Morgunblaðið - 19.02.1992, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRUAR 1992
fclk f
fréttum
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Krakkarnir I Ungmennafélaginu Heklu kampakát við heimkomuna með bikar í farteskinu.
IÞROTTIR
Góð frammistaða
í íþróttum
Fyrir stuttu var haldið aldurs-
flokkamót í frjálsum íþróttum
innanhúss á vegum Héraðssam-
bandsins Skarphéðins fyrir krakka
14 ára og yngri. Mótið fór fram í
Þorlákshöfn og alls tóku 22 félög
þátt í mótinu.
Það er skemmst frá því að segja
að Ungmennafélagið Hekla á Rang-
árvöllum sigraði glæsilega með
samtals 51 stig, í öðru sæti var
Umf. Selfoss með 42 stig og Umf.
Þórsmörk hafnaði í því þriðja með
30 stig.
Mikið og blómlegt starf fer nú
fram innan Ungmennafélagsins
Heklu á Rangárvöllum og krakk-
amir æfa reglulega fijálsar íþróttir,
boltagreinar og síðan hefjast sund-
æfingar með vorinu. Nýlega voru
veittar viðurkenningar og verðlaun
fyrir afrek á sl. ári. Friðsemd Thor-
arensen fékk afreksbikar í íþróttum
fyrir frábæra frammistöðu í lang-
stökki bæði með og án atrennu í
aldursflokki 11-12 ára. íþróttamað-
ur ársins var kjörinn Bjarki Steinn
Jónsson en hann skilaði flestum
verðlaunum ti! félagsins á árinu.
Sérgrein hans er 400 m hlaup.
Hér er nú mikill áhugi á íþróttum
og æfingamar stundaðar af kappi,
en helst háir það starfi Ungmenna-
félagsins að ekki er íþróttakennari
á staðnum og tilfinnanlega vantar
íþróttahús ti! æfínga. Þær hafa
flestar farið fram í Hellubíói en þar
er ekki hægt að æfa allar greinar
s.s. hástökk, boltagreinar, svo að
bömunum hefur verið ekið á Lauga-
land í Holtum þar sem er glæsilegt
íþróttahús en það þykir bæði tíma-
frekt og kostnaðarsamt.
- A.H.
Bjarki Steinn Jónsson sem kjör-
inn var íþróttamaður ársins lyá
Umf. Heklu á Rangárvöllum.
MORGUNVERÐARFUNDUR
föstudaginn 21. febrúar nk. kl. 8.00 á Hótel Holiday Inn, Hvammi
Árangur í íslenskum útfíutningi
Hvernig verða tækHæri til?
Framsögumenn verða:
Geir A. Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Marels hf.
Svavar Jónatansson, framkvæmdastjóri Virkis-Orkint
Tryggvi Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri Össurs hf.
V
Félagsmenn FVH og aðrir
áhugamenn um umræðuefnið
eru hvattir til að mæta.
FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA
OG HAGFRÆÐINGA
VIÐURKENNING
Karitas íþrótta-
maðurársins 1991
*
Aaðalfundi íþróttafélagsins
Þróttar í Neskaupstað sem
haldin var nýlega, var lýst kjöri
• íþróttamanns ársins 1991. Fyrir
valinu varð Karitas Jónsdóttir,
knattspymukona Þróttar í sum-
ar sem leið. Hún er öllum knatt-
spymuáhugamönnum að góðu
kunn og hefur margoft leikið
með kvennalandsliðinu í knatt-
spymu. Þess má til gaman geta
að þetta er fjórða árið í röð sem
kona er valin íþróttamaður árs-
ins hjá Þrótti.
- Ágúst
Karitas Jónsdóttir,
íþróttamaður ársins 1991.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
VINATTA
Eru Nastassia og
Quincy aðeins vinir?
Leikkonan Nastassia Kinski
er sögð hafa eytt nokkrum
dögum með bandaríska tón-
listarmanninum Quincy Jones í
Róm nýlega. Þau hafa ekkert
látið uppi um samband sitt en
talsmaður Quincy hefur sagt að
þau séu aðeins góðir vinir. Nast-
assia er gift Egyptanum Ibrahim
Moussa og eiga þau tvö börn.
Quincy skildi við þriðju eigin-
konu sína á síðasta ári, en hann
á sex böm. Nastassia og Quincy
eiga að hafa varið nokkrum tíma
saman að undanförnu en faðir
hennar, Klaus Kinski, spáði því
stuttu fyrir andlát sitt í nóvem-
ber síðastliðnum að dóttir hans
myndi giftast aftur.
Quincy Jones og Nastassia Kinski á flugvellinum í Róm á leið
til Los Angeles.
GOSPER