Morgunblaðið - 17.03.1992, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1992
17
SIF g’agiirýnir utanríkisráðuneytið fyrir að virða ekki eigin reglur:
Utflutningur annarra
leiðir til verðlækkunar
STJÓRN Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda (SÍF) samþykkti í
gær ályktun þar sem utanríkisráðuneytið er gagnrýnt fyrir að virða
ekki eigin reglur um bann við útflutningi annarra en SIF á saltfiski
til Evrópulanda. Telja saltfiskframleiðendur að sú óvissa sem fjölgun
útflytjenda skapi á mörkuðum erlendis Ieiði til birgðasöfnunar og beinn-
ar verðlækkunar. Aðstoðarmaður utanríkisráðherra neitar því að ráðu-
neytið bijóti eigin reglur. Hann segir að verðlækkun geti ekki stafað
af útflutningi annarra héðan, því þeir skili hærra verði en SÍF.
í ályktun SÍF segir að í apríl 1991
hafi utanríkisráðherra fallist á sjón-
armið fiskframleiðenda og sett reglur
sem bönnuðu öllum öðrum en SÍF
útflutning á saltfiski til Evrópulanda.
Reynslan sýnir að ráðuneytið virðir
ekki eigin reglur og hefur veitt tak-
mörkuðum fjölda útvaldra aðila út-
flutningsleyfí og eru afleiðingar þess
nú að koma í ljós á helstu saltfisk-
mörkuðum íslendinga, segir í álykt-
uninni. Þar segir einnig: „Erlendir
kaupendur eru tregir að birgja sig
upp af fiski vegna óvissu um þær
leikreglur sem gilda og væntinga um
verðlækkun í kjölfar fjölgunar selj-
enda á íslenskum saltfiski. Afleiðing-
arnar verða í fyrsta lagi vaxandi
birgðasöfnún hjá framleiðendum,
sem mun valda þeim og þjóðarbúinu
ómældu tjóni, í öðru lagi bein verð-
lækkun sem nemur mörg hundruð
milljónum króna og í þriðja lagi ótt-
ast framleiðendur einnig, að þetta
geti leitt til samdráttar í atvinnu í
þeim fjölmörgu sjávarplássum sem
byggja afkomu sína á saltfiskverk-
un.“ Stjórn SÍF segir að til þess að
stöðva þessa óheillaþróun verði
stjórnvöld þegar í stað að afturkalla
öll útflutningsleyfi og lýsa því yfir
að framleiðendur innan SÍF muni
halda sérleyfi sínu á útflutningi salt-
fiskafurða til Evrópu.
Það sem af er þessu ári hafa aðr-
ir en SÍF flutt út rúmlega 1400 tonn
af saltfiskafurðum, auk 650 tonna
af ferskum afurðum, aðallega flött-
um fiski. Sigurður Haraldsson, að-
stoðarframkvæmdastjóri SÍF, sagði
í samtali við Morgunblaðið í gær að
þó megnið af þessum físki væri í
fyrstunni fluttur út til Danmerkur,
Englands og Hollands endaði hann
á helstu mörkuðum SÍF, það er Port-
úgal, Spáni, Grikklandi og Ítalíu.
Tiltölulega fáir kaupendur væru í
þessum löndum og því væri þessi
fiskur boðinn aðilum sem SÍF væri
í viðskiptum við eða hefði ekki getað
sinnt vegna samdráttar í framleiðsl-
unni. Sigurður sagði að geyma þyrfti
stóran hluta af framleiðslunni yfir
sumarið vegna þess að aðalfram-
leiðslutímabilið 'væri í mars til maí
en sölutímabili frá september til
páska. Kaupendurnir hefðu hingað
til keypt fiskinn á framleiðslutíman-
um og annast birðahaldið en nú
væru þeir ekki tilbúnir til þess vegna
þess að ekki væri hægt að gefa þeim
ákveðin svör um hvaða fyrirkomulag
yrði á útflutningnum í haust. Því
yrðu framleiðendur að annast birgða-
haldið með tilheyrandi rýrnun og
kostnaði. Þeir hefðu ekki góðar að-
stæður til þess og því væri hætta á
að framleiðslan minnkaði. Sigurður
sagðist fínna fyrir þrýstingi á verð-
lækkun vegna þessarar stöðu, verð-
lækkun lægi í loftinu. Það gæti orð-
ið nauðvörn SÍF að lækka verðið til
að losna við birgðahaldið.
