Morgunblaðið - 19.02.1992, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRUAR 1992
3;
Bll#H#LU
ÁLFABAKKA 8, SÍMI 78 900
Minmmi
imMinhmiiiJHIIIII
NÝJA GRÍN-SPENNUMYNDIN
SÍÐASTISKÁTINN
DAMON WAYANS BRUCEWILLIS
„The Last Boy Scout“ örugglega besta
grín-spennumynd ársins.
„The Last Boy Scout" meft Bruce Willis.
„The Last Boy Scout“ með Damon Wayans.
„The Last Boy Scout" einfaldlega ennþá betri en
toppmyndirnar „Lethal Weapon" og „Die Hard".
„TIE LAST 60Y SCOUT“ - BARA SÚIESTA!
Aðalhlutverk: Bruce Willis, Damon Wayans, Chelsea Field,
Taylor Negron. Framleiðandi: Joel Silver. Leikstjóri: Tony Scott.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.05.
KROPPASKIPTI
THELMA & LOUiSE
THSbMA&tXHftSE
Sýnd kl. 9
SNORRABRAUT 37, SÍMI 11 384
BESTA SPENIMUMYND ÁRSINS 1992
0^-0
ÁLFABAKKA 8, SÍMI 78 900
STÓRGRÍNMYND í SÉRFLOKKI
STÓRISKÚRKURINN
Aðalhlutverk: Goldie Hawn, John Heard, Damon Redfern
og Robin Bartlett. Framleiðandi: Michael Finnell.
Leikstjóri: Damian Harris.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i. 16 ára.
LÖGGANÁHÁU
HÆLUNUM
Sýnd kl. 9 og 11
FLUGÁSAR
Svnd kl. 5.
Siðustu sýningar.
BILLY
BATHGATE
Sýnd kl.9og11.
B.i. 16 áre
Síðustu sýningar
DUTCH
Sýnd kl. 5 og 7.
ALDREIÁN DÓTTUR MINNAR
Sýnd kl. 7. Síð. sýn.
„The Super“ er einhver sú besta grinmynd sem komið hefur,
enda fer hér Óskarsverðlaunaleikarinn Joe Pesci á kostum
eins og áður. „The Super“ er framleidd af þeim sömu og
gerðu „Die Hard“-myndirnar.
„The Super“, stórgrínmynd í algjörum sérflokki
Aðalhlutverk: Joe Pesci, Vincent Gardenia, Madolyn Smith,
Rubin Blades.
Framleiðandi: Charles Gordon (Die Hard). Handrit: Sam Simon
(Taxi Driver). Tónlist: Miles Goodman (What about Bob).
Leikstjóri: Rod Daniel (K-9).
Sýnd kl. 5, 7,9 og 11.
LÆTIILITLU
TOKYO
Sýnd kl. 5,7 og
11.15.
FLUGÁSAR
Sýnd kl. 5 og 9.
PENINGAR
Sýnd kl.7og 11.
Saga - tímarit Sögu-
félagsins komin út
SAGA, tímarit Sögufélagsins, 29. árgangur 1991, er komin
út. Ritið er 304 síður að stærð og ritstjórar eru Gísli Ágúst
Gunnlaugsson og Sigurður Ragnarsson.
Hulda Sigurborg Sigtryggs-
dóttir skrifar grein um aðdrag-
andann að aðskilnaði Alþýðu-
flokks og Alþýðusambands ís-
lands á árunum 1940-1942.
Þór Whitehead fjallar um
stefnumótun í utanríkismálum
eftir síðari heimsstyrjöld. Jón
Ólafur Ísberg fjallar um sögu-
skoðun höfunda sem nýlega
hafa lagt yfirlitsgreinar um Is-
landssögu til tveggja alfræði-
rita. Gunnar Karlsson fjallar
um heppilegt vinnulag við ritun
kristnisögu íslands.
í ár birtist í Sögu þýðing
Árna Böðvarssonar á skoðana-
skiptum norskra fræðimanna
um rúnakefli sem fundust við
uppgröft í Noregi, en grein um
þau birtist í Sögu 1988 og Hi-
storisk Tidskrift í Noregi sama
ár. Þrír höfundar gera athuga-
semdir við ritdóma um verk sín
í áögu síðasta árs, þeir Birgir
Sigurðsson, Gunnar Karlsson
og Stefán F. Hjartarson.
