Morgunblaðið - 19.02.1992, Síða 24

Morgunblaðið - 19.02.1992, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRUAR 1992 Blómlegt mannlíf í Reykjadal: Húsmæðurnar fjöl- menna í söngtíma Laugum, Reykjadal. FÉLAGSSTARF hefur verið mjög gott hér í dalnum í vetur að vanda. Ungmennafélagið Efling er fyrirferðarmikið í félagsstarf- inu, en á vegum þess eru m.a. brids-æfingar á þriðjudagskvöldum og í janúar hófust dansæfingar þar sem menn rifja upp gömlu dansana, m.a. fyrir þorrablótin. Kvenfélag Reykdæla hefur m.a. haldið konfekt og keramiknám- skeið, basar o.fl. og hefur þátttak- an verið góð. Hjálparsveit skáta er einnig starfandi í sveitinni, og heldur hún fundi reglulega og var einnig með skyndihjálparnámskeið í janúar. Tónlistarskóli er starfandi í Reykjadal með 63 nemendum. Þar er kennt á hin ýmsu hljóðfæri, s.s. píanó, gítar, bassa, fiðlu, harmó- nikku, flautur, o.fl., auk þess sem söngkennsla hófst í vetur og hafa húsmæður í dalnum fjölmennt í sönginn. Leikskólakrakkamir mæta einnig einu sinni í viku í tónlistarskólann og hefur sú ný- breytni gengið mjög vel að sögn Björns Þórarinssonar skólastjóra. Þá er starfandi kór innan tónlist- arskólans, auk þess sem dans- hljómsveitin Frænka hreppstjórans er starfandi í •sveitinni. Tóniistar- skólinn heldur tónleika á haustin og eru þeir ávallt fjölsóttir. Kirkju- skólinn hefur einnig verið starf- ræktur í vetur í Einarsstaðarkirkju undir stjórn séra Kristjáns Vals sóknarprests. íþróttir- og heilsurækt eru einn- ig mikið stundaðar, enda íþróttaað- Mývatnssveit: Tvö lömb fundust í Búr- fellshrauni Björk, Mývatnssveit. SÍÐASTLIÐINN sunnudag fann maður sem var á ferð austur í Búrfellshrauni tvö lömb sem ekki komu af fjalli síðastliðið haust. Ekki tókst honum að handsama lömbin, enda voru þau eldstygg. Á mánudag fóru tveir menn með hunda að leita lambanna. Fljótlega fundust þau og gekk vel að koma þeim inn í bíl sem þeir voru með og flytja til byggða. Eigendur lambanna eru Árni Halldórsson í Garði og Eyþór Péturs- son í Baldursheimi. Lömbin líta mjög vel út og er ekki að sjá að þau hafi liðið neinn skort í vetur. Kristján staðan hér mjög góð. Ungmenna- félagið er með æfingar í fijálsum íþróttum og fótbolta og leikskóla- krakkarnir fá líka sinn tíma. Á mánudagskvöldum er „old-boys“ æfing í fótbolta og konur eru í lík- amsrækt tvisvar sinnum í viku. Innan ungmennafélaganna er starfandi leiklistardeild og hefur hún áformað að hefja leikæfingar nú í febrúar. Hið árlega þorrablót var haldið á Breiðumýri 8. febrúar. Eins og sjá má er í nógu að snúast hér í dalnum og mikið að gera hjá okkur sveitarvörgum. - U.V. Morgunblaðið/Rúnar Þór Nuddstofa Ingu stækkar Nuddstofa Ingu, sem Ingibjörg Ragnarsdóttir, löggiltur sjúkra- nuddari, rekur í KA-heimilinu við Dalsbraut, hefur verið stækkuð mikið og endurbætt, en starfsemin var flutt úr bílskúr við Espilund í KA-heimilið um áramót. „Eg ákvað að stækka við mig þegar aðrir eru að draga saman seglin," sagði Ingibjörg. Á nuddstofunni starfar nú gesta- nuddari frá Júgóslavíu, Iztok Race, og verður hann á stofunni næstu vikur, en auk þess hefur Ingibjörg einnig tekið nema í greininni þannig að um þessar mundir eru starfsmennimir þrír. Á stofunni er nuddpottur, gufu- bað og ljósalampar svo eitthvað sé nefnt og segir Inga að heil- mikið sé að gera. Folda hf., Akureyri, auglýsir breytingar á símanúmerum frá og með mánudeginum 17. febrúar 1992: Folda hf., Gleráreyrum, Akureyri. Bréfasími: (96) 2 72 95. Beinir símar: - Heildsala . 2 14 91 — 2 14 96 - Skrifstofa . 2 19 01 — 2 19 02 — 2 19 00 - Fatadeild: - Smávörulager (Hekluhús).. . 2 18 05 - Prjónasalur . 2 18 08 - Vefdeild . 2 18 06 Verksmiðjuverslun . 