Morgunblaðið - 18.02.1992, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992
Sími 16500
Laugavegi 94
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
MIÐAVERÐ KR. 350 Á BILUN í BEINNI
ÚTSENDINGU OG TORTÍMANDANN
INGALO
Leikendur: Sólveig Arnarsdóttir, Haraldur
Hallgrímsson, Ingvar Sigurðsson, Þorlákur Kristins-
son, Eggert Þorleifsson, Björn Karlsson,
Magnús Ólafsson.
Leikstjórn og handrit: Ásdís Thoroddsen.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11. - Miðaverð kr. 700.
BILUNÍBEINNI
ÚTSENDINGU
★ ★ ★ Pressan
* Bíólín.m
★ ★ ★ ‘/z HK DV
★ ★ ★ ★ S.V. Mbl.
Sýnd kl. 6.40 og 9.
Bönnuði. 14ára.
Framlag íslands til
Óskarsverðlauna.
Sýnd í B-sal kl. 5.
Síldar- og fiskihlaðborð í Óðinsvéum
Boðið er upp á síldar- og fiskihlaðborð í veitingahúsinu
Óðinsvéum þessa dagana. Auk 18 mismunandi síldar-
rétta er boðið upp á heita og kalda fiskirétti sem eru
breytilegir frá degi til dags. Boðið er upp á síldar- og
fiskihlaðborðið alla daga nema sunnudaga út febrúarmán-
uð.
Myndlistarsýning
hjá Sævari Karli
ANNA Líndal opnaði
5myndlistarsýningu í Gall-
eríi Sævars Karls, Banka-
stræti 9, hinn 14. febrúar
1992.
Anna fæddist 17. nóvem-
ber 1957 og útskrifaðist úr
Myndlista- og handíðaskóla
íslands 1986. Þá hélt hún til
London og stundaði nám við
The Slade School of Fine
Arts, University College
1987-89. Hún var skiptinemi
við Hochshule der Kúnste
Berlin 1988. Anna hefur tek-
ið þátt í flölda samsýninga
og hélt síðustu einkasýningu
sína í Nýlistasafninu 1990.
. Sýningin ber yfirskriftina
■ Kennslustund í stjömufræði
og stendur til 13. mars. Opið
er á sama tíma og verslunin.
Anna Líndal við eitt verka
sinna.
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
MIÐAVERÐ KR. 300 Á ALLAR MYNDIR NEMA:
„LÍKAMSHLUTAR"
SPENNU-TRYLLIRINIM
LÍKAMSHLUTAR
Þegar Bob fékk
ógræddan nýjan
handlegg...
Sýnd kl. 5.10, 9.10 og
11.10.
Bönnuð innan 12 ára.
Sýnd kl. 9.10 og
11.10.
Bönnuð i. 12 ára.
Sýnd 5.10 og 7.10,
Fáar sýningar eftir.
TVOFALTLIF
VERÓIMIKU
AI. MHL.
Það er stórkostlegt hvað læknavísindin geta.
En hvað gerist þegar hönd af morðóðum manni er grædd á
ósköp venjulegan mann og fer síðan að ráðskast með hann?
DOUBLE LIFE
df veronika
ATH.: SUM ATRIÐI í MYNDINNI ERU EKKI FYRIR VIÐKVÆMT FOLK
Leikstjóri: Erik Red. Aðalhlutverk: Jeff Fahey, Brad Dourif.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 7.10.
Fáar sýningar eftir.
Anna Guðný Guðmundsdóttir, Martial Nardeau og
Guðrún S. Birgisdóttir.
Tónleikar á Akranesi
Tónlistarfélag Akraness og Tónlistarfelag Kefla-
víkur halda tónleika með
Nardeau og Guðrúnu S.
Guðnýju Guðmundsdóttur
Á efnisskrá þeirra em
verk eftir Teleman, Ku-
hlau, Migot, Doppler, Atla
H. Sveinsson og syrpa af
vinsælunt lögum.
Fyrri tónleikarnir verða
í safnaðarheimilinu Vina-
flautuleikurunum Martial
Birgisdóttur ásamt Önnu
píanóleikara.
minni á Akranesi miðviku-
daginn 19. febrúar kl.
20.30. Seinni tónleikarnir
verða sunnudaginn 23. fe-
brúar kl. 17 í Ytri-Njarð-
víkurkirkju.
