Morgunblaðið - 19.02.1992, Page 39

Morgunblaðið - 19.02.1992, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1992 39 LYFJAMAL Framkvæmdastjóri Krabbe krefst hárra skaðabóta dómstólar komist að því að sekt Krabbe og stalla hennar sé ekki fullsönnuð geta þær sjálfkrafa hafið keppni á nýjan leik. Beðið er með nokkurri eftir- væntingu viðbragða frá Nike íþróttavöruframleiðandanum, en fyrirtækið er stærsti styrktaraðili Katrínar Krabbe og reyndar hafði nafni félagsins, sem Krabbe hleypur fyrir í Neubrandenburg, verið breytt í FC Nike Neubrand- enburg. Vitað er að Nike hefur reynda lögfræðinga á sviðum lyfjamála á sínum snærum, en enn er ekki vitað hvort þeim verður teflt fram. Jos Hermens, framkvæmdastjóri þýsku hlaupadrottningarinnar Katrínar Krabbe, hótaði í gær að fara fram á um 360 milljónir ÍSK í skaðabætur vegna þess að Krabbe var dæmd í fjögurra ára keppnisbann fyrir meinta mis- notkun lyfja og hugsanlegra samningsriftana. Einn af fjórum helstu styrktaraðilum hlaupa-. drottningarinnar sagði í gær upp tveggja ára samningi við hana, sem hefði fært henni tugi milljóna ÍSK. Hermens sagði við Bild að hann væri tilbúinn í löng réttarhöld og virtur lögfræðingur hefði- verið ráðinn til að hreinsa mannorð Krabbe. „Við sækjum málið fyrir rétti og leggjum fram gögn, sem fá þýska fijálsíþróttasambandið til að hugsa sig tvisvar um. Ef styrktaraðilar rifta samningum við Krabbe förum við fram á 10 milljónir marka (um 360 millj. ÍSK) í skaðabætur." Skömmu síðar tilkynnti fyrir- tækið Isostar að það hefði rift tveggja ára samnjngi við Krabbe upp á tugi millj. ÍSK. Þýska þingið hefur fjallað um málið í sérstakri rannsóknamefnd og líklegast kemur tillaga frá henni um að lyfjamisnotkun íþróttamanna verði gerð refsiverð samkvæmt almennum hegningar- lögum. Þannig yrði refsivert að neita ólöglegra lyfja, en einnig að hafa þau undir höndum, dreifa eða selja. En þinmenn eru ekki á einu máli um hvemig þingið eigi að bregðast við — sumir vilja taka á því en aðrir segja það málefni íþróttahreyfingarinnar. Að öllum líkindum hefur málið þau áhrif að lyijaeflirlit verður enn hert og núverandi stjórn þýska fijálsíþróttasambandsins hefur beðið vemlega hnekki. Tals- menn þess hafa haldið því fram að sambandið væri að hreinsa fijálsíþróttir af lyfjum, en nú hef- ur hið gagnstæða komið í ljós. Háttsettir starfsmenn hafa hylmt yfir með íþróttamönnum og fyrir liggur að áframhaidandi stjómar- seta slikra manna fer varla saman við hert lyfjaeftirlit. Enn hefur ekki komið fram með hvaða hætti Krabbe, Möller og Breuer reyndu að svindla á lyfjaprófinu né heldur hefur sann- ast á þær notkun ólöglegi-a lyfja, en niðurstöður lyfjaprófs frá 5. febrúar hafa enn ekki verið gerð- ar opinberar. Bannið er því í raun ákveðið á gmnni fjölmargra óbeinna sannana. Fari svo að ÓLYMPIULEIKARNIR I FRAKKLANDI Skipting verðlauna Verðlaun hafa skipst sem hér segir til þessa á Ólympíuleikunum i Frakk- landi, gull, siifur og brons: Þýskaland...................9 8 6 Noregur.....................7 5 4 SSR.........................7 4 6 Austurríki..................4 6 7 Frakkland...................3 5 1 Italia...........,.........3 4 3 Bandarikin..................3 2 1 Finnland....................3 1 3 Japan.......................1 1 3 Kanada......................1 0 1 