Tólf höfundar birta ritfregnir
um fjórtán bækur. Gunnar
Karlsson minnist Björns Sigfús-
sonar, fyrrverandi háskóla-
bókavarðar, sem um iangan
aldur var einn af ritstjórum
Sögu, og Helgi Þorláksson ritar
minningarorð um Jón Steffen-
sen prófessor.
Stúlkan sem hvarf
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Aðalvitnið („Krönvitt-
net“). Sýnd í Há-
skólabíói. Leikstjóri:
Jon Lindström. Aðal-
hlutverk: Gösta Ekman,
Emma Norbeck, Marika
Lagercrantz og Per
Mattson.
Svíar eru iðnir við að
filma sakamálamyndir,
stundum með ágætum ár-
angri. Nú eru t.d. sýndir
þættir í ríkissjónvarpinu
frá Svíþjóð um Carl Ham-
ilton, sænskan James
Bond, sem líka hefur verið
gerð um bíómynd, „Coq
Rouge“, reyndar ekki
burðug. Er víst að sögur
Sjövall og Wahlöö eiga
einhvern þátt í þessum
áhuga sænskra á saka-
málamyndum. Aðalvitnið
eftir Jon Lindström er
nýleg sænsk glæpamynd
um dularfullt hvarf ungr-
ar stúlku og blandast ást-
armál aðalpersónanná
mjög inní. Myndin er vel
gerð tæknilega en sagan
er gloppótt nokkuð og
langdregin.
Gösta Ekman leikur
lögreglumann sem stjórn-
ar rannsókn málsins. Per
Mattson er líffræðingur
og kunningi stúlkunnar
og hann er grunaður um
að hafa myrt hana. Matt-
son leikur hann ákaflega
dauflega svo úr verður
einkar leiðinleg persóna.
Hann vinnur á tilrauna-
stofu með m.a. hundruð-
um rotta og ein kenning
Ekmans, sem hefur að
vísu ekki úr miklu að spila,
er sú að hann hafi látið
rotturnar éta líkið af
stúlkunni. Þegar Mattson
er stungið inn tekur eigin-
kona hans, leikin af Mar-
ika Lagercrantz sem líkist
talsvert Ingrid Bergman
ungri, að rannsaka málið.
Myndin byijar vel en
það vantar talsvert uppá
rökræna þáttinn í handrit-
inu, trúverðugleika og
spennu þegar á líður.
Aldrei er skýrt hvers
vegna Mattson, sem í ljós
kemur að þekkir lausn
málsins, er þögull um það
sem gröfin. Aldrei er
könnuð slóð sem áhorf-
andinn hlýtur að setja
strax spurningarmerki við
og geymir reyndar lausn
gátunnar. Lindström virð-
ist stefna að því að láta
morðmálið virka sem
spennandi bakgrunn fyrir
sálarstríð aðalpersónanna,
ótryggð og ástir og upp-
gjör við fortíð: En persón-
urnar eru ekki nógu
áhugaverðar og þyngsla-
legur stíllinn dregur úr
spennunni sem myndast
milli þeirra.
Ekman er íjarska góður
sem hinn þreytulegi rann-
sóknarlögreglumaður,
sem í ljós kemur að á nok-
kurra hagsmuna að gæta,
en hin fallega Lagercrantz
er heldur stíf og óörugg
með sig þegar hún tekur
að sér hlutverk spæjarans.
■ DREGIÐ hefur verið í
ferðahappdrætti Flugleiða
er selt var í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar sunnudaginn
16. febrúar sl. Upp komu
eftirtalin númer: Amsterd-
amferðir: 130, 888 og 542.
Innanlandsferðir: 671, 14
og 670. Vinninganna skal
vitja á skrifstofu Flugleiða
á annari hæð í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar.
(Birt án ábyrgðar)
■ MÁLFUNDAFÉLAG
alþjóðasinna heldur um-
ræðufund um Baráttuna
fyrir sameiningu Kóreu
fimmtudaginn 20. febrúar
kl. 20.00. Málshefjandi er
Estelle DeBates, formaður
ungsósíalista í Bandaríkjun-
um og varaforsetaframbjóð-
andi Sósíalíska verkamanna-
flokksins þar í landi. Estelle
er nýkomin frá alþjóðlegum
fundi í Madrid á Spáni um
málefni Kóreu. Fundarstjóri
verður Pétur Böðvarsson.
Fundurinn er haldinn í að-
setri málfundafélagsins á
Klapparstíg 26, 2. hæð og
er öllum opinn.
(Fréttatilkynning)
JWor0«nbr«bib
Auglýsingasíminn er69 11 11