■ HÁDEGISRABB verður
í Háskóla íslands á vegum
Rannsóknarstofu í kvenna-
fræðuin miðvikudaginn 19.
febrúar. Þá mun Kristín
Björnsdóttir lektor í hjúkr-
unarfræði segja frá rann-
sókn sinni á hjúkrunarstétt-
inni frá sjónarhorni kvenna-
fræða. Fundurinn verður í
Odda, stofu 202, kl. 12-13.
Allt áhugafólk um kvenn-
rannsóknir velkomið.
■ HALDNIR verða tón-
leikar á 3. hæð í Hinu hús-
inu, Brautarholti 20,
þriðjudaginn 18. febrúar.
Risaeðlan mun stíga á stokk
og eru þetta fyrstu tónleikar
sveitarinnar um nokkurt
skeið. Tónleikarnir hefjast
kl. 22.00 en húsið opnar kl.
21.00.
■ ROKKTÓNLEIKAR
verða í Félagsheimilinu
Hvammstanga á vegum
Tónlistarfélagsins mið-
vikudagskvöldið 19. febrúar.
Gildran sækir Húnvetninga
heim og mun m.a. kynna
tónlist af væntanlegri hljóm-
plötu þeirra. Hljómleikarnir
hefjast kl. 21.00.
------»■-»■-♦---
Leiðrétting
RANGLEGA var farið með
nafn þess er dró niður ís-
lenska fánann þegar Askja
síðasta skip Skipaútgerðar
ríkisins var aflient nýjum
eigendum.
Það var Hafsteinn Haf-
steinsson, skipstjóri Oskjunn-
ar, sem dró fánann niður. Er
beðist velvirðingar á þessum
mistökum.
Bílbruni á Þórshöfn
Þórshöfn.
ÞAÐ var ófögur sjón sem blasti við bíleiganda á Þórs-
höfn aðfaranótt mánudagsins 17. febrúar sl. Konan vakn-
aði urn þrjúieytið um nóttina við mikla reyk- og hitalykt
og fór fram til að athuga málið. Inni fann hún ekkert
athugavert, en sér strax að úti er eitthvað að gerast.
Það er þá Saabinn þeirra hjóna sem stendur í ljósum
logum í innkeyrslunni, fast upp við bílskúrshurðina.
Hún hringir strax á aðstoð
og var bíllinn dreginn sem
skjótast frá húsinu því frem-
ur hvasst var og gat því
húsinu verið hætta búin.
Slökkviliðið slökkti eldinn
á skammri stundu og hafði
kviknað í mælaborðinu út frá
rafkerfinu, héldu menn.
Bíllinn var af tegundinni
Saab 900 árgerð 1982. Ekki
er fullkannað hvort hjónin
munu fá tjónið bætt en bíll-
inn sem er gjörónýtur var
ekki kaskótryggður.
- L.S.
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Bíllinn sem valt ofan í Rauðalæk.
Holtahreppur:
Valt ofan í Rauðalæk
Hellu.
ÞAÐ óhapp varð upp úr
hádegi á laugardag að
Subaru-bifreið sem ekið
var vestur Suðurlandsveg
valt í hálku og hafnaði á
hvolfi í Rauðalæknum.
Fjórir farþegar voru í bif-
reiðinni og sluppu allir
ómeiddir.
Slysið varð með þeim
hætti að þegar ökumaður
bifreiðarinnar nálgaðist
brúna yfir Rauðalæk skipti
engum togum að hann missti
vald á bifreiðinni þegar hann
lenti í hálku og krapi. Bif-
reiðin snerist á veginum og
fór yfir öfugan vegarhelming
og féll þaðan 3-4 metra og
hafnaði sem fyrr segir á
toppnum í læknum. 4 farþeg-
ar voru í bifreiðinni og þykir
það mesta mildi að þeir slös-
uðust ekki en þeir voru allir
í beltum.
í kjölfar þessa slyss varð
þriggja bíla árekstur á
brúnni þegar ökumaður
stöðvaði bifreið sína að því
er virðist til að skoða bílinn
í læknum. Tveir bílar komu
aðvífandi og stöðvuðu einnig
en sá fjórði sem kom síðastur
lenti aftan á þeim þriðja sem
skall aftan á öðrum en sá
fremsti slapp og ók í burtu
og virtist ekki hafa orðið var
við það sem var að gerast
fyrir aftan hann.
- A.H.