Morgunblaðið - 18.02.1992, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992
Fækkun kennslu-
stunda í grunnskóla
eftirJónÁ.
Gissurarson
íslensk stjómvöld hyggjast
fækka lágmarkskennslustundum í
4. til 10. bekk grunnskóla um tvær
stundir á viku. Þetta er talið spara
180 milljónir króna á ári.
Vegna þessa hefur verið þyrlað
upp blekkingum ekki litlum. For-
maður Kennarasambands íslands,
Svanhildur Kaaber, hefur gengið
''v>ar fram fyrir skjöldu. Á foreldra-
fundi í Reykjavík lagði hún slíkt
að jöfnu við að tveimur skólum þar
yrði lokað eða heilum árgangi yrði
meinuð skólaganga.
„Um allar sagnir hallaði hann
mjök til og ló frá víða,“ eru orð
Njálu um frásögn Gunnars Lamba-
sonar af viðbrögðum Skarphéðins
í brennunni. Að breyttum breyt-
anda mætti heimfæra þessi orð upp
á ræðu Svanhildur á fundi þessum.
Lítum nú á staðreyndir. Lág-
marks stundafjöldi í 4. bekk er 27
stundir á viku. Hann hækkar svo
bekk úr bekk og er 35 stúndir í
þremur síðustu bekkjum. Megin-
hluti þeirra er bundinn hinum
ýmsu námsgreinum. Ekki á að
skerða þessar stundir. Síðan koma
nokkrar stundir, mismunandi
margar eftir bekkjum, „til ráðstöf-
unar skóla“. Af þeim skal klípa
tvær stundir í hverri deild. Lág-
marks stundafjöldi á viku yrði því
í þremur síðustu bekkjum 33 á
viku og í stað 35 nú.
Allir sem kennt hafa unglingum
vita að námsgeta þverr er vissum
stundafjölda á dag er náð. Meðan
Jón Á. Gissurarson
kennt var sex daga í viku þótti
hámarksskammtur á dag sex
stundir, enda töldu kennarar síð-
ustu tíma skila minni árangri en
fyrr á degi. Þegar vinnuvika stytt-
ist í fimm daga hélst vikustunda-
fjöldi óbreyttur svo að vinnudagar
lengdust. Er nú svo komið að suma
„Hlutlaus rannsókn
kynni að leiða í ljós að
stytting þessara löngu
daga yrði námi ung-
linga til framdráttar en
þeim ekki fjötur um
fót:“
daga sitja grunnskólanemar átta
stundir á skólabekk. Hlutlaus
rannsókn kynni að leiða í ljós að
stytting þessara löngu daga yrði
námi unglinga til framdráttar en
þeim ekki fjötur um fót.
Þessi 180 millj. króna sparnaður
bitnar á launagreiðslum kennara,
stöðugildum fækkar og yfirvinna
þeirra gæti dregist saman. Því er
eðlilegt að kennurum bregði í brún.
Slík yrðu viðbrögð allra launastétta
við sömu aðstæður.
Frá sjónarhóli nemenda gæti
þetta þýtt spor í rétta átt, og lang-
ir vinnudagar styttust. Sú hlið
mála hefur horfið í skugga þess
moldviðris sem upp hefur verið
þyrlað.
Svanhildur Kaaber er ekki full-
trúi nemenda heldur kennara enda
þeirra þjónn. Þegar hagsmunir
þessara hópa skarast leggst hún á
sveif með kennurum. Hún getur
ekki fremur en aðrir þjónað tveim-
ur herrum og verið báðum trú.
Fræðsluyfirvöld segja þessa skerð-
ingu einungis skammtíma fyrir-
brigði. I stað þess að lengja skóla-
dag að nýju teldi ég ráðlegra í
þess stað að auka þann tímafjölda
sem skólar fá til fijálsra afnota til
styrktar nemendum á ýmsa vegu.
Hver og einn skóli ætti sjálfur að
ráða því til hvers þeim væri varið.
Heimamenn vita best hvar skórinn
kreppir að.
Menn ættu nú að slíðra sverð
sín og leita leiða. Málum grunn-
skóla verður ekki ráðið til farsælla
lykta á háværum fjöldafundum
heldur með rólegri yfirvegun.
Höfundur er fyrrverandi
skólasijóri Gagnfræðaskóla
Austurbæjar.
RJBfcJD
KENNSLA
Námskeið sem hefjast
á næstunni
Málun með vatnslitum
40 stunda kvöldnámskeið fyrir byrjendur og
lengra komna. Þú lærir litameðferð, lita-
fræði, myndbyggingu og meðferð vatnslita.
Leiðbeinandi: Elín Magnúsdóttir.
Litir og lýsing íheimahúsum
Þú lærir hvernig nota má liti og lýsingu til
að breyta umhverfinu og um áhrif þessara
þátta á sálarlíf og vellíðan. Farið yfir mismun-
andi tegundir lýsingar fyrir ólíkar aðstæður
og hvað fram hefur komið á undanförnum
árum.
Leiðbeinendur: Anna Pála Pálsdóttir
og Sigurður Jónsson.
Stafsetning
Áttu í erfiðleikum með stafsetninguna?
Þú lærir helstu stafsetningarreglur og þjálf-
ast í að skrifa rétt.
Leiðbeinandi: Helga Kristín Gunnarsdóttir.
Sölutækni
Tvö námskeið, annað fyrir afgreiðslufólk í
smásölu, hitt fyrir sölumenn, sem selja til
endurseljenda eða beint til neytenda. Fyrir-
lestrar, verklegar æfingar og umræður.
Stuðst við bandarískt kerfi sem hefur verið
aðlagað íslenskum aðstæðum.
Leiðbeinandi: Torfi Geirmundsson.
