Morgunblaðið - 19.02.1992, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1992
Strandir:
Aætlun-
arbifreið
fauk útaf
Laugarhóli, Bjarnarflrði.
ÁÆTLUNARBIFREIÐ frá Guð-
mundi Jónassyni hf. á leið frá
Reykjavík til Hólmavíkur fauk út
af veginum á Ennishálsi í Stranda-
sýslu síðdegis í gær. I bifreiðinni
voru fimm börn og sjö fullorðnir
en engin slys urðu á fólki eða
skemmdir á bíl.
„Þetta var allt í lagi. Við lentum
að hluta undir næstu sætum en eng-
inn meiddist. Bílstjórinn bjargaði
þessu eins snyrtilega og hægt var,“
sagði Erna Arngrímsdóttir, farþegi
úr bílnum, í samtali við fréttaritara.
Bóndi á bæ við Ennishálsinn fór
á dráttarvél og náði bílnum upp á
veginn. Síðan var sendur vörubíll frá
Hólmavík til að aðstoða hann við að
komast til Hólmavíkur.
Mjög hvasst var á Ströndum í gær
og rigning. Glerhálka var á vegum
og engir auðir kantar. Vatnslaust
varð á Hólmavík í óveðrinu síðdegis
í gær. S.H.Þ.
Morgunblaðið/Uísli Bogason
Gunnlaugur Friðbjarnarson heldur á bút af lifrinni en lifrin úr ein-
um hákarli vó alls 150 kg.
Fornar hefðir á tækniöld
Djúpavogi.
Á DJÚPAVOGI er brædd hákarlalifur hjá fyrirtækinu Kraftlýsi hf.
Lifrin var fengin frá Norðfirði en áhöfnin á togaranum Bjarti hirti hana.
Á 18. og 19. öld voru hákarlaveiðar stundaðar víða um land. Var hákarl-
alýsi ein helsta útflutningsafurð íslendinga á þeim tíma. - GBB.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 19. FEBRUAR
YFIRLIT: Við strönd Grænlands vestur af Reykjanesi er 565 mb lægð
sem þokast norðaustur en skammt suðvestur af írlandi er 1040 mb
hæð.
SPÁ: Fram eftir morgni verftur sunnan hvassviftri eða stormur og rign-
ing austast á landinu, en þar lóttir síðan til og kólnar heldur með suð-
vestan kalda. Vestanlands verður suðvestan strekkingur með allhvöss-
um éljum. Veður fer smam saman kólnandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG: Suðvestanátt með éljum sunnan og vestan-
lands, en þurrviðri norðaustanlands. Frost á bilinu 2-8 stig.
HORFUR Á FÖSTUDAG:Breytileg átt, snjókoma eða él víða um land.
Hiti um eða undir frostmarki.
Svarsími Vefturstofu íslands — Vefturfregnir: 990600.
o &
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
V ^ V
Skúrir Slydduéi Él
r r r * r *
/ / * /
r r r r * r
Rigning Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrirnar vindstyrk,
heii fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
itig-.
FÆRÐ A VEGUM:
Greiðfært er um vegi í nágrenni Reykjavíkur, um Mosfellsheiði og
austur um Hellisheiöi og Þrengsli og með suðurströndinni til Aust-
fjarða og þar er ágæt færft nema um Breiðadalsheiði. Dálítii háika er
á Suðausturiandi. Agæt færð er vestur um land um Snæfellsnes, Dali
og til Reykhóla. Kleitaheiði er aðeins fær jeppum og stórurn bílum en
fært er öllum bilum milli Patreksfjarðar og Bíldudals. Fært er um Holta-
vörðuheiöi, til Hólmavíkur og þaðan til ísafjarðar en Breiðdals- og
Botnsheiði eru ófærar. Þá er fært um Norðurland til Siglufjarðar, Olafs-
fjarðar, Akureyrar og Húsavíkur og þaðan með ströndinni til Vopnafjarð-
ar. Möðrudalsöræfi eru fær velbúnum jeppum. Um vestanvert landið
ertalsvert hvassviðri.
