Morgunblaðið - 19.02.1992, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1992
19
FRIÐARGÆSLUSVEITIR SÞ I JUGÓSLAVÍU
Boutros Boutros-Ghali framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna
hefur lagt til að allt að 14 þúsund manna friðargæslulið á vegum
SÞ verði tafarlaust sent til Júgóslavíu.
ÁÆTLANIR UM FRIÐARGÆSLULIÐ*
► HEILDARFJÖLDI
14.000 hermenn
og lögreglumenn
Fjórar herþotur
-^SIovenia
10.400 manns -12 herfylki
Argentína, Brasilfa, Danmörk, Frakk-
land, Kanada, Kenýa, Nepal, Nígería,
Pakistan, Rússland, Tékkóslóvakía, og
Belgía leggja til herfylki. í því belgíska
verða einnig 40 hermenn frá Lúxemborg.
AÐSTOÐARSVEITIR
Afvopnun
Sambandsherinn, sem er
undir stjóm Serba, á að
hörfa frá Króatíu og aðrar
sveitir að afhenda vopn sín.
% Makedónía ■
h - r
2.840 manns L-\
Finnland (framkvæmdir), Bretland (skipulagning), Svíþjóð (höfuðstöðvar),
Kanada (verkfræði) og Holland (fjarskipti)
HERNAÐARLEGIR EFTIRLITSMENN
100 liðsforingjar
Allt að fimm frá hverju eftirtalinna rikja: Argentina, Ástralía, Bangladesh,
Belgía, Brasilia, Danmörk, Egyptaland, Finnland, Frakkland, Ghana,
Holland, írland, Kanada, Kenýa, Kólumbía, Malta, Nepal, Nígería, Noregur,
Nýja Sjáland, Pakistan, Portúgal, Pólland, Rússland, Singapore, Sviss,
Svíþjóð, Tékkóslóvakía, Venesúela
LOGREGLUMENN
530 manns
Allt að 30 frá hverju eftirtalinna ríkja: Argentína. Ástralía, Bangladesh,
Belgía, Brasilía, Danmörk, Egyptaland, Finnland, Frakkland, Ghana,
Holland, írland, Kanada, Kenýa, Kólumbía, Lúxemborg, Malta, Nepal,
Nígería, Noregur, Nýja Sjáland, Pakistan, Portúgal, Pólland, Rússland,
Singapúr, Sviss, Svíþjóð, Tékkóslóvakía, Venesúela
Þau lönd sem talin eru upp hafa verið beðin um að senda sveitir en ekki er enn vitaö hvort öll hafi veitt samþykki sitt
Talið að vopnaMéið
haldi til komu
fríðarffæslusveita
Belgrad. Reuter. ^
JOAO Guerra Salgueiro, sem er í forystu fyrir eftirlitsmönnum
Evrópubandalagsins í Júgóslavíu, átti í gær viðræður við forystu-
menn Serbíu í Belgrad og yfirmenn júgóslavneska sambandshers-
ins. Er hann ræddi við blaðamenn að fundinum loknum sagði hann
ekkert hamla því lengur að hægt yrði að senda friðargæslulið á
vegum Sameinuðu þjóðanna til landsins.
Salgueiro sagðist einnig vera gæsiulið verði send til Júgóslavíu
þeirrar skoðunar að vopnahléið,
sem gildi tók þann 3. janúar sl.,
myndi halda þangað til friðargæslu-
sveitimar kæmu. „Það er hagsmun-
amál allra þeirra sem aðild eiga að
málinu," sagði hann.
Boutros Boutros-Ghali, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
hefur lagt til við öryggisráðið að
allt að fjórtán þúsund manna friðar-
án tafar. Enn hefur ekki verið geng-
ið frá því hvenær sveitirnar verða
sendar til landsins.
Sex þúsund manns hafa fallið í
borgarastyijöldinni í Júgóslavíu
sem hófst í kjölfar þess að lýðveld-
ið Króatía lýsti yfir sjálfstæði í júní
í fyrra. Alls hafa nú 45 ríki viður-
kennt sjálfstæði þess.
