Morgunblaðið - 19.02.1992, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 19.02.1992, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUIl 19. FEBRÚAR 1992 17 Ungt fólk þarf að finna að þörf er fyrir það - segir Ásta Kr. Ragnarsdóttir forstöðu- maður Námsráðgjafar Háskóla íslands ÁSTA Kr. Ragnarsdóttir, forstöðumaður Námsráðgjafar Háskóla íslands, segir það ábyrgðarhluta að ræða um niðurskurð í menntakerfinu og breytta menntastefnu án þess að leggja aukna áherslu á náms- og starfsráðgjöf. Hún segir mikinn fjölda nem- enda leita til Námsráðgjafar Háskólans vegna þess mikla óörygg- is sem ríki meðal þeirra og að slík ráðgjöf komi í veg fyrir rangt námsval nemenda og sé því sparnaður fyrir þjóðfélagið. Ásta segir að ekki vanti að nemendur sjálfir hafi mikinn áhuga á að leita sér ráðgjafar. „Námsráðgjöf Háskólans veitti á síðasta ári um 3400 einstakling- sviðtöl og nú er aðsóknin það mikil að biðtimi eftir viðtali er um hálfur mánuður," segir Ásta. Hún segir að íjöldi nemenda leiti nú til Námsráðgjafar vegna hins mikla óöryggis sem nú sé ríkjandi í náms- og starfsmögu- leikum. Jafnframt segir hún að námsráðgjöf sé hvað brýnust á samdráttartímum og því þurfi að auka slíka þjónustu fremur en að draga úr henni. „Ungt fólk þarf að finna að þörf er fyrir það í þjóðfélaginu. En með yfirlýsing- um. um niðurskurð, lokun náms- leiða og efasemdum um að stúd- entsprófið, sem það hefur lokið, standi undir merkjum, sé hætta á að þetta unga fólk finni fýrir tilgangsleysi. Enginn vilji láta fjalla um sig sem afgangsstærð og of lítið sé talað um hið gagn- stæða og að unga fólkið sé orkubú þjóðarinnar sem beðið er eftir. „Það þarf að fara mjög varlega í sakirnar í umræðu um breytta menntastefnu og ný skilyrði til náms því að slík umfjöllun ógnar þessu fólki. Með ráðgjöf gefst nemendum kostur á aðstoð við að vega og meta stöðu sína og eygja nýja möguleika þrátt fyrir erfiðari skilyrði,“ segir Ásta. Hún segir námsráðgjöf því vera leið til sparnaðar iyrir þjóð- félagið þar sem hún dragi úr lík- um á misheppnuðu námsvali sem kosti þjóðarbúið ómælt fé. Hún segir ennfremur að nám- sval á röngum forsendum hafi einnig fjárhagslegt tjón í för með sér fyrir einstaklinginn auk þess sem það geti leitt til skertrar sjálfsmyndar og valdið andlegri vanlíðan. „Með markvissri leiðsögn minnka líkurnar á að tími og fjár- munir fari til spillis. Þegar litið er til útreiknings á því hvað hver einstakur nemandi kostar Há- skólann á hveiju ári og árlegrar grunnframfærslu einstaklingsins, sem samanlögð nema vel yfir eina milljón króna er ljóst hversu gífurlegur sparnaður felst í því að veita nemendanum haldgóða Ásta Kr. Ragnarsdóttir ráðgjöf,“ segir hún. Asta segir breyttar aðstæður í þjóðfélaginu krefjast nýrra lausna fyrir ungt fólk. „Okkur ber því skylda að sjá fyrir fag- legri náms- og starfsráðgjöf sam- hliða breyttum forsendum til náms og starfs. Það er svo sann- arlega í þjóðarþágu,“ segir Ásta að lokum. Krefjast afsagnar sendi- herrans LANDSSAMBAND lögreglu- manna hefur í bréfi til utanríkis- ráðherra krafist þess að Róbert Trausti Árnason sendiherra, verði þegar í stað látinn víkja úr starfi sínu við varnarmála- skrifstofu utanríkisráðuneytisins og jafnframt krefst sambandið þess að ráðuneytið biðjist form- lega afsökunar á ummælum sendiherrans í útvarpi Bylgjunn- ar nýverið. Ástæðui' þessa eru ummæli