Morgunblaðið - 18.02.1992, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992
Fundur um GATT í Suðursveit:
Samstaða um fyrir-
vara stj óruvalda
fyálfafellsstad, Suðursveit.
BUNAÐARSAMBAND Austur-Skaftafellssýslu boðaði til almenns
fundar um GATT-samninginn mánudagskvöidið 3. febrúar 1 félags-
heimilinu Hrollaugsstöðum í Suðursveit. Frummælendur voru
Helga Guðrún Jónsdóttir frá Upplýsingaþjónustu landbúnaðarins
og Ketill A. Hannesson frá Búnaðarfélagi íslands. Alþingismenn-
irnir Egill Jónsson, Gunnlaugur Stefánsson, Hjörleifur Guttorms-
sen og Jón Kristjánsson mættu á fundinn.
með sérákvæðum innan samn-
ings.“
Fundargestir voru um 100.
- Einar
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Nú sér fyrir endann á framkvæmdum við sjúkraálmu Dvalarheimilis-
ins Lundar á Hellu en verkið verður boðið út á næstu dögum. Nýja
álman er t.v. á myndinni.
Dvalarheimilið Lundur:
Formaður Búnaðarsambands-
ins, Öm Bergsson, setti samkom-
una og fundarstjóri var Fjöinir
Torfason. Helga Guðrún Jónsdótt-
ir tók fyrst til máls og útskýrði
GATT-samninga almennt, gerðar-
dóm og samningalotur en nú
stendur hin áttunda yfir sú er
hófst 1986 og hin fyrsta er tekur
til búvara auk annarra mikilvægra
mála.
90% af heimsversluninni fer nú
fram innan GATT. Útskýrði hún
drög að GATT-samkomulagi frá
21. des. 1991 er kennd eru við
Dpnkel og hvað í þeim felst. Þá
greindi hún frá fyrirvara ríkis-
stjómar íslands 10. jan. 1992 á
þau samningsdrög.
Ketill A. Hannesson tók næstur
til máls og hugleiddi hugsanleg
áhrif samkomulags GATT-þjóð-
anna á íslenskan landbúnað ef
samið yrði samkvæmt tilboði Dun-
kels.
Erfitt væri að samræma núver-
andi búvörusamning því tilboði og
ljóst að samningsdrög af því tagi
væm óaðgengileg fyrir íslenskan
landbúnað.
Alþingismenn kjördæmisins
tóku til máls og lýstu fullri sam-
stöðu um fyrirvara þann er stjóm-
völd hafa sett fram.
Heimamenn tóku og til máls,
fýrirspumir vom bornar fram og
svöruðu frammælendur eftir bestu
getu. Ræðumenn voru yfirleitt
sammála um að góð orasta hefði
unnist í þessu máli sem fylgja
bæri eftir.
I lok fundarins var samþykkt
tillaga þar sem lýst var eindregn-
um stuðningi við framkomna
ályktun bændasamtakanna, og al-
þingismenn Austurlands hvattir til
að vinna að með öllum tiltækum
ráðum í áframhaldandi viðræðum
innan GATT að bændum sé
tryggður samningur sem þeir geta
búið við. Að öðram kosti verði
sérstaða íslendinga viðurkennd
Neskaupstaður:
Kaupfélagið Fram 80 ára
Neskaupstað.
KAUPFÉLAGIÐ Fram varð 80
ára 9. febrúar sl. Kaupfélagið
var stofnað 9. febrúar 1912 og
voru stofnfélagar á milli 70 og
100.
Félagið tók við af Kaupfélagi
Norðíjarðar sem stofnað var 1902.
Fyrsta sölubúðin var opnuð 1925,
en fram að þeim tíma hafði starf-
semin verið rekin með pöntunarfé-
lagssniði.
Kaupfélagið Fram rekur nú 5
verslanir, mjólkurstöð, brauðgerð,
skipaafgreiðslu og olíusölu. Velta
félagsins á síðasta ári var um 320
milljónir og stöðugildi 52.
Fyrsti kaupfélagsstjóri var
Helgi Pálsson en núverandi kaup-
félagsstjóri er Friðgeir Guðjóns-
son.
- Ágúst.
Framkvæmdir við loka-
frágang boðnar út
Hellu.
RÍKISSJÓÐUR hefur á fjárlög-
um þessa árs veitt 9 milljónum
króna til framkvæmda við loka-
frágang á Dvalarheimilinu
Lundi á Hellu. Verkið verður
boðið út á næstu dögum og gert
er ráð fyrir að ljúka megi við
bygginguna á fyrri hluta næsta
árs.