Bókfærsla
Þú lærir öll undirstöðuatriði bókfærslunnar,
daglegar færslur, uppgjör og frágang.
Leiðbeinandi: Örn Gylfason.
Að rata um peningafrumskóginn
Þú öðlast innsýn í fjármálaheiminn. Fjallað
m.a. um meðferð og ávöxtun sparifjár, verð-
bréfamarkaðinn, lánamál og fjárfestingar.
Fyrirspurnir og umræður.
Leiðbeinandi: Friðrik Halldórsson.
Notuð kerfismót óskast
Húsvirki hf. óskar eftir að kaupa notuð kerfis-
mót.
Upplýsingar gefa Gunnar í síma 76110, Hans
í síma 35832 og Stefán í síma 685853.
JC-BORG
6. félagsfundur JC-Borgar verður haldinn á
Hótel Sögu, Átthagasal, í kvöld, 18. febrúar,
kl. 20.30 stundvíslega.
Gestur fundarins verður borgarstjórinn í
Reykjavík, Markús Örn Antonsson.
Aðalfundur
Aðalfundur Tollvörugeymslunnar hf. verður
haldinn í fundarsal Hoiiday Inn, Sigtúni 38,
Reykjavík, kl. 17.00, þriðjudaginn 10. mars
1992.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Útgáfa jöfnunarhlutabréfa.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
TOLLVÖRU -
GEYMSLAN HF
FRÍOCYMSLA ■ VÖRUHÓTKL
HÉÐINSOOTU 1-3
105 REYKJAVlK
Félag
íslenskra
rafvirkja
Nánari upplýsingar um námskeiðin, stað-
setningu, tíma og verð á skrifstofu
Tómstundaskólans, Grensásvegi 16A,
sími 677222.
TÚMSTUNM
SKOUNN
Skólavöróustig 28
Sími 621488
Félag íslenskra rafvirkja heldur fund um
kjarasamningana fimmtudaginn 20. febrúar
kl. 18.00 í Félagsmiðstöð rafiðnaðarmanna
á Háaleitisbraut 68.
Dagskrá:
1. Staða kjarasamninganna.
2. Heimild trúnaðarráðs til boðunar
verkfalls.
3. Önnur mál.
Félagar, mætið vel og stundvíslega og takið
þátt í mótun stefnunnar.
Stjórn FÍR.
Fræðslufundur í Kársnessókn:
Úr heimi hamingjunnar
„Úr heimi hamingjunnar" er yfirskrift erindis
sem dr. Eyjólfur Kjalar Emilsson, heimspek-
ingur, flytur á fræðslufundi fræðslunefndar
Kársnessóknar í safnaðarheimilinu Borgum,
Kastalagerði 7, miðvikudaginn 19. febrúar
nk. kl. 20.30.
Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Fræðslunefnd Kársnessóknar.
□ EDDA 59922187 - 2 Atkv.
HELGAFELL 59922187 IVA/ 2
I.O.O.F.Ob. 1 =1732188'/2 = NK
I.O.O.F. Rb. 4 = 1412188 -
8V2.O.
□ FJÖLNIR 599202187=1 Frl.
□ SINDRI 59922187 - 1
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 S-‘ 11798 19533
Ferðir og félagsstarf
fyriralla
Þriðjudagur 18. feb. kl. 20.
Kvöidganga á fullu tungli í
Vífilsstaðahlíð
Létt ganga um skemmtilega
skógarstiga í Heiðmörk. Áning
við kertaljós í Maríuhellum. Verð
500,- kr., frítt f. börn m. fullorðn-
um. Brottför frá Umferðarmið-
stöðinni, austanmegin. (Stansað
m.a. á Kópavogshálsi).
Áttavitanámskeið
Uppselt er á námskeiðið 19., 20.
og 27. febrúar, sem auglýst hef-
ur verið að undanförnu. Það er
einnig kynnt í nýju fréttabréfi
F.i. sem kemur út í vikunni. Ver-
ið er að athuga með nýtt nám-
skeið.
Vetrarfagnaður
Ferðafélagsins 7. mars
Félagar og aðrir, mætið vel á
vetrarfagnaðinn laugardaginn 7.
mars. Hann verður haldinn í
Básum Ölfusi (fjós og hlaða inn-
réttað sem veitingastaður).
Rútuferð úr bænum kl. 18. Pant-
ið fljótlega. Það borgar sig að
gerast félagi í Ferðafélaginu.
Ferðafélag islands.
ÚTIVIST
Hallveigarstfg 1, sími 14606
Helgin 21 .-23. febrúar
Góuferð í Bása
Kynnist Þórsmörk að vetri til.
Gist í góðu húsi.
Fararstjóri: Björn Finnsson.
Tindfjöll undir fullu tungli:
Göngu- og skíðaferð. Gist ÍTind-
fjallaskála. Um 4 klst. gangur
upp i skálann. Fararstjóri: Þráinn
Þórisson. Brottför kl. 20 í báðar
feröirnar.
Uppl. og miðasala á skrifstofu
Útivistar.
ADKFUK
Matarfundur í kvöld kl. 19.00 í
Kristniboðssalnum, Háaleitis-
braut 58. Á eftir er dagskrá í
umsjá Kristínar Möller. Miðinn
gildir sem happdraettismiði.
Landæamtök
foreldra barna
meWeserfiöleika
Hugó Þórisson
heldur fyrirlestur á almennun
fundi á Hótel Loftleiöum fimmtu-
daginn 20. febrúar kl. 20, um
efnið: „I hverju greining sálfraeð-
inga á börnum með leserfiðleika
er fólgin og á hvern hátt er
hægt að nýta greininguna við
kennslu og aðstoð við börnin."
Félagar fjölmennið.
Áhugafólk velkomið.