Þýskir stríðsglæpamenn í Suður-Ameríku:
Efasemdir um upplýsinga-
gildi skjala Argentmumanna
Josef Mengele eða „Helmut Gregor“ í Argentínu.
FYRIR rúmum tveimur vikum
lýsti Carlos Menem, forseti Arg-
entínu, því yfir að hann hygðist
svipta hulunni af leyniskjölum
Argentínumanna um þýska
stríðsglæpamenn sem sest
höfðu að í landinu eftir siðari
heimsstyrjöldina. „Argentína
gerir upp skuld sína við heims-
byggðina," sagði forsetinn við
þetta tækifæri. Óteljandi sögu-
sagnir, margar þeirra mjög
ævintýralegar, hafa verið í
gangi um þýska nasista í Suður-
Ameríku, sem tókst að forða sér
frá Þýskalandi í ringulreiðinni
í styijaldarlok, og vakti því
þessi ákvörðun Argentínufor-
seta mikla athygli. Það er hins
vegar óvist hvort að þau gögn
sem nú verða gerð opinber
muni svo nokkru nemi draga
fram í dagsljósið nýjar upplýs-
ingar um afdrif þýskra stríðs-
glæpamanna sem hurfu spor-
laust árið 1945.
Meðal þeirra sem talið er að
hafi komist yfir Alpana til Ítalíu
og þaðan áleiðis til Suður-Ameríku
á fölsuðum vegabréfum eru menn
á borð við Adolf Eichmann, Klaus
Barbie, Josef Mengele, Walter
Rauff og Josef Schwammberger,
en allir gegndu þeir lykilhlutverki
í helför nasista á hendur gyðingum.
Til margra hefur þegar náðst og
þeir verið látnir svara til saka fyrir
glæpi sína.
Meðal þess sem kemur fram í
argentínsku skjölunum er að Juan
Peron, sem síðar varð leiðtogi Arg-
entínu, gegndi lykilhlutverki í að
aðstoða þýsku flóttamennina. Á
hann að hafa útvegað 2.000 óút-
fyllt argentínsk vegabréf sem Þjóð-
vetjamir gátu notað til að byggja
upp nýjan „persónuleika“. Þessu
hefur raunar núverandi innanríkis-
ráðherra Argentínu, José Luis
Manzano, mótmælt og heldur því
fram að allir þeir sem komu til
landsins hafi þegar haft vegabréf
frá fiauða krossinum undir hönd-
um. Því trúa hins vegar fáir. Peron
var mikið í mun að fá aðgang að
þýskum tækni- og hernaðarsér-
fræðingum og hafa nýverið verið
færðar sönnur á að aðalræðismað-
ur Argentínu í Kaupmannahöfn lét
hundruð Þjóðveija fá fölsuð vega-
bréf svo að þeir gætu haldið áleið-
is til Buenos Aires.
Alls hafa Argentínumenn gert
opinberar sjö möppur úr hirslum
alríkislögreglunnar með gögnum
um þýska stríðsglæpamenn og
fjalla tvær þeirra einvörðungu um
Josef Mengele sem gerði óhugnan-
legar „tilraunir" á þúsundum gyð-
inga í Auschwitz-útrýmingarbúð-
unum. í fyrri Mengele-möppunni
eiga að vera alls 175 blaðsíður en
blaðsíðurnar 105-124 svo og blað-
síðu 143 vantar. Voru þær fjar-
lægðar i nóvember 1971. Engin
gögn vantar í síðari möppuna.
I skjöiunum um Mengele kemur
fram að hann kom til Argentínu í
inaí árið 1949 með gufuskipi. Hann
var með vegabréf frá Rauða
krossinum sem sagði hann vera
ítala. í nóvember 1956 krafðist
hann hins vegar að fá útgefið
fæðingarvottorð sem sýndi þýskan
uppruna hans og varð þýska sendi-
ráðið í Buenos Aires við þeirri
beiðni. Ferðaðist hann margsinnis
til Þýskalands með nýju skjölunum
undir nafninu Helmut Gregor.
