Morgunblaðið - 17.03.1992, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1992
RETTUR TIL HEIL-
BRIGÐISÞJÓNUSTU
••
eftir Orn Bjarnason
Endalok kommúnismans og
velferðarkerfisins?
Þeir atburðlr hafa nú gerzt, að
tæpum sjötíu og fimm árum eftir
rússnesku byltinguna eru Sovétrík-
in liðin undir lok. Kommúnisminn
ógnar ekki lengur hinum vestræna
heimi.
Því hefir verið haldið fram, að
óttinn við kapítalismann hafi knúið
sósíalismann til að auka frjáls-
ræði, og óttinn við sósíalismann
hafi knúið kapítalismann til að
auka jafnræði. í Vestur-Evrópu
hafi þannig verið gerð málamiðlun
sósíalisma og kapítalisma, sem
stuðli að endurskiptingu auðs inn-
an velferðarþjóðfélagsins (1). Hins
vegar hafi margir Bandaríkjamenn
stimplað sem kommúnisma opin-
berar ráðstafanir af þessu tagi og
afneitað þá samtímis þeim gildum
lýðræðisins, sem felst í félagslegu
réttlæti (2). Afleiðing þessa er
meðal annars sú, að um tuttugu
milljónir Bandaríkjamanna njóta
ekki sjúkratrygginga og aðrar tutt-
ugu hafa mjög lélegar tryggingar.
Þar blasir á hinn bóginn við önnur
þversögn: í markaðskerfínu vestra
er kostnaðurinn í heilbrigðisþjón-
ustunni miðaður við verga þjóðar-
framleiðslu hærri en í nokkru öðru
ríki. Samtímis er um það rætt í
Vestur-Evrópu, að kominn sé tími
til að endurskoða velferðarkerfið,
einnig af þeirri ástæðu að það sé
orðið of dýrt og gætir áhrifa þeirr-
ar hugmyndar hér á landi.
Fijálsar tryggingar —
skyldutryggingar?
Hinn 1. júní 1990 tók gildi tilskip-
un Evrópubandalagsins um frjálsar
tryggingar. Nú eigum við íslending-
ar kost á að gerast aðilar að póli-
tísku bandalagi sem forystumenn
Evrópubandalagsins samþykktu
vorið 1990, að stefnt skyldi að á
næsta ári. í því sambandi verður
að huga vel að því, hvaða áhrif til-
skipunin kann að hafa á heilbrigðis-
þjónustuna.
En hver er réttur okkar til heil-
brigðisþjónustu innan þeirra skyldu-
trygginga, sem nú gilda?
I lögum um almannatryggingar
frá 1946 (3) sagði, að íslenzkir rík-
isborgarar, sem dveljast hér á landi,
skyldu tryggðir samkvæmt lögunum
og njóta réttinda til bóta og
Tryggingastofnun ríkisins var falið
að vinna að því, í samráði og sam-
vinnu við heilbrigðisstjórnina, að
látin yrði í té skipuleg heilbrigðis-
þjónusta.
í stað síðamefndu ákvæðanna
kom eftirfarandi árið 1973 í lögum
um heilbrigðisþjónustu: „Allir lands-
menn skulu eiga kost á fullkomn-
ustu heilbrigðisþjónustu, sem á
BOLIR
Nýkomin sending af einlitum stuttermabolum
fyrir börn og fullorðna.
- Ódýrir.
- Margir litir.
- Tilvaldir til áprentunar.
ILlpn G.GUaAQnF
sími 20 000.
Ilmhverfisvænar
mm
jjjib0í bleiur passu best
Vegna þess að Libero bleiur eru T lago
og þær einu með teygju oð ofton og
réttu buxnalogi
bleiur eru óbleiktor
og ofnæmisprófaðar
NÝTT
Þær fóst nú einnig í stærðinni Maxi Plus
10-20 kg. Góð sem næturbleio
hverjum tíma er hægt að veita til
verndar andlegri, líkamlegri og
félagslegri heilbrigði. Heilbrigðis-
þjónustan tekur til hvers kyns
heilsugæzlu, heilbrigðiseftirlits,
lækningarannsókna, lækninga í
sjúkrahúsum og endurhæfingar-
starfs. Ráðherra heilbrigðis- og
tryggingamála sér um, að heilbrigð-
isþjónustan sé eins góð og þekking
og reynsla leyfir og í samræmi við
lög og reglugerðir." (4).