Sviss.......................1 0 1 Kína........................0 2 0 Lúxemborg...................0 2 0 Holland.....................0 1 2 Suður-Kórea.................0 1 0 Tékkóslóvakía..............0 0 2 Svíþjóð.....................0 0 2 ídag Dagskrá Vetrarólympíuleikanna í Al- bertville í dag: 09.00 - Fyrri umferð í stórsvigi kvenna 13.00 - Síðari umferð í stórsvigi kvenna 13.00 - 15 km skíðaskotfimi kvenna 18.30 - Listhlaup kvenna, skylduæf- ingar Íshokkí: 12.00 - Sviss - Pólland 16.00 - Samveldið - Finnland 20.00 - Svíþjóð - Tékkósl. Veðurútlit: Logn og sólskin og tölu- vert frost. Alberto Tomba kom, sá og sigraði. Tomba á spjöld sögunnar ALBERTO Tomba lætur ekki að sér hæða. Þessi frábæri ít- alski skíðamaður skráði nafn sitt á spjöld sögunnar í Val d'is- ere í Frakklandi í gær er hann sigraði í stórsvigi á Ólympíu- leikunum og varð þar með fyrsti alpagreinamaðurinn til að verja Ólympíutitil. Tomba sigraði bæði í svigi og stórsvigi í Calgary fyrir fjórum árum. Ólympíugull hans eru því orðin þrjú, en aðeins tveir gátu stát- að af þvi á undan honum: Frakkinn Jean-Claude Killy og Tony Seilerfrá Austurríki, sem báðir gerðu garðinn frægan á árum áður. Og ekki er ólíklegt að Tomba bæti fjórða Ólympíu- gullinu í safn sitt á laugardag, því hann er auðvitað talinn lang sigurstranglegastur í sviginu, sem þá fer fram. agurinn í gær var svo sannar- legur dagur ítala því landa Tomba, Deborah Compagnoni, sigr- aði í risasvigi kvenna, tveimur klukkustundum áður en hann stóð upp sigurvegari í stórsviginu, eins og kemur fram hér annars taðar á opnunni. Tomba var veitt hörð keppni í gær. Hann náði besta tíma i fyrri ferðinni og eins og lög gera ráð fyrir fóru þeir, sem næstir komu eftir fyrri ferð, á undan honum í þeirri seinni. Norðmaðurinn Kjetil Andre Aamodt var þriðji eftir fyrri ferð og náði besta tíma er hann fór öðru sinni. „Landslið Lúxemborg- ar“, Marc Girardelli, fór næstur á eftir honum og bætti um betur — fór reyndar listavel niður brautina og aðdáendum Tomba var ekki far- ið að lítast á blikuna. En meistarinn lét spennuna ekki hafa áhrif á sig, renndi sér af miklu öryggi og sigr- aði glæsilega. Tími hans var 32 sekúndubrotum betri en Girardellis. Hann fékk reyndar lakari millitíma í efra hluta brautarinnar en tryggði sér gullið með glæsilegri frammi- stöðu í neðri hlutanum. „Sigur Compagnoni hafði mjög góð áhrif á mig,“ sagði Tomba sigri hrósandi þegar úrslítin lágu fyrir. „Þetta er stórkostleg stund og óvenjuleg. Ég hef lagt svo mikið á mig — ég get ekki lýst því hve vel mér líður,“ sagði Tomba. „Ég reyndi að skíða af harðfylgi [í seinni ferðinni]. Ég vissi ekki að Girardelli hefði forystu, en vissi þó að Aamodt hefði gengið vel,“ sagði hann. „Ég einbeitti mér mjög vel. Ég stóð mig ekki nógu vel í efri hluta brautarinnar, en náði síðan að leysa mikinn kraft úr læðingi í neðri hlutanum. Ég var gjörsam- lega útkeyrður þegar ég kom í markið. Það var ótrúleg stund,“ sagði Tomba. Girardelli varð annar og Norð- maðurinn Aamodt, sem vann fyrstu gullverðlaun Norðmanna í alpa- greinum í 40 ár með sigri í risasvig- inu í síðustu viku, varð þriðji. Svisslendingurinn Paul Accola, sem hefur forystu í samanlagðri stigakeppni heimsbikarkeppninnar, missti enn einu sinni af verðlauna- sæti. Hann varð ijórði — aðeins 20 sekúndubrotum