Það var ekki fyrr en árið 1959
að þýsk lögregluyfirvöld fóru að
lýsa eftir stríðsglæpamönnum en
beiðni þeirra um að fá Mengele
framseldan var vísað á bug vegna
„tæknilegra galla" á umsókninni.
Þegar forseti Argentínu, Arturo
Frondizi, kom í opinbera heimsókn
til Þýskalands árið 1960 kröfðust
Þjóðveijar þess enn á ný að Meng-
ele yrði framseldur en Argentínu-
menn kröfðust þá sannana íyrir
því að hann hefði í raun framið þá
glæpi sem hann var sakaður um.
Mengele virðist ekki hafa óttast
um öryggi sitt í Argentínu fyrstu
árin og það var ekki fyrr en ísra-
elska leyniþjónustan rændi Adolf
Eichmann á götu í Buenos Aires
að hann fluttist tímabundið til
Paraguay.
Því hefur verið haldið fram að
Mengele hafi drukknað í sjónum
fyrir utan Sao Paulo þann 7. febrú-
ar árið 1979 þó margir hafi orðið
til að draga það í efa jafnvel eftir
að lík hans var grafið upp og rann-
sakað árið 1985. Nú hefur hins
vegar sonur hans, Rolf, sem starfar
sem lögmaður í Freiburg, sagst
vera reiðubúinn að láta taka úr sér
blóðprufu og bera saman litninga
hans og beinagrindar Mengele. Hið
rétta í málinu ætti því að verða
leitt í ljós innan skamms.
Upplýsingar um marga aðra
stríðsglæpamenn er að finna í arg-
entínsku skjölunum en sérfræðing-
ar telja óvíst að þau muni leiða
neitt nýtt í ljós. Nasistaveiðarinn
Simon Wiesenthal telur líklegt að
í þeim séu upplýsingar um einstök
atriði sem geti verið mikilvæg við
réttarhöld en segist þó vera viss
um að argentínskir embættismenn
hafi fjarlægt allar verulega bita-
stæðar upplýsingar. Alfred Streim,
sem er yfirmaður þeirrar stofnunar
í Þýskalandi sem vinnur að því að
upplýsa stríðsglæpi nasista vonast
einnig til að í skjölunum komi fram
hveijir hafi aðstoðað við flóttann
og hveijir hafi skotið skjólshúsi
yfir nasistana í Suður-Ameríku.
Byggt á Der Spiegel.
TILBOÐ
Á ÞREK- OG ÆFINGATÆKJUM
Æfingastöð KETTLER CLASSIC.
Frábær æfingastöð með fjölda
æfinga á mjög góðu verði.
Verð án lóða:
Verð aðeins kr.........35.700,-
Staðgreitt kr..........33.600,-
Þrekstigi frá KETTLER, V-
Þýskalandi, meðtölvumæli.
Verð aðeins kr....23.715,-
Staðgreítt kr.....22.320,-
Ótrúlegt verð á æfinga-
bekkjum með fóta- og flugu-
æfingum og 50 kg. lóða-
setti.
Verð aðeins kr.....17.790,-
Staðgreitt kr......16.900,-
Einnig frábær tilboð á öðrum þrek- og æfingatækjum, svo sem riml-
um, fjölnotatækjum, handlóðum, sippuböndum og æfingastöðvum.
VARAHLUTIR 0G VIÐGERÐIR. VANDIÐ VALIÐ 0G VERSLIÐ í MARKINU.
Fjölnotatæki - 16 æfingar
frá KETTLER V-Þýskalandi.
Róður, bekkpressa, arm-
réttur, armbeygjur, hné-
beygja, o.fl.
Verð aðeins frá kr.. 17.250,
Staðgreitt kr.16.380,
GREIÐSLUKORT OG
GREIÐSLUSAMIMINGAR.
ÁRMÚLA 40 - SÍMI 35320
Frábær þrekhjól frá
KETTLER V-Þýskalandi.
Verð aðeins frá kr.. 13.515,-
Staðgreitt kr.....12.720,-
Kerslunin
AAA
HEILSUDAGAR