Félagsfundir SÍF hafa undanfarin
fjögur ár ályktað um sölumálin þar
sem skorað er á stjórnvöld að við-
halda sérleyfí SÍF til útflutnings. í
stjórnarsamþykktinni frá í gær kem-
ur fram að stjórnin mun leggja til
við félagsfund að félagið endurskoði
þessa afstöðu sína.
Þröstur Ólafsson aðstoðarmaður
utanríkisráðherra neitaði því í gær
að ráðuneytið væri að bijóta eigin
reglur. Aftur á móti hefði á sínum
tíma verið sagt að reynt yrði að beina
mönnum sem mest á Ameríkumark-
að, atorka manna yrði nýtt við mark-
aðsleit þar. Sagði Þröstur að við-
skiptin í heiminum hafi breyst og
þau hafi einnig verið að breytast hér
á landi. Aukin ásókn hefði verið í
útflutning á saltfíski og ráðuneytið
talið erfítt að segja alltaf nei.
Þröstur sagði að engin breyting
yrði í haust á sölumálum saltfisks,
það hefði alltaf legið fyrir að breyt-
ing yrði með gildistöku EES-samn-
inga en það yrði í fyrsta lagi 1. jan-
úar 1993.
Varðandi yfírvofandi verðlækkun
sagði Þröstur að skilaverð útflytj-
enda utan SÍF, en þar væri aðallega
um að ræða Heildverslun Jóns Ás-
björnssonar, væri svipað og hjá SÍF,
heldur hærra ef eitthvað væri. Ekki
væri hægt að kenna því um verð-
lækkun. Ekki væri hægt að kenna
ráðuneytinu um breytingar sem væru
að verða á mörkuðum, m.a. vegna
aukinnar samkeppni og undirboða
frá Norðmönnum.
AÐALFUNDUR
SJOVA-ALMENNRA
TRYGGINGA HF.
VERÐUR HALDINN
20. MARS 1992
AÐ HÓTEL SÖGU
Fundurinn verður í Súlnasal
og hefst kl. 15.30 síðdegis.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
samkvæmt 17. grein félagssamþykkta.
2. Tillaga um arðgreiðslur.
3. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
Aðgöngumiðar verða afhentir
á skrifstofu félagsins, Kringlunni 5,
frá 17. mars til kl. 12.00 á fundardag.
SJÓVÁ-ALMENNAR
KRINGLUNNI 5, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 91-692500
UUJJ J JJ UJJUUJJJiStU
FERÐASKRIFSTOFA GUÐWIUNDAR JÓNASSONAR HF.
Borgartúni 34, sími 683222
Frá Graz eru greiðar leiðir
til allra átta:
Um Austurríki, suður til Ítalíu, norður
il Þýskalands, vestur til Sviss og í austurátt t
Ungverjalands.
Ýmsir valmöguleikar á hótelum í Graz.£
Flug og bíl: Verð frá kr. 27.100,- . \
m.v. 2 í bíl. «//
Flug og hótel í 2 m. herb. kr. 29.700,-
r<W,
V\
Flugvallarskattur
kr. 1.250,-
Leitið nánari
upplýsinga.
&
Rútuferð Austurríki — Italía — Sviss
Verð kr. 88.500,- m.v. 2 í herb.
Óperuferð með Sigurði Björnssyni
Verð kr. 41.500.- m.v. 2 í herb.
Ferð: Salzburg — Graz.
Verð 35.500,- m.v. 2 í herb.