Morgunblaðið - 19.02.1992, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1992
13
Strengj akvartettar
Tónlist
Jón Asgeirsson
Kammermúsikklúbburinn hélt
tónleika í Bústaðakirkju sl.
sunnudag og þar kom fram ensk-
ur kvartett, Mistry-kvartettinn,
ásamt Hafliða Hallgrímssyni,
sem fluttu verk eftir Britten,
Schubert og Hafliða Hallgríms-
son.
Fyrsta verkið á efnisskránni
var „þijú divertimenti“, eftir
Britten, sögð samin 1936. Þessir
þættir eru úr ófullgerðri kvart-
ettsvítu, sem Britten samdi 1933
og nefndi Go play, boy, play.
Hann mun hafa átt í nokkrum
erfiðleikum með að semja þetta
verk og að lokum endurunnið það
1936, án þess að þó að ijölga
þáttunum. Þetta er skemmtilega
unnið verk og nýstárlegt, miðað
við þann tíma sem það er samið
á, enda fékk hann slæma um-
sögn fyrir það í dagblöðunum.
I leik Mistry-kvartettsins kom
strax fram það einkenni, að leika
á fínlegu nótunum, þannig að
mjög vel samstilltur flutningur
var leikandi léttur og tær. Þetta
merkir ekki að kvartettfélögum
hafi verið fyrirmunað að leika
sterkt, heldur var þeim það ekki
laust í hendi, eins oft vill verða
og markaði því betur við, þar sem
styrkleikaskil voru í tveimur fyrri
verkunum, þ.e.a.s. verkunum
eftir Britten og Hafliða.
í undirþýðum fjögurra þátta
kvartett, eftir Hafliða Hallgríms-
son, naut .sín einkar vel fínlegur
flutningur félaganna í Mistry-
kvartettinum. Verkið er sorgar-
söngur, vegna fráfalls vinar og
Hafliði Hallgrímsson
þá hrópa menn ekki, því hæg-
ferðug þögnin og djúpstæð
kyrrðin eru tónmál sorgarinnar
og við þau skil liggur fínt ofið
tónmál þessa innilega tónverks.
Síðasta verkið á efnisskránni
var C-dúr sellókvintettinn eftir
Schubert. Þar hefðu félagarnir
mátt leggja meiri áherslu á safa-
ríkari tón og þó leikur þeirra
væri glæsilega útfærður, var
hann allt of haminn, svo að
„söngurinn“ í þessu mikla lista-
verki náði oft ekki að hljóma eða
blómstra, eins og einnig mætti
orða það. Þrátt fyrir að róman-
tíkin hjá Schubert væri svolítið
bæld, var leikur fimmmenning-
anna í heild mjög góður. Yfirveg-
aður og músikfagur flutningur
félaganna féll, hvað stíl snertir,
sérstaklega vel að verkum Britt-
ens og Hafliða og þar gat að
heyra frábæran leik og túlkun.
Krystyna Cortes
Evrópusamband píanókenn-
ara (EPTA) stóð fyrir tónleikum
í íslensku óperunni sl. mánudag
og var það Krystyna Cortes pían-
óleikari sem lék verk eftir Ha-
ydn, Beethoven, Brahms og
Bartok.
Tónleikarnir hófust á sónötu
í D-dúr (Hob. XVI/37), léttu og
leikandi verki, sem Krystyna lék
á margan hátt vel en helst til
órólega fyrsta kaflann. Næst á
efnisskránni var f-moll sónatan,
op. 57, eftir Beethoven, sú fræga
„appassionata", tæknilega erfitt
verk og mikill tónskáldskapur.
Fyrsti kaflinn var vel leikinn og
margt í tilbrigðakaflanum var
einnig vel gert en í þeim síðasta
mátti greina þreytu, sem ekki
er furða, því þar reynir svo sann-
arlega á, bæði á tækni og músik-
alskan kraft. Hvað svo sem varð-
ar ýmislegt smálegt hélt, Kryst-
yna vel utan um alla þætti þessa
margslungna verks.
