Morgunblaðið - 18.02.1992, Side 31

Morgunblaðið - 18.02.1992, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992 31 Minning: Ásmundur Sigurðsson fyrrv. alþingismaður Kveðja til föðurbróður Hann Ásmundur föðurbróðir okkar er dáinn. Alltaf verður maður jafn undrandi þegar maðurinn með ljáinn lætur til skarar skríða, jafn- vel þó skugga hans hafi brugðið fyrir. En Ásmundur tók honum með sama æðruleysi og einkenndi allt hans líf. Hann var að verða níræður en því trúði varla nokkur maður því hann var alltaf eitthvað að sýsla, alveg fram á síðasta dag. Hann hafði lifandi áhug aá þjóðfélagsmál- um og umhverfi sínum, ekki síst skógrækt. Trjágróðurinn við bústað þeirra hjóna í Grímsnesinu ber glöggt vitni um þá alúð sem ein- kenndi öll hans verk. Það var ekki asinn á honum Ás- mundi, alltaf jafnlyndur, rólegur og hlýr. Með þessu jafnaðargeði komst hann ekki síður á leiðarenda en aðrir. Við minnumst hans úr Kefla- víkurgöngu: Hann er kominn fast að áttræðu, gengur ótrauður á jöfn- um hraða, heldur áfram þegar aðr- ir hvílast, veit að fætumir stirðna ef hann sest niður, afþakkar hæ- versklega öll boð um að setjast upp í bíl einhvem spotta. Árla næsta morgun kemur hann gangandi frá Barónsstígnum vestur í bæ meðan þeir yngri eru enn að jafna sig. í okkar huga er þetta lýsandi fyrir Ásmund. Ásmundur bjó yfir mikilli þekk- ingu og víðsýni. Nú þegar föður- bróðir er farinn fyrir fullt og allt hörmum við að hafa ekki nýtt okk- ur betur þennan viskubrunn. Við vottum Guðrúnu, eftirlifandi eiginkonu Ásmundar, okkar dýpstu samúð og þökkum liðnar samvem- stundir, bæði heima á Barónsstíg og í Kolgrafarkoti. Anna M. Hlöðversdóttir, Þorgerður Hlöðversdóttir, Páll Hlöðversson, Sigurður Hlöðversson. Orð eru lítils megnug á stundu sem þessari þegar góður nágranni er genginn á vit örlaga sinna. Ekki óraði mig fyrir því að við Ásmund- ur ættum ekki eftir að hittast í sumarhúsum okkar á komandi sumri eins og undanfarin ár. Báðir byggðum við fyrir um 25 árum sumarhús í Norðurkotslandi í Grímsnesi, lönd okkar láu mjög nærri hvort öðru og var umgengni því miki! á milli okkar Ásmundar og hans góðu konu Guðrúnar frænku minnar. Það var gaman að fylgjast með hvernig þau hlúðu að og ræktuðu land sitt með fallegum trjám og öðrum gróðri af öllum tegundum enda árangurinn slíkur að land þeirra er orðið eitt fallegasta sum- arbústaðaland i Norðurkotslandi. Við hjónin munum sakna þess í sumar að eiga ekki von á því að sjá Ásmund koma gangandi upp veginn til okkar eins og svo oft áður, stór og myndarlegur, svipur hans glaðlegur og geislandi af göfgi og góðvild. Handtak hans var þétt og höndin hlý. í öllu sínu yfirlætis- leysi og hógværð lét hann engan ósnortinn sem honum kynntust. Slíkum mönnum er allstaðar vel fagnað og alstaðar aufúsugestir. Nú að leiðarlokum finnst mér ljúft og skylt að þakka fýrir ein- læga vináttu, hugljúf kynni og tryggð við okkur hjónin. Við kveðjum mætan mann og munum minnast hans með hlýhug, þakklæti og virðingu. Elskulegri eiginkonu og öðrum aðstandendum vottum við einlæga hluttekningu. Blessuð sé minning Ásmundar. Elín og Magnús Bergsteinsson. Góður maður er genginn. Hann Ásmundur sem stóð við hlið Guð- rúnar frænku okkar og var hennar besti vinur og félagi. Það sem ein- kenndi hann var einstök ljúf- mennska og kurteisi og þessi virð- ing sem hann bar fyrir öllu lifandi. Okkar