Morgunblaðið - 19.02.1992, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 19.02.1992, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRUAR 1992 t GUÐMUNDUR EYJÓLFSSON sjómaður, áðurtil heimilis Vesturbergi 142, lést á Hrafnistu, Reykjavík, 17. febrúar. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Maðurinn minn, VILHJÁLMUR ÞÓR ÞORBERGSSON, Vogagerði 27, Vogum, er látinn. María Henley. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ANNA EMILSDÓTTIR, Kirkjubraut 22, Njarðvík, lést aðfaranótt 17. febrúar í Sjúkrahúsi Keflavíkur. Synir, tengdadætur og barnabörn. + Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, SIGURBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR frá Hryggjum, Mýrdal, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 20. febrúar kl. 13.30. Kristvaldur Eiríksson, Guðbjörg Einarsdóttir, Concordia Konráðsdóttir. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SAMÚEL JÓNSSON frá Þingdal í Villingaholtshreppi, Víðivöllum 2, Selfossi, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju föstudaginn 21. febrúar kl. 13.30. Jarðsett verður í Villingaholti sama dag. Stefania Eiríksdóttir, Eyrún Samúelsdóttir, Loftur Jónsson, Jón Samúelsson, Jóhanna Reginbaldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJÖRN JÓNSSON fyrrverandi lögregiuþjónn, Álftamýri 54, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju fimmtudaginn 20. febrúar kl. 15.00. Kristín Bjarnadóttir, Jón Haukur Björnsson, Ágústa Egilsdóttir, Brynhildur Björnsdóttir, Bergsteinn Vigfússon, Hjördis Björnsdóttir, Jónas S. Hrólfsson, Unnur Hlfn Guðmundsdóttir, Bjarni H. Guðmundsson, Maria Þorgrímsdóttir, Ögmundur H. Guðmundsson, Kristín Jónsdóttir, Guðmundur Hlynur Guðmundsson, Álfheiður Guðjónsdóttir og barnabörn. Þetta er minningarkort Slysavarnafélags íslands Skrifstofan sendirpau bæði innanlands og utan. Þau fást með enskum, dönskum eða þýskum texta. Sími SVFÍer 27000. Gjaldið er innheimt með gíró. Minning: Steinunn Bima Ingi- marsdóttir frá Þórshöfn í svartasta skammdeginu tendr- um við ljós í öllum regnbogans lit- um, við skreytum glugga með fal- legum jólaseríum, stjömum og krossum að ógleymdum aðventu- ljósunum. Ekki voru slík ljós til er Birna var að alast upp þó svo að hún hafi fengið að sjá þau er hún fullorðnaðist. Frænka mín hafði listræna hæfileika af Guðs náð, m.a. útbjó hún mikið af fallegum kertastjökum fyrir sig rétt fyrir ein jólin og voru þeir úr kartöflum og dugðu fram á þrettándann, hún tálgaði þær til og setti blómapappír utanum eða fallegan glanspappír. Margir dáðust að þessum fallegu stjökum og spurðu: Hvar keyptirðu þá? Þá hló hún við og sagði þeir kostuðu nú ekki mikið og trúði fólk því ekki í fyrstu að þeir væru bún- ir til á þennan hátt. Frænka dó 11. desember á dvalarheimilinu í Skjaldarvík eftir erfið veikindi, ör- ugglega hvíldinni fegin. Hún var fædd á Þórshöfn 9. október 1916. Foreldrar hennar voru Oddný Frið- rikka Ámadóttir og Ingimar Bald- vinsson. Systkinin vora ellefu, átta systur og þrír bræður. Þau voru: Soffía Arnþrúður, fædd 26. mars 1912, dáin 1. nóv. 1979, Hólmfríður Þórdís, fædd 26. júní 1913, Helga Aðalbjörg, fædd 27. janúar 1915, dáin 26. júní 1945, Steinunn.Birna, fædd 9. október 1916, Arnþrúður, fædd 12. júlí 1918, Halldóra, fædd 19. júní 1920, Oddný Friðrikka, fædd 1. júní 1922, Jóna Gunnlaug, fædd 23. nóvember 1923, dáin 11. nóvember 1988, Jóhann, fæddur 23. júlí 1926, Ingimar, fæddur 24. ágúst 1929, og Árni Sigfús Páll, fæddur 1. október 1932, dáinn 30. nóvember 1935. Amma var fjölhæf kona, hún var organisti til fleiri ára við Sauðanes- kirkju í N-Þing. og stjórnaði kór barnaskólans, saumakona og síðast en ekki síst góð húsmóðir. Afí var mikill atorkumaður, stundaði land- búnað og útgerð og sá um póst og síma. Frænka var því alin upp við söng og mikinn dugnað. Eg á margar góðar minningar um frænku, hún var mér einstak- lega góð er ég var lítil stúlka á Þórshöfn. Ótaldar era fjöruferðirn- ar okkar og göngutúrarnir. Ég var og er mikið náttúrubam, eftir því tók Birna fljótt. Kom hún eitt sinn að mér er ég sat á steini í fjörunni fremur döpur í skapi talandi við öldurnar og bað þær um að taka mig. Þá hrökk ég við er hún sagði: Komdu elsku stúlkan mín, við