Morgunblaðið - 19.02.1992, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 19.02.1992, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRUAR 1992 29 Krisiján F. Bjarna- son - Kveðjuorð Fæddur 18. maí 1971 Dáinn 21. desember 1991 Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vom grætir þá líður sem leiftur af skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (HIH) Mig langar að kveðja hann elsku frænda minn, Kristján Friðberg Bjamason. Það eru engin orð sem geta lýst þeim mikla harmi sem gagntók mig við fráfall hans því annan eins vin og félaga hef ég aldrei eignast. Vinátta okkar var svo traust og gagnkvæm að ekkert gat nokkurn tíma komist þar á milli. Enda hafði hún þróast með okkur frá því við vorum smábörn og vorum óaðskiljanlegir alla tíð. Ég vil þakka Stjána, eins og hann var alltaf kallaður, fyrir öll árin okkar saman allt frá því við lékum okkur með bílana í moldar- haugnum á Skarði og þar til núna sem uppkomnir að við höfðum önn- ur áhugamál, s.s. að fara í bíltúr, í smalamennsku á Skarði, út í eyjar með pabba eða bara skafa grindur og að hittast bara til að spjalla kvöldstund og þá gjarnan með Kollu frænku sem var ómissandi félags- skapur og traustur vinur. Það voru ófáar stundir sem við áttum öll saman bæði heima á Skarði og í bænum. Það er trú mín að hann sé nú í góðum höndum með öfum sínum Kristjáni nafna sínum og Hilmari afa sem báðir eru farnir á undan og taka örugglega á móti stráknum sínum. Bið ég góðan guð að vernda vin minn á ókunnum slóð- um og blessa fjölskyldu hans í þeirra miklu sorg. Með þér leið mín lá um liljum skýdda grund, já, þér muna má ég marga glaða stund, þú ert horfinn heim ég hvorki græt né styn, en aldrei hef ég átt né eignast betri vin. (Káinn) Elsku Ásta, Bjarni, Sveiney og Brynjar Þór, okkar innilegustu sam- úðarkveðjur til ykkar. Bogi og Harpa. Við viijum senda elsku frænda þakkir fyrir allt sem hann var okk- ur. Dýrmætar minningar lifa í hjört- um okkar og eru þær huggun í þessari miklu sorg og söknuði. Við vottum Ástu, Bjarna, Svein- eyju og Brynjari Þór okkar innileg- ustu samúðar og biðjum Guð að styrkja þau og gefa þeim kraft í þessari miklu þolraun. Guð geymi elskulegan frænda okkar. Dáinn horfinn harmafregn, hvílíkt orð mig dynur yfir. En ég veit að látinn lifir það er hugpn harmi gegn. (Káinn) Hilmar Jón, Hrefna og dætur. Skoðaðu hug þinn vel þegar þú ert glaður, og þú munt sjá, að aðeins það sem valdið hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. (Spámaðurinn, Kahlil Gibran) Þann 21. desember sl. var okkur tilkynnt að elsku strákurinn okkar hann Kristján væri dáinn. Engin orð geta lýst þeim tilfinn- ingum sem heltekur fólk á svona stundu, að hann svona ungur í blóma lífsins með allt lífið framund- an skuli vera farinn, þessi elskulegi hægláti en skemmtilegi piltur sem alltaf var tilbúinn til alls. Ekki ór- aði okkur fyrir í haust er hann kom og hjálpaði okkur að smala að við ættum ekki eftir að sjá hann aftur. Börnin okkar eru það dýrmæt- asta sem við eigum og þess vegna erfiðast að sætta sig við að missa þau. Kristján var systursonur undir- ritaðrar, foreldrar hans voru Ást- liildur Hilmarsdóttir frá Reykjavík og Bjarni Kristjánsson frá Tindum í Skarðshreppi í Dalasýslu. Naut hann