skiptablaði sl. fimmtudag, vantaði
upplýsingar yfir útlán veðdeildar
Sparisjóðs Hafnarfjarðar. Þau
námu alls 800 milljónum króna
þannig að heildarútlán sparisjóðsins
námu um áramót um 4 milljörðum
og jukust um 4,4% á sl. ári.
lega komið ár sinni vel fyrir borð.
Fjölskyldan á 5,7% í stærsta fyrir-
tæki Frakklands inpan matvæla-
iðnaðarins, BSN, sem er dágóður
hlutur í Ijósi þess að um 70% hluta-
bréfa eru úti á markaðnum.
Eignarhaldsfélagið IFIL, sem er í
eigu Agnelli-fjölskyldunnar, á góð-
an hlut í bankanum Worms, sem
aftur á 49% i sykurframleiðandan-
um Saint-Louis, sem aftur á 2,8%
hlut í BSN! Saint-Louis hefur að
auki nú nýlega keypt 13,8% hlut í
Source Perrier. Ánnað eignar-
haldsfélag í eigu Agnelli, IFINT, á
nú þegar 21,3% hlutabréfa í Exor,
en það félag er meðal annars eig-
andi Perrier, Chateau Margaux og
Rocqueford. Þannig hefur ítölunum
tekist að tryggja sér 49% hlut í
Exor.
En Frakkarnir ætla sér ekki að
gefast upp baráttulaust þegar jafn
mikilvægir þjóðarhagsmunir eru í
húfi. Nú hefur BSN myndað banda-
lag með Nestlé til að reyna að
bjarga Perrier frá grimmilegum
örlögum. Hvort það tekst á eftir
að koma í ljós. Aftur á móti er ljóst
að þrátt fyrir að Frakkland sé
stærsti framleiðandi landbúnaðar-
afurða í Evrópubandalaginu, þá er
frönskum matvælaiðnaði fyrst og
fremst stýrt af útlendingum.
Utanríkisviðskipti
Minni útfíutningur
japanskra bifreiða
BIFREIÐAÚTFLUTNINGUR frá Japan minnkaði um 0,2% í desemb-
er sl. en um 1,3% á öllu síðasta ári. Kemur þetta fram í skýrslu frá
Samtökum bifreiðaframleiðenda í Japan en þar segir, að í desember
hafi verið fluttar út 503.823 bifreiðar á móti 504.823 í sama mánuði
fyrir ári.
I desember jókst bifreiðaútflutn-
ingur Japana til Norður-Ameríku
um 3,6%, aðallega vegna þess, að
þá var verið að kynna nýjar gerðir
á markaðnum, en yfir allt árið
minnkaði hann um 6,3%. Er skýr-
ingin á því ekki minni kaup á jap-
önskum bílum, heldur sú, að fram-
leiðsla japanskra bíla í Bandaríkjun-
um sjálfum eykst stöðugt,
Útflutningur Japana til annarra
Asíulanda minnkaði um 5,7% í des-
ember og 0,6% á síðasta ári en í
Evrópu nam samdrátturinn í des-
ember hvorki meira né minna 23%
og 2,3% á árinu öllu.
í Miðausturlöndum er hins vegar
annað uppi á teningnum. Bifreið-
aútflutningur Japana þangað jókst
um 51% í desember og 33% á ár-
inu. Raunar er aðallega um að
ræða, að ástandið sé að jafna sig
eftir Persaflóastríðið. í Rómönsku
Ameríku jókst innflutningur jap-
anskra bíla um 51% í desember sl.
og _um 26% á árinu.
Á síðasta ári var útflutningurinn
43,4% af samanlagðri framleiðslu
japanskra bílasmiðja og verðmætið
var 72,87 milljarðar Bandaríkjadoll-
ara.
Ferðaþjónusta
Ferðavakinn kynntur á Selfossi
FERÐAVAKINN hf. kynnir tölvuvædda upplýsingaþjónustu fyrir
ferðamenn í Hótel Selfossi í dag, þriðjudaginn 18. febrúar, klukkan
13-18. Áformað er að setja upp ferðavaka á helstu ferðamannastöð-
um og tengjast 18 upplýsingamiðstöðvum á landinu.