fyrstu minningar um Ás- mund eru frá því er við vorum litlar stelpur í Kolgrafarkoti. Fyrstu heimsóknirnar liðu við drullumall, bangsaleiki og ævintýrasögur Ás- mundar. Leist honum oft ekkert á lesefnið sem við fluttum með okkur í bústaðinn; Tarzan apabróður og fleiri spennusögur og kynnti þess vegna fýrir okkur heim Kiplings og HC Andersens. Árin liðu, við stækkuðum en Guðrún og Ásmundur breyttust ekkert. Heimsóknir í Kolgrafarkot urðu að árlegum viðburði og eru á meðal okkar uppáhaldsminninga frá unglinsárunum, þar voru oft líf- legar umræður um landsins gagn og nauðsynjar. Ásmundur var víð- lesinn og vel að sér á öllum sviðum og þar að auki rammpólitískur. Hinn sósíalíski boðskapur komst vel til skila hjá okkur frænkunum og því til sönnunar gengum við ásamt þeim og fleiri félögum friðar- gönguna 1983. Það er ekki þar með sagt að sumarbústaðaferðirnar hafi verið dulbúnir sellufundir heldur frekar að við höfum tekið okkur þau til fyrirmyndar og litið upp til þeirra. Occidente Sole Við skuium só! sömu báðir hinsta sinni við haf líta; - létt mun þá leið þeim, er ljósi móti vini studdur af veröld flýr (J. Hallgr. þýddi.) Elsku Guðrún, minningarnar lifa. Sólveig Einarsdóttir og Sigrún B. Jakobsdóttir. Sigurður K. Pálma- son — Kveðjuorð Fæddur 10. júní 1964 Dáinn 22. nóvember 1991 Það var laugardagsmorguninn 23. nóvember að bróðir minn færði mér þær sorgarfréttir, að systur- sonur okkar hefði drukknað kvöld- ið áður, ásamt fjórum skipsfélög- um sínum, er Eldhamar GK stran- daði við Grindavík. Einn skipveiji komst lífs af. Þvílíkt reiðarslag, mér fannst ég lostinn þungu höggi og að þokan yrði enn þéttari þenn- an nóvembermorgun. Á slíkum stundum vakna ýmsar spurningar og efasemdir um handleiðslu Guðs. Hver skyldi vera tilgangurinn með að hrífa burtu unga menn frá heimili og ástvinum? Við sem eftir stöndum skiljum það ekki og eig- um erfitt með að sætta okkur við það. Siggi Kári, eins og hann var kallaður af ættingjum og vinum, var fæddur 10. júní 1964 á Húsa- vík. Foreldrar hans voru Guðný Káradóttir frá Hóli á Tjörnesi og Pálmi Guðmundsson frá Ytriskál í Köldukinn. Siggi átti einn albróð- ur, Ragnar Leif, sem búsettur er í Reykjavík. Siggi flutti ungur með móður sinni að Knútsstöðum í Aðaldal, er hún giftist Jónasi Jónssyni. Með honum eignaðist hún þrjú börn. Jónas gekk honum í föðurstað og leit alltaf á hann sem eitt af sínum börnum. Hann átti ennfremur tvo hálfbræður samfeðra. Á Knúts- stöðum ólst hann upp, gekk í Hafralækjarskóla í Aðaldal og í Héraðsskólann að Laugum. Að skóla loknum lá leiðin að heiman til ýmissa starfa, en ungur fór hann að stunda sjó, og var það hans ævistarf. Oftast var hann á bátum frá Grindavík, en lík á bát- um frá Hrísey og Akureyri. Árið 1984 kynntis hann ágætri stúlku, Hörpu Guðmundsdóttur frá Grindavík, hófu þau sambúð 1985 og eignuðust tvo syni, Arnar Þór, fæddan 11. aprfl 1986, og Fannar Geir, fæddan 3. desember 1990. Siggi og Harpa áttu fallegt heimili á Selsvöllum 6 í Grindavík, og reyndist hann góður heimilis- faðir og ástríkur sonum sínum og konu. Þó heimili hans stæði suður í Grindavík leitaði hugur hans oft norður, og þar sannaðist að römm er sú taug sem rekka dregur föður- túna til. I öllum fríum og á hátíð- um var farið norður á vit frænda og vina. Nú þegar leiðir skilja um sinn er margs að minnast og margt að