skul- um koma heim og búa til falleg blóm. Svo fór ég heim með henni og sótti hún inn í skáp fallegan kreppappír og sneið til blóm, vír var notaður sem uppistaða. Var nú al- deilis tekið til hendinni og sköpuð- ust mörg falleg blóm á smástundu og ég komin í sólskinsskap. Eins og sjá má þá hafði hún gott lag á að koma bömum í gott skap. Eitt sinn er ég kom í heimsókn þá var komið gat á sokkinn minn, hún sá það og bauðst til að kenna mér að stoppa í sokkinn, var ég þá tíu ára. Ég var himinlifandi yfir því að læra þetta og flýtti mér heim til mömmu og sýndi henni handbragðið og hún spurði: Hefur þú virkilega gert þetta sjálf? Sagði ég henni þá hvað frænka hefði verið svo góð að kenna mér þetta. Síðan hefur mér fundist mjög gaman að stoppa í hvað sem er. Eins og áður er sagt var frænka fædd með listræna hæfíleika, það bókstaflega lék allt í höndunum á henni og hún hafði mikið hugmynd- aflug. Gat búið til fallegar og nota- legar gjafir úr litlu. Móðir mín á ýmislegt fallegt og þarflegt eftir hana, m.a. datt henni í hug að sauma svuntu með málbandi og skæram hangandi í bandi sem hún festi við strenginn en málbandið var neðst á svuntunni. Henni datt þetta í hug af því að mamma var alltaf að týna málbandinu. Þetta fannst nú móður minni góð lausn og og hefur ekki þurft að leita að mál- bandi síðan. Eftir að ég flutti á Hvammstanga þá sáumst við ekki oft en ég frétti alltaf af henni í gegn um móður mína og stundum skrifaði ég henni góð bréf enda átti hún það svo sann- arlega skilið. Frænka var hreinskiptin kona með öra lund, næm á börn og vann sitt verk vel og hratt, kona sem var glettin og gat gert grín að ýmsu án þess að særa nokkurn. Frænka giftist Sigurði Elíasi Siguijónssyni á Þórshöfn 23. mars 1952 en þau slitu samvistum 1974. Þá fór hún að vinna í Skjaldarvík en 1986 gerð- ist hún vistmaður þar. Frænka var oft misskilin af sínu samferðafólki, þótti frekar skapstirð en undir niðri var hún viðkvæm kona með sínar langanir eins og gerist og gengur. Frænka annaðist ömmu og afa sein- ustu æviár þeirra á Ingimarsstöð- um, Þórshöfn. Hafi hún kærar þakkir fyrir það. Ég veit að Birna hefur átt góða heimkomu í faðmi foreldra, systkina og annarra ástvina. Jón Kristinsson mágur hennar, studdi hana afar vel seinni árin og ber sérstaklega að þakka það. Minningarathöfnin var í Akureyrakirkju 16. desember en jarðsungið í Sauðaneskirkjugarði 21. desember. Ég vona að algóður Guð styrki okkur öll. Guð blessi minningu frænku. Þegar mér ganga þrautir nær, þér snú þú til mín, Jesú kær. Hjartað hressi og liugann minn himneskur náðarvökvi þinn. (H.P.) + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HALLDÓR JÓNSSON frá Ey, fyrrverandi birgðavörður á Hótel Sögu, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 21. febrúar kl. 13.30. Jón Halldórsson, Margrét Þorsteinsdóttir, Elsa Halldórsdóttir, Ingibjörg Halldórsdóttir, Sváfnir Sveinbjarnarson, barnabörn og barnabarnabörn. + Faðir okkar og tengdafaðir, JAKOB ÓSKAR ÓLAFSSON frá Vestmannaeyjum, Háteigsvegi 8, Reykjavík, andaðist í Hraunbúðum, Vestmannaeyjum, 18. febrúar. Guðrún J. Jakobsdóttir, Sigurður Tómasson, Sigríður S. Jakobsdóttir, Eyjólfur Martinsson, Ólafur Ó. Jakobsson, Sigríður Þórarinsdóttir. + Frændi okkar, SIGURÐUR JÓNSSON, Hátúni 10b, andaðist að morgni 7. febrúar í Hátúni 10b. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Páll Þórðarson, Rakel Björnsdóttir, Jóna Björk Guðmundsdóttir, Jóhannes Sigurbjörnsson. + Útför systur minnar, ÁSLAUGAR ODDSDÓTTUR, Merkigerði 8, Akranesi, sem andaðist 14. febrúar, verður gerð frá Akraneskirkju föstudag- inn 21. febrúar kl. 14.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast henn- ar, er bent á Sjúkrahús Akraness. Þórunn Oddsdóttir og aðrir vandamenn. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐBJARTUR GUÐJÓNSSON frá Efri-Húsum, Önundarfirði, nú Hlíf, l'safirði, sem lést í Sjúkrahúsi ísafjarðar þann 10. febrúar, verður jarðsung- inn frá (safjarðarkapellu í dag, miðvikudaginn 19. febrúar, kl. 14.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Slysavarnafélag (slands. Petrína Ásgeirsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Hildur Kristín Jakobsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.