1 11 67 Geymið þessa auglýsingu. Leikklúbburinn Saga frumsýnir „Tíu litla negrastráka" á fimmtudagskvöld. MorKunblaðlð/Runar Leikklúbburinn Saga: Negrastrákamir frumsýndir LEIKKLÚBBURINN Saga frumsýnir leikritið „Tíu litlir negra- strákar" eftir Agötu Cristie í Dynheimum annað kvöld, fimmtu- dagskvöldið 20. febrúar kl. 20.30. Leikstjóri er Felix Bergsson, en alls taka 18 manns þátt i sýningunni. Leikklúbburinn Saga var stofn- aður árið 1976 af Sögu Jónsdótt- ur og Þóri Steingrímssyni. Leik- kiúbþurinn hefur síðan sett upp eina sýningu á hveiju ári, að einu ári undanskyldu. Árið 2982 hóf Saga samstarf við danskan leikklúbbinn Ragn- arrock þegar klúbburinn var á ferð með sýninguna „Önnu Lísu“ í Danmörku. Ári seinna koma Ragnarrock til Akureyrar með sýningu og upp úr því var efnt til samnorræns leikrits, Fenris, sem ferðast var rneð um Norður- löndin árið 1985. í framhaldi kom Fenris II, sem einnig var farið með um Norðurlöndin árið 1989 og ári seinna til Síberíu þar sem leikhópurinn Stúdía bættist í hóp- inn. Nú er Fenris III í bígerð og stefnt er að leikferð árið 1994. A milli Fenrisferðanna var farið til Þýskalands með sýninguna „Grænjaxla". I ár er 15. leikár Leikklúbbsins Sögu og í tilefni þess verður sér- stök afmælissýning á „Tíu litlum negrastrákum" laugardaginn 22. febrúar kl. 16 í Dynheimum og verður öllum gömium og nýjum Sögufélögum boðið á þá sýningu. Atvinnuástand á Húsavík svipað og undanfarin ár: Fj ölgar í þjónustu en fækkar í framleiðslu Húsavík. ATVINNUÁSTAND á Húsavík í janúarmánuði var svipað og síðastliðið ár. Skráðir voru at- vinnulausir í mánaðarlokin 65 en 1991 62. En á öllu svæði Vinnumiðlunar Húsavíkur voru skráðir alls 145 atvinnulausir og eru það fleiri en verið hafa undanfarið og útborgun at- vinnubóta í janúar nam alls um 8,5 millj. króna, sem er hærri fjárhæð en áður hefur verið greidd. Síðia hvers árs hefur Húsavík- urbær gert atvinnumálakönnun, sem miðuð er vð fyrsta október og kemur þar ýmislegt fróðlegt fram. Á síðasta ári voru atvinnurek- endur á Húsavík 157 og hafði þeim fækkað um 7 á árinu. Heild- arstarfsmannafjöldi reynist vera 1.002 og hafði fækkað á árinu um 20 störf og öll í fiskvinnslu. En í þjónustugreinum fjölgaði um 13 störf. Þróunin hefur hér orðið sú að alltaf fjölgar í þjónustugreinum en þeim fækkar sem vinna að fram- leiðslunni, sem sjá má á eftigreind- um tölum, ef bomar eru saman tölur frá árunum 1965 og svo aft- ur síðastliðið ár. Árið 1965 unnu við fiskveiðar og úrvinnslu fiskjar 35% Húsvíkingar en á síðasta ári 24%. Að iðnaði unnu þá 32% en nú 19% en við ýmiskonar þjónustu- störf unnu 33% en nú 57%. hefðbundnum fiskimiðum og kvót- Hér ráða bæði breytingar á þjóð- askerðing. félagsháttum og svo aflaleysi á - Fréttaritari Morgunblaðið/Rúnar Þór Vann í teiknimyndasamkeppni Jón Hjörleifur Stefánsson nemandi í Oddeyrarskóla á Akureyri vann í teiknimyndasamkeppni sem Flugleiðir efndu til í tilefni af komu Ásdís- ar, fyrstu Fokker 50 flugvélar félagsins en hún lenti sem kunnugt er á Akureyrarflugveili á laugardag. Samkeppnin fór fram á meðal nemenda í 5. bekk grunnskóla á Norðuriandi, en samskonar keppni mun einnig fara fram á meðal 5. bekkinga í öðrum landshlutum. í verðlaun hlaut Jón Hjörleifur helgarferð fyrir sig og foreldra sína til eins af áfangastöð- um Flugleiða innanlands. Mynd hans verður sett upp í flugstöðinni á Akureyri. Myndin var tekin er Einar Sigurðsson blaðafulltrúi Flugleiða tilkynnti um úrslitin við komu Ásdísar á laugardag, en auk hans eru á myndinni verðlaunahafinn Jón Hjörleifur Stefánsson og Sigurður Helga- son forstjóri Flugleiða sem heldur á myndinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.