Morgunblaðið - 18.02.1992, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992
35
NYJUNG
Ungfrú Albanía kjör-
in í kulda og trekki
Fyrir skömmu var í fyrsta sinn
kjörin ungfrú Albanía, en það
er ekki langt síðan slík uppákoma
hefði þótt gersamlega út í hött þar
um slóðir, enda landið einangrað,
slyppt og snautt og alþýða manna
þar fótum troðin af ógnarstjórn
kommúnista sem nú er fallin.
Meðal fyrstu vestrænu strauma
sem leika um landið er fegurðars-
amkeppnin. En það gekk ekki
átakalaust að koma henni á fót.
Allt um það, þá var 19 ára snót
valin ungfrú Albanía. Valbona
Selimllari heitir hún.
Að mörgu leyti brosir nú fram-
tíðin við Valbonu. Hún hreppti 600
dollara í sigurlaun, en það eru
þreföld árslaun venjulegs verka-
manns í landinu. Hún á einnig
smugur að fá fyrirsætustörf í út-
löndum, sem er stórmál í landi þar
sem atvinnutækifæri fyrirfinnast
varla og framtíðin er dökk. En
Valbona er einnig hrygg. Faðir
hennar lagðist gegn því að hún
keppti og það slettist upp á milli
þeirra vegna þessa. Valbona vonar
að það grói um heilt, en ekki er
útséð um það. Þá er hún atvinnu-
laus og kann því illa. Þó hún gæti
nú hugsanlega fengið vinnu er-
lendis vill hún síður yfirgefa fjöl-
skyldu sína. Þá óttast hún mjög,
að strákarnir í hverfinu álíti sig
nú ekki merkilegri pappír heldur
en ótínda gleðikonu.
Og það var lítill glans yfir
keppninni, alla vega hefði það
þótt á Vesturlöndum. Á meðan
æfingar stóðu yfir hjá stúlkunum
í sýningarhöllinni var fimbulkuldi
úti og til að spara kyndingarkostn-
að var húsið ókynt og því litlu
skárra ástand innan dyra og utan.
Það varð til þess að margar stúlkn-
anna fóru í kápur sínar er sund-
bolaatriðið var æft og neituðu að
fara úr! Þær voru ekki allar svo
fyrirhyggjusamar og sumar þeirra
naga sig væntanlega í handarbök-
in, því fimm stúlkur heltust úr
lestinni á síðustu stundu vegna
svæsinnar kvefpestar.
Valbona Selimllari,
ungfrú Albanía.
ENDALOK
Fræg íþróttasljarna
dregur sig í hlé
Ein skærasta íþróttastjarna Breta
seinni árin, spjótkastarinn Fa-
tima Whitbread, eða Fatima Frans-
brauð eins og hún var gjarnan nefnd
hér not'ður í höfum, hefur lagt spjót-
ið á hilluna. Hún er þó aðeins þrítug
og hafði lagt blóð svita og tár í að
ná sínu besta formi fyrir komandi
Ólympíuleika í Barcelona. En læknir
hennar sagði við hana: „Ef þú kepp-
ir eru miklar líkur á að þú skaðir
þig og búir við örkuml það sem eftir
er ævinnar." Fatimu þótti fráleitt að
keppa við svo búið og hún felidi tár
Fatima Whitbread
er hún tilkynnti formlega að hún
væri hætt íþróttaiðkun.„Ég virðist
sterk á yfirborðinu, en undir niðri
er ég tilfinninganæm og ég græt í
hljóði yfir að geta aldrei framar bor-
ið af í íþrótt minni,“ sagði Fatima.
Fatima átti lengi við meiðsl að
stríða í hægri öxl og fyrstu verkirnir
gerðu vart við sig á Evrópumótinu
í Stuttgart 1986. Hún sigraði þar í
spjótkasti og setti glæsilegt heims-
met, kastaði 77,44 metra. Meiðslin
smáversnuðu, en síðustu þrjú árin
hefur Fatima verið að byggja sig upp
og æft kerfisbundið í þeim tilgangi
að styrkja öxlina. En rétt fyrir jólin
kom reiðarslagið. Hún var þá í þann
mund að hefja lokaundirbúninginn
fyrir Ólympíuleikana í Barcelona og
var að reyna styrk axlarinnar. Hún
tók nokkur köst, en það skipti engum
togum að hún hrökk úr axlarlið og
skaddaði svo liðbönd og liðpoka, að
læknir kvað upp þann úrskurð eftir
stutta skoðun, að ef öxlin fengi ekki
algera hvíld frá allri íþróttaiðkun,
gæti Fatima þurft að búa við örkuml
alla sína daga.