þakka. Fram í hugann koma minn- ingar um ljúfan og glaðan dreng sem vildi vita skil á hinum ýmsu hlutum, síðan lífglaðan og bjart- sýnan ungling sem naut lífsins í ríkum mæli. Þrátt fyrir að aldurinn færðist yfir hann breyttist þetta ekki, alltaf sama ljúfmennskan og létta viðmótið hvar sem fundum bar saman. Minningar um slíka menn er gott að eiga, þær hugga og styrkja á erfiðum stundum. Ég og fjöl- skylda mín sendum öllum sem um sárt eiga að binda innilegar sam- úðarkveðjur og biðjum Guð að styrkja þau öll, megi minningin um ljúfan og góðan dreng lýsa þeim gegnum sorgarmyrkrið. Ég veit að landtakan handan móðunnar miklu hefur verið góð fyrir frænda minn og vin. Hafi hann þökk fyrir allt og allt. Kristján Kárason. Sigríður Alexanders- dóttir - Minning Fædd 13. júní 1910 Dáin 10. febrúar 1992 Það er erfitt á stundum sem þess- ari þegar einhver svo kærkominn manni er látinn. Að takast á við staðreyndirnar og sætta sig við gang lífsins. Það er svo furðulegt til þess að hugsa að nú sé hún elsku amma farin frá okkur og að við eigum ekki aftur eftir að sjá hana eða njóta samvista við hana í bráð. Amma fæddist á Stóra-Hrauni, Eyrarbakka, 13. júní 1910. Amma giftist afa okkar Sveini Tómassyni málarameistara 25. desember, jóla- dag, árið 1931. Þau byggðu sér heimili á Bræðraborgarstíg 35, þar sem amma hefur búið alla tíð, þar til hún fluttist að Elli- og hjúkrunar- heimilinu Grund sín síðustu æviár, en afi lést 23. júní 1960. Amma eða amma Sigga eins og við kölluðum hana var besta amma amma sem hægt er að hugsa sér í hugum okkar. Hún var mjög heil- steyptur persónuleiki sem mátti ekkert aumt sjá og var það henni þvert um geð er illa var talað um náungann. Við systkinin eigum öll mjög góðar minningar frá samvist- um okkar við ömmu. Hún var alltaf tilbúin að ræða við okkur börnin, sýna okkur hlýju og vera okkur vinur í raun. Það var gott til þess að vita, að ef eitthvað bjátaði á var hún okkar stoð og stytta. Þegar maður lítur til baka til æskuáranna þá er amma alltaf stór hluti af þeirri minningu. Við urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að fá svo að segja að alast upp með ömmu, þar sem hún kom gjarnan til okkar um helgar og dvaldi hjá okkur þar til hún þurfti að mæta til næsta vinnu- dags. Amma vann seinni hluta ævi sinnar utan heimilisins. Hún vann hjá Sláturfélagi Suðurlands í pylsu- pökkun eða þangað til heilan leyfði ekki meira. Hún var mjög duglegur og samviskusamur starfskraftur og höfúm við aldrei heyrt annað en hun hafi verið vel liðin af sínum samstarfsfélögum. Það var ekki svo sjaldan þegar maður fór í bæinn að maður kæmi við í vinnunni hjá ömmu til þess að heilsa upp á hana eða væri henni samferða og færi í heimsókn til henanr á Bræðró eins og það var kallað. Það var aldrei svo komið þangað að ekki væri tek- ið á móti manni með einhverju góð- gæti, eða að maður skryppi fyrir hana út í búð að kaupa eitthvað, því það var alltaf viðkvæðið hjá henni „en ég á ekkert gott handa þér“ og einnig var þetta sagt þegar maður kom til hennar á elliheimilið. Það er ekki hægt að kveðja ömmu nema að minnast á það fáein- um orðum að nafna hennar Sigríður bjó hjá ömmu sinni árin 1977 til 1986, þar til amma fór á elliheimil- ið. Samband þeirra var mjög kært og máttu þær ekki af hvor annarri sjá og það var þeim mjög sárt að skiljast þegar amma flutti á elli- heimilið