Píanóverkin, op. 118, eftir
Brahms, eru fallegar tónsmíðar,
sem Krystyna lék mjög vel. Þessi
tónlist hljómaði eins og logn og
á eftir storminum í „appassion-
ata“ sónötunni og hefði líklega
komið betur út höfð á undan
Beethoven.
Krystyna Cortes er góður
píanóleikari og mótar viðfangs-
efni sín sterkum dráttum og
þessi skýrlega framsetning kom
t.d. mjög vel fram í „Improvisati-
ons“ op. 20, yfír ungversk þjóð-
lög, eftir Bela Bartok. Bartok
Krystyna Cortes
var góður píanóleikari og í píanó-
tónlist sinni og ekki síður í um-
ræddu verki, spannar hann allt
rýmið frá einföldum fimmfingra-
æfingum upp í flóknar samsetn-
ingar hljóðfalls og hljómbygg-
ingar. Hann er óhræddur við að
leika með einfalt og fingraæfmg-
arlegt tónferli, sem getur síðan
umturnast í andstæðu sína og
orðið flókið. Að þessu leyti er
Bartok einlægur og alltaf án til
gerðar.
Krystyna Cortes lék „þjóð-
lagauppspuna" Bartoks mjög vel
og þar naut sín sérstakleg sú
skemmtilega skerpa, sem oft ein-
kennir kraftmikinn og lifandi
flutning hennar.
itoeraðeins lítið sýnishorn (takmarkað
Hægindastólar, comet-leður, 4 litir
Sófasett, Dahli, 3-1-1, margir litir
Sófasett, Amigo, Deysi, Toledo, 3-1-1, margir litir
Hjónarúm, hvítt, 160 og 180x200, m/náttb., án dýnu
Barna- og unglingarúm, 90x200, m/hillu + 2 skúffum, ándýnu
Sófasett, svart leður, 3-1-1, Speyer, Kati
Fataskápur, hvítur, Curacao, 97x231
Fataskápur, hvítur, Curacao, 145x231
Skrifborðstólarf. börn og ungl., Emely
Eldhússtólar, cs 211, beyki
Klappstólar, beyki, cs 110
Klappstólar, Erik, Cindy
Borðstofuborð, 93x130 og 93x160
Skenkur, 4ra hurða
Borðstofustólar, EH
Innskotsborð
Hjónarúm m.náttb., án dýna, hvítlakkaður askur
Hægindastólar m. skammeli, leður
Lítil sófasett, 2-1-1
Stök náttborð á hjólum, hvít
Furukojur, ólakkaðar, án dýna
Sjónvarpsskápur, mahóní
Skrifborð, beyki, 140x65
Skrifborð, Ijóseik, 160x75
Hornsófar, tau, 2-H-2
Stakir 3ja sæta sófar, gæsadúnspúðar
Klappstólar
Svefnsófar
Svefnbekkur m. rúmfataskúffu og hillum, án dýnu
Hillusamstæða, svört
magn)
Áður Nú
55.000 27.900
176.000 88.000
165.000 88.000
69.000 34.500
34.000 17.500
230.000 150.000
24.500 13.500
35.000 19.500
9.500 4.900
9.200 4.900
3.500 1.500
3.200 1.500
69.000 39.000
117.000 55.000
19.700 12.200
24.400 14.400
69.000 39.800
58.000 34.500
54.600 36.600
6.400 3.200
19.700 12.800
19.200 13.000
35.700 24.000
72.400 45.800
117.000 68.500
68.600 42.800
2.600 1.500
40.200 27.500
22.000 14.900
94.500 59.000
TM - HÚSGÖGN
SIÐUMÚLA 30
SIMI 686822
Opið mánudaga-föstudaga 9-18
laugardaga kl. 19-17
sunnudaga kl. 14-17