Morgunblaðið - 19.02.1992, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 19.02.1992, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1992 Vesnia þessa voru mótmælín eftir formenn fjögnrra nem- endaráða Nú er kröfuganga grunnskóla- nema nýafstaðin og eggjakastið mikla, en þegar litið er um öxl finnst okkur að eitthvað hafí gleymst — nefnilega ástæðan fyrir göngunni, en hún virðist algjör- lega hafa fallið í skuggann á ómerkilegum uppátækjum nokk- urra einstaklinga. Gangan var að sjálfsögðu ekki farin til að óvirða háttvirtan menntamálaráðherra heldur til þess að mótmæla fyrir- huguðum niðurskurði í mennta- kerfinu. Góð menntun er hom- steinn í góðu þjóðfélagi. Þó að nauðsyn sé að spara á mörgum sviðum er það skammsýni að spara í menntakerfínu. Það leysir engan vanda heldur frestar honum að- eins: Fái unga kynslóðin ekki nóga menntun verður hún ekki fær um að stjóma þessu landi og takast á við þann vanda sem því fylgir. í upphafi fóm mótmælin mjög kurteislega fram, en það er mis- jafn sauður í mörgu fé og þegar líða tók á gönguna fór að bera á svörtu sauðunum. Okkur fínnst að þessir örfáu einstaklingar hafí fengið langtum meiri athygli en þeir verðskulda. Þegar fjölmiðlar vom búnir að fjalla fram og til baka um þessar ósvífnu persónur vom allir krakkamir í kröfu- göngunni dæmdir eggjakastarar. Það er eins og við manninn mælt, að þegar unglingar eiga í hlut er umfjöllunin annaðhvort neikvæð eða engin. Við urðum fyrir miklum von- brigðum þegar menntamálaráð- herra fullyrti í sjónvarpi, án þess að færa nokkur rök fyrir máli sínu, að kennarar standi á bak við mót- mælin. Af þessu mætti draga þá ályktun að háttvirtur ráðherra, sem á að sjá um menntun unga fólksins, viti ekki hvers unglingar em megnugir. Við lýsum því hér með yfir að formenn nemendaráða gmnnskóla á Stór-Reykjavíkursvæðinu áttu hugmyndina að þessum mótmæl- um og undirbjuggu gönguna án þess að kennarar kæmu þar nokk- uð við sögu. Við vonum að þessi fullyrðing menntamálaráðherra valdi því „ Við lýsum því hér með yfir að formenn nem- endaráða grunnskóla á Stór-Reykjavíkursvæð- inu áttu hugmyndina að þessum mótmælum og undirbjuggu gönguna án þess að kennarar kæmu þar nokkuð við sögu.“ ekki að fólk verði neikvætt í garð kennara og haldi að þeir noti okk- ur sem vopn í baráttunni fyrir sín- um málstað. Það gæti orðið til þess að sundra þeim hópi fólks sem sýnt hefur mikla samstöðu gegn framkomnum tillögum um breyt- ingar á menntakerfinu. Það vakti hjá okkur undrun á útifundinum á Lækjartorgi er okk- ar háttvirti menntamálaráðherra lét þau orð falla, eftir að við höfð- um lesið fyrir hann eftirfarandi pistil, að það sem fram kæmi þar væri allt rangt. Við birtum hér umrætt ávarp og skorum á menntamálaráðherra, Ólaf G. Ein- arsson, að leiðrétta okkur og fræða í leiðinni lesendur Morgun- blaðsins um þetta mál. ,,Kæri menntamálaráðherra Ólafur G. Einarsson. Við undirritaðir nemendur í Reykjavík, sem erum í 8., 9. og 10. bekkjum, erum mjög á móti framkomnum tillögum til breyt- inga á menntakerfinu. Okkur fínnst að í þeim felist niðurskurður á þeim mannréttind- um sem grunnskólanemendur á íslandi hafa notið og eiga að njóta. Með því að setja lágmarkseink- unn til að komast inn í framhalds- skólana er verið að skerða rétt allra