en Sirrý í sína íbúð. Hún kom samt til ömmu sinnar daglega, því hún vissi að amma saknaði hennar og það var gagnkvæmt. Hún hugsaði mjög vel um ömmu sína sem endranær, þó svo að leiðir þeirra hefðu skilið. Söknuður henn- ar er sár. En um leið og við kveðj- um elsku ömmu í dag viljum við þakka fyrir að hafa átt hana að. Við biðjum góðan guð að taka vel á móti elsku ömmu og við vitum að nú getur hún á ný hafið samvist- ir við afa eftir langan aðskilnað. Við þökkum elsku ömmu fyrir allt það sem hún veitti okkur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gunnhildur. Mig langar að minnast tengda- móður minnar nokkrum orðum. Sigríður fæddist á Stóra-Hrauni, Eyrarbakkahreppi, 13. júní 1910. Dóttir Helgu Jónasdóttur og Alex- anders Arnórssonar. Helga var við nám í Máleysingjaskóla sem var að Stóra-Hrauni en Alexander ráðs- maður þar. En vegna erfiðra að- stæðna gátu foreldrar Sigríðar ekki haft hana hjá sér, var hún því sett í fóstur til hjónanna Ingveldar Jóns- dóttur og Sæmundar Guðmunds- sonar er bjuggu að Foki, Eyrar- bakkahreppi, en síðar að Bræðra- borg, Stokkseyrarhreppi, þar sem Sigríður ólst upp hjá þeim og böm- um þeirra, Jóni, Guðríði og Þuríði, sem alltaf litu á hana sem systur sína. Helga og Alexander hófu síðar búskap að Ásakoti í Flóa. Þar eign- uðust þau tvö börn, Guðmund, nú búsettan í Reykjavík og Guðrúnu, búsetta á Stokkseyri. Eftir andlát Alexanders fluttist Helga móðir þeirra til Guðrúnar dóttur sinnar og Hallgríms tengdasonar síns. Bjó hún hjá þeim þar til hún lést í ágúst 1960. Mjög kært var með þeim systkinum þó ekki væru þau uppal- in saman. Einnig áttu þau systkin hálfsystur, Guðbjörgu Álexanders- dóttur, er lengst bjó að Ásgríms- stöðum á Fljótsdalshéraði. Sigríður fluttist til Reykjavíkur og giftist Sveini Tómassyni málara- meistara, bjuggu þau lengst á Bræðraborgarstíg 35. Sigríður missti mann sinn 1960. Sigríður og Sveinn eignuðust þrjú börn, Sæ- . mund Inga, Vilhelmínu Sofíu og Guðlaugu Helgu. Þau eru öll búsett í Reykjavík. Tengdafaðir Sigríðar var til heimilis hjá þeim hjónum í 17 ár. Sigríður sagði við mig að það hefði verið sér mikil ánægja að hafa hann á heimilinu, börnin dáðu afa sinn og þótti mikið til hans koma. Heimili þeirra Sigríðar og Sveins stóð ætíð opið öllum ætt- ingjum og vinum, enda voru þau gestrisin og góð heim að sækja. Eftir að Sveinn lést bjó Sigríður ein, utan smátíma sem hún bjó hjá okkur hjónum. Dótturdóttir og nafna, Sigríður, flutti til ömmu sinnar og bjó hjá henni síðustu árin sem hún hélt heimili og getum við seint fullþakkað henni hversu vel hún hugsaði um ömmu sína. Amma Sigga eins og hún var ávallt kölluð innan fjölskyldunnar, var ekki há- vaxin kona en þeim mun meiri var hennar hjartahlýja og góðvild ekki síst gagnvart þeim sem minna máttu sín. Börnum okkar Helgu hlaust sú ánægja að alast upp í fangi ömmu sinnar og nálægð henn- ar í uppvextinum. Gott var að leita til ömmu Siggu ef eitthvað fór öðru- vísi en til var ætlast. Tóta vinkona og Bubbi hafið þökk fyrir allan þann vinskap og kærleik sem þið hafið sýnt Sigríði og börnum hennar. Síðustu árin var Sigríður á hjúkr- unardeild Elliheimilisins Grund og viljum við færa starfsfólki deildar- innar alúðarþakkir fyrir góða umönnun hennar. Hafí Sigga mín þökk fyrir allt og allt. Grímur Friðbjörnsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.