á eftir Aamodt. Hann var þó ekki óánægður: „Fjórða sæti án þess að hafa æft stórsvig í tvær vikur er frábært. Ég er þó vonsvikinn að hafa komist svo nálægt verðlaunapallinum, en nú er ég vel undirbúinn andlega fyrir svigið." Samanlagður Tomba úr ferðun- um tveimur voru tvær mínútur 6,98 sekúndur. Girardelli kom svo 0,32 sek. á eftir og Aamodt var 0,84 sek. á eftir ítalanum. Girardelli sagðist hafa stefnt að gullinu og var því ekki hæstánægð- ur, þrátt fyrir að hafa fengið silfr- ið, en Aamodt var aftur á móti í sjöunda himni. Þessi tvítugi Norð- maður sagði: „Að verða þriðji í dag var gulls ígildi.“ Vinur Tomba til rakarans Vinur Albertos Tomba verður að láta krúnuraka sig. Hann veðjaði við Tomba að hann myndi ekki vinna gull á Ólympíuleikunum og samþykkti að láta krúnuraka sig ef hann ynni. Tomba vann gull- verðl^unin í stórsvigi karla í gær og getur haldið Rolex-úrinu sem vinunhn hefði fengið ef Tomba hefði snúið gulllaus af leikunum. Tomba lét ekki sjá sig í Val d’Isere, þar sem karlakeppnirnar í alpa- greinum eru haldnar, fyrr en í fyrradag. „Héðan í frá sigra hinir bestu,“ sagði hann við komuna. „Ég er mættur!“ toúm FOLK ■ ÁSGEIR Elíasson, landsliðs- þjálfari íslands í knattspyrnu, og Eggert Magnússon, formaður KSI, verða á Wembley í kvöld, þegar Englendingar taka á móti Frökkum. ■ GARY Lineker, fyrirliði enskS landsliðsins, leikur ekki með í kvöld. Lineker verður þó með Englend- ingum í EM í Svíþjóð. Lineker hefur leikið 71 landsleik og þarf hann ekki að skora nema fjögur mörk til að slá met Bobby Charl- ton, sem skoraði 49 mörk. ■ FRAKKAR leika sinn fyrsta leik á Wembley í 23 ár, en síðast töpuðu þeir, 0:5, Wembley. Frakk- ar hafa leikið 19 leiki í röð án taps. ■ ENSKA landsliðið hefur aðeins tapað einum leik undir stjórn Gra- ham Taylor, síðan hann tók við landsliðinu fyrir átján mánuðum. ■ ■ ALAN Sherer, miðheiji Sout- hampton og David Hirst, Sheff^ Wed., verða í fremstu víglínir Martin Keown, Everton og Rob Jones, Liverpool, leiks sinn fyrsta landsleik eins og Shearer. ■ NEIL Webb, Man. United og Nigel Clough, Nott. Forest, hafa verið kallaðir á ný í enska landslið- ið. ÚRSLIT Badminton HM landsliða Karlalandslið íslands vann Belgíu, 5:0, f heimsmeistarakeppni landsliða í badminton í Hollandi í gær. Broddi Kristjánsson, Ámi Þór Hallgrímsson og Jón P. Zimsen unnu í einliðaleik, Broddi/Ámi Þór og Jón Þorsteinn P. Hængsson unnu í tvíliðaleik. Kvennalandsliðið tapaði, 1:4, fyrir Sviss. Ásta Pálsdóttir og Þórdís Edwald unnu leik sinn gegn Bettie Villars og Yvonne Naef f tvfliðaleik, 15:8, 9:15, 15:8. Körfuknattlefkur NBA-deildin Mánudagun New York - Miami Heat....,.....104:102 Indian Pacers - Charlotte......128:117 Atlanta Hawks - Washington......117:110 Cleveland - Chicago Bulls.......113:112 Minnesotá - Houston Rockets.....124:122 HEftir framlengingu Utah Jazs - Boston Celtics.......88:83 Seattle - Phoenix Suns...........98:líjp; Golden State - LA Lakers.......116:100 LA Clippers - San Antonio Spurs.124:110 Tkvöíd Handknattleikur 1. deild karla: Digranes: HK - KA..............20 Höll: Fram - UBK...............20 Seltjn.: Grótta - FH...........20 Valsh.: Valur - Haukar.........20 Vestm.: ÍBV - Selfoss..........20 Víkin: Víkingur - Stjaman......20

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.