Morgunblaðið - 19.02.1992, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1992
39
LYFJAMAL
Framkvæmdastjóri Krabbe
krefst hárra skaðabóta
dómstólar komist að því að sekt
Krabbe og stalla hennar sé ekki
fullsönnuð geta þær sjálfkrafa
hafið keppni á nýjan leik.
Beðið er með nokkurri eftir-
væntingu viðbragða frá Nike
íþróttavöruframleiðandanum, en
fyrirtækið er stærsti styrktaraðili
Katrínar Krabbe og reyndar hafði
nafni félagsins, sem Krabbe
hleypur fyrir í Neubrandenburg,
verið breytt í FC Nike Neubrand-
enburg. Vitað er að Nike hefur
reynda lögfræðinga á sviðum
lyfjamála á sínum snærum, en enn
er ekki vitað hvort þeim verður
teflt fram.
Jos Hermens, framkvæmdastjóri
þýsku hlaupadrottningarinnar
Katrínar Krabbe, hótaði í gær að
fara fram á um 360 milljónir ÍSK
í skaðabætur vegna þess að
Krabbe var dæmd í fjögurra ára
keppnisbann fyrir meinta mis-
notkun lyfja og hugsanlegra
samningsriftana. Einn af fjórum
helstu styrktaraðilum hlaupa-.
drottningarinnar sagði í gær upp
tveggja ára samningi við hana,
sem hefði fært henni tugi milljóna
ÍSK.
Hermens sagði við Bild að hann
væri tilbúinn í löng réttarhöld og
virtur lögfræðingur hefði- verið
ráðinn til að hreinsa mannorð
Krabbe. „Við sækjum málið fyrir
rétti og leggjum fram gögn, sem
fá þýska fijálsíþróttasambandið
til að hugsa sig tvisvar um. Ef
styrktaraðilar rifta samningum
við Krabbe förum við fram á 10
milljónir marka (um 360 millj.
ÍSK) í skaðabætur."
Skömmu síðar tilkynnti fyrir-
tækið Isostar að það hefði rift
tveggja ára samnjngi við Krabbe
upp á tugi millj. ÍSK.
Þýska þingið hefur fjallað um
málið í sérstakri rannsóknamefnd
og líklegast kemur tillaga frá
henni um að lyfjamisnotkun
íþróttamanna verði gerð refsiverð
samkvæmt almennum hegningar-
lögum. Þannig yrði refsivert að
neita ólöglegra lyfja, en einnig
að hafa þau undir höndum, dreifa
eða selja. En þinmenn eru ekki á
einu máli um hvemig þingið eigi
að bregðast við — sumir vilja taka
á því en aðrir segja það málefni
íþróttahreyfingarinnar.
Að öllum líkindum hefur málið
þau áhrif að lyijaeflirlit verður
enn hert og núverandi stjórn
þýska fijálsíþróttasambandsins
hefur beðið vemlega hnekki. Tals-
menn þess hafa haldið því fram
að sambandið væri að hreinsa
fijálsíþróttir af lyfjum, en nú hef-
ur hið gagnstæða komið í ljós.
Háttsettir starfsmenn hafa hylmt
yfir með íþróttamönnum og fyrir
liggur að áframhaidandi stjómar-
seta slikra manna fer varla saman
við hert lyfjaeftirlit.
Enn hefur ekki komið fram
með hvaða hætti Krabbe, Möller
og Breuer reyndu að svindla á
lyfjaprófinu né heldur hefur sann-
ast á þær notkun ólöglegi-a lyfja,
en niðurstöður lyfjaprófs frá 5.
febrúar hafa enn ekki verið gerð-
ar opinberar. Bannið er því í raun
ákveðið á gmnni fjölmargra
óbeinna sannana. Fari svo að
ÓLYMPIULEIKARNIR I FRAKKLANDI
Skipting verðlauna
Verðlaun hafa skipst sem hér segir
til þessa á Ólympíuleikunum i Frakk-
landi, gull, siifur og brons:
Þýskaland...................9 8 6
Noregur.....................7 5 4
SSR.........................7 4 6
Austurríki..................4 6 7
Frakkland...................3 5 1
Italia...........,.........3 4 3
Bandarikin..................3 2 1
Finnland....................3 1 3
Japan.......................1 1 3
Kanada......................1 0 1
Sviss.......................1 0 1
Kína........................0 2 0
Lúxemborg...................0 2 0
Holland.....................0 1 2
Suður-Kórea.................0 1 0
Tékkóslóvakía..............0 0 2
Svíþjóð.....................0 0 2
ídag
Dagskrá Vetrarólympíuleikanna í Al-
bertville í dag:
09.00 - Fyrri umferð í stórsvigi
kvenna
13.00 - Síðari umferð í stórsvigi
kvenna
13.00 - 15 km skíðaskotfimi kvenna
18.30 - Listhlaup kvenna, skylduæf-
ingar
Íshokkí:
12.00 - Sviss - Pólland
16.00 - Samveldið - Finnland
20.00 - Svíþjóð - Tékkósl.
