Morgunblaðið - 19.02.1992, Side 34

Morgunblaðið - 19.02.1992, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1992 Leikendur: Sólveig Arnarsdóttir, Haraldur Hallgrímsson, Ingvar Sigurðsson, Þorlakur Kristins- son, Eggert Þorleifsson, Björn Karlsson, Magnús Ólafsson. Leikstiórn og handrit: Ásdís Thoroddsen. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. - Miðaverð kr. 700. BILUNIBEINNI ÚTSENDINGU *** Pressan **** Bíólínan ★ ★ ★'A HK DV ★ ★ ★ ★ S. V. Mbl. Sýnd kl. 6.40 og 9. Bönnuð i. 14ára. Framlag íslands til Óskarsverðlauna. Sýnd í B-sal kl. 5. SPEIMIMU-TRYLLIRINIM LIKAMSHLUTAR Þegar Bob fékk ógræddan nýjan handlegg... Sýnd kl. 5.10, 9.10 og 11.10. Bönnuð innan 12 ára. Rf.C ÍARÐINC: HENRY Sýnd kl. 9.10 og 11.10. Bönnuð i. 12 ára. Sýnd 5.10 og 7.10 Fáar sýningar eftir. TVOFALT LIF VERÓNIKU Það er stórkostlegt hvað læknavísindin geta. En hvað gerist þegar hönd af morðóðum manni er grædd á ósköp venjulegan mann og fer siðan að ráðskast með hann? AI. MliL. CAf.NIÍ DOUBLE LIFE of veronika ATH.: SUM ATRIÐI í MYNDINNI ERU EKKI FYRIR VIÐKVÆMT FÓLK Leikstjóri: Erik Red. Aðalhlutverk: Jeff Fahey, Brad Dourif. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 7.05 og 11.05. Fáar sýningar eftir. ★ ★ ★ SV. MBL. Sýndkl.7.10. Sýndkl.7.10. Fáarsýningar eftir, Lögreglan leitar vitna Morgunblaðið/Emilía Lovísa Jónsdóttir varaform. Sambands hárgreiðslu og hár- skerameistara og Kristján Sig- mundsson forstjóri Halldórs Jónssonar hf. Slysarannsóknadeild lögreglunn- ar í Reykjavík lýsir eftir vitnum að árekstri sem varð við Faxafen 12 miðvikudaginn 12. þessa mánaðar um klukkan 13. Þar var gráum jeppa með rauðri rönd ekið á bláan Lancer-fólksbíl og síðan af vettvangi án þess að skemmdir á þeim bíl væru kannað- ar. Er skorað á ökumann jeppans og vitni að gefa,sig fram. Wella styrkir landsliðin í hárgreislu og hárskurði UNDANFARIN ár hefur Hall- dór Jónsson hf. sem er umboðs- maður fyrir Wella-hársnyrti- vörur í samvinnu við Samband hárgreiðslu og hárskerameist- ara staðið fyrir hárlitunar- keppni á meðal hársnyrtifólks. í tengslum við þessa keppni stofnaði Halldór Jónsson hf. sérstakan styrktarsjóð, „Tokyo 92“, og skyldi allur ágóði af hárlitunarkeppni ásamt fram- lagi frá Halldóri Jónssyni hf. renna í þennan sjóð. Tilgangur sjóðsins er að styrkja landslið Islands í hárgreiðslu og hárskurði til þátttöku í næstu heimsmeistarakeppni sem haldin verður í Tókýó í Japan í október nk. Eftir síðustu hárlitunarkeppni sem haldin var í janúar sl. afhenti Halldór Jónsson hf. Sambandi Hárgreiðslu og hárskerameistara andvirði sjóðsins til ráðstöfunar eða alls um 800.000 krónur. lyndstækkarinn, sem Hans Petersen í Kringlunni hefur tekið í notk- Hans Petersen: Myndstækkari í Kringluimi HANS Petersen hf. í Kringlunni kynnir nú nýjung á ljósmyndamark- aðinum. Um er að ræða myndstækkara, sem viðskiptavinir hafa fullkomna stjórn á. í myndstækkaranum