Vegagerðin
Bergen 2 snjókoma
Helsinki +1 skýjað
Kaupmannahöln 1 snjókoma
Narssarssuaq +4 snjókoma
Nuuk +21 skafrenningur
Ósió +5 léttskýjað
Stokkhólmur 0 skýjað
Þórshöfn S haglél
Algarve 15 skúr
Amsterdam 2 skýjað
Barcelona 7 mistur
Berlín vantar
Chicago 2 rigning
Feneyjar 6 heiðskirt
Frankfurt +1 snjóél
Glasgow vantar
Hamborg 0 skýjað
London vantar
Los Angeles 11 léttskýjað
Lúxemborg +1 skýjað
Madríd 9 alskýjað
Malaga 14 alskýjað
Mallorca 11 skýjað
Montreal +3 þoka
New Yorlt vantar
Oriando vantar
Parfs 1 skýjað
Madeira 17 skýjað
Róm 10 léttskýjað
Vín +1 skýjað
Washington 4 súld
Winnipeg +6 snjókoma
/ DAG kl. 12.
_______________ HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri
Reykjavfk
hitl veður
1 skýjað
3 rigning
Hehnlld: Veöurstofa Islands
(Byggt á veöurspá kl. 16.16 í gær)
Seinni eiginkona
Fokkers flugvéla-
smiðs var íslensk i
SEINNI eiginkona Anthonys Fokker, stofnanda Fokker-verksmiðjí
anna, var íslensk og hét Fjóla Austmann. Er hún giftist Fokker
eftir fyrri heimsstyrjöldina hafði hún verið búsett í Bandaríkjunum
um nokkurt skeið og tekið sér nafnið Violet Eastman. Sem kunn-
ugt er hafa Flugleiðir ákveðið að kaupa fjórar flugvélar frá Fok-
ker-verksmiðjunum í innanlandsflug félagsins og kom sú fyrsta
þeirra til landsins nú um helgina.
Að sögn Gunnars Þorsteinsson-
ar sem er ritstjóri fyrir Flugmála-
stjórn og kannað hefur þetta mál
mun Fjóla hafa verið ’dóttir Snjólfs
Austmann frá bænum Krossi á
Berufjarðarströnd og konu hans
Sigríðar Jónsdóttur sem ættuð var
úr Skagafirði. Fyrri kona Fokkers
hét Elizabeth von Morgens og var
dóttir Karls Emst von Morgens
eins af hershöfðingjum Þjóðveija
í fyrri heimsstyijöldinni en hann
barðist bæði á austur- og vestur-
vígstöðvunum. Þau Elizabeth
skildu þar sem Fokker þótti bæði
kvensamur og villtur í líferni. Sam-
band þeirra Fjólu eða Violet varð
ekki langlíft þar sem hún framdi
sjálfsmorð árið 1929 með því að
stökkva út um glugga á hóteli í
New York.
Fokker þótti ætíð nokkuð villtur
í háttum, var meðal annars rekinn
úr skóla en naut hjálpar fjölskyldu
Maður í hrakn-
ingum á Hálfdáni
TUTTUGU og sex ára gamall maður frá Bíldudal lenti í hrakningum
á Hálfdáni, sem er fjallvegurinn milli Tálknafjarðar og Bíldudals
síðastliðinn sunnudag. Maðurinn sat í bifreið sinni sem var föst í
skafli í tæpar sextán klukkustundir. Hann var matarlaus en ágæt-
lega klæddur. Maðurinn komst í sæluhús eftir miðnætti á sunnudag
en bifreiðin festist kl. 11 um morguninn.
Maðurinn var á leið til Bíldudals
frá Tálknafirði. Vegna misskilnings
var aldrei óttast um manninn, þar
sem talið var að hann hafi aldrei
lagt á fjallið. Fljótlega eftir að bif-
reiðin festist kl. 11.30 um morgun-
inn skall á hríðarbylur. Klukkan 17
var bifreiðin komin undir snjó bíl-
stjóramegin.