Veðurútlit: Logn og sólskin og tölu-
vert frost.
Alberto Tomba kom, sá og sigraði.
Tomba á spjöld sögunnar
ALBERTO Tomba lætur ekki
að sér hæða. Þessi frábæri ít-
alski skíðamaður skráði nafn
sitt á spjöld sögunnar í Val d'is-
ere í Frakklandi í gær er hann
sigraði í stórsvigi á Ólympíu-
leikunum og varð þar með
fyrsti alpagreinamaðurinn til
að verja Ólympíutitil. Tomba
sigraði bæði í svigi og stórsvigi
í Calgary fyrir fjórum árum.
Ólympíugull hans eru því orðin
þrjú, en aðeins tveir gátu stát-
að af þvi á undan honum:
Frakkinn Jean-Claude Killy og
Tony Seilerfrá Austurríki, sem
báðir gerðu garðinn frægan á
árum áður. Og ekki er ólíklegt
að Tomba bæti fjórða Ólympíu-
gullinu í safn sitt á laugardag,
því hann er auðvitað talinn lang
sigurstranglegastur í sviginu,
sem þá fer fram.
agurinn í gær var svo sannar-
legur dagur ítala því landa
Tomba, Deborah Compagnoni, sigr-
aði í risasvigi kvenna, tveimur
klukkustundum áður en hann stóð
upp sigurvegari í stórsviginu, eins
og kemur fram hér annars taðar á
opnunni.
Tomba var veitt hörð keppni í
gær. Hann náði besta tíma i fyrri
ferðinni og eins og lög gera ráð
fyrir fóru þeir, sem næstir komu
eftir fyrri ferð, á undan honum í
þeirri seinni. Norðmaðurinn Kjetil
Andre Aamodt var þriðji eftir fyrri
ferð og náði besta tíma er hann fór
öðru sinni. „Landslið Lúxemborg-
ar“, Marc Girardelli, fór næstur á
eftir honum og bætti um betur —
fór reyndar listavel niður brautina
og aðdáendum Tomba var ekki far-
ið að lítast á blikuna. En meistarinn
lét spennuna ekki hafa áhrif á sig,
renndi sér af miklu öryggi og sigr-
aði glæsilega. Tími hans var 32
sekúndubrotum betri en Girardellis.
Hann fékk reyndar lakari millitíma
í efra hluta brautarinnar en tryggði
sér gullið með glæsilegri frammi-
stöðu í neðri hlutanum.
„Sigur Compagnoni hafði mjög
góð áhrif á mig,“ sagði Tomba sigri
hrósandi þegar úrslítin lágu fyrir.
„Þetta er stórkostleg stund og
óvenjuleg. Ég hef lagt svo mikið á
mig — ég get ekki lýst því hve vel
mér líður,“ sagði Tomba.
„Ég reyndi að skíða af harðfylgi
[í seinni ferðinni]. Ég vissi ekki að
Girardelli hefði forystu, en vissi þó
að Aamodt hefði gengið vel,“ sagði
hann. „Ég einbeitti mér mjög vel.
Ég stóð mig ekki nógu vel í efri
hluta brautarinnar, en náði síðan
að leysa mikinn kraft úr læðingi í
neðri hlutanum. Ég var gjörsam-
lega útkeyrður þegar ég kom í
markið. Það var ótrúleg stund,“
sagði Tomba.
Girardelli varð annar og Norð-
maðurinn Aamodt, sem vann fyrstu
gullverðlaun Norðmanna í alpa-
greinum í 40 ár með sigri í risasvig-
inu í síðustu viku, varð þriðji.
Svisslendingurinn Paul Accola,
sem hefur forystu í samanlagðri
stigakeppni heimsbikarkeppninnar,
missti enn einu sinni af verðlauna-
sæti. Hann varð ijórði — aðeins 20
sekúndubrotum á eftir Aamodt.
Hann var þó ekki óánægður:
„Fjórða sæti án þess að hafa æft
stórsvig í tvær vikur er frábært.
