Morgunblaðið - 17.03.1992, Side 4
:p jauic .u a jUÁi'-Kimúhi mmuýmjútítm___
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1992
9SöyS55Sar=~í»3=a
Morgunblaðið/Hafl)6r Ferdinandsson
Tjölduðu í brunagaddi á Þingvöllum
Fjórir Bretar hafa verið á ferð um landið undan-
fama daga til að taka myndir af landinu í vetrarbún-
ingi. Tveir mannanna, Richard Sale og Tony Oliver,
hafa skrifað bók um þjóðir á norðurhveli og skrif-
uðu þeir um ísland í bókinni. Fjórmenningamir voru
fyrstu gestir tjaldstæðisins í Laugardal á þessu ári
og um helgina tjölduðu þeir á Þingvöllum og gistu
næturlangt. Þeir létu það ekkert á sig fá þótt frost-
ið væri 18 stiga enda hafa þeir félagar tjaldað í 40
stiga frosti í Síberíu.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 17. MARZ
YFIRLIT: Yfir Grænlandshafi er 960 mb djúp og víðáttumikil lægð sem
þokast norðaustur. Heldur kólnar í veðri.
SPA: Hæg norðlæg átt og dálítil él við norðurströndina, en annars að
mestu þurrt. Jafnvel nokkuð bjart veður um landið sunnanvert. Hiti 2-5
stig að deginum sunnantil, en annars vægt frost.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Hæg norðlæg átt og dálítil él á Norður- og
Norðausturlandi, en að mestu þurrt í öðrum landshlutum og víða bjart
á Suður- og Suðausturlandi. Hiti um eða undir frostmarki.
HORFUR A FIMMTUDAG: Hæg breytileg átt og víðast þurrt framan
af degi, en suðaustanátt og slydda meö snjókomu siðla dags sunnan-
lands og vestan. Vægt frost norðanlands, en syðra hlánar.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
o
Heiðskírt
r
a
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
/ /
/ /
/ / /
Rigning
* / *
* /
/ * /
Slydda
♦ * ♦
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjað
v ý ý
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörín sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.(
10° Hitastig
y súid
= Þoka
stig..
FÆRÐA VEGUM:
(Kl. 17.30ígær)
Greiðfært er um vegi i nágrenni Reykjavíkur, um Suðurnes og Mosfells-
heiði svo og austur um Hellisheiði og Þrengsli um Suðurland og með
Suðurströndinni til Austfjarða. Á Austfjörðum er ágæt færð nema um
Breiðdalsheiði og Vatnsskarð eystra. Agæt færð er fyrir Hvalfjörð um
Borgarfjörð, vestur um Snæfellsnes og um Dalí tíl Reykhóla. Bratta-
brekka er ófær. Fært er frá Brjánslæk til Patreksfjarðar og þaðan til
Bíldudals. Frá ísafiröi er fært til Bolungan/íkur og ísafjarðardjúp, einnig
er fært frá ísafirði til Súgandafjarðar og Þingeyrar. Greiðfært er norður
yfir Holtavörðuheiði, norður til Hómavíkur og Drangsness en Steingríms-
fjarðarheiði er ófær. Þá er greiðfært um allt Norðurland og með strönd-
inni til Vopnafjarðar. Möðrudalsöræfi eru fær jeppum. Mjög víða um
land er talsverö hálka á vegum.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 i gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavik hlti 6 3 veður skýjað haglél
Bergen +1 snjókoma
Holslnki 2 skýjað
Kaupmannahöfn S léttskýjað
Narssarssuðq +2 slydda
Nuuk +6 alskýjaö
Ósló 3 skýjað
Stokkhólmur S léttskýjað
Þdrshöfn S rigning
Algarve 20 heiðskírt
Amsterdam 7 léttskýjað
Barcelona 16 léttskýjað
Berlín s haglél
Chicago +4 heiðskírt
Feneyjar vantar
Frankfurt 7 skýjað
Glasgow 12 skýjað
Hamborg S skýjað
London 13 aiskýjað
LosAngeles 12 alskýjað
Lúxemborg S léttskýjað
Madrfd 18 mistur
Malaga 19 léttskýjað
Maliorca 18 léttskýjað
MontreaF +16 heiðskírt
NewYork +7 léttskýjað
Orlando 13 heiðskírt
Parfs 8 skýjað
Madeira 16 alskýjað
Róm 16 léttskýjað
Vin 3 snjóél
Washlngton +6 léttskýjað
Winnipeg ■f6 heiðskírt
Grunnskólar Reykjavíkur:
__
Innritun sex ára
barna að hefjast
1.400 nemendur hefja nám í haust
INNRITUN sex ára nemenda og grunnskólanemenda sem flytja
milli skóla næsta vetur, stendur yfir dagana 17. og 18. mars næstkom-
andi og fer innritunin fram í grunnskólum borgarinnar. Samkvæmt
íbúaskrá Reykjavíkur hefja um 1.400 börn skólagöngu í haust í 27
grunnskólum.