sendiherrans um lögreglumenn í Leifstöð og athugasemdir Lands- sambands lögreglumanna við niður- fellingu á sérsveit lögregluþjóna í Leifsstöð, sem stunduðu vopnaleit á farþegum i stöðinni. Telja lögregl- umenn að sendiherrann hafi skop- ast að þeim með því m.a. að óska eftir við Bylgjuna að leikið yrði lag- ið „Money, money“ fyrir Landssam- band lögreglumanna og Lögreglu- félag Suðurnesja. LIONSKLÚBBURINN EIR KVIKMYNDASÝNING í HÁSKÓLABÍÓI LAUGARDAGINN 22. FEBRÚAR KL. 17 STYRKTARLINUR Júllabúð, Bergvík hf., Skipavarahlutir hf., Veitingaskálinn Vestmannaeyjum, T. Pétursson & Co, Ólafur Þorsteinsson & Co, Heimilistæki hf., Völusteinn, Andrés fataverslun, Verkfræðistofan Vista, AVS Hagtæki, Glitnir hf„ Lögfræðistofa Suðurnesja, Rafvörur hf„ Miðnes hf., Farvis-Áfangar, Osta- og smjörsalan, Verslunin Brynja, Ráðgarður hf., Kjötsalurinn hf. Harðviðarval hf., Véla & skipaþjónustan Framtak hf„ Ó.M. búðin. JÖFUR M-GAR ÞÚ KA Nýbýlavegi 2, sími Nýi Volkswagen Golfinn sem kynntur verður á sýningunni hjá Heklu um helgina. Bílasýning: Hekla hf. kynnir nýja Golfinn um helgina Kjörinn bíll ársins í Evrópu árið 1992 HEKLA hf. efnir til mikillar bílasýningar fyrir almenning um næstu helgi þar sem frumsýndar verða helstu gerðir af nýja Volkswagen Golf sem valinn hefur verið bíll ársins 1992 í Evrópu. Sýningin stend- ur frá kl. 10-17 á laugardag og frá kl. 13-17 á sunnudag. Golfinn hefur verið söluhæsti nýjum vélum. fólksbíllinn í Evrópu um árabil en þetta er í fyrsta sinn sem hann hlýt- ur þessa eftirsóknarverðustu viður- kenningu evrópsks bílaiðnaðar. Nýi bíllinn er þriðja kynslóðin af Golf en birtist nú mikið breyttur í allri hönnun innra sem ytra og með Á sýningunni um helgina verða kynntar ýmsar útgáfur af nýja Golfinum sem kosta muni allt frá röskri milljón upp í 2,2 milljónir. Eins og áður segir verður sýningin um helgina öllum opin í sýningarsöl- um Heklu að Laugavegi 174. Lars Hamberg sjötugur LARS Hamberg blaðamaður er sjötugur í dag, 19. febrúar. Ham- berg er þekktur um Norðurlönd fyrir skrif sín um menningarmál og hefur ritað greinar í fjölmörg dagblöð og tímarit í Finnlandi, Svíþjóð, Noregi og á Islandi. Birt- ust margar greinar eftir hann í Morgunblaðinu og Lesbók Morg- unblaðsins á árunum 1974-1982. Lars Hamberg fæddist í Helsinki árið 1922. Hann lauk fil. mag. prófi árið 1950 og starfaði sem menning- ar- og leiklistargagnrýnandi á Hufvudstadsbladet frá árinu 1946. Hamberg hefur á ferli sínum starf- að við fjölmarga fjölmiðla á Norður- löndum og einnig gegnt trúnaðar- störfum innan ýmissa samtaka. Hann var m.a. varaforseti finnsku PEN-samtakanna um langt skeið, formaður samtaka finnskra þýð- enda og hefur setið í stjórnum al- þjóðasamtaka þýðenda og alþjóða- samtaka leiklistargagmýnenda. Norðurlöndin og Norðurlanda- samvinna hafa ætíð gegnt lykilhlut- verki í starfi Hambergs og hefur hann verið meðal helstu frammá- manna í norrænni menningarum- Lars Hamberg ræðu um áratuga skeið. Á síðustu árum hefur Lars Hamberg skipu- lagt margar norrænnar menningar- ráðstefnur í Finnlandi á vegum Pohjola-Finland og hefur fjöldi ís- lendinga tekið þátt í þeim. SÝND VERÐUR GAMANMYNDIN „STEPPING OUT“ MEÐ AÐALHLUTVERK FARA: LIZA MINNELLI, SHELLEY WINTERS OG JULIE WALTERS. Marteinsdóttir syngja nokkur lög við undirleik Guðna Þ. Guðmundssonar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.