mikillar ástúðar og góðrar umönnunar góðra foreldra sem aldrei fannst neitt of gott barni sínu til handa og hafði hann fengið gott veganesti úr foreldrahúsum. Hann var mjög greindur og átti auðvelt með að læra. Hann koin fyrst til okkar aðeins fimm ára gamall, til að fá að vera yfir sumartímann og á hverju ári eftir það þar til hann fór að sækja á vinnumarkaðinn eins og flestir aðrir en aldrei sleppti hann úr tækifæri til að skreppa vestur ef færi gafst,' ýmist til að fara í réttir, komast í heyskapinn og rétta hjálparhönd með baggana, komast á sjóinn með Kidda en þeir voru mestu mátar. Mikil vinátta tókst frá fyrstu tíð með Boga syni okkar og honum, voru það ó_rjúfan- leg bönd sem héldust á milli þeirra alltaf. Einnig fór það svo að þeir óskuðu eftir að fá að fermast sam- an hér í Skarðskirkju. Ekki hvarfl- aði að foreldrum hans að mæla því mót, þau sáu hvað það var þeim mikils virði, enda átthagar föður hans hér. Við viljum nú þakka elsku frænda fyrir samfylgdina og tryggðina við okkur og hlýhug í okkar garð og-biðjum góðan guð að blessa hann á nýjum stað hjá öðrum ættingjum sem gæta hans. Elsku Ásta, Bjarni, Sveiney og Brynjar Þór, guð gefi ykkur styrk til að standast þessa miklu sorg sem á ykkur er lögð. Guð geymi hann Kristján okkar. Stella, Kiddi og Inga Dögg, Skarði. Minning: Hólmfríður Hjartar- dóttir frá Skagaströnd Með nokkrum orðum vil ég minn- ast nágrannakonu minnar, Hólm- fríðar Hjartardóttur. Hún var fædd á Skagaströnd 31. desember 1909 og átti lengst af þar heima. Foreldr- ar hennar voru hjónin Ásta Þ. Sveinsdóttir og Hjörtur Klemensson og var Hólmfríður elst 1& systkina. Ég sem þessar línur rita kynntist fyrst Fríðu, eins og hún var daglega kölluð, árið 1948 er við hjónin flutt- um á Hólabrautina hér á Skaga- strönd. Fríða og maður hennar Pálmi bjuggu þá í næsta húsi. Á fyrstu jólum þessa nýja heimilis veiktist ég mikið. Kom þá þessi nágrannakona til að hjúkra mér og daglega gerði hún það þar til ég komst á fætur aftur. Oft hef ég sagt að ég ætti Fríðu líf mitt að þakka, næst Guði. Að ég segi frá þessum veikindum er vegna þess að í þeim kemur best fram í verki hennar innri maður. Fórnfýsin og kærleikurinn til ná- ungans. Þannig var Fríða enda trú- uð kona sem setti allt sitt traust á Drottin, Jesú Krist. Fríða var greind og fjölhæf kona á margan hátt, hafði yndi af garð- rækt og lagði mikla vinnu í garðinn sinn, bæði við að sá litlum tijáplönt- um sem í dag eru á aðra mannhæð og að gera hann sem fallegastan á ailan hátt. Hlaut hún oftar en einu sinni verðlaun fyrir hann. Einnig tók hún upp þá nýbreytni að rækta grænmeti í gróðurhúsum og var á undan sinni samtíð hér á Skaga- strönd með það. Fríða hafði mikinn áhuga á söng og lestri góðra bóka. Hún kynnti sér náttúrulækningastefnuna og las sér til gagns bækur um þau efni. Þannig hafði hún áhrif til góðs á matargerð heimilisins og til annarra er hún miðlaði þekkingu sinni. Fríða var góð móðir sem lét sér annt um börn sín og fjölskyldu. Við Fríða bjuggum hér hlið við hlið í yfir 20 ár. Börn þessara Ijöl- skyldna ólust því upp saman en aldrei man ég eftir að styggðaryrði færi á mili okkar þótt stundum slægi í brýnu hjá mörgum, fjörmikl- um börnum. Og þótt Fríða og Pálmi flyttu til Reykjavíkur árið 1973 