Þegar veðri slotaði kl. 22.30 um
kvöldið var maðurinn farinn að ör-
vænta og gekk niður heiðina áleiðis
til Bíldudals. Eftir nokkra kílómetra
varð hann að snúa við vegna óveð-
urs sem skall á. Hann komst aftur
í bifreiðina eftir mikinn gang upp
heiðina í mjög slæmu skyggni og
þyrstur. Hann bræddi snjó í flösku
inni í bifreiðinni en bensínið var á
þrotum og lítið rafmagn eftir á bif-
reiðinni. Um kl. 2 var komið gott
veður og bjart af tungli. Gerði
maðurinn þá aðra tilraun og gekk
af stað í áttina að sæluhúsi sem
er töluvert frá bifreiðinni. Þangað
komst hann heill á húfi og tókst
að láta vita af sér. Félagi úr Björg-
unarsveitinni á Tálknafirði sótti
manninn skömmu síðar eða um kl.
3, tæplega 16 klukkustundum frá
því maðurinn festi bifreið sína á
fjallinu. Manninn sakaði ekki.
----------»--»-«---
Sölumarkaður
við Vesturgötu
BORGARRÁÐ hefur heimilað, að
samið verði við fyrirtækið Yfir-
sýn hf. um leigu á hluta bíla-
stæða við Vesturgötu 7 undir
sölumarkað.
Um er að ræða efri hæð bíla-
stæðahússins og er fyrirhugað að
markaðurinn verði opinn um helgar.
Sykurmolarnir:
80.000 eintök hafa
selst af smáskífunni Hit
BREIÐSKÍFA Sykurmolanna,
Stick Around for Joy, og kom út
í Bretlandi fyrir rúmri viku, lenti
í 16. sæti breska breiðskifulistans,
en áður hafði henni verið spáð
6. sætinu. Að sögn kunnugra má
rekja þetta til þess að hljómsveit-
in hafði vakið mikla eftirvænt-
ingu innan tiltölulega þröngs
hóps, og saian því verið mikil
fyrstu dagana, en síðan dregið
úr henni. Um 40-50.000 eintök
hafa selst af plötunni í Bretlandi.
Sykurmolamir láta vel af 16.
sætinu og segja það ótrúlegan
árangur í raun. Breiðskífan kom út
í Bandaríkjunum á mánudag, en
ekki hafa borist spurnir af gengi
hennar þar. Nú hafa selst um 80.000
eintök af smáskífu hljómsveitarinnar
Hit, sem kom út á gamlársdag, en
sveitarmeðlimir segjast ekki eiga
von á að hún seljist mikið meira r.ú
þegar platan sé komin út.
Sykurmolamir undirbúa nú tón-
leikaför sína um heiminn til að kynna
plötuna, en fyrstu tónleikarnir verða
í Bristol Academy í Lundúnum 7.
mars næstkomandi. Áður hyggst
hljómsveitin leika á einum eða tvenn-
um tónleikum hér á landi og er stefnt
að því að geti orðið um mánaðamót-
in.
-----» ------
Áburðarverksmiðjan:
Áburðarverð
hækki um 2%
STJÓRN Áburðarverksmiðju rík-
isins hefur lagt til við landbúnað-
arráðherra að áburðaiwerð hækki
um 2% í vor, en í fjárlögum var
gert ráð fyrir 5% hækkun áburð-
arverðs. Að sögn Runólfs Þórðar-
sonar verksmiðjusljóra Áburðar-
verksmiðjunnar var sala áburðar
í fyrra meiri en reiknað hafði
verið með, og sagði hann útlit
fyrir að hagnaður hafi orðið af
rekstri verksmiðjunnar á árinu.
Áburðarverksmiðjan seldi alls 57
þúsund tonn af áburði í fyrra, en
að sögn Runólfs er áætlað að salan
í ár verði um 52 þúsund tonn.