Evrópuráðið og sáttmálar þess
Fyrir þessa umræðu hefir mikla
þýðingu stofnun Evrópuráðsins (5)
og í framhaldi af því gerð sáttmál-
ans um verndun mannréttinda og
mannfrelsins frá árinu 1950 (6).
Félagsmálasáttmáli Evrópu var
síðan gerður árið 1961 (7). Þar er
greint frá ýmsum atriðum, sem
samningsaðilar telja sig bundna af,
svo sem rétt til heilsuverndar, rétt
til félagslegrar aðstoðar og læknis-
hjálpar, rétt til að njóta góðs af
félagslegri velferðarþjónustu, rétt
líkamlega eða andlega fatlaðra til
starfsþjálfunar, endurhæfingar og
endurheimtar félagslegrar aðstöðu
og að síðustu rétt til félagslegs ör-
yggis. í því sambandi segir meðal
annars, að samningsaðilar skuld-
bindi sig til að reyna smátt og smátt
að hefja almannatryggingamar á
hærra stig.
Við getum meira en við völdum
Hér þarf að huga að öðrum og
Örn Bjarnason
„Hátækni læknisfræð-
innar tekur sífellt til sín
meiri fjármuni og hún
veldur sífellt meiri
mannaþörf. Þetta leiðir
svo aftur af sér, að f or-
gangsröðunin verður
sífellt erfiðari.“
eigi ómerkari þáttum. Eitthvað
kostar þetta nú allt saman og sagt
hefir verið, að í heilbrigðisþjón-
ustunni gildi það, að við getum
meira en við völdum (8) eða með
öðrum orðum sagt, að alltaf skorti
frekari úrræði. Hátækni læknis-
fræðinnar tekur sífellt til sín meiri
fjármundi og hún veldur sífellt meiri
mannaþörf. Þetta leiðir svo aftur
af sér, að forgangsröðunin verður
sífellt erfiðari, en hugtakið felur í
sér að kostum er raðað eftir mikil-
vægi.
Danski læknirinn Henrik R. Wulff
■ ALMENNUR fundur í Gigtar-
félagi íslands lýsir yfir miklum
áhyggjum í tilefni fyrirhugaðra að-
gerða heilbrigðisyfirvalda varðandi
skerta fjárveitingu til sjúkrastofn-
ana á landinu. Ljóst er að þessar
ráðstafanir, ef þær ná fram að
ganga, munu bitna mjög hastarlega
á gigtarsjúklingum. Fundurinn
beinir þeim tilmælum til stjórnar
Gigtarfélags íslands, að hún mót-
mæli niðurskurði á sérhæfðri þjón-
ustu við gigtarsjúklinga og beiti sér
fyrir því að þeirri uppbyggingu, sem
verið hefur á síðustu árum, verði
fram haldið. A Norrænu gigtarári
vill stjóm Gigtarfélags Islands
árétta, að gigtarsjúklingar eru
stærsti sjúklingahópurinn í þjóðfé-
laginu og gigtarsjúkdómar kostnað-
arsamastir. Lækning gigtarsjúkl-
inga er því arðbærasta fjárfesting í
heilbrigðismálum.
(Fréttatilkynning)
KJTF.L IglAND
NÆSTU
HELGI:
FÖSTUDAGS- 0G
LAUGARDAGSKVÖLD
THE PLATTERS
Missið ekki af þessu einstaka tækifæri
til að sjá og heyra í hinum stórkostlegu
The Platters. Hver man ekki eftir lögum
eins og The Great Pretender, Only You,
Smoke Gets in Your Eyes, The Magic
Touch, Harbor Lights Enchanted, My
Prayer, Twilight Time, You'll never
Know, Red Sails in the Sunset,
Remember When.. o.fl.
Einnig: 27. 0G 28. NIARS 0G 3. og 4. APRÍL
Hljómsveitin
STJÓRNIN
leikur
fyrir
dansi.