þá hefur vinátta milli þessara fjöl- skyldna haldist alla tíð. Fríða var tvígift. Fyrri maður henriar var Einar Pétursson og eignuðust þau 4 börn en með seinni manni sínum, Pálma Sigurðssyni, átti hún 5 börn. Fríða lést á Borgar- sjúkrahúsinu 15. des. sl. eftir langt og erfitt sjúkdómsstríð. En allan þann tíma naut hún sérstakrar umönnunar og ástúðar eiginmanns síns. Ég vil enda þessar línur á orðun- um úr sálmi eftir Valdemar Briem: Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Soffía S. Lárusdóttir, Skagaströnd. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN KRISTJÁNSSON frá Súgandafirði, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 20. febrúar kl. 10.30. Rannveig Magnúsdóttir, Sigríður S. Jónsdóttir, Magnús S. Jónsson, Ágústa Gísladóttir og barnabörn. t Eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, tengdafaðir og afi, INGIMAR RAFN GUÐNASON slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður, Vörðubrún 2, lést í Landspítalanum 17. febrúar. Erla Sylvía Jóhannsdóttir, Þórhildur Sölvadóttir, Inga Jóna Ingimarsdóttir, Hallgrimur Arthúrsson, Ómar Ingimarsson, íris B. Hilmarsdóttir, Haukur Ingimarsson, Kristín S. Sigurðardóttir, Víðir Ingimarsson og barnabörn. t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN SIGTRYGGSSON tannlæknir, lœknir og fyrrum prófessor, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 21. febrúar kl. 15.00. Jón Örn Jónsson, Ingvi Hrafn Jónsson, Óli Tynes Jónsson, Sigtryggur Jónsson, °g Guðrún Guðbergsdóttir, Ragnheiður Sara Hafsteinsdóttir, Vilborg Halldórsdóttir, Margrét Jónsdóttir barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SVEINN RÓSINKRANS JÓNSSON, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 20. febrúar kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlega bent á Hjartavernd eða Gigtarfélag íslands. Þorgerður Sveinsdóttir, Helga Sveinsdóttir, Valdimar Guðnason, Jón R. Sveinsson, Guðrún Óskarsdóttir, Sigríður Sveinsdóttir, Guðmundur Helgi Guðmundsson og barnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR frá Vorsabæ, A-Landeyjum, Víkurbraut 14, Grindavík. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Alúðarþakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, GÍSLA ÞORSTEINSSONAR, Æsufetli 2. Sérstakar þakkir flytjum við starfsfólki lungnadeildar Vífilsstaða- spítala fyrir frábæra umönnun í veikindum hans. Margrét Sigurðardóttir, Sigurður I. Gíslason, Fanney Davíðsdóttir, Guðmundur Gíslason, Sigurlaug B. Gröndal, Þorsteinn Gíslason og barnabörn hins látna. t Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐMUNDU GUÐRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR frá Litlalandi, Vestmannaeyjum, Njálsgötu 17. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á deild 4-B Borgarspítala fyrir einstaka umönnun í veikindum hennar. Ólafur B. Þorsteinsson, Svanlaug M. Ólafsdóttir, Sigurður Ásgeirsson, Sigurður Ólafsson, Ingibjörg Ólafsdóttir, Kristín D. Ólafsdóttir, Ester Ólafsdóttir, Anna Ólafsdóttir, Unnur Ólafsdóttir, Hanna Ólafsdóttir, Kristín M. Þorvaldsdóttir, Vilhjálmur Hendriksson, Sigurður Guðjónsson, Kart J. Steingrímsson, Arnar H. Gestsson, Sigurmundur Einarsson, Matthías Ægisson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.