Morgunblaðið - 17.03.1992, Qupperneq 15
15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1992
en gæðin hvað kemur fyrir augu
og eyru fjölmiðlanotenda.“_
Ennfremur segir Lárus Ýmir um
Menningarsjóðinn: „Þá datt ein-
hveijum það glapræði í hug að láta
greiða hluta af kostnaði við Sinfó-
níuhljómsveit íslands úr honum.“
Einn kvikmyndaleikstjórinn enn,
Eiríkur Thorsteinsson, ritaði langa
grein í Morgunblaðið 7. þessa mán-
aðar:
Hann segir meðal annars:
„Menningarsjóður útvarpsstöðva
var settur á stofn árið 1985 að
frumkvæði Félags kvikmyndagerð-
armanna. Sjóðurinn var hugsaður
sem mótvægi við mjög aukið erlent
sjónvarpsefni (tilkoma Stöðvar 2
var þá á næsta leiti) ein einnig sem
mótvægi við óeðlilega hutdeild sjón-
varpsins í framleiðslu á innlendu
dagskrárefni."
Hvergi örlar á þessu viðhorfí í
umræðu alþingismanna um Menn-
ingarsjóðinn enda er þessi fullyrð-
ing út í hött. Enginn hefur fyrr
lýst því viðhorfi að hlutdeild Sjón-
varpsins í framleiðslu innlends dag-
skrárefnis sé óeðlilega mikil.
Öllu þessu má í stuttu máli svara
þannig, að Menningarsjóði útvarps-
stöðva var aldrei ætlað að þjóna
Félagi kvikmyndagerðarmanna eða
vera þess sjóður. Þessu til staðfest-
ingar er vísað til 11. gr. útvarps-
laga um heimildir stjórnar sjóðsins
til úthlutunar.
IV.
í Morgunblaðinu 7. febrúar sl.
var vitnað í menntamálaráðherra,
Ólaf G. Einarsson. Þar sagðist ráð-
herra hafa greitt núgildandi út-
varpslögum atkvæði á sínum tíma,
þótt hann væri ekki meðmæltur
ákvæðum um sjóðinn, til þess að
hægt væri að afgreiða lögin. Ráð-
herra kvaðst vera að koma á fót
nefnd til þess að endurskoða út-
varpslögin og myndi hún m.a. end-
urskoða ákvæði laga Menningar-
sjóðsins. Þá sagði menntamálaráð-
herra að sér þætti núgildandi
ákvæði sjóðsins ekki eðlileg og til
greina kæmi að leggja hann niður.
I framhaldi af því þyrfti þó að kom-
ast að því hvemig Sinfóníuhljóm-
sveitin yrði Qármögnuð, þar sem
25% af rekstrarfé hennar kæmi úr
menningarsjóðnum.
Rekstur Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands verður að tryggja með öðrum
hætti en skattlagningu á auglýsing-
ar. Sinfóníuhljómsveitin var um
þriggja áratuga skeið nánast í fóstri
hjá Ríkisútvarpinu sem enn hefur
sterkar taugar til hljómsveitarinn-
ar. Starfsemi hennar er ómetanleg-
ur og sjálfsagður hluti menningar-
lífs þjóðarinnar.
Eðlilegast væri þó að Ríkisút-
varpið hefði fijálsan samningsrétt
við hljómsveitina.
I umfjöllun um Menningarsjóð
útvarpsstöðva ber allt að sama
branni. Ef einhveijar vonir hafa
verið við hann bundnar liggur fyrir
að þær hafa brugðist eftir 6 ára
reynslu.
Að áliti yfirstjórnar Ríkisútvarps-
ins era markmiðin skýr, það er að
leggja höfuðáherslu á vandaða inn-
lenda dagskrárgerð og leitast við
að koma henni sómasamlega til
allra landsmanna.
Af framansögðu má ráða að bet-
ur myndi takast að rækja þetta
hlutverk ef skattheimta til Menn-
ingarsjóðs útvarpsstöðva legðist af.
Höfundar: Hörður Vilhjálmsson
er fjármálustjóri Ríkisútvarpsins
og Elfa Björk Gunnarsdóttir er
framkvæmdastjóri þess.
Úthlutað úr sjóðnum Þjóð-
hátíðargjöf Norðmanna
ÚTHLUTAÐ hefur verið styrkj-
um þessa árs úr sjóðnum Þjóðhá-
tíðargjöf Norðmanna. Norska
stórþingið samþykkti í tilefni ell-
efu alda afmælis Islandsbyggðar
1974 að færa íslendingum eina
milljón norskra króna að gjöf í
ferðasjóð. Samkvæmt skipulags-
skrá sjóðsins skal ráðstöfunar-
fénu, vaxtatekjum af höfustóln-
um, sem er varðveittur í Noregi,
varið til að styrkja hópferðir Is-
lendinga til Noregs.
Styrkir vora fyrst veittir úr sjóðn-
um 1976 og fór nú fram sextánda
úthlutun. Ráðstöfunarfé sjóðsins
var að þessu sinni 815.593 krónur.
Styrkumsóknir voru 49, en sam-
þykkt var að styrkja eftirtalda aðila:
Söngfélag Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrennis, 7. bekk
Sólvallaskóla á Selfossi, Starfs-
mannafélag Trésmiðjunnar Stíg-
andi hf., starfsmenn Bókasafns
Kópavogs, undirbúningshóp að
„Bréf er brú milli landa“, Hamra-
hlíðarkórinn, grunnskólanemendur
í norsku og Hjálparsveit skáta í
Reykjavík.
(Fréttatilkynning)
' I
FRÁBÆRT!
Fyrir þá sem gera kröfur!
Funahöfða 19, Reykjavík, sími 685680
UM URVAL AF DYNUM?
iu vali og með frágongi eftir þínu höfði. Hér eru nokkur dæmi um verð á óklæddum svampdýnum:
/QOkg/m*
Mjög mjúkur
svampur
„Eggjabakkadýna
Heilsuyfirdýna,
loftræstirog einangrar.
Einstökfjöðrun
i //
VERÐ VERÐ BREIDD VERÐ
7.371,- 75 cm 4.830,-
9.828,- 1 1.410,- 80 cm 5.152,-
12.636,- 14.670,- 90 cm 5.796,-
16.848,- 1 9.560,- 110 cm 7.084,-
22.464,- 26.080,- 1 60 cm 10.304,-
ells
ess
ViS útbúum aS sjálfsögSu dýnuver og klæSum meS áklæði af lager eSa
tillögSu efni. Bjóðum einnig upp á hundruö mismunandi áklæða með
pöntunarjojónusfu okkar. inTU INN OG KYNNTU ÞÉR ÚRVAUÐ.
LYSTADUN-SNÆLAND hf
Skútuvogi 11, símar 814655 og 685588.
Sendum í póstkröfu um land allt
FEIN
ski ufvólín sein
er soi höiuiud
fyi ir (jifsvoc)€)i
SUh>3 > lOlbytjnt • W.9MI M IStgll II17