„Eg sný mér nú að þjálfun, þetta
er það eina sem ég kann. Kannski
að ég komi mér upp einhveijum vísi
að einkalífi, eignist ef til vill mann
og börn. Kannski að ég eignist minn
eigin litla spjótkastara," sagði Fa-
tima Whitbread.
r
Námskeid í
stjórn áfengisneyslu
Víltu draga úr áfengisneyslu þinni, hætta drykkju tíma-
bundið og/eða takast á við neikvæðar afleiðingar
áfengisnotkunar?
Námskeiðið verður haldið í febrúar-mars.
Upplýsingar og skráning í símum 675583 og 611359
kl. 20-21 og síma 688160 kl. 15-17.
Auður R. Gunnarsdóttir, sálfræðingur,
Ævar Árnason, sálfræðingur. _
HÓTEL ÍSLAND
OPIÐ ALLA DAGA VIKUNNAR
Færum þér veisluna heim og bjóbum upp á
kalt borb, steikarhlaðborb, heilsurétti, heita og
kalda smárétti, pottrétti, pinnamat,
kaffisnittur, kökuhlabborb og fleira.
Sendum daglega út matarbakka til
fyrirtækja og verktaka.
Hafbu samband vib yfirmatreiöslumanninn
okkar og talabu vib hann um veisluna þína.
HÓTEL TjLMD
Sími 687111.
Yfirmatreiöslumaöur Magnús Níelsson.
★ Vilt þú margfalda lestrarhraða þinn?
★ Vilt þú auðvelda þér námið með auknum lestrarhraða og
bættri námstækni?
★ Vilt þú lesa meira af góðum bókum?
Svarir þú játandi, skaltu skrá þig strax á næsta hraðlestrar-
námskeið sem hefst fimmtudaginn 5. mars nk.
Skráning í síma 641091.
Ath.: Óbreytt verð frá síðasta vetri. VR og flest önnur félög
styrkja félaga sína til þátttöku á námskeiðunum.
HRAÐLESTRARSKOLINN
fEl —
HÓTEL HOLT Í HÁDEGINU
Þríréttaður hádegisverður alla daga.
Verð kr. 1.195.-
REÍAIS&
CHATEAUX.
Bergstaðastræti 37, sími 91-25700
OPNUNARTIMI
Föstudaga
kl. 13-19
Laugardaga
kl.10-16
Aðra daga
kl. 13-18
BILDSHOFÐA 10
Hm
BÍLDSHÖFÐI
STÓRÚTSÖLU
MARKAÐURINN
VESTURLANDSVEGUR
ÓTRÚLEGT
VERÐ
Með lágu verði, míklu vöruúrvali og
þátttöku fjöldafyrirtækja hefur
stór-útsölumarkarðurinn svo sannarlega
slegið í gegn og stendur undir nafni.
STRAUMUR
Y
Fjöldi fyrírtækja - gífurlegt vöruúrval
STEINAR, hljómplötur - geisladiskar - kasettur • KARNABÆR, tískufatnadur herra og
dömu • SONJA, tískufatnaður • PARTÝ, tískuvörur • BOMBEY, barnafatnaður •
BLÓMALIST, allskonar gjafavörur og pottablóm • KÁPUSALAN, kvenfatnaður •
STRIKIÐ, skór á alla fjölkylduna • KJALLARINN/KÓKÓ, alhliða tískufatnaður •
STÚDÍÓ, fatnaður • SAUMALIST, allskonar efni • ÁRBLIK, peysur
• Xog Z, barnafatnaður • ÉG OG ÞÚ, undirfatnaður og margt fleira