Ég er þó vonsvikinn að hafa komist
svo nálægt verðlaunapallinum, en
nú er ég vel undirbúinn andlega
fyrir svigið."
Samanlagður Tomba úr ferðun-
um tveimur voru tvær mínútur 6,98
sekúndur. Girardelli kom svo 0,32
sek. á eftir og Aamodt var 0,84
sek. á eftir ítalanum.
Girardelli sagðist hafa stefnt að
gullinu og var því ekki hæstánægð-
ur, þrátt fyrir að hafa fengið silfr-
ið, en Aamodt var aftur á móti í
sjöunda himni. Þessi tvítugi Norð-
maður sagði: „Að verða þriðji í dag
var gulls ígildi.“
Vinur Tomba til rakarans
Vinur Albertos Tomba verður að láta krúnuraka sig. Hann veðjaði
við Tomba að hann myndi ekki vinna gull á Ólympíuleikunum
og samþykkti að láta krúnuraka sig ef hann ynni. Tomba vann gull-
verðl^unin í stórsvigi karla í gær og getur haldið Rolex-úrinu sem
vinunhn hefði fengið ef Tomba hefði snúið gulllaus af leikunum.
Tomba lét ekki sjá sig í Val d’Isere, þar sem karlakeppnirnar í alpa-
greinum eru haldnar, fyrr en í fyrradag. „Héðan í frá sigra hinir
bestu,“ sagði hann við komuna. „Ég er mættur!“
toúm
FOLK
■ ÁSGEIR Elíasson, landsliðs-
þjálfari íslands í knattspyrnu, og
Eggert Magnússon, formaður
KSI, verða á Wembley í kvöld,
þegar Englendingar taka á móti
Frökkum.
■ GARY Lineker, fyrirliði enskS
landsliðsins, leikur ekki með í kvöld.
Lineker verður þó með Englend-
ingum í EM í Svíþjóð. Lineker
hefur leikið 71 landsleik og þarf
hann ekki að skora nema fjögur
mörk til að slá met Bobby Charl-
ton, sem skoraði 49 mörk.
■ FRAKKAR leika sinn fyrsta
leik á Wembley í 23 ár, en síðast
töpuðu þeir, 0:5, Wembley. Frakk-
ar hafa leikið 19 leiki í röð án taps.
■ ENSKA landsliðið hefur aðeins
tapað einum leik undir stjórn Gra-
ham Taylor, síðan hann tók við
landsliðinu fyrir átján mánuðum.
■ ■ ALAN Sherer, miðheiji Sout-
hampton og David Hirst, Sheff^
Wed., verða í fremstu víglínir
Martin Keown, Everton og Rob
Jones, Liverpool, leiks sinn fyrsta
landsleik eins og Shearer.
■ NEIL Webb, Man. United og
Nigel Clough, Nott. Forest, hafa
verið kallaðir á ný í enska landslið-
ið.
ÚRSLIT
Badminton
HM landsliða
Karlalandslið íslands vann Belgíu, 5:0, f
heimsmeistarakeppni landsliða í badminton
í Hollandi í gær. Broddi Kristjánsson, Ámi
Þór Hallgrímsson og Jón P. Zimsen unnu
í einliðaleik, Broddi/Ámi Þór og Jón
Þorsteinn P. Hængsson unnu í tvíliðaleik.
Kvennalandsliðið tapaði, 1:4, fyrir Sviss.
Ásta Pálsdóttir og Þórdís Edwald unnu leik
sinn gegn Bettie Villars og Yvonne Naef f
tvfliðaleik, 15:8, 9:15, 15:8.
Körfuknattlefkur
NBA-deildin
Mánudagun
New York - Miami Heat....,.....104:102
Indian Pacers - Charlotte......128:117
Atlanta Hawks - Washington......117:110
Cleveland - Chicago Bulls.......113:112
Minnesotá - Houston Rockets.....124:122
HEftir framlengingu
Utah Jazs - Boston Celtics.......88:83
Seattle - Phoenix Suns...........98:líjp;
Golden State - LA Lakers.......116:100
LA Clippers - San Antonio Spurs.124:110
Tkvöíd
Handknattleikur
1. deild karla:
Digranes: HK - KA..............20
Höll: Fram - UBK...............20
Seltjn.: Grótta - FH...........20
Valsh.: Valur - Haukar.........20
Vestm.: ÍBV - Selfoss..........20
Víkin: Víkingur - Stjaman......20