Sýningar á
heimsmælikvarða
á Hótel íslandi
ImfeLMD
heldur því fram „að á Norðurlöndum
sé heilbrigðiskerfi byggt á samfé-
lagssáttmála og að einnig sé fyrir
hendi skilmerkileg ósk um gagn-
kvæma samheldni, til dæmis þegar
um sjúkdómsmeðferð er að ræða“
(9). Enginn stjómmálaflokkur hefir
lýst því yfir, að hann sé andvígur
opinbera heilbrigðiskerfinu og Wulff
segir, að menn „taki því sém sjálf-
gefnu, að mikilvægur borgari og
allendis óþekktur einstaklingur eigi
að fá sama lyfið og að sama aðgerð
verði gerð á þeim, séu þeir með
sama sjúkdóminn."
Samúð og markaðsöfl
Fyrr var minnst á hugsanleg áhrif
fijálsra trygginga. Við þurfum að
geta treyst því, að í þeim ríki sú
samúð, sem felst í orðum Adams
Smiths, að maðurinn sé frá náttúr-
unnar hendi búinn þeim eiginleikum,
sem eins og hulin hönd leiði ein-
staklingana til þess að vinna að al-
mannahag, þó að þeir leitist ein-
göngu við að tryggja eigin ábata.
Séu þessar forsendur fyrir hendi,
verður okkur auðvelt að virða þá
samninga, sem við höfum gert hvert
við annað og við getum búið svo
um hnútana, að allir séu tryggðir
og að virtur sé jafn réttur allra
manna til heilbrigðisþjónustu.
Tilvitnanir: 1. Will og Aricl Durant. f
ijósi sögunnar. Heykjavík: Bókaútgáfa
Menningarsjóðs 1985, síðum 19-20 og
75-76. Björn Jónsson þýddí. Sjá: The Les-
sons of History. New York: Simon &
Schuster 1968.
2 Alexander Kaplan. The New Worid
of Philosophy. New York: Vintage Books
1961, siðu 166.
3. Lög um almannatryggingar nr. 50,
7. mai 1946.
4. Lög um heilbrigðisþjónustu númer
56/1973 og 57/1978. Núgildandi lög eru
nr. 59/1983 (samanber breytingar nr.
110/1984, 108/1985, 84/1986 og 5/1988].
5. Auglýsingar um þátttöku íslands í
Evrópuráðinu nr. 74,10. marz 1950. Sljórn-
artíðindi C 1950 bls. 163. Fylgiskjal, Stofn-
skrá Evrópuráðsins.
6. Sjá auglýsingu um fullgildingu Evr-
ópusamnings um veradun mannréttinda
og mannfrelsis nr. 11, 9. febrúar 1954.
Sljónuirtiðindi A 1954 bls. 7. Fylgiskjal:
Samningur um veradun mannréttinda og
mannfrelsis. c
7. Sjá auglýsingu um aðild að Félagsmál-
asáttmála Evrópu nr. 3, 22. janúar 1976.
Stjórnartíðindi C 1976 bls. 1-2. Fylgiskjal:
Félagsmálasáttmáli Evrápu.
8. Povl Riis. „Við getum meira en við
völdum." Siðferðileg vandamál og val-
þröng tengd niðuijöfnuninni í heilbrigðis-
þjónustunni. Læknablaðið 1991; 77:325-7.
9. Henrik R. Wulff. Siðfræði á samfélags-
stigi. Læknablaðið 1990; 76:124-30.
Höfundur er læknir.
Kaupsel h(.
Heildverslun, sími 27770.
Miðasala og borðapantnanir í sima 687111
Ný gerð bamabílstóla
* Fýrir börn frá fæðingu
til 5 ára aldurs.
* Þægilegar 5 punkta fest-
ingar með axlapúðum.
* Stillanlegur.
* Stólnum má snúa með
bakið fram (->9kg.) eða
aftur (9-18kg.).
* Má hafa frístandandi.
* Vasi á hlið, fyrir leikföng
eða annað.
* Auðvelt að taka áklæðið
af og þvo það.
* Viðurkenndur.
* Verð kr. 9.997 -
Borgartúnl 26
Sími: (91) 62 22 62
Mynds.:(91) 62 22 03