Morgunblaðið - 17.03.1992, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1992
25
Tvær aukasýningar
hjá Sioux-indíánum
ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna til tveggja aukasýninga á Pow-
Wow hátíð Sioux-indíána vegna mikiliar eftirspurnar á áður aug-
lýstar sýningar í Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu næstkom-
andi sunnudag. Fyrri sýningin verður í íþróttahúsi Fjölbrautaskól-
ans í Breiðholti við Austurberg, mánudaginn 23. mars kl. 20.30
en sú seinni í íþróttahúsi Selljarnarness við Suðurströnd þriðjudag-
inn 24. mars kl. 20.30.
Guðlaugur Bergmann, einn að-
standenda sýningarinnar, sagði að
korthöfum í Borgarleikhúsinu
hefði verið boðinn forkaupsréttur
miða á sýninguna í Borgarleikhús-
inu. „Viðtökurnar voru merkilega
góðar. Símkerfíð í Borgarleikhús-
inu sprakk gjörsamlega á laugar-
daginn og uppselt varð á sýning-
una. Einhveijir miðar voru enn
eftir á sýninguna í Þjóðleikhúsinu,
en vegna mikillar eftirspurnar var
ákveðið að efna til tveggja auka-
sýninga í íþróttahúsi Fjölbrautar-
skólans í Breiðholti á mánudag og
íþróttahúsi Seltjarnamess ' á
þriðjudag," sagði Guðlaugur en í
samtalinu kom fram að hluti miða
á aukasýningarinnar væri ætlaður
framhaldsskólanemendum.
Skýringuna á mikilum áhuga
fólks á sýningum hópsins rekur
Guðlaugur til lífsspeki indíánanna.
„Indíánarnir eru þeirrar skoðunar
að landið sé ekki þeirra eign. Þeir
verði að lifa með landinu og bera
virðingu fyrir því. Þessum hugsun-
arhætti hefur aukist fylgi á síð-
ustu árum ekki síst hérna á ís-
landi. Við erum að gera okkur
grein fyrir því að við megum ekki
ofbjóða landinu," segir Guðlaugur.
„Að þessu leyti erum við banda-
menn indíánanna og finnum til
■ samsvörunar með þeim.“
Guðlaugur segist afar ánægður
með móttökur indíánanna hér á
landi en í heimalandi sínu séu
* þeir undirokaðir. Hópurinn, sem
' samanstendur af 15-20 manns,
, mun meðal annars þiggja boð Vijg-
dísar Finnbogadóttur, forseta Is-
' lands, á mánudag. Sýningar indí-
ánanna byggjast upp á dans, söng
og menningarkynningu. Miðar eru
seldir í versluninni Betra líf við
Laugaveg.
Sýning á listaverkagjöf Finns
Jónssonar í Listasafni Islands
I Listasafni íslands hefur verið opnuð sýning á úrvali verka úr
listaverkagjöf Finns Jónssonar listmálara og Guðnýjar Elíasdóttur
konu hans til safnsins. Meðal viðstaddra við opnunina var frú
Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands. Þijú meginstef í list Finns
eru á sýningunni, abstraktmyndir frá þriðja áratugnum auk yngri
verka, expressjónískar mannamyndir og landslagsmyndir en gjöf
listamannsins til safnsins spannar allan listferil hans frá árinu
1907 til ársins 1987.1nnfelda myndin er af Beru Nordal forstöðu-
maður Listasafns íslands, við opnun sýningarinnar
Morgu nblaðið/KG A
Aðalfundur
Kvenréttinda-
félags Islands
AÐALFUNDUR Kvenréttindafé-
lags íslands verður haldinn
fimmtudaginn 19. mars nk. kl.
17.00 í Bríetarsalnum (í kjallara)
á Hallveigarstöðum, Túngötu 14.
Dagskrá er samkvæmt lögum fé-
lagsins um aðalfund. Að þessu sinni
verður kosinn nýr formaður þar sem
Guðrún Árnadóttir hefur ákveðið að
segja af sér formennsku. Þá verða
kosnir fulltrúar til setu á landsfundi
félagsins sem haldinn verður 24.-26.
september nk.
Styrktarfélag Islensku óperunnar;
Tónleikar Sigrún-
ar Hjálmtýsdóttur
SIGRÚN Hjálmtýsdóttir heldur söngtóulcika á vegum Styrktarfélags
íslensku óperunnar í Óperunni á þriðjudagskvöld kl. 20.30. Anna Guðný
Guðmundsdóttir leikur með á píanó. Á efnisskrá tónleikanna verða
sönglög eftir ítölsk tónskáld og aríur úr óperum eftir Arne, Puccini,
Verdi, Donizctti, Rossini og Johann Strauss.