sameinast hefðbundin ljós- myndatækni og nútímarafeindatækni. Til þess að útbúa stækkun, setur viðkiptavinurinn bút með framkall- aðri filmu í rauf á myndstækkaran- um. Hann les af fílmunni fílmuteg- und, lýsingu og stillir sig samkvæmt því. Myndin birtist á sjónvarpsskjá og með stjórnhnöppum ræður við- skiptavinurinn, hvort hann hafi stækkunina lárétta eða lóðrétta, eða stækkar ákveðinn hluta myndarinn- ar allt að 17 sinnum. Hægt er að velja myndstærðir 13x18 til 28x35 sm. Þegar allt hefur verið valið er einfaldlega stutt á hnapp og stækk- unin verður tilbúin innan 5 mínútna. Síðasta sýning á M. Butterfly á fimmtudag SÝNINGUM á verðlaunaleikritinu M. Butterfly eftir David Henry Hwang, sem sýnt hefur verið á Stóra sviði Þjóðleikhússins, lýkur á fimmtudag. Leikritið sem er byggt á frétt úr heimspressunni sem vakti furðu almcnnings fyrir örfáum árum, hefur hvarvetna vakið mikla athygli. Nú hefur verið ákveðið að gera kvikmynd eftir leikritinu með Jeremy Irons í aðalhlutverki. Hwang er af austurlensku bergi brotinn og í leiknum nýtir hann sér þekkingu sína á austrænum menn- ingarheimu,m eða öllu heldur skiln- ing á fordómum Vesturlandabúa í garð austrænna kvenna, og varpar þannig ljósi á þetta dæmalausa ást- arsamband. Með aðalhlutverk á sýningunni fara Amar Jónsson og Þór Tulinius. Þeir hafa fengið góða dóma fyrir túlkun sína, sýningin þykir fallega og fagmannlega unnin af Þórhildi Þorleifsdóttur leikstjóra og dansar- arnir hafa fengið lof fyrir frábæra Arnar Jónsson í hlutverki sínu í M. Butterfly. frammistöðu en það var Unnur Guð- jónsdóttir sem stjórnaði kínversku dönsunum. Leikmynd gerði Magnús Pálsson myndlistarmaður og bún- inga Helga Rún Pálsdóttir en þau starfa bæði í Bretlandi um þessar mundir. Lýsingu annaðist Björn B. Guðmundsson en þýðandi verksins er Sverrir Hólmarsson. (Úr fréttatilkyiuiingu.) Ábendingar frá LÖGREGLUNNI: Fíkniefnasalinn deyr ekki í ræsinu Lögreglan hefur látið gera veggspjald sem ber yfirskriftina — FÍKNIEFNASALINN DEYR EKKI I RÆSINU. Tilgangur vegg- spjaldsins er að vekja athygli á símsvara fíkniefnadeildar lögreglunn- ar - 609090 - um leið og fólk er hvatt til þess að hafa samband ef það hefur einhVeijar upplýsingar um innflutning eða sölu fíkniefna. Fólki sem hringir í símsvarann er heitið nafnleynd og að með allar upplýsingar verði farið sem trúnaðarmál. Markmiðið með veggspjaldinu er einnig að vekja almenning til umhugsunar um að það eigi að þykja sjálfsagt að fólk gefi lögregl- unni upplýsingar um innflutning, dreifíngu og neyslu fíkniefna og gera þannig þeim hlutfallslega fáu einstaklingum, sem þá iðju stunda, eins erfitt fyrir og nokkur er kostur. Með því getur fólk lagt sitt af mörkum til þess að hjálpa lögreglunni við að uppræta þessa ólöglegu starfsemi, sem sýnt er að hefur jafn hrikalegar af- leiðingar í för með sér og raun ber vitni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.