Fjögur ár eru síðan fram-
kvæmdir stöðvuðust við nýju
sjúkraálmuna við dvalarheimilið
og hefur ekkert verið unnið í henni
síðan. Staðið hefur á fjármagni frá
ríkinu sem greiðir 85% kostnaðar
en sveitarfélögin greiða á móti
15%. Það era Rangárvallahreppur
og 4 hreppar vestan Eystri-Rang-
ár sem standa að Hellulæknishér-
aði og eiga Lund. Nú er rými fyr-
ir 26 vistmenn en mikil þörf hefur
verið á að koma upp sjúkraálmu
við heimilið. í nýju álmunni verða
12 hjúkrunarrúm, setustofa, mat-
salur og eldhús.
Guðmundur Ingi Gunnlaugsson
sveitarstjóri á Hellu segir fleiri
framkvæmdir vera á döfinni, m.a.
hafa verið boðnar út framkvæmd-
ið við 2. hluta 1. áfanga viðbygg-
ingar við Grunnskólann á Hellu.
Ráðgert sé að gera bygginguna
tilbúna undir tréverk fyrir árslok
og verða útboðin opnuð 3. mars
nk. Viðbyggingin kemur m.a. til
með að hýsa kennslustofur fyrir
handmennt og heimilisfræði,
tölvustofu, samversal nemenda,
kennarastofu, skrifstofu og bóka-
safn.
Þá er að sögn Guðmundar hafin
bygging tveggja kaupleiguíbúða á
vegum Rangárvallahrepps í Gunn-
arsholti en þörf er fyrir nýtt hús-
næði á þeim slóðum, þar sem
margt fólk starfar á staðnum. í
Gunnarsholti er m.a. Landgræðsla
ríkisins, stóðhestastöð, fóður- og
fræframleiðsla og Vistheimilið í
Gunnarsholti.
- A.H.
Morgunblaðið/Árni Helgaon.
Frá hófinu, er endurbótaamningurinn var undirritaður.
Stykkishólmur:
Samið um endurbætur
á gamla sjúkrahúsinu
Stykkishólmi.
ALLSHERJAR viðgerð hefur
verið ákveðin á gamla sjúkra-
húsinu í Stykkishólmi, sem
Á fundinum kom fram mikill
áhugi manna á lagfæringu vegarins
þannig að hann verði fær venjuleg-
um fólksbílum. Styttir hann leiðina
frá Djúpavogi til Egilsstaða úr 146
km í 85 km. Telja menn að ekki
þurfi að veija stóram fjárhæðum í
veginn þannig að hann verði fær
a.m.k. yfir sumartímann.
Fundurinn ályktaði m.a.: „Mjög
er orðið aðkallandi að veginum yfir
Öxi verði haldið við og hann lag-
byggt var 1935 og er því senn
57 ára. Byggt hefur verið upp
báðum megin við gamla húsið
færður frá Reykjavík til Egilsstaða
um 60 km og tengir Djúpavog og
Höfn í Hornafirði mun betur við
þjónustu og flugsamgöngur á Fljót-
dalshéraði.
Er þeim tilmælum beint til hand-
hafa ráðstöfunaríjár vegamála á
Austurlandi að þessum málalið
verði veitt nauðsynlegt og nægjan-
legt fjármagn á næstu dögum.“
- GBB.
og því ekki vanþörf á að gera
þessu góða og gamla húsi eitt-
hvað til góða.
Samkmulag hefur tekist milli
heilbrigðisráðuneytis, fjármála-
ráðuneytis, sveitarfélaga á Snæ-
fellsnesi og systranna, sem rekið
hafa sjúkrahúsið frá fyrstu tíð
(St.Fransiskussystra) um að fram
fari ganger viðgerð á húsinu.
Kostnaður við þessar framkvæmd-
ir er áætlaður 93,3 milljónir króna.
Þar af verður hlutur sveitarfélag-
anna 19,1 milljón, ríkisins 44,5
milljónir og St. Fransiskusarregl-
unnar 39,7 milljónir króna.
Við undirskrift verksamnings og
fjármögnunarsamnings voru stjórn
sjúkrahússins, Sturla Böðvarsson
alþingismaður, Baldur Ólafsson og
Hörður Kristjánsson frá heilbrigð-
isráðuneyti og byggingadeild, en
samninginn undirrituðu fyrir hönd
sveitarfélaganna Ólafur H. Sverr-
isson bæjarstjóri í Stykkishólmi og
systir Petrea Leewens príorinna
fyrir hönd sjúkrahússins. Áður
höfðu heilbrigðisráðherra og fjár-
málaráðherra undirritað amning-
inn.
Árni.
Djúpivognr:
Samg’öngubætur
ræddar á fundi
Djúpavogi.
ÚR BOTNI Berufjarðar yfir í Skriðdal liggur 20 km vegarslóði sem
heitir Öxi. Leið þessi styttir vegalengdina frá Reykjavík til Egils-
staða um 60 km. Áhugamenn um umbætur í samgöngumálum héldu
á dögunum fund á Djúpavogi og mættu um 30 manns.