Tölvukerfið sem notað er í ferða-
vakanum er fólgið í tölvu, prentara
og 16“ snertiskjá sem notandinn
fær upplýsingar sínar á. Þetta eru
upplýsingar um tiltekna landshluta
eða þjónustuþætti, svo sem ferða-
máta, hótel, bílaleigur, sundstaði
eða veitingastaði. Tölvukerfið
UTSALA
Stórkostleg rýmingarsala á
ákveðnum vörutegundum
meðan byrgðir endast
Myndbandsvélar
frá kr
49.900,-
byggir á margmiðlunartækni sem
blandar saman hljóði, texta og
mynd og birtir á einum og sama
tölvuskjánum. Þetta býður upp á
að ferðamaðurinn getur séð lifandi
myndir í kerfinu en þar verða
myndir frá 200 helstu perlum úr
náttúru íslands auk þess sem unnt
verður að skoða flóru og fugla
landsins. Ferðamaðurinn getur
fengið útprentaðar allar þær upp-
lýsingar sem á skjánum birtast og
haft með sér.
Auðvelt verður að koma nýjum
upplýsingum inn í kerfið frá selj-
endum ferðaþjónustu en upplýs-
ingamiðstöðvar verða tengdar
saman í þessu kerfi. Jafnframt
gefst möguleiki á að miðla í því
fréttum og veðurfregnum. Allir
þeir sem veita ferðamönnum þjón-
ustu verða skráðir inn í kerfið en
aðeins þeir sem kaupa áskrift og
gagnainnsetningu fá birtar þær
upplýsingar sem skipta öllu máli
fyrir ferðamanninn.
Eigendur Ferðavakans hf. eru
Upplýsingamiðstöð ferðamála,
Fjarhönnun hf., og Bain Business
Sölution Skotlandi.
Sig. Jóns.
Samtök
*
Islensk verslun stofnar
Flutningakauparáð
HIN nýstofnuðu samtök, íslensk
verslun, efna til stofnfundar
Flutningakauparáðs í dag,
þriðjudag og er hann opinn öll-
um þeim sem eru kaupendur að
Myndavélar frá Kr.
Missið ekki af þessu
einstaka tnkifœri
Rammar frá kr.
Verslanir
HANS PETERSEN HF
Bankastræti, Glæsibæ, Austurveri, Laugavegi 178,Kringlunni, Lynghálsi og Hólagarði
BOSCH
Bor og
brotvélar
GBH
745 DE
Bor/brotvél 880 W. Borar í stein
allt að 45 mm. Stiglaus rofi.
Þyngd aðeins 7,5 kg.
UBH 12/50
Bor/brotvél 1100 W. Borar í
stein allt að 50 mm. Þyngd
12,5 kg.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Borgartún 24
Sími: 626080 Fax: 629980
Umboðsmenn um land allt
flutningum. Að sögn Birgis R.
Jónssonar, formanns Islenskrar
verslunar, er stofnun ráðsins nú
að nokkru leyti viðbrögð við
ákvörðun Verðlagsráðs um að
gefa verðlagningu farmgjalda
frjálsa en lengi hafi verið þörf
fyrir fagleg samtök kaupenda
flutninga hérlendis.
Að sögn Birgis stendur íslensk
verslun að stofnun Flutningakaup-
aráðs vegna þess að félagsmenn
hennar eru stærstu kaupendur
flutninga hérlendis en Islensk
verslun var nýverið stofnuð af Bíl-
greinasambandinu, Félagi ís-
lenskra stórkaupmanna og Kaup-
mannasamtaka Islands. Birgir tel-
ur að hingað til hafi vantað samtök
kaupenda flutninga sem búa yfir
sömu sérþekkingu og seljendur
flutninga gera.
Birgir segir Flutningakauparáð
að nokkru leyti vera viðbrögð neyt-
enda flutninga við frjálsri
verðlagningu á flutningum en ráð-
ið mun m.a. láta sig varða sjóflutn-
inga, landflutninga, loftflutninga,
hafnarmál, þ.m.t. flughafnir, póst-
og fjarskipaflutninga, vöruflæði,-
stjórnun og hagræðingu. Þá geti
ráðið einnig gefið hinu opinbera
ráð og upplýsingar um sjónarmið
kaupenda flutninga. Flutninga-
kauparáð eru starfandi í öllum
löndum Evrópu og víðar um heim
að sameiginlegum hagsmunum
flutningakaupenda.
Stofnfundur Flutningakaupar-
áðs verður haldinn kl. 18.00 í
Húsi verslunarinnar á 6. hæð í
fundarsal íslenskrar verslunar.