nemenda til framhaldsnáms frá því sem nú er. Með því að fjölga í bekkjum, troða í hveija kennslustofu, er verið að draga úr aðstoð við nem- endur, sem þurfa á henni að halda. Við óttumst afleiðingamar af því, ef kennarastöðum verður stór- lega fækkað við grunnskóla lands- ins, jafnframt því að sett er lág- markseinkunn til inngöngu í fram- haldsskóla. Við sjáum ekki fram á það hvemig við getum einbeitt okkur í kannski 30 manna bekk. Okkur finnst að það eigi að skera eitthvað annað niður sem ekki bitnar á framtíð íslands og þáokkur. í dag fáum við færri tíma en við eigum rétt á. Samt á að taka af okkur enn fleiri tíma. Ef þetta verður samþykkt munu 6 ára börn í dag fá um hálfu ári stytti mennt- un en þeir sem nú eru að ljúka 10. bekk. Við mótmælum þessum aðgerð- um og skorum á þig menntamála- ráðherra, Ólafur G. Einarsson, að beita þér gegn þessum hugmynd- um og standa þannig vörð um réttindi grunnskólanema á íslandi bæði til náms og menntunar." Að lokum viljum við taka fram til að koma í veg fyrir allan mis- skilning, að kennarar eða aðrir fullorðnir komu hvergi nálægt gerð þessarar greinar. F.h. formanna allra nemenda- ráða og annarra grunnskólanema á höfuðborgarsvæðinu: Hjördís Þórey Þorgeirsdóttir, formaður nemendaráðs Árbæjarskóla, Eva Dögg Guðmundsdóttir, formaður nemendaráðs Setjaskóla, Linda Rós Alfreðsdóttir, formaður nemendaráðs Fellaskóla, Kári Sigurðsson, formaður nemendaráðs Öiduselsskóla. Röntgentæknir Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs vantar röntgentækni til starfa sem fyrst eða nú í vor. Deildin er búin nýjum röntgentækjum og eru rannsóknir um 4000 á ári. Um er að ræða 80-100% stöðu með bakvöktum. Vinsamlegast hafið samband við deildarrönt- gentækni eða undirritaðan sem fyrst. Framkvæmdastjóri. KÍSILIÐJAN ? REYKJAHLÍÐ VIÐ MÝVATN Framkvæmdastjóri Kísiliðjan hf. í Mývatnssveit óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra. Kísiliðjan starfrækir verksmiðju, sem framleiðir síunar- og fylliefni úr kísilgúr, aðallega til út- flutnings. Starfsmannafjöldi er 61. Afkoma félagsins hefur verið góð og eiginfjárstaða er mjög traust. Aðaleigendur Kísiliðjunnar eru Ríkissjóður íslands (51%) og bandaríska fyrir- tækið Celite Corporation (48,56%). Starf framkvæmdastjóra er fjölþætt, en er aðallega fólgið í stefnumörkun, áætlanagerð, ásamt stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri. Framkvæmdastjóri kemur fram fyrir hönd fé- lagsins og gætir hagsmuna þess út á við. Leitað er að hæfum manni, helst með reynslu í fyrirtækjastjórnun, sem tilbúinn er að tak- ast á við krefjandi ábyrgðar- og stjórnunar- starf. Góð kunnátta í ensku er skilyrði. Skriflegum umsóknum um starf fram- kvæmdastjóra ásamt upplýsingum um starfsferil og menntun, skal merkja stjórn félagsins og senda til Kísiliðjunnar hf., 660 Reykjahlíð, fyrir 24. febrúar nk. Umsóknum skal skila á íslensku og í enskri þýðingu. Nánari upplýsingar um starfið veita: Róbert B. Agnarsson, framkvæmdastjóri, vs. 96-44190, hs. 96-44129. Pétur Torfason, stjórnarformaður, vs. 96-22543, hs. 96-22117. Farið verður með allar umsóknir sem trúnað- armál og þeim svarað. EÐALSTÁL HF. Vestvör 11, Kópavogi. Ryðfrítt stál Óskum að ráða, nú þegar, menn vana smíði úr ryðfríu stáli. Aðeins duglegir og reglusam- ir menn