Að sögn Ragnars Júlíussonar
forstöðumanns kennslumáladeildar,
er mjög brýnt að nemendur innrit-
ist þessa daga, þar sem árleg skipu-
lagning og undirbúningsvinna
stendur fyrir dyrum í skólunum, svo
sem ákvörðun um fj'ölda bekkjar-
deilda og ráðning kennara.
Innritun barna, sem fædd eru á
árinu 1986, fer fram milli klukkan
15 og 17 báða dagana. Innritun
bama og unglinga sem flytja milli
skóla fer fram á Skólaskrifstofu
Reykjavíkur, Tjamargötu 12, milli
klukkan 10 og 15, báða dagana.
Er átt við þá nemendur sem munu
flytjast til Reykjavíkur eða burt úr
borginni næsta skólaár. Einnig þá
sem koma úr einkaskólum, skóla
Isaks Jónssonar eða Landakots-
skóla og þá grunnskólanemendur
sem skipta um skóla vegna breyt-
inga á búsetu innan borgarinnar.
Þrotabú Islenska stálfélagsins:
Fyrirtæki í fimm löndum
sýna áhuga á kaupum
FYRIRTÆKI í fimm löndum sýna nú alvarlegan áhuga á að kaupa
verksmiðju þrotabús íslenska stálfélagsins og segir Helgi Jóhannes-
son búsljóri vænta þess að tilboð fari að berast á næstu vikum. Þá
er hópur íslenskra aðila í sambandi við hin erlendu fyrirtæki um
þátttöku í kaupum verksmiðjunnar.
Þegar hafa komið fulltrúar fyrir- Helgi vildi ekki greina frá hvaða
tækja í Þýskalandi, Hollandi, Sví- fyrirtæki þetta væru en sagði að
g Italíu til að skoða verk- þau tengdust stáliðju éða stálvið-
þjóð og Ítalíu til að skoða verk-
smiðjubúnaðinn og í næstu viku eru
væntanlegir fulltrúar frá fyrirtæki
í Pakistan.
skiptum og þau hefðu öll áhuga á
að starfsrækja verksmiðjuna hér-
lendis í samstarfi við íslenska aðila.
Vogum.
HARÐUR árekstur tveggja bíla
varð á Reykjanesbraut á
Strandarheiði um hálf sexleytið
á sunnudaginn. Tveir slösuðust.
Ökumaður annarrar bifreiðar-
innar var fluttur á Borgarsjúkra-
húsið í Reykjavík og farþegi úr
hinni bifreiðinni var fluttur á
Heilsugæslustöð Suðurnesja í
Keflavík og fékk hann að fara
heim að lokinni læknisskoðun.
Báðir bílamir eru mikið skemmdir.
Um tveimur tímum áður varð
bílvelta á Reykjanesbraut skammt
vestan Vogavegar, en enginn
meiddist.
- E.G.
Helga Kr. Möller
bæjarfulltrúi látin
Helga Kristín Möller, bæjar-
fulltrúi í Garðabæ og kennari við
Digranesskóla í Kópavogi, lézt á
Landspítala 15. marz sl. eftir
erfið veikindi. Hún var 49 ára
að aldri.
Helga Kristín stundaði nám í
þýzku og frönsku við heimspeki-
deild Háskóla íslands og lauk kenn-
araprófí frá Kennaraskóla íslands
1968. Hún stundaði framhaldsnám
í skólasafnsfræðum í Danmörku og
sótti námskeið í ensku og stærð-
fræði í Bandaríkjunum. Hún var
kennari að ævistarfi, lengst af í
pigranesskóla, og var jafnframt
kennsluráðgjafi við Fræðsluskrif-
stofu Reykjanesumdæmis.
Helga' Kristín á að baki fjölþætt
félagsmálastarf á vegum Aiþýðu-
flokksins, Kvenréttindafélags Is-
lands, Reykjavíkurborgar og Garða-
bæjar. Hún var bæjarfulltrúi í
Garðabæ frá 1986 til dánardægurs.
Varaborgarfulltrúi í Reykjavík var
hún árin 1978-80 og sat þá m.a.
í fræðsluráði Reykjavíkur og stjórn
Borgarbókasafnsins. Hún var kjörin
í menntamálaráð árið 1991. Hefur
setið í flokksráði Alþýðuflokksins
síðan 1986, verið formaður sveitar-
stjómarráðs flokksins síðan 1990
og sat um árabil í í stjórn Alþýðu-
flokksfélags Garðabæjar og var for-
Helga Kristín Möller
maður þess 1983-84.
Helga Kristín Möller fæddist 30.
október 1942. Foreldrar hennar eru
Helena Sigtryggsdóttir og Jóhann
G. Möller, fyrrv. bæjarfulltrúi á
Siglufirði. Eftirlifandi eiginmaður
hennar er Karl Hariý Sigurðsson,
aðstoðarútibússtj óri hjá íslands-
banka. Dætur þeirra eru Helena
Þuríður, laganemi, og Hanna Lillý,
nemi.
Arekstur og bflvelta
á Reykjanesbraut