Þetta verða fyrstu einsöngstón-
leikar Sigrúnar í Reykjavík. Hún hóf
söngferil sinn með Spilverki þjóðanna
og söng með því á fjölmörgum hljóm-
plötum. Hún stundaði fyrst söngnám
við Tónlistarskólann í Reykjavik, en
hélt síðan til Lundúna til frekara
náms við Guildhall School of Music
and Drama og lauk þaðan prófi í
einsöng og kennslu. Að því loknu
stundaði hún framhaldsnám á Ítalíu,
þar sem hún tók þátt í söngkeppnum
og vann til verðlauna.
Sigrún hefur víða komið fram sem
einsöngvari m.a. með Sinfóníuhljóm-
sveit Islands, íslensku hljómsveit-
inni, í óratóríum, messum og á tón-
leikum með kórum. í febrúar sl. söng
hún á hátíðartónleikum í óperunni í
Vilnius í Litháen við undirleik sin-
fóníuhljómsveitarinnar í borginni.
Á síðustu árum hefur Sigrún kom-
ið fram í mörgum óperum; hún hefur
sungið hlutverk Olympíu í Ævintýr-
um Hoffmanns, Súsönnu í Brúðkaupi
Fígarós, Gildu í Rigoletto, Papagenu
Sigrún Hjálmtýsdóttir
og næturdrottninguna í Töfraflaut-
unni og sópranhlutverkið í Carmina
Burana.
Anna Guðný Guðmundsdóttir lauk
burtfarai'prófi frá Tónlistarskólanum
í Reykjavík árið 1979 og stundaði
síðan framhaldsnám við Guildhall
School of Music í London. Hún hefur
spilað bæði á tónleikum víða um land
og í útvarpi og sjónvarpi.
Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ:
Ekkert fyrirtæki á yfir
2% af veiðiheimildunum
KRISTJÁN Ragnarsson, formaður Landssambands íslenskra útvegs-
manna, segir að í dag sé ekki þörf á að setja reglur um að fyrirtæki
sem ráði aflaheimildum yfir tilteknu marki séu rekin sem opin almenn-
ingshlutafélög þar sem ekkert fyrirtæki á íslandi eigi það stóran hluta
af veiðiheimildunum. Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra, lýsti
því yfir ráðstefnu um framtíð sjávarútvegs á Akureyri sl. laugardag
að nauðsynlegt gæti verið að setja slíkar reglur.
„í dag getur þetta ekki talist mik-
ið mál þar sem ekkert fyrirtæki á
íslandi á 2% af veiðiheimildunum,"
segir Kristján. „Síðan er líka til þess
að líta að þessi stærstu fyrirtæki sem
hafa verið að kaupa til sín veiðiheim-
ildir hafa á sarna tíma verið að opna
sig fyrir almenningi, til dæmis
Grandi, ÚA, Skagstrendingur og
Síldarvinnslan," segir Kristján.
Hann segir að sjái menn ástæðu
til og óttist að setja þurfí slíkar regl-
ur til að tryggja valddreifingu í fram-
tíðinni sé hann ekki andvígur því.
„Ég sé ekki heldur að það sé neitt
fyrirtæki í dag með svo takmarkaða
eignaraðild að þörf sé á að setja regl-
ur um hámarkseign einstaklinga en
ef menn aftur telja að þetta sé leið
til að skapa frið um þetta mál þá tel
ég að sjálfsagt sé að huga að þessu,“
segir Kristján.
Civic hefur verið endurhannaður með
nýjar kröfur samtímans í huga. Nútímabílar
þurfa að vera kraftmiklir og þægilegir, en
jafnframt taka tillit til umhverfisins.
Efnin sem notuð eru í Civic eru 80%
j| endurvinnanleg sem hefur mikið að segja
* þegar horft er til framtíðarinnar. VTEC er
X nýjung í Civic sem opnar ventlana í
•I hlutfalli við snúningshraða vélarinnar.
ÞeSsi tækni dregur mjög úr mengun og
eyðslu en eykur kraft vélarinnar.
Civic er búinn skemmtilegum innrétt-
ingum. Hver hlutur er á hinum eina rétta
stað. Sætin eru mjúk og þægileg.
Til sýnis núna að Vatnagörðum 24,
mánudaga til föstudaga kl. 9:00 - 18:00 og
laugardaga kl. 11:00 - 15:00.
Nánari upplýsingar í síma 68 99 00
Verð frá: 969.000,- stgr.
Greiðslukjör við allra hæn.
ŒD
HONDA