koma til greina. Upplýsingar hjá verkstjóra á staðnum, ekki í síma. Eðalstálhf., Vesturvör 11, Kópavogi. Sunnlendingar Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, verður með viðtalstíma fimmtudaginn 20. febrúar á bæjarskrifstofunum á Selfossi frá kl. 15.00-17.00. Þeir, sem áhuga hafa á að panta viðtalstíma við ráðherrann, geta látið skrá sig á skrifstof- um Selfosskaupstaðar í síma 21977. Iðnaðarráðuneytið, viðskiptaráðuneytið, 12. febrúar 1992. I.O.O.F. 9 = 1732198’/2 = □ GLITNIR 599202197 - 1 I.O.O.F. 8 = 173219872 = 9.1. I.O.O.F. 7 = 173219872 = Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Biblíulestur í kvöld kl. 20.30. Ræðumaður: Hafliði Kristinsson. Allir hjartanlega velkomnir. RF.GLA MIISTERJSRIDDARA RMHekla 5.2.VS-FH-FL 19.2.-SPR-MT IOGT St. Einingin nr. 14 Fundur með þátttöku Þingstúku Reykjavíkur í kvöld kl. 20.30. Hagnefndaratriði. Félagar fjölmenniö. Æ.T. Fella- og Hólakirkja Guðsþjónusta í kvöld kl. 20.30. Ræöumaður séra Guðmundur Karl Ágústsson. Fyrirbænir. Sönghópurinn Án skilyrða ann- ast tónlist. fSLENSKI ALPAKLÚBBURINN éSAMBAND ÍSLENZKRA - KRISTNIBOÐSFÉLAGA Kristniboðssamkoma á Háaleitisbraut 58 í kvöld kl. 20.30. Ræðumaður séra Jónas Gísla- son, vfgslubiskUp. Allir velkomnir. Vetrarfjallamennsku- námskeið ÍSALP verður helgina 29. febrúar- 1. mars. Skráning fer fram á Grensásvegi 5, 2. hæð, miðviku- daginn 18. febr. kl. 20.30. Umsjónarmenn verða Guð- mundur Eyjólfsson, sími 677765 og Sigursteinn Baldursson, sími 36854. Hörgshiíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. / FERÐAFELAG ÍSIANDS ÖLOUGÖTU3 & 11798 19533 Fjölbreyttar ferðir og félagsstarf Áttavitanámskeið Uppselt er á námskeiðið 19., 20. og 27. febrúar, sem auglýst hef- ur verið að undanförnu. Það er einnig kynnt i nýju fréttabréfi F.i. sem kemur út í vikunni. Ver- ið er að athuga með nýtt nám- skeið. Vetrarfagnaður Ferðafélagsins 7. mars Félagar og aðrir, mætið vel á vetrarfagnaðinn laugardaginn 7. mars. Hann verður haldinn í Básnum, Ölfusi. Frábær skemmtun. Rútuferð úr bænum kl. 18. Pantiö timanlega á skrif- stofunni Öldugötu 3, símar: 19533 og 11798. Vinnudagur í félagsheimili F.Í., Mörkinni 6, nú á laugardaginn 22. febrúar. Sjálf- boðaliðar óskast. Gullfossferð kl. 10.30 og Kjalarnesgangan 4. ferð Id. 13 á sunnudaglnn 23. febrúar. Þorrablót Hornstrandafara 22. febrúar Við minnum Hornstrandafara F.l. síðustu tveggja sumra á þorrablót laugardaginn 22. fe- brúar. Það verður haldið í veit- ingasalnum við Bláa lónið. Brott- för með rútu kl. 19.00 frá Hreyf- ilshúsinu, Grensásv. Upplýs- ingar veitir undirbúningsnefnd- in: Guðmundur, sími 686114, Guðrún, sími 46887, Gróa, sími 674018, Ágústa, sími 92-68206, Andri, sími 72524 og Unnur, simi 21486. Mætum síðan öll á vetrarfagnað Ferðafélagsins 7. mars. Ferðafélag íslands. Í1ÚTIVIST Hallveigarstíg 1, sími 14606 Helgin 21 .-23. febrúar Góuferð f Bása Kynnist Þórsmörk að vetri til. Upplagt að taka gönguskíðin með. Gist í góðu húsi. Fararstjóri: Björn Finnsson. Tindfjöll undir fullu tungli Göngu- og skíðaferð. Gist ÍTind- fjallaskála. Um 4 klst. gangur upp í skálann. Fararstjóri: Þráinn Þórisson. Brottför kl. 20 f báðar f erðirnar. Uppl. og miðasala á skrifstofu Útivistar. Sjáumstl Útivist.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.